Morgunblaðið - 21.07.1998, Blaðsíða 30
+
30 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 31
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ALÞ J OÐLEGUR
SAKAMÁLA-
DÓMSTÓLL
STÓRT skref í átt til aukins réttlætis og frelsis í heim-
inum var stigið í liðinni viku í Róm, þegar ráðstefna
Sameinuðu þjóðanna samþykkti stofnsamning alþjóðlegs
sakamáladómstóls. Yfirgnæfandi meirihluti þátttakenda,
eða fulltrúar 120 ríkja, samþykkti stofnsamninginn, í
þeirra hópi var ísland, sjö voru á móti, þ.á m. fulltrúi
Bandaríkjanna, og fulltrúar 21 ríkis sátu hjá.
Fyrir rúmum mánuði fjallaði Róbert R. Spanó, dómara-
fulltrúi við Héraðsdóm Reykjaness og stundakennari í
refsirétti við Háskóla Islands, um alþjóðastríðsglæpadóm-
stólinn og undirbúning að alþjóðasamningi um stofnun al-
pjóðlegs sakamáladómstóls, í grein hér í Morgunblaðinu.
Þar kom fram að um 250 styrjaldir, borgarastríð og stríð
milli ríkja, hafa geisað frá lokum síðari heimsstyrjaldar og
kostað 170 milljónir manna lífið.
í máli hans kom fram að það væri því ekki að ástæðu-
lausu að samfélög manna, með pólitísk hagsmunasamtök í
broddi fylkingar, gerðu sífellt auknar kröfur um að blóð-
baði undanfarinna áratuga linni og að þeir, sem sök ættu á
óhæfuverkunum, yrðu dregnir fyrir dóm og þeim refsað.
Það eru orð að sönnu.
í viðræðum aðildarríkja á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna hefur það verið viðhorf margra að með undirritun
samningsins hafi einum mikilvægasta áfanga í alþjóðasam-
skiptum sjálfstæðra ríkja verið náð síðan sáttmáli Samein-
uðu þjóðanna öðlaðist gildi. Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið síðastliðinn
laugardag að hann teldi þetta vera mikilvægasta framlag
til aukins frelsis, réttlætis og mannréttindaverndar frá
stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Sakamáladómstóllinn mun hafa aðsetur í Haag og fjalla
um þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi.
Mikilvægt er, eftir að dómstóllinn tekur til starfa, að þjóð-
ir heims sameinist um að finna störfum dómstólsins þann
farveg, að um þau verði eining og að hann verði hafinn yfir
pólitískt karp og þref. Valdsvið hans verður að vera óum-
deilt. Því ber brýna nauðsyn til þess að Bandaríkin, Ind-
land og fleiri ríki, sem settu fram ákveðna fyrirvara við
aðild að dómstólnum, skrifi undir stofnsáttmála hans. Það
væri auðvitað ótækt að einhverjar þjóðir neituðu að skrifa
undir stofnsáttmála dómstólsins. Slíkt myndi rýra alþjóð-
legt mikilvægi og gildi hans.
BUFE OG UMFERÐ
BANASLYS varð í Öræfasveit um helgina. Þar lézt 48
ára gömul frönsk kona, sem var farþegi í bíl með eig-
inmanni sínum og öðrum frönskum manni. Ær hljóp fyrir
bílinn og fipaði ökumanninn. Hann missti stjórn á bifreið-
inni, sem valt, með þessum hörmulegu afleiðingum.
íslendingar stefna hingað útlendum ferðamönnum og
reynt er með öllum ráðum að fá þá til þess að heimsækja
landið. íslendingar eru vanir sauðfénu og vita hvernig á að
bregðast við, er það hleypur fyrir bílana, en útlendingarn-
ir eru óvanir slíku og vegmerkingar eru ófullnægjandi ef
nokkrar, sem vara við þessari hættu.
Það er ekki lengur hægt að una við lausagöngu búfjár
meðfram þjóðvegum landsins. Þótt íslenzkur landbúnaður
sé mikilvægur þjóðinni hlýtur að vera unnt að stunda hann
án þess að sauðféð sé alltaf við þjóðvegi. Ferðaþjónustan
er ekki síður mikilvægur atvinnuvegur en landbúnaðurinn.
Þetta er mikið alvörumál. Stjórnvöld verða að sjá svo
um að hér verði breyting á. Það er hörmulegra en orð fá
lýst að kona í blóma lífsins skuli deyja af þessum sökum.
