Morgunblaðið - 18.09.1998, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dómur í kynferðis-
brotamáli ómerktur
HÆSTIRÉTTUR ómerkti í gær
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá
1. apríl 1998 í máli manns sem
dæmdur hafði verið í 3 og hálfs árs
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
dóttur sinni allt frá unga aldri fram
á unglingsár.
Maðurinn hafði neitað sakargift-
um og var héraðsdómurinn einkum
byggður á frásögn stúlkunnar,
framburði móður, meðal annars
um áreitni ákærða við aðra dóttur
þeirra, og greinargerð félagsráð-
gjafa sem meðhöndlaði stúlkuna.
I dómi Hæstaréttar segir að
kærandi hafí lent í umferðarslysi
Kærandi varð
fyrir höfuðhöggi
í umferðarslysi
allnokkru áður en hún bar fram
kæru á hendur fóður sínum. Hafí
hún fengið höfuðhögg með alvar-
legum afleiðingum. Vísi verjandi
sakbornings til þess að slíkir höf-
uðáverkar kunni að hafa áhrif á
skaphöfn og persónuleika þess sem
fyrir verður. Krefjist hann þess að
aflað verði læknisfræðilegra gagna
um afleiðingar þessa slyss fyrir
heilsufar kæranda. Pá segir að í
málinu liggi fyrir gi-einargerð fé-
lagsráðgjafa um ætlað kynferðis-
legt ofbeldi. Hins vegar vanti gögn
um sálfræðilega athugun á ákærða
og dóttur hans. Þyki því nauðsyn
bera til að afla þessara gagna í því
skyni að varpa skýrara ljósi á að-
stæður. Var málinu vísað heim í
hérað til frekari gagnaöflunar,
nýrrar aðalmeðferðar og dóms-
álagningar að nýju.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti
málið Sigríður Jósefsdóttir' sak-
sóknari en Jón Steinar Gunnlaugs-
son hrl. varði ákærða.
Enn haldið
sofandi
DRENGURINN, sem slasaðist
þegar ekið var á hann á Reykja-
nesbrautinni sl. laugardags-
kvöld, liggur enn á gjörgæslu-
deild Borgarspítalans. Líðan
hans er eftir atvikum góð, að
sögn vakthafandi læknis, en
honum er enn haldið sofandi í
öndunarvél. Drengurinn, sem
er sjö ára, hlaut mikla áverka
við slysið, m.a. beinbrot og kvið-
arholsáverka.
Tíu ára gamli drengurinn,
sem brenndist alvarlega á Eski-
firði þegar kviknaði í sumarhúsi
hinn 28. ágúst í Bleiksárdal er á
hægum batavegi, að sögn lækn-
is á gjörgæsludeild Landspítal-
ans. Honum er þó enn haldið
sofandi í öndunarvél.
Gömul bið-
skýli færð
NY biðskýli hafa undanfarið verið
sett upp á biðstöðvum Strætis-
vagna Reykjavíkur. Gömlu skýlin
þurfa því að víkja fyrir þeim nýju,
og er þeim komið fyrir á fáfarnari
leiðum SVR. Hér er unnið við að
koma einu slíku á nýjan samastað.
Olía í höfn-
ina á Rifi
TÖLUVERT af olíu lak í höfnina á
Rifí síðdegis í gær úr bátnum Rifs-
nesi SH 44. Að sögn lögreglunnar á
Snæfellsnesi var verið að dæla olíu á
bátinn þegar tankamir fylltust
skyndilega og olían lak út. Meiri olía
hafði þá verið á tönkum bátsins en
reiknað hafði verið með. Ekki er vit-
að hve mikið magn fór í sjóinn, en
málið er í rannsókn hjá lögreglunni á
Snæfellsnesi.
Morgunblaðið/Golli
íslenski sjómaðurinn
í Bremerhaven
Laus úr
öndunarvél
SJÓMAÐURINN af Breka VE 61,
sem legið hefur á sjúkrahúsi í
Bremerhaven með mikla höfuð-
áverka eftir alvarlega árás 30.
ágúst, var tekinn úr öndunarvél á,
mánudag. Óttast var að hann hefði
lamast en sá ótti reyndist ástæðu-
laus. Ljóst er þó að hann verður
ekki fluttur heim í bráðina, en
læknar em þó bjartsýnir á bata að
sögn Sigurmundar Einarssonar
framkvæmdastjóra Utgerðarfélags
Vestmannaeyja, sem fylgst hefur
með framvindu mála. A næstunni
mun skýrast betur hversu miklir
áverkarnir eru og verður maðurinn
áfram undir eftirliti þýsku lækn-
anna.
Sjómaðurinn er 28 ára gamall og
hlaut áverkana þegar ókunnugir
menn réðust að honum og félaga
hans með hafnaboltakylfur fyrir
utan skemmtistað í Bremerhaven.
-----------------
Bifreið
brann til
kaldra kola
FÓLKSBIFREIÐ brann til kaldra
kola á Reykjanesbraut við Kúa-
gerði snemma í gærmorgun. Voru
kona og karlmaður í bifreiðinni á
suðurleið og komust bæði út án
meiðsla. Eldurinn kom upp í vélar-
húsi bifreiðarinnar, breiddist fljótt
út og varð hún fljótt alelda. Kefla-
víkurlögreglunni var tilkynnt um
atburðinn kl. 7.13 og var bifreiðin
bnmnin þegar slökkvilið kom á
vettvang. Ekki er enn Ijóst hvers
vegna kviknaði í bifreiðinni, en hún
er ónýt að sögn lögreglu.
Málflutningur hafínn 1 fyrsta íslenzka dómsmálinu sem kemur fyrir EFTA-dómstólinn
Leiddi þýðingarvilla
til brots á EES?
