Morgunblaðið - 08.10.1998, Síða 4

Morgunblaðið - 08.10.1998, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þingsályktunartillaga á Alþingi um brottför varnarliðsins Margrét meðmælt en Sighvatur andvígur Flugstöð Leifs Eiríkssonar Heimild til reykinga þrengd verulega FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar er nánast að verða reyklaus eft- ir að ákveðið var að banna al- staðar reykingar í stöðinni nema á nýjum veitingastað, Arctic bar, á fyrstu hæð, sem tengdur hefur verið biðsalnum á annarri hæð. Að sögn Ómars Kristjáns- sonar, forstjóra Flugstöðvar- innar, hefur heimild til reyk- inga verið þrengd í stöðinni og er hún nánast reyklaus. „Þetta er gert í samráði við tóbaks- vamarnefnd og flugvallaryfir- völd með hliðsjón að lögum um reykingar á almenningssvæð- um,“ sagði Ómar. Bannið hefur verið að taka gildi smám saman og voru síð- ustu skiltin sett upp í þessum mánuði. Að sögn Ömars hefur því verið misjafnlega tekið en farþegar hafa sýnt þessu skiln- ing enda sé víða um heim bann- að að reykja í flugstöðvum. Fjölgað í fastanefnd Islands hjá NATO Fulltrúi ís- lands situr fundi í her- málanefnd EFTIR að fjölgað var um einn full- trúa íslands hjá fastanefnd NATO í Brussel hefur verið hægt að fylgj- ast með störfum í hermálanefnd NATO. Amór Sigurjónsson, sem verið hefur í Washington, var færð- ur til Brussel og situr hann fundi nefndarinnar. Halldór Asgi'ímsson utanríkis- ráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að eftir þessa fjölgun sé nú hægt að fylgjast með störfum hermálanefndarinnar sem ekki hafi verið áður. Hann segir mikið um að vera í hermálanefndinni og nauðsynlegt meðal annars vegna Kosovo-deil- unnar að fylgjast með framvindu mála. Einnig vegna þess að íslending- ar hafi verið við störf í Bosníu og því þörf á að vera með í umræðum til að hægt sé að taka afstöðu til málefna þar. MARGRÉT Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, segir að hún styðji þingsályktunartillögu um brottför bandaríska hersins, sem Steingrímur J. Sigfússon, þingflokki óháðra, Kristín Hall- dórsdóttir, Samtökum um kvenna- lista, og Ragnar Arnalds, þing- flokki Alþýðubandalagsins, hafa lagt fram á Alþingi. Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðu- flokksins, er hins vegar andvígur tillögunni. Margrét Frímannsdóttir segir að hugsanlega verði flutt breyting- artillaga við þingsályktunartillög- una til að styrkja þann þátt hennar sem snýr að þeim sem hafa at- vinnu í tengslum við starfsemi hersins. Margrét segir að tillagan sé end- urflutt nú og hún sé í anda þess sem rætt hafi verið um í samfylk- ingarviðræðunum. „Við viljum taka upp viðræður en í okkar hugmynd- um eru ekki sett nákvæmlega sömu tímamörk og í þingsályktun- artillögunni um hvenær þeim ljúki. Mai-ga þætti þarf að ræða við Bandaríkjamenn. Þeir hafa þegar fækkað mjög mikið í sínu liði hér á landi og fyrirsjáanlegur er vilji þeirra til að fækka enn frekar. Við eigum að nýta þennan vilja en við verðum líka að hafa skýr svör til þeirra sem þarna vinna.“ Verður að svara þörfum fyrir atvinnu „Ef brottför hersins er ákveðin á vissum tímapunkti verður að vera ljóst hvað það er sem Islendingar gætu yfirtekið í verkum, hvemig staðið yrði að frágangi varðandi umhverfismál og annarri atvinnu- uppbyggingu á Suðumesjum. Þarna vinnur fjöldi fólks og það er óábyrgt að ganga frá samningum öðmvísi en ljóst sé hvernig við svömm þeim þörfum sem þama em fyrir atvinnu," segir Margrét. Sighvatur Björgvinsson, formað- ur Alþýðuflokksins, sagðist vera andvígur þingsályktunartillögunni um brottför bandaríska hersins. „Astæðan íyrir því er sú að sam- komulag um framkvæmd varnar- samningsins rennur út árið 2001. Það er gert ráð fyrir því að viðræð- ur um framhald málsins geti hafist árið 2000. Við viljum að sjálfsögðu nýta okkur þann rétt sem við höf- um um endurskoðun og fram- kvæmd varnarsamningsins, en við göngum ekki til þeirra viðræðna með slíkt takmark í huga.