Ástandið í þessum efnum er gersamlega óviðunandi.
Bændur sjálfír eiga að hafa frumkvæði að því að nauðsyn-
legar ráðstafanir verði gerðar til þess að koma í veg fyrir
að sauðfé, sem gengur laust, verði að dauðagildrum. Þjóð-
vegir eru fyrir fólk en ekki sauðfé.
Nýr forstjóri Landsvirkjunar tekur við vandasömum verkefnum
Hver á að byggj a
virkj anir og h var ?
Nýr forstjóri Landsvirkjunar stendur
frammi fyrir stórum verkefnum. Fram hafa
komið tillögur um breytingar á skipulagi
orkugeirans í þá átt að auka samkeppni.
Aform Landsvirkjunar um byggingu nýrra
virkjana á hálendinu mæta andstöðu og fyr-
irtækið þarf að ná málamiðlunum við þá sem
telja að virkjanirnar spilli umhverfínu.Egill
Ólafsson rekur þau verkefni sem blasa við
nýjum forstjóra.
ÞEGAR Jóhannes Geir Sig-
urgeirsson, stjórnarformað-
ur Landsvirkjunar, var
spurður um rökstuðning
stjórnar fyrir ráðningu Friðriks
Sophussonar sagði hann: „Friðrik er
ráðinn á faglegum forsendum. Þær
forsendur eru hins vegar að hluta til
pólitískar, þ.e.a.s. þetta er opinbert
fyrirtæki í eigu ríkisins og sveitarfé-
laga. Framtíð þess ræðst mjög á
hinu pólitíska sviði. Framundan er
mikil vinna Landsvirkjunar með
hagsmunaaðilum að samræma virkj-
unarstefnu Landsvirkjunar stefnu
fyrirtækisins í umhverfismálum. Það
er einnig mjög mikil vinna framund-
an varðandi skipulagsmálin, þ.e. hver
staða Landsvirkjunar á að vera í
framtíðinni. Allt byggist þetta end-
anlega á pólitískum ákvörðunum og
við teljum að reynsla Friðriks geti
nýst okkur mjög vel í þessari vinnu.“
Raforkugeirinn stefnir í átt
að aukinni samkeppni
Á undanfórnum árum hafa viðhorf
varðandi viðskipti með raforku
breyst. Lengst var það viðtekin skoð-
un að hið opinbera ætti að gegna lyk-
Ohlutverki á öllum sviðum orku-
geirans og markaðslausnir ættu þar
ekki við. Þetta viðhorf hefur verið að
breytast víða erlendis og þess gætir
einnig hér á landi. I mörgum löndum
hefur samkeppni smátt og smátt ver-
ið komið á í framleiðslu og sölu á raf-
magni. Norðmenn stigu fyrstu skref
í þessa átt 1991 og hafa Svíar og
Finnar fylgt í kjölfarið. Bretar urðu
fyrstir Evrópusambandsþjóða til að
endurskipuleggja sinn orkugeira og
flest bendir tU að verulegar breyting-
ar séu að verða í orkumál- ______
um í öðrum löndum ESB.
í Bandaríkjunum, Ástralíu
°g Nýja-Sjálandi hefur
frjálsræði í orkuviðskipt-
um verið aukið.
Að sjálfsögðu eru skiptar skoðanir
um þessar breytingar bæði hér á
landi og erlendis. Talsmenn aukins
frelsis segja að reynslan hafi sýnt að
samkeppni dragi úr framleiðslu-
kostnaði og orkuverð lækki því neyt-
endum til hagsbóta. Andstæðingar
breytinganna segja að erfitt sé að
koma á fullkominni samkeppni á
þessu sviði. Stór markaðsráðandi
fyrirtæki séu yfirleitt fyrir á markað-
inum. Samkeppnin auki einnig á
verðmismun, sem komi illa við þá
sem búi í dreifðum byggðum.
Tillögur um breytt skipulag
liggD’a fyrir
I október 1996 skilaði nefnd sem
iðnaðarráðherra skipaði til að gera
tillögur um framtíðarskipan orku-
mála tillögum, en nefndin var undir
forystu Þórðar Friðjónssonar, þá-
verandi forstöðumanns Þjóðhags-
Verður Lands-
virkjun skipt í
tvennt?
stofnunar. Nefndin lagði til að
skipulagi orkumála á Islandi yrði
breytt og komið yrði á aukinni sam-
keppni. Nefndin lagði hins vegar
áherslu á að farið yrði varlega og
samkeppni yrði komið á í áföngum
og staðan yrði endurmetin eftir
hvern áfanga.
