Morgunblaðið - 06.06.1998, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1998 29
NEYTENDUR
Verðkönnun ASI, BSRB og Neytendasamtakanna á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum
Kjarval, Samkaup
og Hraðkaup lægst
Á SUÐURLANDI er verð lægst í
Kjarvali á Selfossi, á Vesturlandi er
hagstæðasta verðið í Hraðkaupi og
á Vestfjörðum i Samkaupum. Þetta
kemur fram í verðkönnun sem
starfsfólk samstarfsverkefnis ASI,
BSRB og Neytendasamtakanna
gerði á 83 algengum vörum í 22
matvöruverslunum á Suðurlandi,
sunnanverðu Vesturlandi, Vest-
fjörðum auk fimm verslana á höfuð-
borgarsvæðinu sem teknar voru til
samanburðar. Alls voru því 27
verslanir í könnuninni, en tvær
verslanir á Aki-anesi neituðu að
vera með.
KÁ 2% dýrari en Kjarval
Að sögn Birgis Guðmundssonar
verkefnisstjóra hjá samstarfsverk-
efni ASÍ, BSRB og NS er verðið á
Suðurlandi lægst í Kjarvali á Sel-
fossi sem er í eigu KÁ, en næst á
eftir kemur KÁ Selfossi sem er 2%
dýrari en Kjarval.
„Verðlag í KÁ Selfossi var borið
saman við aðra könnun sem gerð
var viku áður eða 20. maí og var
ekki hægt að merkja verðbreyting-
ar að undanskildum tómötum sem
kostuðu 698 kr. viku áður en kost-
uðu í þessari könnun 398 kr. kílóið.“
„Hraðkaup í Borgarnesi var með
lægsta verðið á sunnanverðu Vest-
urlandi miðað við þær verslanir sem
voru í könnuninni. Þó viljum við
vekja athygli á því að verslun Ein-
ars Ólafssonar og verslunin Traðar-
bakki sem eru báðar á Akranesi
neituðu að vera með í könnuninni.
Á Vestfjörðum er verð lægst. í
Samkaupum á Isafírði.
Lægra verð í Hraðkaupi
en Nýkaupi
Birgir bendir á að ef litið er til
stórmarkaða, keðjuverslana og
þeirra sem eiga í innkaupasamstarfí
er verð hagstæðast í Fjarðarkaup-
um og svo í Samkaupum en þessar
verslanir voru teknar til saman-
burðar. Þær voru einnig lægstar í
verðkönnun á höfuðborgarsvæðinu
viku áður.
„Næst á eftir koma Kjarval á Sel-
fossi og Hraðkaup í Borgarnesi en
athygli vekur að verð á flestum vör-
um er örlítið lægra í Hraðkaupi en
Hagkaupi í Grafarvogi sem nú heit-
ir Nýkaup, en Hagkaup rekur
Hraðkaup.
I þessum flokki verslana eru
einnig verslanir sem eru í keðjunni
Þinni verslun en mikill verðmunur
er milli þessara verslana eða sem
nemur 10%. Kaupgarður í Mjódd er
ódýrust af verslunum í Þinni versl-
un en hún var tekin til samanburðar
ásamt Breiðholtskjöri. Kaupgarður
í Mjódd er reyndar mjög stór versl-
un en athygli vekur að næst á eftir
henni eru Hverakaup í Hveragerði
sem er mjög lítil verslun.
Þá var Kaupfélag Steingi-íms-
fjarðar á Hólmavík einnig flokkað
með verslunum sem eiga í inn-
kaupasamstarfi þar sem það kaupir
inn með öðrum kaupfélögum.
Vöruval
með lægsta verðið
Alls voru sjö verslanir sem teljast
litlar sjálfstæðai' verslanir og þar af
voru fimm á Vestfjörðum. Verslan-
iraar utan Vestfjarða standa sig bet-
ur, en Vöruval í Vestmannaeyjum er
með hagstæðasta verðið af þessum
verslunum. Næst á eftir kemur
Grundaval á Akranesi. Yfir 10%
munur er á þessum verslunum og
þeim sem eru á Vestfjörðum. Af litl-
um verslunum á Vestfjörðum er
Metta á Tálknafirði með lægsta verð.
Munur á matvöruverði milli keðju-
verslana, stórmarkaða og verslana
sem eiga í innkaupasamstarfi
á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum verslanaíioo
_________Verslun___________
Fjarðarkaup, Hafnarfirði
Samkaup, Miðvangi, Hafnarf.
Kjarval, Selfossi
Hraðkaup, Borgarnesi
Hagkaup, Grafarv., Reykjavík
Samkaup, ísafirði
KÁ, Selfossi
Hlutfallslegur verðmunur
KÁ, Vík.
KÁ, Goðahr., Vestm.eyjum
KÁ, Hellu.
94,5
94.7
94.7
Kaupf. Borgfirðinga, Borganesi
KÁ,Tanganum, Vestm.eyjum
Kaupgarður, Mjódd, Reykjavík
Hverakaup, Hveragerði
Eló, Skeiði, ísafirði
95,0
95,1
95.6
96.6
100,1
Skagaver, Akranesi
Hornið, Selfossi
Breiðholtskjör, Reykjavík
Vöruval, Bolungarvík
Kaupf. Steingr. fj., Hólmavík
100,6
101,2
102.7
104.8
110,2
Litlar sjálfstæðar verslanir
Vðruval, Vestmannaeyjum
Grundarval, Akranesi
Metta, Tálknafirði
102,3
102,8
113,1
Sandafell, Þingeyri
Gunnar Sigurðsson, Þingeyri
Verslun Bjarna Eiríkssonar
Búðin okkar, Suðureyri
Nýtt
Morgunblaðið/Ásdís
Nýr ilmur
ÞRJÁR nýjar ilmtegundir af Ajax
hreingerningarlegi eni komnar á
markað. í fréttatilkynningu frá Ó.