MÁLFLUTNINGUR hófst í gær
fyrir EFTA-dómstólnum í Lúxem-
borg í fyrsta íslenzka dómsmálinu,
sem dómurinn fjallar um. í grófum
dráttum snýst málið um það hvort
ríkisábyrgð á launum gildi gagnvart
systkinum eiganda eða fram-
kvæmdastjóra gjaldþrota fyrirtækis
og hvort íslenzka ríkið hafi bakað
sér skaðabótaskyldu með því að hafa
ekki lagað íslenzk lög að tilskipun
Evrópusambandsins um samræm-
ingu á lögum aðildarríkjanna um
vemd til handa launþegum verði
vinnuveitandi gjaldþrota. Veigamik-
ill þáttur í málinu er hvernig túlka
beri orðalagið á íslenzkri þýðingu
E E S-samningsins.
Málavextir eru þeir að íslenzkri
konu var neitað um laun úr Abyrgða-
sjóði launa þegar fyrirtæki sem hún
hafði unnið hjá varð gjaldþrota.
Ástæða synjunarinnar er sú að kon-
an er systir manns sem átti 40% hlut
í hinu gjaldþrota fyrirtæki. I íslenzk-
um lögum um gjaldþrotaskipti er
kveðið á um að launakröfur nákom-
inna ættingja þrotamanns verði ekki
viðurkenndar sem forgangskröfur í
þrotabú, en það er gert að skilyrði
fyrir greiðslu Ábyrgðarsjóðs launa á
launakröfu að hún hafi verið viður-
kennd sem forgangskrafa. Undan-
tekningar frá þessari reglu, sem
heimilaðar eru í lögunum, eiga ekki
við um systkini þrotamanns.
Konan telur að íslenzku lögin
bijóti í bága við áðumefnda tilskip-
un ESB, sem tekið hefur gildi á Is-
landi samkvæmt EES-samningnum.
Konan höfðaði mál fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur, sem hefur óskað
eftir ráðgefandi áliti EFTA-dóm-
stólsins.
Hverjir eru „skyldmenni
í beinan legg“?
Krafa konunnar byggist m.a. á þvi
að íslenzka ríkið hafí ekki nýtt sér
rétt samkvæmt tilskipuninni til að
undanþiggja kröfur systkina bi'ota-
manna frá ríkisábyrgð á launum. I
viðauka við EES-samninginn, þar
sem fjallað er um það hvaða hópa Is-
land megi undanþiggja frá ríkis-
ábyrgð á launum, er talað um maka
einstaklings, sem sé stjórnarmaður,
eigandi eða framkvæmdastjóri gjald-
þrota fyrirtækis, svo og „skyldmenni
í beinan legg og maka skyldmennis í
beinan legg“. Konan og lögmaður
hennar telja að skyldleiki systkina sé
ekki skyldleiki í beinan legg og und-
anþágan eigi því ekki við um systkini.
Islenzka ríkið heldur því hins veg-
ar fram að samkvæmt öðrum
ákvæðum í sama viðauka við EES-
samninginn megi fella undan gildis-
sviði tilskipunarinnar „ættingja í
beinan legg“ og „nákomna ættingja"
(„direct relatives" á ensku). Ríkið
heldur því fram að það leiði bæði af
orðalagi og tilgangi ákvæðisins að
hugtökin „ættingi í beinan legg“ og
„nákominn ættingi" verði að skýra
svo að taki til systkina. Ríkið heldur
því jafnframt fram að hugtökin, sem
notuð séu í enskri útgáfu EES-
samningsins, svo og á öðrum tungu-
málaútgáfum tilskipunarinnar, verði
að skilja svo að þau taki til systkina.
Öll tungumálin jafngild
Ríkið viðurkennir að íslenzka út-
gáfan sé frábrugðin, þar sem „direct
relative“ hafi verið þýtt sem „ætt-
ingi í beinan legg“, sem vísi til
skyldleika í beinan legg upp á við og
niður á við og taki því ekki til systk-
ina. Allar tungumálaútgáfur tilskip-
unarinnar hafí hins vegar sama vægi
samkvæmt EES-samningnum og
þar sem enska hafi verið notuð við
gerð EES-samningsins geti röng
þýðing á íslenzku ekki breytt merk-
ingu tilskipunarinnar.
Þess má geta að dómstóll Evrópu-
sambandsins hefur fyrir sitt leyti
dæmt að ríki geti verið skaðabóta-
skyld ef þau ekki leiða með tilskild-
um hætti tilskipanir í lög
(Francovich og Bonifaci, 19. nóvem-
ber 1991). íslenzka ríkið telur hins
vegar að jafnvel þótt tilskipunin
hefði verið ranglega leidd í lög hér á
landi eigi skaðabótaskylda ekki við.
Málið fluttu Stefán Geir Þórisson
hrl. fyrir hönd konunnar, sem í hlut
á, og Árni Vilhjálmsson hrl. fyrir ís-
lenzka ríkið, en Martin Eyjólfsson,
lögfræðingur í utanríkisþjónust-
unni, var honum til aðstoðar. Full-
trúar Noregs, Svíþjóðar, fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, Eftirlitsstofnunar EFTA og
brezka ríkisins létu málið einnig til
sín taka og skiluðu athugasemdum
til dómstólsins.
AFOSTUDOGUM
Grænasti
bær
landsins
Drekafólk
í umgjörð
miðalda
Birgir Leifur Hafsteinsson
komst áfram/C1
>•••••••••••••••••••••••••••
Þórður lagði upp mark
Genk í Duisburg/C4
Fylgstu
með
nýjustu
f réttum
www.mbl.is