Að mati nefndarinnar er ekki hægt
að koma á aukinni samkeppni í orku-
geiranum nema að skilja að orku-
vinnslu og -sölu annars vegar og
flutning og dreifingu hins vegar.
Þetta þýðir að stofna þarf sérstakt
fyrirtæki sem kemur til með að eiga
og reka rafmagnslínurnar. Nefndin
telur tímabært að taka ákvörðun um
stofnun slíks fyrirtækis, sem í skýrsl-
unni er kallað Landsnet. Nefndin
bendir á að flókið kunni að vera að
ákveða hve stór hluti af dreifikerfinu
eigi að vera í eigu Landsnets. Fyiár-
tækið verði að lágmarki að yfírtaka
flutningskerfi Landsvirkjunar og
þann hluta flutningskerfis RARIK
sem þarf til að tryggja að allar raf-
veitur eigi beinan aðgang að Lands-
netinu. Nefndin útilokar ekki að
Landsvirkjun verði hluthafi í Lands-
netinu.
Skipulagsbreytingar í orkugeiran-
um hljóta með einum eða öðnim
hætti að rýra sterka stöðu Lands-
virkjunar á markaðinum. Þeir sem
vilja auka samkeppni í orkuvinnslu
benda á að Landsvirkjun framleiði
93% af öllu rafmagni sem notað er á
íslandi og ef eigi að koma á eigin-
legri samkeppni verði hlutur Lands-
virkjunar að minnka. Hugmyndir
hafa verið settar fram um að skipta
fyrirtækinu í tvennt til að tryggja
eðlilega samkeppni. Veruleg and-
________ staða er við hugmyndir í
þessa veru. Að margra
mati er þörf fyrir stórt og
öflugt orkufyrirtæki á Is-
landi ef landið á að halda
... áfram á þeirri braut að
selja orku til stóriðju. Smá orkufyrir-
tæki ráði einfaldlega ekki við stór-
verkefni eins og Landsvirkjun hefur
ráðist í í gegnum tíðina. Samnings-
staða Landsvirkjunar verði veik ef
fyrirtækinu verði skipt í tvennt og
möguleikar þess á hagstæðum lán-
veitingum verði skertir stórlega.
Nefndin um framtíðarskipan orku-
mála taldi ekki tímabært að taka af-
stöðu til spurningarinnar um skipt-
ingu Landsvirkjunar og telur raunar
að það kunni að vera óhjákvæmilegt
að fyrst í stað verði hér áfram eitt
orkufyrirtæki langstærst á markað-
inum.
Ef skipulagi orkumála verður
breytt vaknar spurningin hver á að
sjá um rannsóknir á þessu sviði.
Orkurannsóknir eru óhemju kostn-
aðarsamar, auk þess sem gera þarf
mikið af grunnrannsóknum sem ekki
er sjálfgefið að nýtist vegna virkjun-
STÆRSTA framkvæmd Landsvirkjunar á þessu ári er bygging
Sultartangavirkjunar í Þjórsá.
arframkvæmda. Þetta er eitt af því
sem þarf að leysa verði skipulagi
orkumála breytt.
Margir vilja virkja
RARIK, Hitaveita Suðumesja,
Hitaveita Reykjavíkur og fleh-i orku-
fyrirtæki hafa sýnt áhuga á að byggja
nýjar virkjanir og því er þrýstingur á
stjómvöld að leyfa fleirum en Lands-
virkjun að virkja og selja orku. Hita-
veita Suðumesja hefur þegar hafið
framkvæmdir við vh’kjun við Svarts-
engi þrátt fyrir að iðnaðarráðherra
hafi ekki gefið út virkjunaileyfi. Hita-
veita Reykjavíkur er nú að byggja
rafmagnsvirkjun á Nesjavöllum, en
fyrirtækið gerði samning um orku-
sölu við Landsvirkjun. Stjórn Veitu-
stofnana Reykjavíkur hefur ákveðið
að láta kanna möguleika á frekari
orkuvinnslu á svæðinu.
