Morgunblaðið - 06.06.1998, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
LANDIÐ
Annasamt hjá
lögreg'lunni á
Sauðárkróki
ÓHAPP varð við Sauðárkrókshöfn
kl. 3 aðfaranótt sunnudags þegar
leiguskipið Mint Rapid á vegum
Samskipa sigldi að bryggju og rak
stefnið í stálþil bryggjunnar með
þeim afleiðingum að plötur á þilinu
rifnuðu og slitnuðu frá steyptum
bryggjukanti.. Er tjónið á bryggj-
unni nokkurt, en skipið er talið
óskemmt, og hélt það áfram ferð
sinni uppúr hádegi á sunnudag.
Kl. rúmlega 5 þessa sömu nótt
varð umferðaróhapp, þegar öku-
maður, sem grunaður er um ölvun
við akstur, ók á tengivagn sem stóð
vestan Strandvegar á móts við Að-
algötu 24. Við áreksturinn snerist
tengivagninn í meira en hálfhring
og flettist vinstri hliðin nánast af
bifreiðinni sem er af gerðinni MMC
Galant. Er bifreiðin talin gjörónýt,
enda þurfti tækjabíl slökkviliðs til
að ná ökumanninum úr flakinu, og
var hann fluttur á Sjúkrahús Skag-
firðinga, en talinn hafa sloppið
hreint ótrúlega vel frá tiltækinu.
Kl. 10 á sunnudag var Flugbjörg-
unarsveitin í Varmahlíð ræst út til
leitar að tveim mönnum sem farið
höfðu um nóttina til fjalla til aðstoð-
ar þriggja manna sem voru í erfið-
leikum með bilaða vélsleða. Tví-
menningarnir villtust og urðu að
ganga af farartækjum sínum, en
náðu þó að láta vita hvar þeir voru.
Um sama leyti fréttist af hinum
þrem í Berglandsskála við Urriða-
vötn á Nýjabæjarafrétti. Var það
ráð tekið að kalla til þyrlu Land-
helgisgæslunnar og sótti hún menn-
ina alla fímm, þrjá í Berglands-
skála, en hina tvo í norðanverðan
Torfnahnjúk, þar sem þeir voru
orðnir blautir og þrekaðir og flutti
þá alla niður í Eyjafjörð, að Hóls-
gerði, þar sem félagar úr Flug-
björgunarsveitinni í Varmahlíð tóku
á móti þeim og fluttu til síns heima.
Húsgagna-
verslun opnuð
á Selfossi
Selfossi - Reynisstaðir heitir ný
húsgagnaverslun sem opnuð var á
Selfossi nýverið. Verslunin sem er
sú eina sinnar tegundar á Arborg-
arsvæðinu ber nafnið Reynisstaðir
og er til húsa að Austurvegi 56, þar
sem áður var Byggingavöruverslun
Steinars Arnasonar.
Eigendur verslunarinnar eru þau
Geir Sigurðsson og Helga Gísla-
dóttir en þau reka húsgagnaverslun
með sama nafni í Vestmannaeyjum.
Húsnæði verslunarinnar á Selfossi
er 300 m2 að stærð og bíður upp á
mikla möguleika til stækkunar.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
Ilaraldur Gestsson verslunar-
sljóri og Sólrún Ragnarsdóttir
starfsmaður í nýrri húsgagna-
verslun á Selfossi.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Á HJÓLABÁT Mýrdælinga á leið í brúðkaupið.
Brúðkaup í Reynisfjöru
Fagradal - Brúðkaupsgestir vissu
ekkert hvað beið þeirra þegar
þeim var boðið í brúðkaup þeirra
Susanne Götzinger og Einars
Steinssonar. Á boðskortinu stóð
aðeins að mæta ætti við Víkur-
skála.
Þegar þangað kom beið hjóla-
skip Mýrdælinga albúið til sigl-
inga. Gestirnir voru alls óviðbúnir,
sumir mættu á stuttpilsum og
bandaskóm en þó létu flestir sig
hafa það að sigla með enda var
Gísli Daníel Reynisson skipstjóri
tilbúinn með galla á fólkið. Siglt
var eins og leið liggur út í Reynis-
fjöru og tekið land við Hálsanefs-
helli sunnan undir Reynisfjalli þar
sem Haraldur Kristjánsson, sókn-
arprestur Mýrdælinga, beið eftir
brúðhjónunum.
Brúðurin skellti sér í brúðar-
dressið og voru þau gift með söng
öldunnar í bakgrunni. Að athöfn
lokinni var haldið aftur til Víkur
með bátnum og beið rúta frá Vest-
HARALDUR Kristjánsson, sóknarprestur í Vík, gaf brúðhjónin, Einar
Steinsson og Susanne Götzinger, saman í Hálsanefshelli sunnan undir
Reynisfjalli í Mýrdal.
fjarðaleið gestanna en Einar er brunað til Hótels Höfðabrekku
bflstjóri og Susanne leiðsögumað- þar sem glæsilegt veisluborð beið
ur hjá því fyrirtæki. Síðan var gestanna.
