Morgunblaðið - 21.07.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 43
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Vegna aukins sjálfstæöis þarf Staðlaráð (slands
að ráða 2 starfsmenn:
Bókara
Starfssvið: Umsjón með bókhaldi Staðlaráðs
og skyldra aðila, einkum fjárhagsfærslum,
reikningagerð, fylgiskjölum, tímafærslum
starfsmanna, launakeyrslum, skilagreinum,
innheimtu og greiðslu reikninga. Einnig aðstoð
við gerð áætlana og uppgjörs.
Kröfur: Verslunarpróf eða sambærileg þekking.
Tölvufærni, nákvæmni og hæfileikartil að
vinna sjálfstætt. Reynsla af svipuðum störfum
er æskileg. Þarf að geta hafið störf eigi síðar
en 1. október, helst fyrr.
Ritara
Starfssvið: Almenn ritarastörf, svo sem Ijósrit-
un, vistun, símavarsla, gagnaskráning, umbrot
og aðstoð við sölu.
Kröfur: Góð almenn menntun, enskukunnátta
og tölvufærni. Reynsla af umbrotsvinnu er
æskileg. Þarf að geta hafið störf eigi síðar en
1. október.
í boði er
góður starfsandi, nýtt bókhaldskerfi og tæki-
færi til að taka þátt í uppbyggingu nýrrar þjón-
ustumiðstöðvar fyrir atvinnulífið sem verður
staðsett í Holtagörðum.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorvarður
K. Ólafsson í síma 5707150. Umsóknir sendist
til Staðlaráðs íslands, Keldnaholti, 112 Reykja-
vík, eigi síðar en 27. júlí.
Staölaráð islands er vettvangur þeirra sem hagsmuna eiga að gæta
af stöðlun. Ráðið sér um útgáfu séríslenskra staðla og á aðild að
alþjóðlegum og evrópskum staðlasamtökum. Til þessa hefur ráðið
staðfest um 7000 Evrópustaðla sem íslenska staðla.
ÖLFUSHREPPUR
Leikskólakennarar
óskast að leikskólanum
Bergheimum, Þorlákshöfn
Ölfushreppur auglýsir eftir leikskólakennurum
eða öðrum uppeldismenntuðum starfsmönn-
um til starfa á leikskólanum Bergheimum Þor-
lákshöfn. Leikskólinn Bergheimar er í dag 3ja
deilda leikskóli og nýlega voru teknar í notkun
tvær deildir, um 210 fm.
Þorlákshöfn er vel í sveit sett á þéttbýlasta svæöi Suöurlands í aöeins
50 km fjarlægð frá Reykjavík. íbúar eru um 1300. Á staðnum er einset-
inn góöur skóli, skólaathvarf, gott íþróttahús, sundlaug o.fl. Aðstoöaö
veröur við útvegun húsnæðis.
Allar frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri
Ölfushrepps í síma 483 3800 eða leikskólastjóri
í síma 483 3462.
Umsóknum um starfið skal skila á skrifstofu
Ölfushrepps, Selvogsbraut 2, 815 Þorlákshöfn,
fyrir 1. ágúst nk.
Sveitarstjóri Ölfushrepps.
Grillhúsið Tryggva-
götu og Sprengisandi
Erum að leita að hressu og duglegu fólki til
að vinna með okkur, bæði í fullt starf og
aukavinnu. Ekki yngri en 18 ára.
Upplýsingar í Grillhúsinu Sprengisandi í dag
milli kl. 14.30 og 16.30 - Helga.
Trésmiðir
Óskum að ráða trésmiði strax. Mikil vinna.
Friðjón og Viðar ehf.,
símar 565 3854/893 4335 og 854 2968.
I
I
I
I
I
!
UMSJÓNARMAÐUR TÖLVUKERFIS
Tölvu- og upplýsingasvið Kaupþings hf. vinnur að uppbyggingu og
viðhaldi á upplýsingakerfi fyrirtækisins. Upplýsingakerfið er byggt á
nýjustu tækni frá Microsoft og felur m.a. í sér beinlínutengingar við alla
helstu markaði heims og upplýsingaflæði frá viðskiptagólfi til bókhalds.
Byggt er á skilgreindu verkflæði sem vinnur í Microsoft BackOffice
umhverfi og NT-stýrikerfi. Nú leitar Kaupþing hf. að umsjónarmanni á
Tölvu- og upplýsingasviðið.
Um er að ræða starf þar sem miklar kröfur eru gerðar um áhuga á að
nota nýjustu tækni frá Microsoft við upplýsingamiðlun. Starfið felur í
sér forritun á COM-hlutum sem vistaðir eru undir MTS og notaðir með
aðstoð DCOM fyrir viðmótslag sem getur verið vefskoðari jafnt sem
Microsoft Outlook Form, ásamt gagnavinnslu í gegnum SQL-fyrirspurnir
með hjálp forritunar/ADO, Access eða Crystal Reports.