Landsvirkjun kann því að standa
frammi fyrir aukinni samkeppni í
orkuvinnslu innan ekki mjög langs
tíma, þ.e.a.s. ef pólitísk ákvörðun
verður tekin um að leyfa fleirum en
Landsvirkjun að virkja. Afstaða
Landsvirkjunar og nýs forstjóra
skiptir að sjálfsögðu máli í þeim um-
ræðum sem fram eiga eftir að fara um
skipulag orkumála. Nýr forstjóri hef-
ur ekki tjáð sig um afstöðu sína til
þessara mála, en fráfarandi forstjóri
hefur lýst andstöðu við hugmyndir
um að skipta Landsvirkjun og lagt
áherslu á að áfram sé þörf fyrir eitt
stórt og öflugt orkufyrirtæki á Is-
landi.
Samræma þarf orkustefnu um-
liverllssjónarmiðum
Nýs forstjóra bíða
verkefni við að
einnig erfið
samræma orku-
stefnu Landsvirkjunar viðhorfum í
umhverfismálum. Á seinni árum
hefur gætt sífellt meiri efasemda
um ýmis áfonn Landsvirkjunar um
nýjar virkjanir á hálendinu. Eftir að
lög voru sett um umhverfismat árið
1993 þarf Landsvirkjun að ganga í
gegnum strangt próf með alla sína
virkjunarkosti. Eldri lög kváðu
einnig á um að Landsvirkjun yrði að
taka tillit til umhverfissjónarmiða
og almenningi gafst einnig þá, eins
og nú, tækifæri til að segja álit sitt á
framkvæmdunum áður en þær
hófust.
Landsvirkjun hefur á __________
seinni árum lagt sífellt
meiri áherslu á umhverfis-
málin. Fyrirtækið sam-
þykkti á síðasta ári sér-
staka umhverfísstefnu og “““““
réð til starfa umhverfisstjóra. Fyrir-
tækið hefur í gegnum árin staðið fyr-
ir umfangsmiklum rannsóknum á há-
lendi íslands, sem snerta jarðfræði,
náttúrufar, gróður, dýralíf og fleira.
Landsvirkjun hefur aðallega horft
á tvö svæði á landinu varðandi bygg-
ingu næstu vatnsaflsvirkjana. Ann-
ars vegar áframhaldandi uppbygg-
ingu á Þjórsár-Tungnaársvæðinu og
hins vegar byggingu virkjana norður
af Vatnajökli.
Á Þjórsár-Tungnaársvæðinu hafa
tvær virkjanir verið á teikniborðinu,
Búðarhálsvirkjun og Vatnsfellsvirkj-
un. Vatnsfellsvirkjun má byggja í
tveimur áfóngum, samtals 140 MW,
og hún kann að verða næsta vatns-
aflsvirkjun Islendinga. Ef Lands-
virkjun nær samningum við stóra
orkukaupendur er þó líklegra að
næsta virkjun verði á Austurlandi.
Þetta ræðst nokkuð af staðsetningu
stóriðjunnar því ekki er talið hag-
kvæmt að byggja stórar flutningslín-
ur yfir hálendið auk þess sem and-
staða er við það út frá umhverfis-
sjónarmiðum. Verði ekki gerðir nýir
orkusamningar er líklegt að þörf
verði fyrir fyrri áfanga Vatnsfells-
vii’kjunar 2004-2005. Bygging virkj-
unarinnar sjálfrar er ekki mjög um-
deild út frá umhverfissjónaiTniðum,
enda verður hún staðsett í mann-
gerðum skurði sem liggur frá Þóris-
vatni. Hins vegar kallar virkjunin á
meiri vatnsmiðlun og því hafa verið
settar fram hugmyndir um byggingu
svokallaðrar Norðlingaöldu. Bygging
stíflu við Norðlingaöldu mun leiða til
þess að fremsti hluti af Þjórsárver-
um fer undir vatn, en andstaða er við
það vegna náttúruverndarsjónar-
miða.
Um gerð Norðlingaöldulóns verð-
ur án efa tekist á þegar framkvæmd-
in fer í umhverfismat. Landsvirkjun
telur að virkjun við Vatnsfell í fullri
stærð verði ekki hagkvæm án lónsins
og framtíð hennar ræðst því að öllum
líkindum af því hvort leyft verður að
stíflavið Norðlingaöldu.
