Morgunblaðið - 21.07.1998, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ
54 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998
Auglýsendur
Pantanatími auglýsinga er fyrir
kl. 16.00 á þriðjudögum.
8
I
s
j JtttrgmiiiMa&ife
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Foreman
og Holmes
í hringinn
► AFARNIR og fyrrverandi
þungavigtarmeistararnir í
hnefaleikum, Larry Holmes og
George Foreman, voru kampa-
kátir á blaðamannafundi þar
sem tilkynntu að þeir hyggðust
etja kappi saman í hringnum
23. janúar árið 1999. Holmes
verður 49 ára í nóvember og
Foreman verður fímmtugur
skömmu fyrir bardagann.
Skipuleggjendur hafa enn ekki
K™™ Blöndunartæki
Hitastilltu Mora Mega
blöndunartækin fyrir bað tryggja
öryggi og þægindi. Mora Mega er
árangur margra ára vöruþróunar
og betrumbóta.
Mora sænsk gæðavara
Philips Spark GSM
Stærð: 139x56x18 mm, 169 g.
Rafhlaðan endist í 85 klst. í biðstöðu
en 120 mín. i notkun.
f kr. stgr.
17.900 kr. stgr.
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
Umboðsmenn um land allt
Heimilistæki hf
Stærð: 147x56x19 mm, 169 g.
Rafhlaðan endlst í 85 klst. í biðstöðu
en 120 mín. í notkun.
Bosch GSM 607
Stærð: 134x53x17 mm, 187 g.
Rafhlaðan endist í 80 klst.
í biðstöðu en 200 mín. í notkun.
Reiknivél.
19.900 kr. stgr.
FÓLK í FRÉTTUM
ákveðið hvar bardaginn fer um 300 milljónir króna og For-
fram en ljóst er að Holmes fær eman rúmar 700 milljónir.
Konungsríki
alþýðunnar
ÞÁ ER stórum almannatíðind-
um lokið í bili. Áður þótti helst
frétta að konungar dóu eða
tóku við ríkjum. Þá settust
sagnaþulir niður úti á Islandi
og skráðu tíðindin, mismunandi
gömul eftir því hvernig stóð á
skipaferðum. I dag heyrist lítið
af konungum, en því meiri há-
vaði frá konungsríki alþýðunn-
ar - fótboltanum. Fréttamiðlar,
þeirra á meðal sjónvarp, sem
þykjast vera fjórða aflið í þjóð-
félaginu, gleyma þessu hlut-
verki þegar konungsríki alþýð-
unnar er annars vegar. Þá
breytast þessar stofnanir í
þjónustumiðstöðvar og tafsa
þrisvar eða fjórum sinnum á
hverju sparki sem framið er á
vellinum, eins og heimssann-
leikurinn sjálfur sé í veði. Eldra
fólk, sem hefur vanist því að fá
fréttir á réttum tíma og varðar
minna um fótbolta en fréttir og
frásagnir, staðhæfir að ekki
nema um 10% þjóðarinnar hafí
horft á fótboltann, sem kostaði
stórfellda röskun t.d. á flutningi
sjónvarpsefnis. Aðrir sem
horfðu hafí fengið sitt heims-
meistaramót í gegnum erlendar
stöðvar. Fjórða valdinu var allt
í einu ýtt til hliðar og mátti
stíga til hliðar í brókarhafti fá-
ránleikans.
Minna fór fyrir íslenskri
keppni í yfírskyggðum huldudal
fyrir norðan um næstsíðustu
helgi. Þar heitir á Melgerðis-
melum, sem hafa verið ræktaðir
að nokkru en voru áður flug-
völlur á stríðsárunum, sem síð-
an var notaður fyrir innan-
landsflug. Bretar létu gera þar
flugvöll og vann margt manna
við þá vallargerð við að moka
möl á bíla. Svifflug var oft æft
þar af kappi og má segja að
risaflugfélagið Atlanta hafi
stigið þar fyrstu sporin. For-
stjórinn man a.m.k. til þeirra
daga, enda skírt flugvél í höfuð
eins félagans frá þessum árum.
En nú hefur verið skipt um
reiðskjóta á Melgerðismelum.
Um næstsíðustu helgi var teflt
fram því besta sem landið hefur
upp á að bjóða af kynbættum
hrossum og það var bæði mikil
og fögur sjón, sem blasti við
augum á keppnisbrautum hins
gamla flugvallarsvæðis. Ríkis-
kassinn sýndi frá þessu kon-
ungsríki hestins af hófsemd án
þess að missa af mikilsverðum
atriðum eða nauðga annarri
dagskrá. Mættu gaparnir í fót-
boltadeildinni nokkuð af því
læra.
Tekist hefur giftusamlega
með ræktun íslenska hestsins.
Það er vitað að hann er mikið
skyldleikaræktaður. Hefur það,
hjá sumum ættflokkum dýra,
reynst illa en hvað hestinn varð-
ar þykir það hafa heppnast vel.
Gamla reglan var að vel byggð-
ur hestur skyldi hafa bratta
lend, stuttan hrygg og háan
herðakamb. Þá skyldi brjóst
vera framstætt og ennið slétt.
Eg þekkti hestamenn sem vildu
ekki hesta með merarskál, en
svo var það kallað þegar enni
hestsins var kúpt. Eflaust voru
þetta kerlingabækur, en margir
góðir hestar komu úr höndum
þessara manna. Nú hafa hestar
átt nokkra ræktunarsögu og
skráð hana fallega. Það sást
best á Melgerðismelum um
næstsíðustu helgi. Ég held að
óhætt sé að segja að hvergi hafi
viðlíka alúð verið lögð við rækt-
un góðhesta og hér á landi hin
síðari ár, þótt eflaust megi und-
anskilja arabíska hestinn og
stöku hestakyn í Rússlandi.
Þótt dvalið hafi verið hér við
tvennar sendingar ríkiskassans
um næstsíðustu helgi bar þó á
útsendingum, bæði hjá Stöð 2
og Sýn, sem voru vel þess virði
að horft væri á þær. Má þar
nefna þátt eins og Hunter á Sýn
og 60 mínútur á Stöð 2. Fleiri
framhaldsþætti mætti nefna.
En sá vandi er á höndum, að all-
ir og kannski mest eldra fólk,
sem hefur góðan tíma til að
horfa á sjónvarp, veigrar sér við
að gerast áskrifendur að öðrum
stöðvum en ríkiskassanum. Enn
er ekki um venjulega sam-
keppni stöðvanna að ræða og
hefur ríkiskassinn yfirhöndina
og neytir þess eins og sjá mátti
á linnulausum sparksýningum á
kostnað annars efnis. En sú tíð
kemur að ríkisútvarpið verður
hrifíð úr höndum spark-
þursanna og pólitísku þursanna,
sem í raun ráða yfír þessu
sterka áróðurstæki.
Indriði G. Þorsteinsson
www.mbl.is