Morgunblaðið - 06.06.1998, Síða 22
22 LAUGAKDAGUR 6. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
25-32% hlutabréfa í íslenskum aðalverktökum hf. boðin til sölu á haustmánuðum
Efímlmgur skertur með
útgreiðslu 800 milljóna
Morgunblaðið/Halldór
FYRSTI aðalfundur Islenskra aðalverktaka hf. var haldinn í gær.
GERT er ráð fyrir því að ríkið og
Landsbankinn selji 26-32% af hluta-
fé í Islenskum aðalverktökum hf. í
haust, eftir að félagið hefur verið
skráð á Verðbréfaþingi íslands.
Beinn og óbeinn eignarhlutur ríkis-
ins verður eftir það innan við helm-
ingur af heildarhlutafé félagsins. Að-
ur en til sölu kemur verður efnahag-
ur IAV hf. skertur með lækkun
hlutafjái' og útgreiðslu 800 milljóna
króna til hluthafa.
Fyrsti aðalfundur íslenski-a aðal-
verktaka hf. eftir að félaginu var
breytt úr sameignarfélagi í hlutafé-
Iag 1. júní sl. var haldinn í gær. Við
stofnun félagsins var því lýst yfir að
því yrði breytt í almenningshlutafé-
lag og í þeim tilgangi var liðlega 32%
eignarhlut Sameinaðra verktaka
dreift til eigenda þess félags. Fram
kom hjá Jóni Sveinssyni stjórnai-for-
manni að dregist hefði að fá skrán-
ingu á hlutabréfum félagsins á al-
mennum hlutabréfamai’kaði vegna
þess að félagið væri nýtt og uppfyllti
ekki skilyrði þingsins um að leggja
fram endurskoðaðan ársreikning
fyrir heilt eitt ár. Félagið var aðeins
með sjö mánaða rekstur á síðasta
ári. Taldi formaður líklegast að
skráning á vaxtarlista Verðbréfa-
þings íslands færi fram þegar end-
urskoðað uppgjör fyrir fyrstu sex
mánuði þessa árs lægi fyrir.
Hlutur ríkisins undir 50%
Fram kom í ræðu Jóns Sveinsson-
ar að gert væri ráð fyrir því að tiltek-
inn hluti af eign ríkisins og Regins hf.
(eignarhaldsfélags Landsbanka Is-
lands) kæmi til sölu í fyrsta áfanga
fljótlega eftir skráningu félagsins á
Verðbréfaþingi, það er að segjá á
haustmánuðum. Framhald sölunnar
hlyti síðan að ráðast af almennum
viðbrögðum við fyrsta áfanganum.
Gert er ráð fýrir því að starfsmönnum
gefist kostur á að kaupa tíltekinn hlut í fé-
laginu og að fyrirfram ákveðinn hluti
verði boðinn almenningi til kaups í
dreifðri sölu og með tílboðsfyrirkomulagi.
Skiptíng liggur ekki fyrir og unnið er að
verðmatí hlutabréfanna. Er þetta svipað
fyrirkomulag og var haft á sölu á hluta
eignar ríkisins í íslenska jámblendifélag-
inuhf.
Ríkið og Landsbankinn eiga nú
71’/2% íslenskra aðalverktaka. Að
þvi er stefnt að hlutur ríkisins, beinn
og óbeinn í gegn um bankann, kom-
ist niður fyrir 50% við þessa sölu.
Hlutafé lækkað um
800 milljónir
Fram kom í ræðu stjórnarfor-
manns að sérfræðingar hefðu fjallað
um það með stjóm félagsins hvemig
auðvelda mætti að vfrkur markaður
skapaðist með hluti í félaginu til
framtíðar og að almennum hluthöf-
um yrði gert sem auðveldast að
kaupa og selja hluti sína. „Eftir um-
fjöllun og umræður var af sérfræð-
ingum talið skynsamlegt að skerða
efnahag félagsins nokkuð með út-
borgun til hluthafa áður en til skrán-
ingar á Verðbréfamarkaði kæmi og
sölu á hlutum I félaginu á almennum
markaði í kjölfar skráningar," sagði
Jón.