Áform um þrjár stórar virkjanir
norðan Vatnajökuls
Norðan Vatnajökuls eru þrjár
stórar ár, Jökulsá á Fjöllum, Jökulsá
á Brú og Jökulsá á Fljótsdal. Sam-
tals rennur um þessar ár þriðjungur
af öllu vatnsafli á Islandi.
Virkjun þessara áa kallar á gríðar-
lega miklar framkvæmdir. Ef þær
yrðu allar að veruleika yrðu, svo
dæmi sé tekið, byggð jarðgöng til að
leiða vatn frá miðlunarlónum að
virkjunum sem samtals yi’ðu fast að
100 km á lengd. Byggð yrðu þrjú
miðlunarlón og er það stærsta álíka
stórt og Þingvallavatn.
Vh-kjun í Jökulsá á Brú við Kára-
hnjúka yrði stærsta virkjun á Islandi
eða 500 MW. Hún yrði nálægt helm-
ingi stærri en stærsta virkjun lands-
ins, Búrfellsvirkjun. Ef byggð yrði
sífla við Kárahnjúka, sem yrði 200
metra há, myndi einungis yfirborðs-
vatn renna um Dimmugljúfur.
Meiri andstaða er þó við virkjun
Jökulsár á Fjöllum, en ef hún yrði að
veruleika myndi vatn minnka í Detti-
fossi og í Jökulsárgljúfrum. Áformað
er að leiða ána í jarðgöngum út í
Lagai-fljót, en hún fellur í dag út í
Öxarfjörð. Það er ekki hægt að
virkja Jökulsá á Fjöllum fyrr en búið
er að virkja við Kárahnjúka og því
hefur Landsvirkjun meira horft til
virkjunar í Jökulsá á Brú.
Sú virkjun sem er hins vegar mest
til umræðu nú og hefur raunar verið
það í bráðum 20 ár er Fljótsdals-
virkjun. Heimildarákvæði um virkj-
unina voru sett í orkulögum árið
1981 og Landsvirkjun var veitt virkj-
unarleyfi 1991. Framkvæmdir hófust
við virkjunina það ár. Lagðir voru
vegir og framkvæmdir við jarðgöng
hófust. Landsvirkjun hefur þegar
lagt í 2-3 milljarða kostnað við virkj-
unina. Framkvæmdum var hins veg-
ar frestað í nóvember 1991 þegar
áform um álver við Keilisnes voru
lögð á hilluna.
Fljótsdalsvirkjun kallar á umdeilt
_________ lón við Eyjabakka, en þar
er fjölbreytt fuglalíf og fal-
legur gróður. Mikill fjöldi
gæsa dvelst þar á haustin.
Breytt ásýnd Snæfells er
“““““ einnig viðkvæmt mál fyrir
marga.
Virkjunarleyfi vegna Fljótsdals-
virkjunar var gefið út áður en lög um
umhverfismat voru sett 1993 og því
þarf virkjunin ekki að fara í um-
hverfísmat. Frá því að almenningi
gafst kostur á að segja álit sitt á
virkjuninni á grundvelli þáverandi
laga hafa viðhorf í umhverfismálum
breyst, að mati þeirra sem andsnúnir
eru virkjuninni, og þess vegna er
þrýst fast á stjórnvöld að láta fram-
kvæmdina fara í umhverfismat. Ef
það verður gert er með öllu óljóst
hver úrskurðurinn yrði. Sú staða
gæti því komið upp að Landsvirkjun
yrði bannað að hefja framkvæmdir
við vh'kjun sem fyrirtækið hefur
virkjunarleyfi fyrir. Sú spurning
hlýtur þá að vakna hver á að bera
2-3 milljarða kostnað við virkjuna
sem Landsvirkjun hefur þegar stofn-
að til.
Harl tekist á
um Fljóts-
dalsvirkjun
Finna dreymir um
Kin álahéruðin
Rauði herinn sovéski réðst inn í Finnland 30.
nóvember 1939 en þrátt fyrir frækilega
frammistöðu Finna í Vetrarstríðinu, sem
stóð 1 þrjá mánuði, urðu þeir að láta Kirjála-
héruðin af hendi, um 10% landsins,
frjósamasta hluta þess og heimkynni
Kalevala-kvæðanna. Síðan hafa þeir að
mestu borið harm sinn í hljóði að því er fram
kemur í samantekt Sveins Sigurðssonar en
nú er kannski að verða breyting þar á.
hemum að hefja aðgerðir en beið með
stríðsyfirlýsingu í von um, að Finnar
gæfu eftir.