Morgunblaðið/Lára Vilbergsdóttir
FRÁ stofnfundi Eiðavina.
Samtök Eiðavina stofnuð
Egilsstöðum - Áhugafólk um vernd-
un menntaseturs á Eiðum blés til
fundar sem lauk með því að stofnuð
voru Samtökin Eiðavinir, en hefð-
bundið skólahald hefur verið lagt
niður á staðnum.
Tilgangur samtakanna er m.a. að
afla stuðnings ríkis, sveitarfélaga og
frjálsra félagasamtaka við endur-
reisn menntaseturs á Eiðum og al-
hliða menningarstarf á staðnum.
Ennfremur að kynna náttúrufar og
sögu staðarins, gögn og gæði, með
útgáfu bæklings. Stuðla að fegrun
og vemdun umhverfis og sögulegra
minja á staðnum. Gefa reglulega út
fréttabréf og halda Eiðamót.
Sendir voru út undirskriftalistar
og hafa þegar á fjórða hundrað
manns gerst Eiðavinir. Milli 40 og
50 manns mættu á stofnfundinn.
Fundurinn ályktaði að gerð verði 5
ára áætlun um viðhald og endur-
bætur á menntasetrinu, samið verði
við heimaaðila um rekstur menning-
ar-, félags- og atvinnulífs á staðnum
og að leitað verði allra leiða til þess
að fínna Eiðastað hlutverk í anda
þess sem var. í aðalstjórn Eiðavina
voru kosin: Sigrún Björgvinsdóttir,
Sigrún Harðardóttir, Kristján Giss-
urarson og Björn Ágústsson.
*>«'
RÆSTIVAGNAR
IBESTAI
Urvalið er hjá okkur
Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur
Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001
Ráðstefna um gildi upp-
lýsingatækni í rekstri
Húsavík - Ráðstefna var haldin um
síðustu helgi á Hótel Húsavík um
gildi upplýsingatækni í rekstri.
Þjóðbraut framtíðarinnar. Ráð-
stefnan var fjölmenn og ríkti mikill
áhugi um þau þjóðþrifamál sem til
umræðu voru.
Ráðstefnustjóri var Arna Yrr
Sigurðardóttir, starfsmaður Verk-
menntaskólans á Akureyri. Ráð-
stefnan hófst með setningarávarpi
Einars Njálssonar bæjarstjóra og
ávarpi Halldórs Blöndal ráðherra.
Fyrsti frummælandi var Guð-
björg Sigurðardóttir, forsætisráðu-
neytinu, sem ræddi um stefnumót-
un ríldsstjómarinnar. Sæmundur
Þorsteinsson skýrði frá ATM-rann-
sóknameti Landssímans. Ingi Rún-
ar Eðvaldsson, Háskólanum á
Akureyri, ræddi um upplýsinga-
tækni og landsbyggðina. Haukur
Ágústsson ræddir um fjarkennslu
við VMA og Þórsteinn Gunnarsson
rektor um upplýsingatækni við Há-
skólann á Akureyri. Ennfremur
voru flutt framsöguerindi um breið-
bandið og nýja þjónustu í fjarskipt-
um, um framtíð hugbúnaðarfyrir-
tækja úti á landi og fjarvinnslu og
hugbúnaðarhús.
Að loknum framsöguerindum
voru líflegar pallborðsumræður um
„Framkvæmd til framtíðar" og
stjórnaði þeim Bjarni Kristinsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróunarfé-
lags Eyjafjarðar. Mikið var rætt um
framtíðina og mótun hennar, hver
sem hún nú annars kann að verða.
Minningar-
og duftreit-
ur á Höfn
Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjörnsdóttir
MÆÐINNI kastað við erfitt verk. Sveinn Siguijónsson, Kristján Ingi
Gunnarsson og Vignir Svavarsson við vinnu sína.
Hornafjörður - Nú standa yfír í
kirkjugarðinum við Hafnarkirkju
á Höfn breytingar og endurbæt-
ur. Vestasta hliðin á garðinum
verður eftir þessar breytingar
hlaðin úr gabbrói sem tekið var
úr Horninu við Hornaíjörð.
í hleðslunni miðri hefur verið
komið fyrir minningar- og
duftreit sem ekki hefur áður ver-
ið í Hafnarkirkjugarði. „Minning-
arreiturinn er til afnota fyrir alla
íbúa Hafnar, hvort sem hinn látni
hvflir annars staðar eða jarð-
neskar leifar hans hafa ekki
komið fram svo sem eftir sjóslys,
og það er einlæg von okkar að
fólk verði óhrætt við að nota sér
þessa aðstöðu," sagði séra Sig-
urður Kr. Sigurðsson, sóknar-
prestur Hafnarkirkju.
Starfsmenn Skrúðgarðaþjón-
ustunnar vinna verkið og eru
verklok áætluð í næstu viku.
Arkitekt að veggnum var Kjart-
an Mogensen.