Morgunblaðið - 17.06.1998, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrsti ís-
lenski bfllinn
fyrir almenn-
an markað
Bílabúð Benna og fleirí aðilar hafa tekið
sig saman um að nýta íslenskt hugvit í
bílatækni og framleiða fyrsta íslenska
torfærujeppann fyrir almennan markað.
Guðjón Guðmundsson hefur fylgst með
framgangi málsins sem á sér sex ára
aðdraganda.
FYRSTI íslenski torfærubíllinn,
XTREMER, hannaður með fram-
leiðslu og almenna notkun í huga,
var í gærkvöldi frumkynntur hjá
Bílabúð Benna, framkvæmdaaðila
verksins. Fjöldi fyrirtækja og ein-
staklinga hefur komið að smíði
bílsins, þar á meðal Iðntæknistofn-
un og Háskóli íslands, en hönnuð-
ur hans er Steinn Sigurðarson.
Ráðgert er að sýna bílinn á
stóri'i bflasýningu í Bandaríkjun-
um en fyrst verður hann sýndur
erlendum blaðamönnum frá
stærstu bflablöðum heims. Kaup-
endur bflsins kaupa hann fullgerð-
an með vél- og drifbúnaði.
Höfða til efnameiri
kaupenda
Ætlunin er að höfða til efna-
meiri kaupenda sem kaupa dýrari
gerðir lúxussportbfla sem kosta
allt að 100 þúsund bandaríkjadali.
Innifalið í kaupum á bílnum verður
tveggja daga jöklaferð á Islandi. í
fyrstu var ráðgert að setja bflinn á
markað sem kallast settbíla mark-
aður, á ensku „kit car market“ og
er ekki útilokað að það verði gert á
síðari stigum. Nokkrir tugir þús-
unda slíkra bíla seljast á hverju
ári, mest í Bandaríkjunum en
einnig er stór markaður í Bret-
landi.
Samtímis kynningu á bflnum er-
lendis er stefnt að því að setja upp
framleiðsluferli á Islandi í sam-
starfi við leiðandi aðila á sviði
tækni og fjárfestinga. Benedikt
Eyjólfsson, eigandi Bflabúðar
Benna, segir að margir erlendir og
innlendir aðilar hafi sýnt verkefn-
inu áhuga að nú skipti miklu máh
að vinna hratt til að afstýra þeirri
hættu sem gerð eftirlíkinga hefur á
starfsemina. Hann segir að nú liggi
fyrir að smíða fleiri eintök, m.a. til
sölu á Islandi. Þess hafi verið gætt
að fylgja til hins ýtrasta fyrirmæl-
um laga og reglugerða á Islandi,
m.a. um gerð og búnað ökutækja.
XTREMER eigi að standast allar
öryggiskröfur eins og þær eru skil-
greindar í íslenskum lögum sem
þýðir að bíllinn verður gjaldgengur
á markaði í Evrópu og Bandaríkj-
unum.
Islenskir jeppaáhugamenn hafa
um mai’gra ára skeið endurbætt
fjórhjóladrifsbfla til allra mögu-
legra hluta. Mestar urðu breyting-
arnar þegar sérútbúnir torfæru-
keppnisbflar komu fram á árunum
1975-1980. Nýi bíllinn,
XTREMER, er afsprengi samhæf-
Morgunblaðið/Jim Smart
XTREMER er óvenjulegur í útliti og léttari en aðrir torfærubflar.
VÆNGJAHURÐIR gera bflinn enn óvenjulegri en aðra bfla.
DANA hásingar og gormaíjöðrun ásamt driflæsingum eru í bflnum.
ingar tveggja afgerandi þátta í þró-
un sem nánast hvergi hefur átt sér
stað annars staðar en á Islandi.
Þar er átt við tæknina sem fjalla-
og jöklajeppar byggja á og tækni
og grunnhugsun að baki torfæru-
gi'indarinnar. Benedikt segir að
markmiðið hafi verið að samhæfa
hvort tveggja í nýjum bíl sem verð-
ur framleiddur fyrir almenning.
Steinn Sigurðsson, sem á hug-
myndina að baki bílnum, kom að
máli við Benedikt fyrir um sex ár-
um. Bflabúð Benna tók að sér
tæknilega hönnun og framkvæmd
verksins. Hið stærsta í því efni var
teikning og fullvinnsla undirvagns.
Markmiðið var að byggja grind og
undirvagn sem stæðust ýtrustu
kröfur um léttleika og burðargetu.
Valur Vífilsson, starfsmaður fyrir-
tækisins, vann við það verkefni.
Iðntæknistofnun vann síðan teikn-
ingar og burðarþolsútreikninga.
Voru nokkrar breytingar gerðar á
efnistökum og byggingu. Iðntækni-
stofnun stóð fyrir markaðsrann-
sókn og áætlanagerð vegna vænt-
anlegrar sölu XTREMER á ís-
landi og erlendis.
Tvö prófunareintök
smíðuð
í framhaldi af því var hafist
handa við lokahönnun yfirbygging-
ar og smíði hinna ýmsu eininga.