“ Sighvatur sagðist telja eðlilegt að fulltrúar Islands gengu til við- ræðna við Bandaríkjamenn með opnum huga. Það lægi ekki fyrir hvaða hugmyndir Bandaríkjamenn hefðu um framkvæmd vamar- samningsins. „En ég sé það ekki fyrir mér að við gerum kröfu um að herinn fari,“ sagði Sighvatur. Unnið að nýju skipulagi lögreglu VINNA að skipuriti og starfs- lýsingum fyrir lögregluna í Reykjavík er nú á lokastigi. Sérstök nefnd embættismanna hefur unnið að verkinu ásamt sérfræðingum frá VSÓ Ráðgjöf. Þorsteinn Pálsson dóms- málaráðherra kveðst hafa fylgst með framgangi málsins. „Þessari vinnu er ekki endan- lega lokið og það hafa engin gögn verið formlega lögð fyrir okkur þannig að á þessu stigi er ekkert meira um þetta að segja,“ segir hann. Ráðherrann segist þó eiga von á því að málið verði lagt fyrir á næstu dögum. Hvetja til verndunar hálendisins HÓPUR listmanna og annarra áhugamanna um vemdun há- lendisins og góða umgengni við það stendur fyi-ir athöfn á Austurvelli við Alþingishúsið í Reykjavík í dag. Verða lesin ættjarðarljóð milli kl. 13 og 15. Þórarinn Eyfjörð leikari, einn þeirra sem standa fyrir at- höfninni, tjáði Morgunblaðinu að klukkan 15 væri ætlunin að afhenda forseta Alþingis áskor- un frá Náttúruverndarsamtök- um Islands og fleiri náttúru- verndarsamtökum og ferðafé- lögum. í ályktuninni er meðal annars skorað á Aiþingi að beita sér fyrir vel ígrundaðri heildarstefnu varðandi miðhá- lendið sem feli í sér verndun ósnortinnar náttúru. Stungu af eft- ir árekstur TVEIR bílar rákust hai'kalega saman á Strandarheiði á Reykjanesbraut í fyrrakvöld og lenti annar þeirra útaf. Þrír menn í öðrum bflnum hlupu af slysstað en lögreglan elti þá uppi skömmu síðar. Enginn í bílunum slasaðist. Ökumaður annars bflsins er talinn hafa verið á röngum veg- arhelmingi og er hann grunað- ur um ölvun. Ökumaður hins bílsins reyndi að forða ái-ekstri með því að aka útaf en engu að síður rákust bflarnir saman og hentist annar þeirra útaf. Draga varð báða bflana burt með dráttarbíl. Einn maður var í öðrum bílnum en í þeim sem talinn er hafa valdið árekstrin- um voru þrír. Morgunblaðið/RAX Haust í Hafnarfirði VEÐRIÐ hefur verið margbreytilegt nú í haust. komið yndislegir dagar. Þessir ungur Hafnfirð- Ausandi rigning suma daga en inni á milli hafa ingar kusu að nota góða veðrið til útiveru. LJÁÐD ÞEIM EYRA í kvöld á Súfistanum NMH í Bókabúð Máls og menningar (j|Míy Með miðaldaarfinn inn í 21. öldina Jón Karl Helgason, Gísli Sigurðsson, Heimir Pálsson og Örnólfur Thorsson, sem allir hafa gefið út bækur um íslenskar miðaldabókmenntir á árinu, ræða framtíðarsýn íslenskra fræða. Andri Snær Magnason stýrir umræðum Aðgangur ókeypis « Hefst kl. 20.30 Mál og menning • Laugavegi 18 • Simi 515 2500 Umfjöllun um ferðir íslendinga til Dublin í Evening Herald r | Q nei-their erukomnir aftur! * [fl 1 CTHAT MEANS ‘OH NO - THEVRE BACK AGAIN' IN ICELANDIC) m YOLPLL «n tb.m evwy- *b»r« from oow until C bikuna*. tbí lceíamlic inradfn who arrlvt anau- ■IIv for tlH- bijajm shep- plng of Ib< ynr. AUmi Ihrct ptr <c»t of cowntr>*s poputatioo vHti >HIt lúnc d»r« octt tt* »<*» f<» miiniln ailraclcd by Ibc «ti(h»r, tbc prkrs mnd tbr trkii br.spiulif). 71* fim b*tcb of 400 n«t y«f»fd»y »i DubUn airporf by gratctal I uurnnt chitG and Acr Rlanu rtpr«»c«iuti«<s. FLiCHTS A sprcial scric* of chaf- tertd ftígtnt wlll ma frowi m« to ntid Dtnnbcr, GREIN Evening Herald um verslunarferðir íslendinga til Dublin. s „O, nei, þeir eru komnir aftur“ í ÍRSKA dagblaðinu Even'mg Her- ald nýlega er umfjöllun á léttum nótum um verslunarferðir íslend- inga til Dublin. Fyrirsögn greinar- innar er á íslensku: „Ó, nei, þeir eru komnir aftur.“ í blaðinu segir að um 3% íslensku þjóðarinnar heimsæki Dublin frá því snemma í október fram til jóla. Von sé á yfir 8 þúsund fslendingum í þriggja til sjö daga innkaupaferð- ir og segir blaðið að áætlað sé að hver og eiim eyði um 1.200 írskum pundum í ýmsan neysluvarning, um 120.000 kr. Samtals skilji Islending- ar eftir sig tæpan einn milljarð ís- Ienskra kr. í innkaupaferðum sín- um á þessu tímabili. Rætt er við Kjartan Pálsson, far- arstjóra hjá Samvinnuferðum- Landsýn, og sagt frá því að Ut- varpsstöðin Matthildur sendi út frá Burlington-hótelinu í Dublin til ís- lands í eina viku. Blaðið segir skammdegið á Is- iandi hugsanlega skýringu á því að um 10 þúsund Islendingar flykkist til Dublin yfir vetrarmánuðina. Þar segir einnig að hermt sé að í æðum Islendinga renni írskt blóð og af þeim sökum komi það ekki á óvart að þeir njóti þess að drekkja jafn mikið, ef ekki meira, en írarnir sjálfir. „Þegar þeir sletta Ur klauf- unum gera þeir það á eftirminni- legan hátt,“ segir í Evening Herald.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.