Morgunblaðið - 17.06.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998 23
Bandarísk sálfræðikönnun
Mannlegt eðli
samsafn
fímmtán hvata
London. The Daily Telegraph.
MANNLEGT eðli má skilgreina
sem samsafn fímmtán langana og
hvata, að mati sálfræðinga. Segja
þeir sjálfstæðan persónuleika
hvers og eins markast af því hverj-
ar þessara hvata fái forgang. Sál-
íræðingarnir byggja þessa niður-
stöðu á rannsókn sem um 2.500
manns tóku þátt í en fólkið svaraði
spumingum um lífsgildi.
Sálfræðingamir komust að því
að skipta mátti svörunum upp í
fímmtán flokka, frá grunnþörfum,
svo sem hungri, og upp í félagsþörf
og löngun manna til að komast til
metorða. Er þetta í fyrsta sinn sem
sálfræðingar hafa skilgreint svo
margar hvatir manneskjunnar og
jafnframt viðurkennt að það sé
mismunandi eftir einstaklingum
hvaða hvatir séu ráðandi, að því er
Steven Reiss, sálfræðiprófessor við
ríkisháskólann í Ohio fullyrðir.
Reiss segir að hingað til hafi sál-
fræðingar sett fram fjölda kenn-
inga sem byggi aliar á-því að ein
hvöt sé mikilvægari en önnur.
Freud hafí t.d. talið kynhvötina að-
aldrifkraft mannskepnunnar og
Plató hafi talið heimspeki mestu
ánægju lífsins. „Þeir sem stunda
rannsóknir ganga út frá því sem
vísu að menn reyni að njóta sem
mestrar ánægju og draga eins mik-
ið úr sársauka og mögulegt sé. En
það er ekki rétt. Niðurstöður okk-
ar sýna að þegar gildi og hvatir eru
annars vegar, á það sama ekki við
um alla. Það virðist ekki vera nein
ákveðin röð á mikilvægi hvatanna í
hugum fólks.“
Grunnhvatirnar virðast vera
löngun til kynlífs og kynferðislegra
ímyndana, löngun í mat og líkam-
lega hreyfingu og til að komast hjá
sársauka og kvíða. Aðrar hvatir
eru t.d. forvitnb (löngunin til að
læra), heiður (löngunin til að hegða
sér í samræmi við gildandi reglur),
skipulag (löngunin til að hafa röð
og reglu í daglegu lífi), hefndar-
þorsti, félagsleg tengsl, löngunin til
að verja tíma með fjölskyldunni,
löngunin í metorð og síðast en ekki
síst, löngunin í völd.
Reiss segir flestar þessara hvata
vera hinar sömu og sjá megi hjá
dýrum og að þær tengist jafnframt
flestar sjálfsbjargarviðleitninni.
Því séu þær líklega meðfæddar.
Þrjár hvatanna töldu sálfræðing-
amir þó að miklu leyti áunnar;
löngunina til að vera meðborgari
(að njóta opinberrar þjónustu og
réttlætis), löngunina til sjálfstæðis
(að taka ákvarðanir um eigið líf) og
óttann við félagslega höfnun.
Hvað liggur að
baki löngun í bfl?
Þátttakendur í könnuninni voru
beðnir að svara hvort þeir væru
sammála eða ósammála fullyrðing-
um sem settar voru fram um lang-
anir og hvatir. Unnið var úr svör-
unum með „þáttagreiningu“ þar
sem leitað var róta óska fólks. T.d.
var kannað hvað lá raunverulega
að baki óskinni um nýjan bíl, en
það reyndist oftast vera löngunin í
aukinn frama og upphefð.
Hvatirnar reyndust missterkar,
svo sem kynhvötin. Reiss segir
hana drifki-aft sumra, þeir leitist
sífellt við að uppfylla hana. Aðrir
leggi hins vegar afar lítið upp úr
kynlífi og leggi ekkert á sig til að
fullnægja kynhvöt.
Reiss kveðst vona að hægt verði
að nota próf byggð á greiningu
hvata, til að spá fyrir um geðræn
vandamál, þar sem prófín leiði oft í
ljós ofuráherslu eða mikinn ótta við
ákveðin atriði. T.d. megi spá fyrir
um kvíðaköst einstaklinga, með því
að byggja á svörum þeirra við
spurningum er varða kvíða.
sandalar
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina.
Sími 551 9800
http://www.mmedia.is/sportleigan
ÍSLENSKAR
SIÐAN 1972
GÆÐA MURVORUR A GOÐU VERÐI
FLOTMUR
5 GERÐIR
INNI OG ÚTI. GERUM TILBOÐ.
i
I steinprýöi
STANGARHYL 7, SÍMi 567 2777
Eiqöu Ijjorlj fpamtíS
rníjc! SERTA.