Johnson & Kaaber hf. kemur fram
að bleikur lögur frá Ajax angi eins
og blómavöndur, sá gi'ætii ilmi eins
og vorblóm og sá appelsínuguli sem
sólblóm.
-------------
Sumarsvali
SÓL-Viking hf.
er að setja á
markað nýja teg-
und af Svala sem
heitir Sumar-
svali. Umræddur
di-ykkur verður
einungis á mark-
aðnum í sumar
en Sumarsvali er
appelsínudrykkur með léttu
apríkósubragði.
-------------
Islenskur
fatnaður
HEILDVERSLUNIN Sportís hef-
ur hafið samstarf við franska fata-
hönnuðinn
Marion Muslin
en hann hefur
m.a. unnið fyrir
tískuhús Kenzo
og Karl Lager-
feld. í fréttatil-
kynningu frá
Sportís segir að
sportfatnaður-
inn sem um er
að ræða verði seldur undir merk-
inu Iceblue en það er skrásett ís-
lenskt vörumerki.
Iceblue-fatnaðurinn fæst í versl-
unum víða um land.
Selja frosnar matvörur
Frönsku brauðin
eru vinsælust
KJÖTLAUSIR réttir segja þau að verði
æ vinsælli og nýlega hófu þau innflutning
á ýmsum vörum sem framleiddar eru að
stórum hluta úr „Myco próteinum".
í GLÆSIBÆ er verslun
sem heitir La Baguette og
selur frosnar matvörur frá
Frakklandi og Bretlandi.
Það eru Beatrice Guido og
John Sewell sem reka
verslunina en þar er til
dæmis hægt að fá ekta
franskt bakkelsi og brauð,
breskar kjötbökur og ýmsa
grænmetisrétti.
„Við byrjuðum fyrir
nokki-um árum að ílytja inn
til landsins brauð, kökur og
eftirrétti frá Frakklandi
sem ég þekkti vel,“ segir
Beatrice en hún er frönsk
og hefur búið hér á landi á annan
áratug. „Islendingar tóku mjög vel
við þessari nýjung og við höfum síð-
an verið að auka úrvalið af frystum
vörum smám saman. John er frá
Bretlandi og hann þekkir kjötbökur
mjög vel og við kaupum þær aðal-
lega frá fyrirtækinu Butcher and
Baker. Þá erum við líka með vörur
frá fyrirtæki sem heitir Iceland og
sérhæfir sig í frystivörum. Frá því
fyi'irtæki höfum við verið að flytja
inn frosið gi-ænmeti, tilbúna rétti og
kökur.
Við erum t.d. með kjúklingabök-
ur, svína- og nautakjötsbökur bæði í
einstaklingsskömmtum og síðan
fyrir nokkra. Þá hafa kartöflu-
króketturnar og gi'atíneruðu kart-
öflurnar verið vinsælar svo og fisk-
ur og franskar að breskum hætti.“
Kjötlausar bökur
Nýlega hófu Beatrice og John
innflutning á vörum frá breska fyr-
irtækinu Quorn sem framleiðir kjöt-
lausar matvörur eins og bökur,
hamborgara og pylsur. Fram til
þessa hafa þau selt kjötlausar bökur
frá fyrirtæki Lindu McCartney.
Þessar nýju vörur frá Quorn eru
aðallega framleiddar úr svokölluð-
BEATRICE Guido og John
Sewell sem reka verslunina La
Baguette í Glæsibæ.
um „Myco“ próteinum sem eru
sveppaprótein og Beatrice segir að
séu trefjarík og með lítið fituinni-
hald.
- En hvernig er verðið?
„Við seljum t.d. einstaklingsbök-
urnar á 65-200 krónur, 400 gramma
ostakaka kostar 435 krónur og fisk
og franskar fyrir tvo seljum við á
390 krónur."
Morgunblaðið/Golli
Rot-, safn-
og hreinsi-
hvati
FRIGG hf. hefur hafið fram-
leiðslu á rot-, safn- og hreinsi-
hvötum. í fréttatilkynningu frá
Frigg hf. kemur fram að
hreinsihvatinn sé umhverfis-
vænt efni sem brjóti niður líf-
rænan úrgang og eyði ólykt.
Hreinsihvatinn hentar því fyrir
ferða- og útisalerni og er sótt-
hreinsandi.
Rothvatinn er aftur á móti
blanda af örverum og lífhvöt-
um og hentar í rotþrær. Einnig
er rothvatinn notaður til að
losa stíflur í niðurfóllum og
fitugildrum.
Safnhvatinn er einnig blanda
af örverum og lífhvötum sem
eiga að geta brotið niður líf-
rænan úrgang og hjálpað til við
að breyta honum í mold. Safn-
hvati eyðir einnig ólykt í safn-
kössum.
20%
afsiáttur af KðluoKawdsaki titanium umgjörbum
dagana 4. til 7. júni
sérstök kynning ó it’s titanium'
Smáratorgi • Hamraborg 10