Morgunblaðið - 08.10.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998 17
Svæðisskipulag Landsbankans treyst í sessi
Fjölbreytt þjónusta
á Norðurlandi
SVÆÐISSKIPULAG Landsbanka
Islands hefur í samræmi við nýtt
stjórnskipulag verið treyst í sessi
og svæðin gerð að sjálfstæðari og
öflugri einingum.
Á fundi fyrir helgi fór Sigurður
Sigurgeirsson svæðisstjóri bank-
ans á Norðurlandi yfir umfang
starfseminnar á svæðinu, en alls
eru á því starfrækt átta útibú og
afgreiðslur. Þau eru á Akureyri,
þar sem eru útibú eða afgreiðslur
á þremur stöðum, Skagaströnd,
Sauðárkróki, Húsavík, Kópaskeri
og Raufarhöfn. Samtals eru
starfsmenn 89 í 76 stöðugildum,
langflestir á Akureyri, eða 61 í 52
stöðugildum. Viðskiptastofa var
stofnuð í byijun þessa árs og sinn-
ir hún fjölbreyttum verkefnum
m.a. fyrir fyrirtæki, sveitarfélög,
lífeyrissjóði og stofnanafjárfesta.
Víðtæk fjármálaþjónusta er í boði
á Akureyri, bæði við einstaklinga
og fyrirtæki, en að sögn Sigurðar
er útibú bankans á Akureyri hið
eina sem sinnir svo fjölbreyttri
starfsemi.
Morgunblaðið/Kristján
SIGURÐUR Sigurgeirsson, svæðisstjóri Landsbanka Islands á Norð-
urlandi, ræðir við Dan Jens Brynjarsson framkvæmdastjóra fjármála-
sviðs Akureyrarbæjar.
20% lægra verð
Vítamín og steinefni
úr ríki náttúrunnar
Náttúrlegt og
Sími 562 6950, fax 552 6666
Útilífssýn-
ingin Vetr-
arsport ‘99
EYFIRSKIR vélsleðamenn hafa
um árabil staðið fyrir veglegri
útilífssýningu á Akureyri og svo
verður einnig nú, en sýningin Vetr-
arsport ‘99 verður haldin í Iþrótta-
höllinni á Akureyri dagana 5. og 6.
desember næstkomandi.
Markmið sýningarinnar er ekki
síst að opna augu fólks fyrir þeim
fjölmörgu möguleikum sem það hef-
ur til að njóta íslenska vetrarins í
stað þess að hírast inni og bíða sum-
arsins.
Allt á einum stað
Á sýningunni verður á einum stað
allt sem viðkemur vélsleðamennsku,
jeppasporti og almennri útivist að
vetrarlagi. Auk ökutækjanna verð-
ur það nýjasta í fatnaði, fjarskipta-
búnaði, siglingatækjum, öryggis-
búnaði og fleiru.
Sýning þessi hefur undanfarin ár
verið í janúar en er nú færð fram
fyrir jól og áramót vegna óska
fjölmargra sýnenda. Það er einnig í
samræmi við sambærilegar fagsýn-
ingar erlendis sem að jafnaði eru
haldnar í október eða nóvember.
Kosturinn fyrir gesti sýningarinnar
er ekki síst sá að nú geta þeir fengið
jólagjafir fyrir útilífsfólkið á einum
stað.
Undirbúningur sýningarinnar
stendur nú sem hæst, en mikil vinna
liggur að baki slíku sýningarhaldi.
Auk framlags sjálboðaliða í hópi
vélsleðafólks var fyrirtækið Fremri
kynningarþjónusta fengið til að
annast undirbúning, enda sýningar-
haldið orðið svo umfangsmikið að
útilokað er að sinna því eingöngu í
sjálfboðavinnu.
AKSJON
8. oktober, fímmtudagur
12.00ÞSkjáfréttir
18.15Þ-Kortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag. Endursýndm'
kl. 18.45, 19.15, 19.45, 20.15 og
20.45.
21 .OOÞDagstofanUmræðuþátt-
ur í samvinnu við Dag.
www.mbl.is
NÚ EBU AOS HEMLAR OC
OBVCCISPUDAR MLUTI «1= RÍKUtECUM
5TADALBÚNAÐI Í ÓLLUM PAJERO
JEPPUM. MtÁTT PVRIR ÞAD ER
VTERDW ÓBREVTT.
HKK LA
MSTSUBISHt