Morgunblaðið - 17.06.1998, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bankaráð Landsbankans fellst á niðurstgðu Jóns Stcinars Gunnlaugssonar
HALELÚJA. halelúja.
l€iJ I liújjjjfetoililiiiiiij M
CD PIOIMEER
SHARP MD-MS-701 Feröaminidiskspilari • Stafræn upptaka
og afspilun • X-bassi • Upptökutími allt aö 148 mín • Hleðslurafhlaöa
5 tima • Fjarstýring • Hægt að setja inn nafn eða titla
SHARP MDR-2H Mini-disk spilarí • Stafræn upptaka og afspilun
• Klukka og tímateljari • Hægt að setja inn nafn eða titla • Fjarstýring
•43cm
Kr. 34.900.- stgr.
Kr. 34.900.- stgr.
SHARP MD-X8 Hljómflutningstæki með mini-disk • 2x50w
(RMS.1 kHz) • Tengjanleg við tölvu • FM/AM 40 st. minni m/RDS.
• Þríggja diska spilari • Stafræn upptaka og afspilun, getur tkið upp
frá internetinu • Þriskiptur hátalari (3-way) 100W (Din)
Kr. 89.900.- stgr.
SHARP MD-X8 Hljómflutningstæki með mini-disk • 2x15 W
RMS • Útvarp með stöðvaminni • Geislaspilari • Mini-disk spilari með
stafrænni upptöku og afspilun • RDS • Tvískiptur hátalari (2-way)
• X-bassi
Kr. 49.900.- stgr.
PIONEER NS-7 Hljómflutningstæki • 2x50W RMS-útvarpsmagnari
með 24 stöðva minni einn-diskur • Aðskilin bassi og diskant • Stafræn
tenging • Tviskiptur hátalari (2-way) • Subwoffer
• Mini-disk spilari kostar kr. 44.900,- (ekki innifalið í verði).
PIONEER FX-1 Hljómflutningstæki 2x50W RMS-útvarpsmagnari
með 24 stöðva minni • Geislaspilari • Aðskilin bassi og diskant
• Stafræn tenging • Tviskiptur hátalari (2-way) 80W
• Mini-disk spilari kostar kr. 49.900.- (ekki innifalið i verði).
Kr. 59.900.- stgr.
Kr. 77.450.- stgr.
BRÆÐURNIR
UMBOÐSMENN
Vesturland: M Iningarþj nustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Guðni Hallgrfmsson,
' Grundarfiröi. Vestfiróir: Geirseyjarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík. Straumur,
(safiröi. Noröurland: KEA Lónsbakka. Kf. V-Hún., Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri,
Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Kf. Hóraösbúa, Egilsstööum.
Vélsmiöjan Höfn. Suöurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Geisli, Vestmannaeyjum.
ORMSSONHF _______________________
Lágmúla 8 • Sími 533 2800 Reykjanes: Ljósboginn, Keflavlk. Rafborg, Grindavík.
íslensk málstöð með orðabanka á netinu
Flett í 16 orða-
söfnum með
einni leit
Islensk málstöð opnaði
fyrir nokkru orða-
banka á netinu en þar
er hægt að leita með einni
skipun í fjölmörgum orða-
söfnum. Ari Páll Kristins-
son er forstöðumaður Is-
lenskrar málstöðvar.
„Við erum búin að safna
fjölmörgum orðasöfnum
saman og með einni leit er
nú hægt að fletta í 16 mis-
munandi orðasöfnum,"
segir Ari Páll en stefnt er
að því að orðasöfnin í
orðabankanum verði að
minnsta kosti orðin 22 í
lok ársins.
Nú era í orðabankanum
hátt í 100.000 orð og til
samanburðar má geta
þess að um 85.000 orð era
Ari Páll Kristinsson
í Islenskri orðabók. Ari
Páll segir að viðtökur hafi verið
afar góðar og að jafnaði sé flett
upp á orðum 170 sinnum á dag.
- Hvaða hlutverk hefur Is-
lensk málstöð?
„íslensk málstöð er skrifstofa
og framkvæmdastofnun Is-
lenskrar málnefndar og sam-
starfsvettvangur málnefndar og
Háskóla Islands. Hún er rekin í
samvinnu við Háskóla Islands. I
málstöðinni starfa fjórir starfs-
menn.
