Morgunblaðið - 17.06.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998 25
Konunglegur blll
Peugeot 406 7 manna skutbíll
Glœsilegur, fullvaxinn 7 manna fjölskyldubill þar
sem öryggi og þœgindi eru í fyrirrúmi. Þetta er
ríkulega utbúinn eðalvagn fyrir fólk sem er með
þroskaðan smekk og veit hvað skiptir móli.
Settu hlutlna í rétta forgangsröð!
Verð aðeins
iTiTifTTC
1.850.
ERLENT
Howard heldur fast
við kosningaáform
Canberra. Reuters.
ÞRÁTT fyrir óvænt úrslit í ríkis-
kosningum í Queensland í Ástralíu
um helgina, hyggst John Howard
forsætisráðherra standa við áform
sín um að leysa upp þing og efna til
kosninga gangi lagafrumvarp um
landaréttindi frumbyggja ekki í
gegn á næstu vikum. Frumvarpið,
sem bæði er tilraun til að koma til
móts við landeigendur og frum-
byggja hefur tvívegis verið fellt í
efri deild þingsins, þar sem stjómin
hefur minnihluta.
Tim Fisher aðstoðarforsætisráð-
herra sagði í gær að deildin hefði
frest fram að vetrarfríi þingsins í
júlí til að afgreiða frumvarpið. Ann-
ars yrði gengið til kosninga. Verði
það úr verður að boða til kosninga
fyrir 29. október næstkomandi.
Kosningar geta þó dregist fram í
desember og að þeim loknum hefur
stjórnin, verði hún enn í meirihluta,
möguleika á að sameina deildirnar
og knýja þannig málið í gegn. Nú-
verandi kjörtímabil rennur hins
vegar út um mitt næsta ár.
Allt bendir nú til þess að Ein
þjóð, hægriöfgaflokkur sem hefur
m.a. mælt gegn innflutningi fólks
frá Asíu, sérréttindum frum-
byggja, erlendri fjárfestingu og frí-
verslunarsamningum, muni vinna
þingsæti í efri deild þingsins þegar
gengið verður til þingkosninga, en
stofnandi hans, Pauline Hanson, á
þegar sæti í neðri deild þingsins.
Ein þjóð, sem stofnuð var fyrir 15
mánuðum, vann nálægt fjórðungi
atkvæða í ríkiskosningunum í Qu-
eensland um helgina og samkvæmt
skoðanakönnunum jókst fylgi
hennar úr 7% í 11% á landsvísu
tvær síðustu vikur iyrir kosning-
arnar. Á sama tíma féll fylgi
stjórnarinnar úr 43% í 37% og fylgi
Howards í sæti forsætisráðherra
úr 40% í 36% en það er sama fylgi
og höfuðandstæðingur hans Kim
Beazley, formaður Verkamanna-
flokksins, nýtur samkvæmt könn-
unum.
Ljóst þykir alltént að flokkur
Hansons hafi sópað til sín atkvæð-
um hægrimanna sem m.a. eru
ósáttir við að stjórninni hafi mis-
tekist að koma aðstoð við dreifbýl-
ið, verndartollum og löggjöf um
meðferð skotvopna í gegnum þing-
ið. Stjómmálamenn í Asíu tóku
fréttum af úrslitunum í Queensland
með ró. Ástralskir ferðamálafröm-
uðir lýstu hins vegar miklum
áhyggjum af velgengni Einnar
þjóðar enda telja þeir að hún muni
skaða ímynd landsins og draga
mjög úr aðsókn ferðamanna frá
Asíu.
Leiðtogar frumbyggja lýstu
einnig áhyggjum af niðurstöðu
kosninganna en sögðust þó telja
þær eiga eftir að verða til góðs.
„Það er betra að sjá snákinn fyrir
framan sig en að vera bitinn af
honum þar sem hann felur sig í
runnanum," sagði Murrandoo
Yanner, einn leiðtoga þeirra í Qu-
eensland.
Íl
NÝBÝLAVEGI 2
SlMI: 554 2600
0PIÐ LAUGARDAG
KL. 13-17
Eþíópía
óskar eftir
aðstoð
STJÓRNVÖLD í Eþíópíu bóðu í
gær hjálparstofnanir að senda
þegar ýmsar nauðsynjavörur til
íandsins, mætvæli og önnur
hjálpartæld, til að veita þeim
300.000 manns aðstoð sem lent
hafa á vergangi vegna stríðsins
við Erítreu. Telja þau þörf á allt
að 27.000 tonnum matar, yfir-
höfnum, tjöldum og öðru þess
háttar.
