Morgunblaðið - 21.07.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 11
FRÉTTIR
Landhelgisgæslan sækir tvo Þjóðverja á Hornstrandir
Slæmt talstöðvarsam
band úr neyðarskýli
Aðeins eitt
jafnlangt
sjúkraflug
SJÓMAÐURINN sem áhöfn
þyrluLandhelgisgæsIunnat',
TF-LÍF, sótti á loðnumiðin
lang-t norður af landinu sl.
föstudag er á góðum batavegi,
að sögn Garðars Guðmundsson-
ar, sérfræðings á heila- og
taugadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur. Hann segir það hafa
skipt sköpum að maðurinn var
með hjálm á höfði við vinnu
sína þegar slysið varð.
Sjúkraflugið tókst mjög vel,
en að sögn Helga Hallvarðsson-
ar, yfírmanns gæslufram-
kvæmda, hefur þyrla Landhelg-
isgæslunnar aðeins einu sinni
áður farið í jafnlangt sjúkra-
flug. Það var 9. mars 1997 þeg-
ar Dísarfellið sökk um 100 sjó-
mflur suðsuðaustur af Horna-
fírði. Það sjúkraflug var alls
570 sjómflur, eins og flugið á
miðin fyrir norðan land á föstu-
daginn.
VARÐSKIPIÐ Týr sótti aðfaranótt
laugardags tvo Þjóðverja sem lent
höfðu í ógöngum á Hornströndum.
Annar mannanna hafði misst af
sér annan skóinn þegar hann var
að vaða yfir Hrollleifsvíkurá og
treysti sér því ekki til að halda
áfram. Hinn hélt að Horn-
bjargsvita og hugðist þar sækja
aðstoð eða skó handa félaga sínum.
Þar voru öll hús læst, nema útihús
og því litla björg að fá. Hann hélt
því yfir í Barðsvík þar sem hann
vissi af björgunarskýli Slysavarna-
félagsins. Maðurinn sendi hjálpar-
beiðni með talstöðinni í skýlinu.
Neyðarkallið heyrðist ekki hjá
Siglufjarðarradíói, en báturinn
Gunnbjörn IS sem var fyrir utan
nam kallið. Bátsverjar fóru inn í
víkina til að kanna málið, en of
mikið brim var við ströndina til að
þeir gætu komist til mannsins, og
að sömu niðurstöðu komst Slysa-
varnafélagið.
Akveðið var að leita til Landhelg-
isgæslunnar, en varðskipið Týr var
þá einmitt statt úti fyrir Vestfjörð-
um. Varðskipsmönnum tókst að
lokum að finna stað þar sem hægt
var að lenda og sóttu Þjóðverjana.
@texti: Helgi Hallvarðsson, yfir-
maður gæsluframkvæmda, segir að
nauðsynlegt sé að hafa meiri þjón-
ustu við ferðamenn á svæðinu, og
bæta talstöðvarsamband í neyðar-
skýlinu.
Þór Magnússon, deildarstjóri í
björgunardeild Slysavarnafélags
Islands, segir að vegna staðsetn-
ingar skýlisins sé ekki hægt að ná
sambandi við Siglufjarðarradíó
eftir að hætt var að nota milli-
bylgjusvið, og því hafi verið treyst
á að hægt væri að ná til skipa á sjó
fyrir utan.
„Til að ná sambandi við Siglu-
fjörð þyrfti að hafa skýlið hinum
megin við víkina, en það er illa farið
og ekki svarar kostnaði að flytja
það. Það kostar um eina milljón
króna að byggja nýtt skýli, en við
höfum ekki haft fjármagn til þess,
enda er þetta ekki fremst í okkar
forgangsröð,“ segir Þór.
ÁLFELGUR - HEILSÁRSDEKK - FJARSTÝRÐ SAMLÆSING - GEISLASPILARI
vökva/veltistýri • 2 loftpúðar • rafmagn í rúðum og
speglum • aflmikil 16 ventla vél • vindkljúfur með
hemlaljósi • styrktarbitar í hurðum • samlitaðir stuðarar
hæðarstillanleg kippibelti • upphituð framsæti
fij,
ÖtSKYLDUB^
rtití t SUMAfi/
BALENO EXCLUSIVE 4X4
1.595.000 kr.
$: SUZUKI
SUZUKI SÖLUUM80Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sfmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, slmi 4E2 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf„
Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. fsafjörður: Bllagarður ehf.,Grænagarði, slmi 456 30 95. Keflavík: BG
bílakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 26 17.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
NÝR, ENN RlKULEGAR ÚTBÚINN SUZUKIWAGON
BALENO £***Srf*~4X4]