Morgunblaðið - 17.06.1998, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ
64 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
FÓLK í FRÉTTUM
Kieslowski á
pólskri kvik-
myndahátíð
Kvikmyndahátíð með pólskum kvik-
myndum verður haldin í Bæjarbíói í
* Hafnarfirði á næstu dögum og verða eldri
myndir Krzysztof Kieslowskis áberandi
á henni að sögn Arnaldar Indriðasonar.
Hann kynnti sér hvaða myndir verða
sýndar og eftir hvaða pólsku leikstjóra.
BÆJARBÍÓ í Hafnarfirði mun á ný gegna sínu gamla menningarlega
hlutverki sem kvikmyndahús þegar Pólsk kvikmyndavika hefst í bíóinu
þann 19. júní. Hún er haldin í samvinnu sendiráðs Póllands staðsettu í
Osló og Kvikmyndasafns Islands. Hátíðin er einskonar farandsýning
sem hefur ferðast m.a. um öll Norðurlöndin að sögn við góðan orðstír.
Eru alls átta kvikmyndir á hátíðinni gerðar á undanförnum tveimur
áratugum og þarf af er helmingurinn eldri myndir hins annálaða pólska
leikstjóra Kxzysztof Kieslowskis. Fyrir þá sem vilja kynna sér hans
fyrstu myndir er sannkallaður fengur að hátíðinni.
ÚR STUTTRI mynd um ást, einni af boðorðamyndum Kieslowskis.
ecco
Gangur lífsins
KRZYSTOF Kieslowski um það
leyti sem hann gerði Tilviljun.
Samstarfsmaður
Wajda
Opnunarmynd hátíðarinnar er
eftir Zbigniew Kaminski og heitir
hún Þjóðvetjar. Verður leikstjórinn
viðstaddur sýninguna. Myndin var
gerð á síðasta ári og er byggð á
skáldsögu en hún gerist í Þýska-
landi í seinni heimstyrjöldinni og er
um fjölskyldu- og vinatengsl með
stríðið í bakgrunni. Veltir hún upp
ýmsum siðfræðilegum spurningum
um stríð og hvað er rétt og hvað
rangt í stríði. Kaminski er fæddur
árið 1947. Hann sótti kvikmynda-
nám í hinum þekkta kvikmynda-
skóla í Lodz þar sem Roman Pol-
anski og aðrir þekktir pólskir leik-
stjórar stunduðu nám. Hann hefur
fengist við stuttmyndir og bíó-
myndir jöfnum höndum og
hefur til margra ára verið
samverkamaður hins
þekkta pólska Ieikstjóra,
Andrzej Wajda. Kaminski
skrifaði handritið að Wa-
jdamyndinni Þernunum í
Wilko, sem tilnefnd var
til Óskarsverðlaunanna
árið 1980 sem besta er-
lenda myndin. Hann er
búsettur f Bandaríkj-
unum.
JERZY Stuhr fer sjálfur með aðalhlutverkið í mynd
sinni, Astarsögum.
1947. Hann lærði heimspeki við
Jagiellonianháskólann og var leik-
ari við Stary leikhúsið í Kraká. Þar
starfaði hann með leikstjórum á
borð við Jerzy Jarocki og Wajda.
Árið 1972 fór hann út í kvikmynda-
leik og starfaði með Kieslowski við
myndir eins og Kyrrðina, Örið,
Áhugamanninn, Boðorðin tíu og
Þrír litir: Hvítur. Einnig hefur
hann leikið í myndum Agnieszka
Hollan og Wajda og Zanussis. Ást-
arsögur er önnur myndin sem hann
Ieikstýrir.
