Morgunblaðið - 04.09.1998, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1998 4K
HESTAR
HESTAMENN á Norðurlöndum eru farnir að sýna áhuga á heykaup-
um frá fslandi, en heyskapur hefur gengið mjög illa þar og í Bretlandi
í sumar.
Eftirspurn eftir
heyi frá Islandi
HEYSKAPUR hefur gengið mjög
illa á stói-um svæðum á Norður-
löndunum og á Bretlandi í sumar.
Hestamenn í þessum löndum eru
farnir að leita til Islands og hafa
fjöhnargar fyrirspurnir borist
Vilhjálmi Þórarinssyni í Litlu-
Tungu um heykaup, en hann hef-
ur verið með umfangsmikla
heysölu til hestamanna á undan-
förnum árum.
Vilhjálmur segir að fyrirspurn-
ir hafi borist frá Danmörku, Finn-
landi, Noregi og Svíþjóð en engar
pantanir hafi þó enn verið stað-
festar. Ef af heysölu verður til
Svíþjóðar má búast við að þangað
verði seld 70-80 tonn af heyi sem
flutt verður út í svokölluðum stór-
böggum. Vilhjálmur sagði að ef af
þessari sölu verði gangi fljótt á
heybirgðirnar hjá honum.
Olafur Dýrmundsson ráðunaut-
ur hjá Bændasamtökum Islands
telur að íslendingar séu varla af-
Iögufærir með hey í vetur. Hey-
fengur er með minna móti á Suð-
ur- og Vesturlandi, þrátt fyrir að
hey séu góð. Á Norður- og Aust-
urlandi er heyfengur bæði lítill og
í mörgum tilfellum lélegur þó úr
hafi ræst á mörgum stöðum síð-
sumars.
Hann segir hrossastofninn
aldrei hafa verið stærri á Islandi.
Hann sé 80.000-81.000 hross sam-
kvæmt opinberum skýrslum en
væri líklega eitthvað stærri. Sauð-
fé hafi heldur fjölgaö og fjöldi
nautgripa er svipaður og verið
hefur. Aðalástæður fyrir fjölgun
hrossanna eru að útflutningur er
óvenju lítill í ár vegna hitasóttar-
innar og auk þess er óvenjufáum
hrossum slátrað vegna þess að
helsti markaður fyrir hrossakjöt
frá Islandi, Japan, er enn lokaður.
Olafur segir mikið velta á því
hvernig viðrar í haust og hversu
snemma þarf að byrja að gefa
hrossum. Hann bendir á að á und-
anförnum árum hefur tvívegis
orðið nánast heylaust að vori til í
landinu.
Ný reglugerð um
aðbúnað hrossa
Var
viðæ
deyia
Ragna Loa
Stefánsdóttir
knattspyrnukona
Lýtalækníngar
"Táknræn"
i /
Linda
Evangelista
- Eínkaviðtal Nýs lífs
Tiska
leit inn á við
Andleg leiðsögn Sri Cinmoy
TILLÖGUR um reglur um aðbúnað
hrossa og heilbrigði liggja nú fyrir í
landbúnaðarráðuneytinu og er gert
ráð fyrir að þær taki gildi í.haust.
Brynjólfur Sandholt fyrrverandi
yfirdýralæknir hefur unnið að samn-
ingu reglugerðarinnar. Hann sagði í
samtali við Morgunblaðið að talið
hafi verið rétt að taka út úr reglu-
gerð um dýrahald í atvinnuskyni og
lögum um búfé þætti sem snerta
hross og gera úr þeim eina sam-
fellda reglugerð. En víða hagar því
þannig til, til dæmis í sveitum, að
bæði er stunduð hrossarækt, sem
heyrir undir búfjárlög, og tamning-
ar, sem heyra undir dýrahald í at-
vinnuskyni.
Brynjólfur sagði að í tillögunum
væri m.a. að finna ákvæði sem lúta
að aðbúnaði hrossa svo sem í hest-
húsum og gerðum og að hrossum
skuli hleypt út daglega ef þau eru
höfð á húsi, svo eitthvað sé nefnt.
l°Tró-sumar
Við ke
/ P / / •
airaiii a iivfiiiii
W V
Með lO raða lottóseðli og Jóker
getur þú unnið glæsilegan
TOYOTA Avensis.
í þágu öryrkja,
ungmenna og íþrótta