Morgunblaðið - 17.06.1998, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landlæknisembættið kynnir niðurstöður skoðanakönmmar
86% finnst að hækka eigi
framlög til heilbrigðismála
NIÐURSTÖÐUR skoðanakönnunar sem land-
læknisembættið kynnti í gær benda til að tæp-
lega 86% landsmanna finnist að auka eigi fram-
lög ríkisins til heilbrigðismála, 1% finnst að
ætti að minnka þau en 13% að þau ættu að vera
óbreytt. I könnuninni kemur einnig fram að
15% þeirra sem tóku afstöðu sögðust hafa þurft
að fresta för sinni eða hætta við að fara til
læknis á síðustu 12 mánuðum vegna fjárskorts.
Á það í meiri mæli við um konur og yngra fólk
og þá tekjulægstu. f hópi þeirra tekjulægstu
kváðust rúm 33% hafa þurft að fresta eða hætta
við för til læknis vegna fjárskorts. Einnig var
kannað hvort fólk hefði notað heilbrigðisþjón-
ustu og hvort það hefði verið ánægt með úr-
lausn á heilsuvanda sínum. Rúmlega 78% not-
uðu heilbrigðisþjónustuna á síðastliðnum 12
mánuðum og rösklega 79% þeirra sem notuðu
heilbrigðisþjónustuna voru ánægð með úrlausn
á vanda sínum.
Skoðanakönnunin var unnin fyrir Landiæknis-
embættið af Gallup í mars og apríl 1998 og eru
niðurstöður hennar kynntar í síðasta hefti
Læknablaðsins. Þátttakendur í könnuninni voru
1.132 af öllu landinu á aldrinum 18-75 ára og voru
þeir valdir með tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá.
Of margir fara ekki til læknis
vegna fjárskorts
Ólafur Ólafsson landlæknir sagði könnunina
gerða til að kanna hvort heilbrigðisþjónustan
stæði undir væntingum almennings. Hvatinn að
könnuninni hafi verið kvartanir sem þeir hafi
fengið um að aðgengi að heilbrigðisþjónustunni
sé verra en áður. Sambærilegar kannanir hafi
verið gerðar 1996 og 1997. Árin 1985, 1990 og
1995 hafi embættið einnig látið gera kannanir
en ekki eins ítarlegar og þær sem gerðar hafa
verið síðustu þrjú ár. Olafur sagði breytingar
sjáanlegar á svörum tekjulægsta hópsins, þeirra
sem hafi mánaðartekjur undir 100.000 krónum.
Þeim hafi fjölgað frá fyrri könnunum sem svör-
uðu því játandi að fjárskortur hafi staðið í vegi
fyrir því að þeir leituðu til læknis.
Haraldur Briem, smitsjúkdómalæknir hjá
landlæknisembættinu, sagði að túlka mætti nið-
urstöðumar sem svo að skilningur sé meðal al-
mennings á því að heilbrigðisþjónustan eigi í
fjárhagsvanda og að það þurfi að bæta.
Niðurstöður voru greindar eftir aldri, kyni,
búsetu, tekjum og starfi. Konum fannst í meira
mæli en körlum að hækka ætti framlögin, hlut-
fallið fer lækkandi með auknum fjölskyldutekj-
um og er hæst í elsta hópnum, 55-75 ára. Konur
virðast nota heilbrigðisþjónustuna meira en
karlar. 84,4% þeirra sögðust hafa notað hana
síðastliðna 12 mánuði en 72,5% karla.
Ólafur sagði einnig ánægjulegt að fólk virðist
almennt ánægt með þær úrlausnir sem það fær
á heilsuvanda sínum en 79% sögðust ánægð.
Það sé hins vegar full ástæða til að huga að því
að 20% eru ekki ánægð með þjónustuna og það
þurfi að skoða.
Magnús Baldursson, deildarstjóri hjá land-
læknisembættinu, sagði niðurstöðumar vekja
þær spumingar hvort verið geti að tekjur og
staða hafi áhrif á það hvort fólk hafi efni á því að
leita til heilbrigðisþjónustunnar og hvort það sé
ánægt með þá þjónustu sem það fær.
Forseti borgarstj órnar Reykjavíkur
Guðrún fær eitt ár en
Helgi Hjörvar þrjú
GUÐRÚN Ágústsdóttir verður for-
seti borgarstjómar Reykjavíkur
fyrsta ár kjörtímabilsins en Helgi
Hjörvar tekur þá við embættinu og
gegnir því til loka kjörtímabilsins.
Þetta var niðurstaða borgarstjóm-
arflokks Reykjavíkurlistans á fundi
í gærkvöldi, að sögn Helga Hjörv-
ars.
Formenn nefnda og ráða
Helgi tekur einnig sæti Guðrún-
ar í borgarráði Reykjavíkur og sit-
ur þar ásamt Sigrúnu Magnúsdótt-
ur og Steinunni V. Óskarsdóttur.
Borgarstjórnarflokkur Reykja-
víkurlistans ákvað einnig í gær
hverjir skyldu verða formenn
nefnda og ráða borgarinnar. Helgi
Hjörvar verður formaður félags-
málaráðs, Guðrún Ágústsdóttir
formaður skipulagsnefndar, Árni
Þór Sigurðsson formaður hafnar-
stjórnar, Alfreð Þorsteinsson for-
maður veitustofnana og Innkaupa-
stofnunar borgarinnar, Sigrún
Magnúsdóttir formaður fræðslu-
ráðs, varaformaður borgamáðs og
formaður borgarstjórnarflokks
Reykjavíkurlistans, Óskar Bergs-
son formaður bygginganefndar,
Kristín Blöndal formaður Dagvist-
ar barna, Steinunn V. Óskarsdótt-
ir formaður Iþrótta- og tóm-
stundaráðs, Pétur Jónsson for-
maður atvinnu- og ferðamála-
nefndar og Helgi Pétursson for-
maður stjómar SVR, umhverfis-
og heilbrigðisnefndar og sam-
starfsnefndar Reykjavíkur og
Kjalamess.