Sólúr
„Sloneczny Zegar“ eða Sólúr er
eftir Andrzej Kondratiuk og er
lokamyndin í þríleik sem hófst með
myndinni Árstíðirnar fjórar árið
1984, hélt áfram með Hjóli tfmans
árið 1995 og endar nú með þessari
mynd frá árinu 1997. Um er að
ræða röð fjölskyldu-
gera? Á hann að snúa til baka eða
rækta með sér listamanninn sem
gert hefur vart við sig á miðjum
aldri? Á hann að fórna hamingjunni
í lífinu fyrir hið óþekkta?
Tilviljun
Þeysireið
ÁTRíðj
Ný mynd eftir
Ki'zysztof Zanussi
verður á hátiðinni.
Hún heitir Þeysireið j
eða „Cwal“ en Zan-
ussi er fslenskum
kvikmyndahátfð-
argestum að góðu
kunnur. Myndin er
frá árinu 1996 og gerist í Póllandi
snemma á sjötta áratugnum. Hinn
tíu ára gamli Hubert er sendur til
frænku sinnar í Varsjá. Hún kemur
drengnum furðulega fyrir sjónir.
Frænkan er mikil hestakona og út-
reiðartúrar eru hennar mesta yndi
og hún hatar allt sem hún kallar
bolsévika; þó er hún í miklu vin-
fengi við háttsetta flokksmenn. Hún
kennir Hubert að Ijúga að fólki en
ekki að hrossum. Brátt er frænka
neydd til þess að flytja úr borginni
og Hubert kemst að leyndarmáli
hennar.
Zanussi er fæddur í Varsjá árið
1939 og lagði stund á eðlisfræði og
heimspeki áður en hann fór út í
kvikmyndagerð í Lodz. Frá 1979
hefúr hann verið forsljóri Tor kvik-
myndafyrirtækisins í Póllandi, sem
framleiðir Þeysireið. Meðal þekktra
mynda hans má nefna Ár hinnar
þöglu sólar, Líf fyrir líf og Þögla
snertingu.
+
Astarsögur
„Historie Mitosne" eða Ástarsög-
ur er eftir Jerzy Stuhr, sem starf-
aði áður mikið með Kieslowski.
Stuhr fer sjálfur með aðalhlutverk-
ið í myndinni, sem segir fjórar sög-
ur á sama tíma og fjalla þær allar
um ástina. Hálffimmtugur maður
er aðalsöguhetjan í þeim öllum og
skoðar Stuhr samband hans við
konur á ólíkum aldri: samband milli
táningsstúlku og föðurs, sem er
prestur; 25 ára gamals háskólastúd-
ents og prófessors hennar; 35 ára
gamallar dræsu og fangans í lífi
hennar og loks 45 ára gamallar
rússneskrar konu og yfirmanns í
hernum.
Sthur er fæddur í Kraká árið
Urí>eysireid,
ny.]ustu Zaiuissis.
mynda eftir
Kondratiuk þar sem sömu per-
sónurnar velta fyrir sér sgurning-
um um lífið og tilveruna. í þessari
þriðju mynd segir af sérkennileg-
um kvikmyndagerðarmanni, eigin-
konu hans og tökuvélinni sem alltaf
suðar og myndar furðulegan ástar-
þríhyrning.
Eldri verkin
Það er ekki oft sem gefst kostur
á að sjá eldri verk leikstjórans
Kieslowskis, þau sem hann gerði
áður en hann var svo gott sem tek-
inn í dýrlingatölu evrópskra kvik-
myndagerðarmanna. Myndirnar
sem sýndar verða eftir hann á
pólsku hátíðinni eru gerðar á árun-
um frá 1979 til 1988 og heita í
réttri tímaröð, „Amator“ eða
Áhugamaður, „Przypadek" eða Til-
viljun, „Bez Konka“ eða Án enda og
loks Stutt mynd um ást eða „Krótki
film o miIosci“.
Ahugamaður
Aðalpersónan í þessari mynd frá
1979 er Filip Mosz, hamingjusamur
maður, kvæntur, á barn og er í
góðri vinnu. Ekki mikið kannski en
hann gerir ekki kröfur um meira.