Stjórn Islenskra aðalverktaka
ákvað því í fyrradag að boða til sér-
staks hluthafafundar síðar í þessum
mánuði til að afgreiða tillögu um að
hfutafé félagsins verði lækkað um
800 milljónir kr., úr 2.200 milljónum í
1.400 milljónir króna. Hefur stjórnin
tryggt sér stuðning ríkisins og Reg-
ins við þessi áform.
Jón lagði á það áherslu að þrátt
fyrir þessa lækkun hlutafjár upp-
fyllti félagið áfram markmið stofn-
enda um fjárhagslega sterkt og öfl-
ugt verktakafyrfrtæki. „Því er ekki
að neita að í umræðum um málið
hafa komið fram ólík sjónarmið um
lækkun hlutafjár og greiðslu til hlut-
hafa. Sumir hafa viljað ganga lengra
en tillaga stjórnar gerir ráð fyrir en
aðrir mun skemmra. Tillaga stjóm-
arinnar sem nú liggur fyrir fer von-
andi bil beggja og leiðir málið til
lykta með eðlilegum hætti jafníramt
því sem það er síðasta óvissuatriðið
sem eigendur þurfa að taka afstöðu
til áður en félagið getur sótt um
skráningu á Verðbréfaþingi ís-
lands,“ sagði hann.
Á aðalfundinum í gær var sam-
þykkt tillaga um greiðslu 7% arðs til
hluthafa, samtals 154 milljónir kr.
sem líklega er í krónum talið stærsta
íslenskir
aðalverk-
takarhf.
Hluthafalisti
5. júní 1998
Hlutafé (mill[.kr.) %
íslenska ríkið 1 .144,0 52,0%
Reginn 430,4 19,6%
íslenski hlutabréfasj. 16,9 0,8%
Ingólfur Finnbogason 15,8 0,7%
Jón Halldórsson 14,9 0,7%
Garðar Halldórsson 14,9 0,7%
Halldór Þ. Halldórsson 14,9 0,7%
Thelma Grímsdóttir 11,6 0,5%
Héðinn ehf. vélsmiðja 11,6 0,5%
Unnur Þorkelsdóttir 11,3 0,5%
Aðrir hluthafar (482) 513,8 23,4%
Heildarhlutafé 2.200,0 100%
arðgreiðsla íslensks hlutafélags.
Verði tillagan um lækkun hlutafjár
samþykkt mun félagið greiða hlut-
höfum út 954 milljónir kr. Ríkið fær
rúman helming í sinn hlut, eða 496
milljónir kr„ og Landsbankinn fær
186 milljónir í gegn um eignarhalds-
félagið Regin hf. Aðrir hluthafar,
sem nú eru 490 talsins eftir upp-
skiptingu Sameinaðra verktaka fá
samtals 270 milljónir kr., þeir
stærstu úr þeÚTa hópi fá greiddar
liðlega 7 milíjónfr.
Skilyrði um dreifða
eignaraðild
Aðalstarfsaðstaða Islenskra aðal-
verktaka hf. er á Keflavíkurflugvelli,
meðal annars skrifstofur félagsins.
Eftir að félaginu var breytt í hlutafé-
lag hefur áhersla þess á verktaka-
starfsemi utan varnai-svæðisins auk-
ist og vinnur það nú að fjölmörgum
stórverkum í nafni dótturfélaga,
meðal annars við byggingu Norður-
áls á Grundartanga, vöruskemmu
Þyrpingar hf. í Sundahöfn, virkjanir
og fleira. Fram kom hjá Jóni Sveins-
syni að í ljósi breyttra aðstæðna, það
er að segja aukinna útboða á Kefla-
víkurflugvelli og aukinna umsvifa
dótturfélaga utan vallar, hafi félagið
tekið þátt í viðræðum við varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins með hvaða hætti flytja mætti að-
alstarfsaðstöðu félagsins, húsakost,
vinnslustöðvar, tæki og tól, út fyrir
varnargirðingu. Stjórn ÍAV liti svo á
að slík breyting tryggi eðlilega sam-
keppnisstöðu fyrirtækisins til fram-
búðar. Meðal annars hafi komið til
skoðunar breytingar á gii’ðinu, ýmist
með eða án sérstakra breytinga á
varnarsvæðinu.
íslenskir aðalverktakar yfirtóku
starfsleyfi samnefnds sameignarfé-
lags til verktöku fyrir varnarliðið.