Jaíhvel þegar hér var komið taldi
Erkko, að aðeins væii um þrýsting að
ræða en nú var öðrum ráðherrum nóg
boðið. Forsætisráðherrann og utanrík-
isráðherrann fóru frá og ný stjóm und-
h’ forystu Risto Ryti vildi semja um
landaskipti. Þá var það orðið of seint.
Kiijálahéruðin látin af hendi
Vetrarstríðið stóð aðeins í þrjá mán-
uði og frammistaða Finna gegn of-
urefli liðs ávann þeim aðdáun um allan
heim. Varð Rauði herinn fyrir óskap-
legu mann- og hergagnatjóni og þegar
stríðinu lauk höfðu víglínumar ekkert
breyst. Þótt Frakkar og Bretar hétu
þeim aðstoð, þá vissu Finnar, að þeir
EINS og fram hefur komið,
hefur finnskur hershöfðingi,
Kari Hietanen, lýst yfir, að
kominn sé tími til, að Rúss-
ar skili þeim hluta Kirjálahéraðanna,
sem sameinaður var Sovétríkjunum í
síðari heimsstyrjöld. Kallaði hann
innlimunina „söguleg mistök“, sem
bæri að bæta fyrir nú þegar kalda
stríðið væri um garð gengið.
Hietanen hefur með þessu hreyft við
mjög viðkvæmu máli. Þótt Finnar
hafi aldrei sætt sig við missi Kirjála-
héraðanna, hefur verið þegjandi sam-
komulag að nefna þessa kröfu ekki á
nafn. Erfið staða Finna gagnvart
Sovétríkjunum eftir stríð gerði það
nauðsynlegt en jafnvel þótt tímamir
séu breyttir, þá er ljóst, að fmnskir
ráðamenn telja sig ekki munu sækja
gull í greipar Rússa nú fremur en áð-
ur. Paavo Lipponen, forsætisráð-
herra Finnlands, og yfirstjóm
finnska hersins bragðust líka hart við
yfirlýsingum Hietanens og sögðu þær
aðeins vera hans einkaskoðanir.
Austurhluti Kirjálahéraðanna varð
sérstakt sjálfstjórnarlýðveldi innan
Sovétríkjanna 1920 en vesturhlutinn
og stærsti hluti þeiiTa var innan
finnsku landamæranna. Var höfuð-
staðurinn Viborg, næststærsta borg í
Finnlandi. Var yfir henni meiri heims-
menningabragur en öðrum finnskum
borgum enda gamalgróinn verslunar-
borg frá dögum Hansakaupmanna.
Molotov-Ribbentrop-
samningnrinn
Síðari heimsstyrjöld hófst með inn-
rás Þjóðverja í Pólland 1. september
1939 og fljótlega kom í ljós hvað griða-
sáttmálinn milli þeirra og Sovétstjóm-
arinnar þýddi. Póllandi var skipt á
milli Þýskalands og Sovétríkjanna 28.
sept., Eistland, Lettland og Litháen
fóm undir Sovétríkin í september og
október og á sama tíma krafðist Sovét-
stjórnin þess, að Finnar létu land af
hendi í suðausturhluta landsins.
Samkvæmt griðasáttmála nasista
og kommúnista var Finnland á rúss-
nesku áhrifasvæði þótt Finnar hefðu
aldrei verið spurðir um það og
finnsku landamærin á Kirjálaeiði,
milli Ladogavatns og Finnska flóa,
voru þá skammt fyrir vestan Len-
ingrad. Sovétstjórnin óttaðist, að
þrátt fyi’ir griðasáttmálann yrði
Finnland eins konar stökkpallur fyiir
innrás Þjóðverja og með landakröfun-
um á hendur Finnum vakti því fyrir
henni að styrkja varnir sínar.
Sovétmenn vildu fá suðm’hluta
Kirjálaeiðis og nokkrar mikilvægar
eyjar í Finnska flóa og gegn þessu
buðu þeir í staðinn allstór, skógivaxin
svæði í Austur-Kirjálahéruðunum,
land, sem finnskir þjóðemissinnar
höfðu raunar lengi látið sig dreyma
um.