Um Islenska málnefnd gilda
lög frá 1990 og þar er kveðið á
um hlutverk nefndarinnar sem
er að vinna að eflingu íslenskrar
tungu og varðveislu hennar í
ræðu og riti. Málnefndin er
stjórnvöldum til ráðuneytis um
íslenskt mál og leita skal um-
sagnar hennar áður en settar
era reglugerðir eða annars kon-
ar fyrirmæli um íslenska tungu
að svo miklu leyti sem einstök
atriði heyra ekki undir aðra
samkvæmt öðram lögum.“
Ari Páll segir að Islenskri
málnefnd beri að veita opinber-
um stofnunum og almenningi
leiðbeiningar um málfarsleg efni
á fræðilegum grandvelh. Hann
segir að Islensk málstöð gegni
veigamiklu hlutverki í að veita
þessa þjónustu.
- Hvernig er starfsemi ykkar
háttað?
„Stofnanir, fyrirtæki og al-
menningur getur leitað til okkar
með spurningar um mál og mál-
notkun og það er reyndar sá
þáttur í starfi okkar sem er hvað
mest áberandi. Árlega
berast til okkar 1.500-
2.000 fyrirspumir."
Ari Páll segir að
ýmsir leiti ráða um
orðanotkun, auglýs-
ingastofur, textagerð-
arfólk, starfsmenn hins opinbera
og síðast en ekki síst almenning-
ur.
„Við verðum vör við áhuga al-
mennings á íslenskri tungu og
fólk hringir til okkar alls staðar
að af landinu og er þá með fyrir-
spurnir sem til dæmis varða
beygingar orða, orðalag eða
réttritun. Þá er fólk oft að velta
fyrir sér orðasamböndum eða
það er að fmna ný íslensk orð.“
- Komið þið með mörg íslensk
nýyrði á ári?
Ari Páll segir að oftast séu ný-
yrðin smíðuð í samvinnu við
þann sem hringir inn. Þannig
rekur á fjörur málstöðvar að
meðaltali um 115 nýyrði á ári
sem era þó aðeins hluti íslenskra
nýyrða því margir fleiri mynda
►Ari Páll Kristinsson er fæddur
í Stóru-Sandvík í Arnessýslu ár-
ið 1960. Hann lauk cand. mag.
prófi í íslenskri málfræði frá
Háskóla íslands árið 1987 og
prófi í uppeldis- og kennslu-
fræði til kennsluréttinda.
Ari Páll kenndi um skeið við
framhaldsskóla, var stunda-
kennari við Háskóla íslands og
var málfarsráðunautur Ríkisút-
varpsins frá 1993 til 1996.
Hann var ráðinn sérfræðing-
ur í íslenskri málstöð 1990-1992
og hefur verið forstöðumaður
íslenskrar málstöðvar frá árinu
1996.
Eiginkona hans er Sigrún
Þorgeirsdóttir málfræðingur og
eiga þau fjögur börn.
nýyrði, t.d. blaðamenn, þýðend-
ur og fleiri.
-Þið eruð líka með útgáfu-
starfsemi?
„Okkur er ætlað að skrifa um-
sagnir og álitsgerðir, einkum
fyrir stjórnvöld, og síðan gefum
við út bækur og tímarit, eram
með tvær ritraðir og tímaritið
Málfregnir þar að auki sem
kemur út tvisvar á ári auk ann-
arrar útgáfu.
Þá eram við að undirbúa út-
gáfu á íslenskri stafsetningar-
orðabók og verið er að endur-
skoða stafsetningarreglur."
Ari Páll segir að ekki sé stefnt
að kollsteypu í nýjum réttritun-
arreglum en þar er reynt að
skýra nánar ýmis atriði sem era
í núgildandi reglum.
Stefnt er að því að
gefa út viðamikla staf-
setningarorðabók í
framhaldi af þessari
vinnu.
- Hvemig er íðorða-
starfí íslenskrar málstöðvar
háttað?
„íðorð era þau orð sem notuð
era innan tiltekinnar sérgreinar.
Islensk málstöð er í samstarfi
við orðanefndir sem eru 47 þó
ekki séu þær allar virkar. Talan
sýnir eigi að síður hvað þetta eru
fjölbreytileg svið. Við reynum að
þjóna þessum orðanefndum eins
og hægt er og sumar þeirra hafa
fengið vinnuaðstöðu fyrir ritara í
húsakynnum okkar.“
Ari Páll segir að nágranna-
löndin hafi litið til skipulagsins
hér á Islandi þar sem málrækt-
armenn og menn í íðorðastarfí
vinna náið saman.
Slóð orðabanka Islenskrar
málstöðvar er http:/Avww.-
ismal.hi.is/ob/.
Útgáfa ís-
lenskrar staf-
setningar-
orðabókar