Morgunblaðið - 08.10.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998 13
FRÉTTIR
Kiwanis selur K-lykil-
inn í níunda sinn
K-LYKLASALA Kiwanis hefst í
dag, fimmtudag, og stendur fram á
laugardag. Þessa þrjá daga munu
Kiwanismenn um allt land og að-
stoðarfólk þeirra bjóða landsmönn-
um K-lykilinn til kaups. Sölumenn
verða við helstu verslanir en einnig
verður gengið í hús.
Kiwanismenn stefna á að safna 20
milljónum króna og eiga peningarn-
ir að renna til endurbóta á húsi Geð-
hjálpar að Túngötu 7, Reykjavík,
sem samtökin fengu nýverið afhent
tU eignar frá ríkinu. Sú fjárhæð á að
nægja fyrir stærstum hluta kostnað-
ar við þær framkvæmdir sem gera
þarf til að Geðhjálp geti flutt inn í
framtíðarhúsnæði sitt á þessu ári.
Samtökin hafa fram til þessa hrakist
úr einu leiguhúsnæði í annað og eru
nú nánast á götunni með starfsemi
sina því að leigusamningur þeirra í
núverandi húsnæði er útrunninn.
„Gleymum ekki geðsjúkum“
Kiwanishreyfmgin á Islandi hélt
fyrsta K-daginn árið 1974 og hefur
Dómsmálaráðherra
Óviðeigandi
afskipti af
innanríkis-
málum
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra sagðist í samtali við Morg-
unblaðið ekki telja það í verkahring
persónuverndarfullti-úa á EES-
svæðinu að hlutast tU um íslenska
löggjöf.
„Mér fmnst ekki viðeigandi að
þessi samkoma sé að skipta sér af
innanríkismálum Islendinga og hef
ekki meira um þetta að segja,“ sagði
Þorsteinn.
Fulltrúar tölvunefnda og sam-
bærilegra stofnana í ríkjum Evr-
ópska efnahagssvæðisins lýstu
þungum áhyggjum vegna áfonua ís-
lenskra stjórnvalda um gagnagi’unn
á heilbrigðissviði, á alþjóðaráðstefnu
um persónuvernd sem haldin var á
Spáni í síðasta mánuði, og hvöttu
ríkisstjórnina til þess að endurskoða
gagnagi’unnsfrumvai’pið í ljósi al-
þjóðasáttmála á þessu sviði.
---------------------
síðan selt þjóðinni K-lykilinn þriðja
hvert ár undir kjörorðinu „Gleymum
ekki geðsjúkum“. Ágóðinn af söl-
unni hefur rannið til margskonar
geðheilbrigðismála og á núvirði hafa
K-lyklarnir skilað um 150 milljónum
króna til uppbyggingar á aðstöðu
geðsjúkra á íslandi.
Þeim fjármunum hefur m.a. ver-
ið varið í; byggingu og stækkun
Bergiðjunnar, verndaðs vinnustað-
ar við Kleppsspítala; byggingu
áfangabústaðar við Álfaland, í sam-
vinnu við Geðverndarfélags Is-
lands; uppbyggingu unglingageð-
deildar við Dalbraut og kaup á íbúð
fyrir aðstandendur geðsjúkra
barna og unglinga sem þar eru til
meðferðar.
Sjálfan K-daginn ber að þessu
sinni upp á Alþjóða geðheilbrigðis-
daginn sem er haldinn hátíðlegur
um heim allan 10. október tO að
minna á málefni geðsjúkra. „Vænta
Kiwanismenn þess að þjóðin sýni
vilja sinn í verki eins og hún hefur
gert á fyrri K-dögum og treysti
framtíð geðsjúki-a með því að kaupa
K-lykilinn,“ segir í frétt frá Kiwanis-
hreyfingunni.
GEORG Þór Kristjánsson (fyrir miðju), umdæmisstjóri Kiwanis-um-
dæmisins Island-Færeyjar, afhenti Ingibjörgu Pálmadóttur, heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra, fyrsta K-lykilinn. Ráðherra tekur í
höndina á Sæmundi H. Sæmundssyni, formanni K-dagsnefndar.
Mannréttinda-
dómstdll á
tímamótum
ÞÓR Vilhjálmsson, varaforseti
Mannréttindadómstóls Evrópu í
Strassborg, flytur almennan fyi-ir-
lestur á vegum Mannréttindastofn-
unar Háskólans föstudaginn 9. októ-
ber kl. 10.15 um efnið Mannrétt-
indadómstóll á tímamótum.
Þar mun hann ræða þær breyt-
ingar sem verða á störfum dómstóls-
ins við það að dómstóllinn og Mann-
réttindanefnd Evrópu verða samein-
uð þann 1. nóvember. Þá mun hann
einnig fjalla um lögskýringar í
dómnum frá Strassborg.
Fyrirlesturinn verður haldinn 1
stofu 102 í Lögbergi og er öllum op-
inn.
Furirtaks uinnustaður
á fjórufn hjólum
Við framleiðslu á Ford sendibílum sitja öryggi ökumanns,
þægilegt vinnuumhverfi og hagkvæmni í fyrirrúmi.
Jafhffamt standast þeir fyllstu kröfur um flutningsrými
og burðargetu, t.d. við flutning varnings á brettum.
Allir kostir við fjármögnun eru fyrir hendi, þ.á.m. rekstrarleiga.
Nýttu þér þjónustu sölumanna okkar við að finna rétta bílinn
og útbúa hann eftir þínu höfði.
Ford Transit grindarbíll
3-6 manna
Verð ffá 1.604.819 kr. án vsk.
Brimborg-Þórshamar Bíley Betri bilasalan | Bilasala Kcflavíkur
Tryggvabraut 5, Akureyri Búðareyri 33, Reyðarfirði Hrísmýri 2a, Selfossi Hafaargötu 90, Keflavík
sími 462 2700 sími 474 1453 sími 482 3100 | sími 421 4444
Tvisturinn
Faxastíg 36, Vestmannaeyjum
sími 481 3141
Ford Transit pallbíll
3-6 manna
Verð ffá 1.644.980 kr. án vsk.
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7010