Sterki maðurinn Eljas Erkko
Finnska stjórnin neitaði að verða
við þessum kröfum þótt Gustaf
Mannerheim hershöfðingi og raunar
fleiri frammámenn teldu rétt að gefa
eftir. Þeir vissu sem var, að finnski
herinn gæti ekki staðist þeim rúss-
neska snúninginn til lengdai’ og enga
FINNSKIR hermenn í vetrarskrúða í grennd við rússnesku landamærin.
hjálp var að fá. Þjóðverjar héldu að
sér höndum í samræmi við Molotov-
Ribbentrop-samninginn og ráðlögðu
Finnum að verða við óskum Sovét-
stjórnarinnar; Svíar neituðu að veita
Finnum hernaðaraðstoð og herir
Bandamanna voru víðs fjarri.
Finnska ríkisstjórnin sagði samt
nei og því réð sterki maðurinn í
stjóminni, utanríkisráðherrann Eljas
Erkko. Hann taldþ að Sovétstjórnin
væri að blekkja. I 20 ár hefði hún
ekki talað um annað en frið og hvem-
ig gæti hún þá farið að ráðast á frið-
sama smáþjóð? Gerði hún það samt
sem áður, myndi hún fyrst birta
Finnum úrslitakosti og þá gætu þeir
fallist á landaskiptin.
Þetta var ekki alveg út í hött. Sov-
étstjórnin vildi ekki, að svo liti út sem
hún væri árásaraðilinn og birti því
Finnum enga úrslitakosti. Hún
reyndi hins vegar að koma þeim til
skila með heiftarlegum árásum á
finnsku ríkisstjórnina í sovéskum fjöl-
miðlum og 26. nóvember vom Finnar
sakaðir um árásir yfir landamærin.
Tveimur dögum síðar rifti hún ekki-
árásar-samningi milli ríkjanna og
daginn eftir sleit hún stjórnmálasam-
bandinu. 30. nóvember skipaði hún
gætu ekld haldið stríðið út
til lengdar og sömdu um
frið. Létu þeir af hendi eyj-
arnar, þar á meðal Hangö, •
og landamærin vom færð í
vestur frá Leningrad.
Árangur Finna gegn
Rauða hernum átti sinn
þátt í að sannfæra Hitler
um, að Rússar væru van-
búnir til átaka og þegar
Þjóðverjar réðust inn í
Sovétríkin sumarið 1941
réðust Finnar inn í Kii’jála-
hémðin í þeim tilgangi að
endurheimta þau. Komust
þeir langt austur fyrir sín
gömlu landamæri, langt
inn í Austur-Kirjálahéruð-
in, og þar var víglínan þeg-
ar Sovétmenn hófu mikla
gagnsókn sumarið 1994. <
Finnar gáfust þá upp og
samið var um, að þeir hörf-
uðu til landamæranna, sem
ákveðin vora eftir Vetrar-
stríðið, og auk þess létu
þeir Petsamo í norðri og
nokkurt annað land af
hendi.
Blóðtaka fyrir litla þjóð
Þegar Finnar misstu Kirjálahémðin
í Vetrarstíðinu flýði stór hluti íbúanna,
423.000 manns, vestur á bóginn en
mannfall Finna þá var um 25.000
manns og 10.000 særðust eða örkuml-
uðust. í stríðinu 1941 til 1944 misstu
þeir 65.000 manns og 158.000 særð-
ust.
Auk þessa urðu Finnar að greiða
Sovétstjóminni miklar strlðsskaða-
bætur, aðaliega í formi vörusendinga,
og hafa þær verið virtar á um 900
millj. Bandaríkjadala að þávirði, sem
var óskapleg blóðtaka fyrir þessa litlu
þjóð. Þrengingamar í Finnlandi eftir
stríð voru miklar enda þurfti ekki að-
eins að greiða Rússum, heldur einnig
að byggja yfir næstum hálfa milljón
flóttamanna. Finnar lögðu hart að sér
og síðasta afborgunin af stríðsskaða-
bótunum var 1952.
Finnar sakna Kirjálahéraðanna
enda misstu þeir með þeim um 10%
landsins og einn frjósamasta hluta
þess. Þar voru líka Kalevala-ljóðin
upprunnin eða varðveitt. Mikil breyt-
ing hefur hins vegar orðið á íbúum
héraðanna og nú er yfirgnæfandi
meirihluti þeima rússneskur. Aðeins
um 10% teljast vera af finnsku bergi
brotnir. I