Morgunblaðið - 21.07.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 29
HESTAR
fslandsmót 1 hestaíþróttum
Metskráning
á Æðarodda
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
FÉLAGAR í Dreyra hafa haldið opin mót á Æðarodda um árabil og eru komnir með góða æfingu í stór-
mótahaldi. Myndin er frá einu af Islandsbankamótunum þar sem fer Dreyrafélaginn Jakob Sigurðsson á
Rökkva frá Eystra-Fíflholti með hesthúsahverfið í baksýn og fána Dreyra við hún.
ENN einu sinni er metþátttaka í
Islandsmóti í hestaíþróttum sem
nú er haldið á Æðarodda við Akra-
nes en það er hestamannafélagið
Dreyri sem sér um um mótið að
þessu sinni. Skráningar eru 708 en
knapar eru vel á þriðja hundraðið
sem þátt taka í mótinu. Þessi mikla
þátttaka kemur vissulega á óvart
en þar veldur öðru fremur vel
heppnuð íslandsbankamót sem
Dreyri hefur staðið fyrir um árabil.
Þá má ætla að nálægð við nýafstað-
ið landsmót eigi hlut að máli, mörg
hross í góðri þjálfun um þessar
mundir. Flestir fremstu knapar
landsins mæta til leiks og má gera
ráð fyrir að keppnin verði spenn-
andi eins og alltaf hefur verið á
þessum mótum.
Heiðursgestur og verndari móts-
ins verður Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti, og mun hún
ásamt fleiri góðum gestum vera við-
stödd sérstaka hátíðarstund sem
verður klukkan hálfeitt á sunnudag.
Með mótinu verður nýtt og end-
urbætt mótssvæði Dreyra vígt en
félagið gerði framkvæmdasamning
við Akranesbæ árið 1994 og segir í
fréttatilkynningu að framlag bæjar-
ins sé til eftirbreytni fyrir önnur
sveitarfélög. Keppt verður á tveim-
ur hringvöllum auk þess sem ný
skeiðbraut verður tekin í notkun.
Þá verður sú nýbreytni viðhöfð að
ritarar úti á velli verða með forrit-
aðar tölvm- þannig að engin bið
verður á að dómarar geti rétt upp
einkunnaspjöld.
Keppendum verður boðið upp á
að hafa hross sín á húsi eða setja
upp rafmagnsgirðingar í nágrenni
svæðisins og hafa hross sín í þeim
meðan á mótinu stendur. Til staðar
verður þun-hey fyrir þá sem það
vilja.
Athygli vekur að meðan á keppni
stendur verður öll meðferð áfengra
drykkja bönnuð á svæðinu en þess
er getið í fréttatilkynningunni að
hjá Iþróttabandalagi Akraness sem
Dreyri er aðili að er lögð sérstök
áhersla á vímulausar íþróttir og
íþróttauppeldi æskufólks.
Um úrslit í einstökum greinum er
efítt að spá en þess má þó geta að
núverandi íslandsmeistari í tölti
Sigurður Sigurðarson er ekki
skráður til leiks með Kringlu frá
Ki-inglumýri en mætir þess í stað
með alhliða gæðinginn Skafl frá
Norðurhvammi í töltið. Af öðrum
sem telja má líklega í töltinu má
nefna Hans F. Kjerúlf sem mætir
með Laufa frá Kolluleiru, Sigur-
björn mætir með Odd frá Blönduósi
og Hafliði Halldórsson er skráður
með Valiant frá Hreggstöðum. Á
pappírnum virðast þessir sterkastir
en auðvitað getur allt gerst.
Hulda Gústafsdóttir, íslands-
meistari í fimmgangi, er ekki skráð
til leiks svo ljóst er að þar mun nýr
meistari koma fram á sjónarsviðið.
Ásgeir Svan og Farsæll frá Arnar-
hóli mæta í fjórganginn og freista
þess að vinna titilinn í fjórða skipti í
röð. Ætla má að þeir Hafliði, Hans
og Sigurbjörn geri harða hríð að
Ásgeiri og Farsæl og vafalaust
koma fleiri þar við sögu. Þannig má
lengi velta upp möguleikum hverjir
komi til með raða sér í úrslitin en
best er að mæta á Æðarodda og
fylgjast með hverjir komi til með að
hampa bikurum og titlum.
Valdimar Kristinsson
Otrúlegl hvað hest-
arnir eru góðir
MICHELLE Foot er
ein af þessum ástríðu-
fullu aðdáendum ís-
lenska hestsins og var
að sjálfsögðu mætt á
landsmót hestamanna
á Melgerðismelum.
Hún býr í Dorset í
Suður-Englandi og
ræktar þar íslenska
hesta ásamt manni sín-
um Nick.og gefur út
fréttabréf um íslenska
hesta sem ber heitið
Set the Pace. Hún hef-
ur auk þess keppt á
heimsmeistaramótum
og unnið að kynningu
íslenska hestsins í Bretlandi.
„Það er ótrúlegt hvað hestarnir
eru góðir og staðallinn hár hérna,“
sagði Michelle þegar hún var innt
álits á mótinu og hestunum sem
hún hafði séð. „Ég hélt að hestarn-
ir heima væru ágætir, en eftir
þetta veit ég ekki hvað mér finnst
um þá. Maður vissi ekki við hverju
maður mátti búast vegna veikinn-
ar, en mér finnst landsmótið svo
sannarlega hafa tekist vel. Og það
er greinilega stöðug framför í
ræktuninni og hesta-
mennskunni hér á ís-
landi.