*
Afengi verra
en kannabis
í SKÝRSLU sem birt var í
Frakklandi í gær er komist að
þeirri niðurstöðu að áfengis-
drykkja sé mun meira heilsu-
spillandi en kannabisreykingar.
Höfundar skýrslunnar, sem
unnin var á vegum læknarann-
sóknarstofnunar franska ríkis-
ins, draga í efa forsendur þess
að frönsk lög banni kannabis en
geri ekkert til að stöðva áfeng-
isneyslu. Áfengi, heróín og
kókaín eru samkvæmt skýrsl-
unni hættulegust heilsunm'.
Hænur
bólusettar
í BÍGERÐ er í sumar að bólu-
setja tuttugu milljónir hænsna
á Bretlandi til að eyða hættu á
salmónellusýkingu vegna
neyslu eggja. Hér er sennilega
á ferðinni stærsta bólusetning
til vamar gegn salmónellusýk-
ingu sem nokkum tíma hefur
verið fyrirhuguð og munu öll
egg sem seld verða undir
merkjum Lion-fyrirtækisins
koma úr hænum sem hlotið
hafa tvær sprautur til varnar
salmónellu.
Umdeild fjár-
lög í Noregi
LÍKLEGT er talið að Kjell
Magne Bondevik, forsætisráð-
herra Noregs, þvingi norska
Stórþingið til að samþykkja
umdeild fjárlög á föstudag með
því að tengja atkvæðagreiðsl-
una við vantraustsyfirlýsingu á
stjórnina. Minnihlutastjórn
Bondeviks er þó talin munu
standa af sér slíka vantrausts-
yfirlýsingu.
Hasina hitti
Vajpayee
Peugeot 406 eru stórglœsilegir og vel útbúnir fólksbílar
með öflugar 112 hestafla, 1800cc vélar
1800cc vél. 112 hestöfl. vökva- og veltlstýrl, snúnlngshraöamœlir, loftpúöar fyrlr
ökumann og farþega, fjarstýrðar samlœsingar, þjófavörn, rafdrifnar rúöur að
framan. stlglaus hraöastilling ó miöstöð, hœöarstilllng á aöalljósum. hœöarstillt
bílbeltl, bílbeltastiekkjarar. þrjú þriggia punkta bilbelti í afturscetum. nlöurfellanleg
sœtisbök að aftan 40/60. armpúöl í aftursœtl. lesljós fyrir farþega í aftursœtum,
hemlaljós f afturglugga. hliöarspeglar stillanleglr Innan frá, bensínlok opnanle^
Innan fró, útvarp og segulband, stafrœn klukka. aur hlífar o.fl.
PEUGEOT
LJÓN A VEGINUM!
SHEIKH Hasina, forsætisráð-
herra Bangladesh, átti viðræð-
ur við leiðtoga Indlands í gær
og fóru viðræðumar fram í
skugga
kjarnorku-
tilrauna Ind-
verja og
Pakistana.
Hasina mun
heimsækja
Islamaband,
höfuðborg
Pakistans,
Vajpayeeog síðar f mán.
liasina ,.
uðinum og
þá eiga viðræður við stjómvöld
Pakistans. Á fundinum kynnti
Atal Behari Vajpayee, forsætis-
ráðherra Indlands, Hasina for-
sendur kjarnorkutilrauna Ind-
verja auk þeirra aðgerða sem
stjórnvöid landsins telja sig
hafa gripið til í því augnamiði að
minnka spennu í S-Asíu. Munu
Hasina og Vajpayee hafa verið
sammála um að ekld væri rétt
að utanaðkomandi aðili kæmi að
deilum Indlands og Pakistans.
Rándýrá
góðu verði!
wm* . * ■ 11 ■ ■ >
Fágað villidýr!
Peugeot406 4 dyra
Giœsilegur og tignarlegur bfll, ríkulega útbúinn og
með ótrúlega Ijúfa aksturseiginleika. Sannkailaður
eöalvagn, bíll sem gerir (aig stoltan.
Slepptu dyrinu í þér lausu!
Verð aðeins
Upplifðu Pougeot í
reynsluakstrl
og leystu prófið.
Ijónheppinn
reynsluökumoður
mun hljóta helgarferð
fyrir tvo til Pansar.