Allt hans líf breytist þegar hann
kaupir litla kvikmyndatökuvél til
þess að mynda nýfædda dóttur
sína. Fyrr en varir er hann farinn
að taka myndir fyrir verksmiðjuna
sem hann vinnur í og hann sér nýja
og aðra og kannski meira spenn-
andi möguleika í lífinu. Það hefur
kostnað í för með sér. Eiginkonan
fer frá honum. Vinur hans missir
vinnuna vegna kvikmyndatökunnar
í verksmiðjunni. Hvað á hann að
Þessi mynd er frá 1982 og segir
af því hversu mikil áhrif einföld til-
viljun getur haft á líf okkar. Ungur
maður kemur á járnbautastöð og
ætlar að ná í lest. Hún er þegar
lögð af stað en hann hleypur á eftir
henni og nær heimi. Um borð hittir
hann kommúnista og skráir sig í
Kommúnistaflokkinn, hittir fallega
stúlku sem hefur aðrar skoðanir en
hann og er á leið á ungliðaráð-
stefnu kommúnista erlendis þegar
verkföll dynja á um allt Pólland. Líf
hans hefði getað farið allt öðruvísi
ef t.d. járnbrautarvörður hefði
stöðvað hann á hlaupunum og hann
misst af lestinni. Þá hefði hann
kynnst fólki með öndverðar skoð-
anir við kommúnistann
og kynnst allt öðru
lífí. Hversu miklu
ræður einföld tilvilj-
un í lífi okkar?
An enda
Þessi mynd er frá
árinu 1984 en hún ger-
ist í PóIIandi tveimur
árum fyrr og er aðal-
söguhetjan, Iögfræðing-
urinn Antoni Zyro, lát-
imi. Hann lést fyrir
nokkrum dögum og út-
för hans var haldin í
gærdag. Zyro varð samt
eftir til þess að fylgjast
með sorg eiginkonu sinn-
ar, sem gerir sér ekki
grein fyrir því fyrr en of
seint hversu mikið hún
elskaði manninn sinn, og að
fylgjast með hvernig ungum
skjólstæðingi hans farnar nú þegar
lögfræðingur hans hefur fallið frá.
Um ástina
Stutt mynd um ást frá árinu 1988
er ein af myndunum i' bálki
Kieslowskis sem hann byggir á
Boðorðunum tíu. Myndin um ástina
segir af ungum póstmanni, Tomek,
sem er yfir sig hrifinn af Mögdu,
sem býr í blokkinni gegnt honum.
Hann njósnar um hana í gegnum
sjónauka og segir hemii loks að
hann elski hana. Hún kynnir honum
grundvallarreglu lífsins; það er
engin ást til aðeins kynlíf. Tomek
er eyðilagður maður eftir kynnin
við Mögdu og reynir sjálfsmorð en
það mistekst og þegar hann kemur
af sjúkrahúsinu er það Magda sem
er orðin yfir sig hrifin af honum.
Kieslowski, sem nú er látinn, er
sagður hafa endurreist hina list-
rænu evrópsku kvikmyndahefð með
myndum sínum sem síðustu árin er
hann lifði öðluðust heimsfrægð og
var nafn hans á allra vörum. Boð-
orðamyndir hans tíu höfðu vakið
athygli á þessum sérstæða og
húmam'ska pólska leikstjóra en
myndirnar sem á eftir fylgdu eins
og Tvöfalt líf Veroníku og Rauður,
Hvítur, Blár, gerðu hann að einum
fremsta kvikmyndaleikstjóra álf-
unnar.
Pólska kvikmyndahátíðin stend-
ur til 26. júní og verður hver mynd
aðeins sýnd tvisvar sinnum. Eru
sýningar pólsku myndanna fyrstu
opinberu kvikmyndasýningarnar í
Bæjarbíói eftir að Kvikmyndasafn
Islands tók við húsinu.