Fram kom hjá stjórnarformanninum
að utanríkisráðherra hefði lýst því
yfir að félaginu yrði áfram veitt til-
nefning til tiltekinna framkvæmda
fyrir varnarliðið og að gert væri ráð
fyrir að svo yrði til ársloka 2003, með
þeim fyrirvara að verktaka á vegum
bandaríska hersins yrði með svipuð-
um hætti og verið hafi síðustu ár.
„Allt hnígur í þá átt að til aukinna
útboða komi hvað varðar verktöku
innan varnarsvæða á nánast öllum
sviðum. Fyrirtækið hefur sett sér að
vera áfram til frambúðar sterkur
þátttakandi í verktöku á þessu sviði,
bæði áður og eftir að sérleyfi þess
rennur út.“
Gert er ráð fyrir því að utanríkis-
ráðherra tilgreini umræddan rétt fé-
lagsins formlega áður en til sölu
hlutabréfa kemur. Taldi Jón að bú-
ast mætti við að það yrði skilyrt, á
meðan félagið hefði sérréttindi til
verktöku á Keflavíkurflugvelli.
Nefndi hann í því sambandi þann
ásetning stærstu eigenda að stuðla
að dreifðri eignaraðild við sölu og
torvelda að hlutabréfin safnist á fáar
hendur. „Þannig kann tilnefning að
verða skilyrt eignadreifingu, t.d. að
einhver einn aðili (hluthafi) megi
ekki eiga meira en nemur 7% af
heildarhlutafé í félaginu á þessu
tímabili og jafnframt því að eigin-
fjárstaða félagsins verði ekki rýrð
með útborgunum meðan það hefur
[þennan rétt] og ber skyldur gagn-
vart íslenska ríkinu. Að öðrum kosti
geti rétturinn fallið niður,“ sagði Jón
Sveinsson í ræðu sinni á aðalfundin-
um í gær.
64% hlutur
í Agöthu
Christie
Ltd seldur
London. Reuters.
BREZKA matvörulyrirtækið
Booker Plc hefur selt 64% hlut
sinn í Agatha Christie Ltd,
ásamt nokkrum öðrum eign-
um, fyrir 10 milljónir punda.
Kaupandinn er Chorion Plc,
sem á Enid Blyton-vörumerk-
ið. Christie-fjölskyldan á 36% í
fyrirtækinu, sem kennt er við
hinn fræga reyfarahöfund.
Salan er liður í endurskipu-
lagningu hjá Booker, sem á að
bæta afkomu hluthafa. Fyrir-
tækið hefur birtingarrétt á
bókum hins kunna reyfarahöf-
undar og Agatha Christie Ltd
hefur verið í eigu þess síðan
fyrir 1970. Með sölunni á að
draga úr lánum.
Agatha Christie Ltd seldi
bækur fyrir 2,1 milljón punda
í fyrra og hagnaður fyrir
skatta nam 1,5 milljónum
punda.
Chorion ætlar að hleypa
nýju lífi í Christie-vörumerkið
um heim allan og hyggur á ný
átök á sviðum kvikmynda,
sjónvarps og söluvarnings.
Motorola
fækkar störf-
um um 15.000
Schaumburg, Illinois. Reuters.
MOTOROLA fyrirtækið hefur
ákveðið að fækka störfum um
15.000 á næstu tólf mánuðum
og verða uppsagnirnar liður í
endurskipulagningu, sem mun
kosta fyrirtækið tvo milljarða
dollara.
Þar að auki kann að verða
tap á rekstri fyrirtækisins á
öðrum ársfjórðungi vegna
minni eftirspurnar og verð-
þrýstings í heiminum, aðallega
í hálfleiðarageiranum. Aðalá-
stæðan er efnahagsástandið í
Asíu að sögn fyrirtækisins,
sem stendur framarlega á
sviðum hálfleiðara og fjar-
skipta.
Endurskipulagningin á að
leiða til meira en 750 milljóna
dollara sparnaðar á ári.
Fram hefur farið mat á við-
skiptafrumkvæði innan fyrir-
tækisins og störfum hefur
þegar verið fækkað í nokkrum
deildum. Nú á að flýta þessari
þróun vegna þess að spár fyrr
á þessu ári um aukna arðsemi
og sölu hafa ekki rætzt, segir
fyrirtælið.