Við leitum að sjálfstæðum einstaklingi sem vill starfa á reyklausum
vinnustað, hefur metnað í starfi og mikinn áhuga á nýjustu tækni.
Menntun: Tæknifræði, verkfræði, tölvunarfræði eða kerfisfræði TVÍ.
Við bjóðum tæknilegt umhverfi með NT-stýrikerfi fyrir þjóna (Server)
og vinnustöðvar. Gagnagrunnar eru SQL Server - NT Enterprise Cluster
„Wolfpack" útgáfa, Exchange Server. Aðrir þjónar eru IIS (Internet
Information Server), MTS (Microsoft Transaction Server) og MSSQL
(Microsoft Messagequeue Server). Verkfæri eru Visual Studio, Visual
Basic, Office PRO, Crystal Reports og FrontPage. Tækni: COM/DCOM,
ASP, MTS og MSSQL ADO/OLEDB.
Umsóknir berist til Ásgríms Skarphéðinssonar, forstöðumanns Tækni-
og upplýsingasviðs, fyrir 4. ágúst n.k. Öllum umsóknum verður svarað
og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Kaupþing hf.
Ármúla 13A, Reykjavík
sími 515 1500
fax 515 1509
www.kaupthing.is
KAUPÞING HF
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍ KU R
Störf
á gjörgæsludeild
Hjúkrunarfræðinga vantar nú þegar á gjör-
gæsludeild og vöknun SHR. Einnig eru lausar
stöður sjúkraliða og hjúkrunarritara frá 1. sept-
ember nk.
Allir sem hefja störf á deildinni, fá skipulagða
einstaklingshæfða aðlögun undir handleiðslu
áhugasamra starfsmanna. í haust erfyrirhugað
námskeið í gjörgæsluhjúkrun fyrir alla nýja
hjúkrunarfræðinga á deildinni.
Fyrirhugað námskeiðsform:
• Fyrirlestrar og umræður.
• Sýnikennsla og þjálfun.
Gjörgæsludeildin ertvískipt, með 9 rúm fyrir
gjörgæslu og 13 fyrir vöknun. Hjúkrun á gjör-
gæsludeild SHR mótast mjög af því hlutverki
spítalans að vera aðal slysa- og bráðasjúkra-
hús landsins og verkefnin því fjölbreytt, áhuga-
verð og krefjandi.
Kynnið ykkur möguleikana hjá Kristínu Gunn-
arsdóttur, hjúkrunardeildarstjóra á gjörgæslu-
deild, í síma 525 1083 eða Gyðu Halldórsdótt-
ur, hjúkrunarframkvæmdastjóra, í síma
525 1305 (kalltæki 1305).
Við ráðningar í störf vilja þorgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist
ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja það kynið, sem er
í minnihluta i viðkomandi starfsgrein, til að sækja um.
Grunnskólakennarar
— tónlistarkennarar
Finnst þér erill þéttbýlisins þreytandi? — Hef-
urðu fengið nóg af of stórum bekkjardeildum,
ófullnægjandi vinnuaðstöðu og stofnanalegu
yfirbragði?
— Eða langar þig bara til að setjast að í fögru
umhverfi í íslensku strjálbýli og takast á við
spennandi verkefni í fámennum skóla?
Þá ættirðu ad kynna þér þetta:
Við bjóðum störf og búsetu í rólegu og fallegu
umhverfi, þar sem andi þingeyskrar menningar
er enn við lýði. Við bjóðum kennslu í fámenn-
um aldursblönduðum bekkjardeildum, þar sem
eru prúðir og skemmtilegir nemendur í ein-
setnum fámennum skóla. Við bjóðum starfsað-
stöðu í einum best búna skóla á landsbyggð-
inni þar sem vinnuaðstaða kennara er sérlega
góð. Við bjóðum heimilislegt andrúmsloft, þar
sem nemendur og kennarar hafa aðgang að
góðu skólamötuneyti og kennurum býðst
ódýrt og gott íbúðarhúsnæði í skólanum.
Okkur vantar
deildarstjóra tónlist-
ardeildar og grunn-
skólakennara
í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði
vantar okkur grunnskólakennara sem t.d.
gæti hugsað sér að kenna einhverjar eftirtal-
inna námsgreina: Dönsku, ensku, íþróttir,
stærðfræði í eldri bekkjum og tölvunotkun.
Okkur vantar líka tónlistarkennara til að
veita forstöðu tónlistardeild skólans og til að
sjá um hljóðfærakennslu. Viðkomandi þarf
einnig að kenna tónmennt.
Þetta eru störf sem virkilega er vert ad
spyrjast fyrir um.
Umsóknarfrestur framlengist til 7. ágúst.
Nánari upplýsingar veita Ólafur Arngrímsson,
skólastjóri, í símum 464 3356 og 464 3220 og
Þórhallur Bragason, aðstoðarskólastjóri, í síma
464 3308.