Önnur ástæða fyrir
því hve gaman er að
koma á hestamanna-
mót hér á íslandi er
mannlífíð. í gegnum ár-
in hefur maður kynnst
fjölda manns í tengsl-
um við íslenska hestinn
og hér hittir maður
ótrúlega marga þeirra.
Mér finnst reyndar oft
eins og ég sé komin
heim þegar ég kem til
íslands."
Michelle gekk í félag
eigenda íslenskra hesta í Bretlandi
árið 1988, hálfu ári eftir stofnun
þess, og hefur um skeið gefið út
fréttabréfið Set the Pace. Hún seg-
ist selja það í áskrift og eru áskrif-
endur 150 talsins víða um heim.
Aðspurð hvort hún hafi komið til
landsins til að kaupa hross segir
hún það ekki hafa verið tilganginn
þótt hún sé alltaf að líta í kringum
sig. Hún sé bara í vikufríi að þessu
sinni og það noti hún til að vera á
landsmótinu og ríða út.
Michelle Foot
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SPENNAN í kappreiðum hefur aukist á undanförnum vikum og
hart barist um sigurinn þegar góð verðlaun eru í boði.
Sjaldséðir
hvítir hnakkar
GESTIR á landsmótinu notuðu
margir hverjir tækifærið þegar
hlé varð á milli atriða til að skoða
sig um í sölubásunum sem komið
var upp á brúninni fyrir ofan
áhorfendabrekkuna. Þar voru á
boðstólnum ýmsar vörur allt frá
harðfiski upp í hestakerrur.
Hvítur hnakkur vakti athygli
margra í sölubás Hnakkvirkis á
Akureyri, en auk hans voru þar
hnakkar f mörgurn litum til sölu.
Kolbrún Júliusdóttir hjá Hnakk-
virki sagði að tískusveiflur væru
farnar að hafa áhrif á það hvernig
fólk vildi hafa hnakkana sina á lit-
inn. Undir það tók Anfinn
Heinesen sem sagði að Islendingar
hefðu þó helst viljað hafa hnakk-
ana sína svarta hin síðari ár. Fyr-
irspurnir hefðu hins vegar komið
frá erlendum viðskiptavinum
þeirra hvort ekki væri hægt að fá
brúna eða drapplitaða hnakka og
sáu þau því ekkert til fyrirstöðu að
verða við óskum þeirra.
Aðspurð um hvort einhverjir
hvítir hnakkar hefðu selst sögðu
þau að þau hefðu aðeins látið
smíða tvo hvíta hnakka. Annar
þeirra var til sýnis á landsmótinu
en hinn fór Baldvin Ari Guðlaugs-
son með til Ameríku, keppti á
honum, en sfðan var hann seldur
þar úti. Langflestir viðskiptavinir
Hnakkvirkis eru útlendingar og
er mest selt til Norðurlanda,
Bandaríkjanna og Þýskalands.
?< \Jil^r ’ \\S> W/ vB
I 111
Morgunblaðið/Ásdís
ANFINN Heinesen, Einar Ingi Egilsson og Kolbrún Júlíusdóttir
með sýnishorn af hnökkum Iiuakkvirkis á Akureyri.
Yeðbanki
starfræktur
í fyrsta sinn
á landsmóti
KAPPREIÐAR hófust á Lands-
mótinu í gær og gengu þær fljótt og
vel fyrir sig. Keppt var í 21 riðli, 13 í
150 m skeiði, 4 í 250 m skeiði og 4 í
300 m stökki og tók aðeins klukku-
stund og fimmtán mínútur að ljúka
þessum fyrri sprettum. Seinni
sprettir í skeiði og úrslit í 300 m
stökki fara fram í dag.
Besta tíma í 150 m skeiði hlaut
Lúta frá Ytra-Dalsgerði, 14,21 sek.
Knapi á Lútu er Þórður Þorgeirs-
son. I 250 m skeiði var Bendill frá
Sauðafelli fýrstur á 27,61 sek. Knapi
á honum er Ragnar Hinriksson. I
300 m stökki var Kósi frá Efri-
Þverá fyrstur á 22,61 sek.
Hestamannafélagið Fákur var
fengið til að halda kappreiðarnar á
Landsmótinu. Þar sem félagið hefur
leyfi til að halda veðreiðar var
ákveðið að starfrækja veðbanka á
mótinu. Fákur flutti því bæði starfs-
fólk og startbása norður og áður en
fyrri sprettimir í kappreiðunum
hófust var fólk strax byrjað að
veðja.
Að sögn Hjartar Bergstað, um-
sjónarmanns veðbankans, fóru veð-
málin hægt af stað, en eftir því sem
á leið lifnaði yfir þeim.
Hjörtur sagði að eftir að byrjað
var að sjónvarpa kappreiðum og
starfsemi veðbanka endurvakin
hefði áhugi almennings á kappreið-
um aukist til muna. Nú væri gerð
tilraun til að starfrækja veðbanka á
landsmóti og réðist framhaldið ef-
laust af því hvernig til tækist.