Fjöðrunarbúnaðurinn var hannað-
ur af Bílabúð Benna enda er
reynsla fyrirtækisins víðtæk á því
sviði. Benedikt segir að tvö próf-
unareintök hafi verið smíðuð með
miklum tilkostnaði. Smíði seinna
Gaman að sjá
bílinn verða til
STEINN Sigurðarson, hönnuður
XTREMER, var sölustjóri hjá
Bflaborg í sautján ár og hefur
teiknað bíla sér til skemmtunar í
mörg ár. Hann vann alþjóðlega
samkeppni Volvo árið 1975 og al-
þjóðlega keppni um hönnun rafbfla
á vegum tímaritsins Popular
Mechanics árið 1976, þar sem þátt-
takendur voru um 700. Rafbfllinn
var síðan smíðaður hér á landi og
kallast Rafsi. Þetta er fyrsti raf-
magnsbíllinn á Islandi og er hann
gangfær inni í bílskúr hjá Steini.
Steinn segir að nú sé unnið að því
að stofna fyrirtæki um smíði
XTREMER.
Skemmtilegur
ofuijeppi
„Mér flaug í hug þegar ég var
staddur uppi á hálendinu að nýta
þá þróun sem hefur orðið í jeppa-
mennsku hérlendis, sem er sérís-
lenskt fyrirbrigði, og búa til
skemmtilegan ofurjeppa. Að loknu
sumri fór ég að teikna bflinn en síð-
an skall á Flóabardagi og segja má
að ég hafi orðið fyrir skotárás því
útlitið á bílnum varð mun árásar-
gjamara. Flóabardagi hafði því
beinlínis áhrif á þróun útlits bfls-
ins,“ segir Steinn.
Grindin prófuð
í tölvu
„Ég fór með teikningarnar til
Iðntæknistofnunar. Þar hitti ég
Björgvin Njál Ingólfsson deildar-
stjóra og honum leist vel á málið.
Kallaður var saman fundur og við
gerðum áætlanir um að koma af
stað svokallaðri „kitbflafram-
leiðslu" sem hefði falið í sér að
plastið yrði steypt og grindin og
allir íhlutir smíðaðir hérlendis og
bílarnir síðan seldir úr landi þeim
sem hefðu áhuga á því að setja þá
saman sjálfir. Síðan fengum við
með okkur þátttakendur, Sig-
urplast og Bflabúð Benna, svo ein-
hvei’jir séu nefndir, og hrintum
hugmyndinni í framkvæmd. Mikið
brautryðjendastarf var unnið hjá
Iðntæknistofnun í sambandi við
hönnun á grind. Styrkur grindar-
innar og veltibúrsins var prófaður
í tölvu. AUar mínar teikningar
Morgunblaðið/Jim Smart
STEINN Sigurðarson hönnuður við fyrsta íslenska
bflinn fyrir almennan markað.
voru settar inn í tölvu og vinnu-
teikningar af grind og yfirbygg-
ingu keyrðar út í 1:1, í fullri stærð.
Einnig var smíðað módel í fullri
stærð en sumarið 1992 hafði ég
smíðað módel í stærðinni 1:10. Það
var því unnið á mjög sérstæðan
hátt að þessum bíl, nokkurn veg-
inn svipað og maður ímyndar sér
að gert sé hjá bílaframleiðendum,"
segir Steinn.
Síðan var hafist handa við smíði
á frumgerð bflsins sem forseti ís-
lands, Ólafur Ragnar Grímsson, af-
hjúpaði í gær.
Flóabardagi hafði áhrif
Steinn segist hafa sótt hug-
myndir að bflnum til ofurjeppans
Lamborghini 002 sem kynntur var
árið 1986 og kostar nálægt 20 millj-
ónum kr. „Þetta er bíll fyrir þá of-
urríku og er ruddalegur í útliti.
Einnig hafði ég Vector til hliðsjón-
ar sem er tveggja sæta sportbíll,
einnig fyrir þá ofurríku. Síðast en
ekki síst hafði ég til hliðsjónar
Stealth þotuna, S 117, sem varð
fræg í Flóabardaganum. Til henn-
ar sæki ég þetta flókna kerfi á yfir-
byggingunni sem er margspegla en
myndar samt eina heild,“ sagði
Steinn.
Allt var gert til að framleiðsla
bílsins yrði sem einföldust. I því
skyni gegnir vélarhlífin einnig
hlutverki frambrettis og fram-
stykkis. Sömu sögu er að segja um
afturbretti og gafl bílsins sem er
samsettur úr mjög fáum einingum
sem hagstætt er til framleiðslu.
Steinn segir að framleiðsluað-
ferðin sé þekkt í landinu, til að
mynda í bátum og pallhúsum á
bíla.
„Það er ekki mikið mál að setja
framleiðsluna af stað. Mótin eru til
og ferillinn er allur þekktur. Bfllinn
er því tilbúinn til framleiðslu," seg-
ir Steinn.
Hann segir að óhemjumikill
áhugi sé fyrir XTREMER. Erfitt
sé að segja til um markaðinn og
þar ráði miklu verðlagningin. „Ég
sýndi John Lafferty, [„kitbílafram-
leiðanda“ í Flórída], teikningar
þegar ég var að byrja á verkefninu
og honum leist mjög vel á þser.
Hann vill helst vera þátttakandi í
verkefninu. Hann sagði að ef bfll-
inn yrði sýndur í Flórída og kynnt-
ur í þarlendum blöðum yi'ði hægt
að selja um fimm þúsund bíla á
ári,“ sagði Steinn.