Helgi sagði að Guðrún Ágústs-
dóttir mundi stýra samstarfsnefnd
í Grafarvogi og sjálfur kvaðst hann
mundu fá formennsku í nefnd sem
sett verður á laggimar innan
skamms en hann kvaðst ekki geta
greint frá að svo stöddu hver yrði.
Komnir hringinn
SLOKKVILIÐSMENNIRNIR
sex, sem hjóla til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum, enduðu
hringferðina við Slökkvistöðina í
Skógarhlíð um hálfþrjúleytið í
gær. Við Rauðavatn biðu þeirra
fulltrúar frá Styrktarsjóði krabba-
meinssjúkra barna, slökkviliðs-
menn, vinir og ættingjar. Þaðan
hjóluðu sumir með þeim síðasta
spölinn.
Sexmenningarnir voru ánægðir
með ferðina og sögðu hana hafa
gengið vel í alla staði. Móttökur um
allt land hefðu verið frábærar og í
ljósi þeirrar vinsemdar sem þeir
hefðu mætt væru þeir bjartsýnir á
heimtur úr áheitasöfriuninni.
Ferðalagið hófst 5. júní og vora
þeir fegnir að koma heim, sem von-
legt var, þar sem þeir hjóluðu allir
allan hringinn.
Morgunblaðið/Elín Pálmadóttir
Bandarískt
viðskiptatímarit
Kári Stefáns-
son meðal
frumkvöðla
ársins
KÁRI Stefánsson, forstjóri íslenskr-
ar erfðagreiningar, er í hópi þeirra
tíu manna sem bandaríska fjárfest-
ingartímaritið Red Herring hefur
valið frumkvöðla ársins.
„Það eru tvenns konar tilfinningar
sem þetta vekur í brjósti mér,“ sagði
Kári Stefánsson, þegar Morgunblað-
ið leitaði viðbragða hans við þessari
útnefningu í gær. „Númer eitt er
þetta töluvert mikill sómi. Þetta er
tímarit amerískra fjárfesta og þeir
hafa úr ansi stórum hópi manna að
velja þannig að það eru að minnsta
kosti einhverjir úti í hinum stóra
heimi sem finnst það sem við höfum
gert einhvers virði. Það bendir til
þess að ef guð lofar endar það með
því að einhverjum finnst það líka
uppi á íslandi, þótt auðvitað sé ekki
hægt að ábyrgjast það. Það er gam-
an að þessu og þetta gerir að verkum
að það verður líklega hlustað meira á
mig þegar ég reyni að afla fjár til
nýrra verkefna. Það er líka mjög
gott fyrir íslenska erfðagreiningu að
það er litið svo á að starf fyrirtækis-
ins hafi verið velheppnað fram að
þessu. Hins vegar vekrn- þetta með
mér þær tilfinningar að mér finnst
skrýtið að menn séu famir að líta á
mig sem frumkvöðul í viðskiptum.
Ég hef alltaf litið á mig sem fyrst og
fremst vísindamann, í annan stað
lækni og í þriðja stað heldur lélegt
skáld. Þess vegna vekur það hjá mér
svolítinn söknuð og trega að menn
úti í hinum stóra heimi séu farnir að
líta á mig sem frumkvöðul í viðskipt-
um,“ sagði Kári Stefánsson.
-------------
Á eld-
stöðvunum
í Vatnajökli
ÍSINN hefur nú gengið yfir og
hulið fjallið sem myndaðist í
eldgosinu undir Vatnajökli fyrir
tæpum tveimur árum.
Vatnsflaumurinn frá
Gjálpargosinu myndaði djúpa gjá,
3-4 km Ianga, með hrikalegum
öskubornum jakaveggjum á báðar
hliðar, eins og sjá má á myndinni
sem tekin var innst í þessari gjá í
vorleiðangri Jöklafélagsins,
Háskóla Islands og ýmissa
rannsóknastofnana, sem nú
stendur yfir á Vatnajökli. Innst í
þessari ísgjá standa
leiðangursmennirnir Finnur
Pálsson verkfræðingur, Halldór
Gíslason arkitekt og
lejðangursstjórinn og formaður
JÖRFA, Magnús Tumi
Guðmundsson jarðfræðingur.
Umfangsmikil verkefni eru
dagskrá leiðangursins, m.a.
könnun á Gjálp með íssjá,
þyngdar- og segulmælingum og
jarðfræðilegum athugunum til að
kanna lögun, gerð, eðlismassa og
segulmögnun nýja fjallsins, og
mæla ísskriðið inn í sigdældir
umhverfis gosstöðina.
í dag
www.mbl.is
8SÍÐUR
► Verið segir í dag frá veiði- og markaðshorfum á
loðnuvertíðinni sem hefst á laugardaginn. Ennfremur
er sagt frá lirfurannskóknum Hafrannsóknastofnunnar
og minnkandi rækjuveiði fyrir Norðurlandi.
Þjóðhátíðar
stemmning
4SÍÐUR
4 SfDUR
Dómarar
sæta
gagnrýni
Buraas með : Brasilía
Kristni til : fyrst í 16-
Isiands \ liða úrslit
C1
C2
C3