Morgunblaðið - 08.10.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998 51
MINNINGAR
Margar góðar minningar koma
upp í hugann þegar ég minnist
Jóns Hannibalssonar. Fyrst leitar
á hugann sá tími þegar hann var
iðinn við að sinna barnahópnum í
sveitinni, bæði sínum og annarra.
Ymist við leik eða störf. Kolaveið-
ar í flæðarmálinu. Fjallgöngur og
berjaferðir svo eitthvað sé nefnt.
Hann geislaði ævinlega af lífí og
fjöri, þó ekki væri hávaðanum fyr-
ir að fara. Lengi fannst mér ég
varla hafa séð hærri mann en samt
fór aldrei mikið fyrir honum. Sér-
lega þægilegur í öllu viðmóti en
glettinn var hann með afbrigðum.
Það var oft gaman að því hvað
hann gat lætt úr sér gullkomum
sem aldrei voru neinum til lasts en
hittu vel í mark. Enda var hann
ekki maður sem tranaði sér fram,
en átti gott með að gefa öðrum
sinn tíma og átti gott með að
hlusta. Fyrir mér sérlega góður
kennari.
Jón var búinn að klífa marga
tinda og koma mörgum góðum
hlutum í verk. Hátindinum átti
hann þó eftir að ná en það var að
fá að fylgja bömunum sínum öllum
út í lífið og sjá þau vaxa úr grasi.
Óskandi hefði verið að hann
hefði mátt dvelja lengur meðal
okkar en það gat því miður ekki
orðið.
Um leið og ég þakka allar góðu
minningarnar sem ég á um þennan
ljúfa dreng votta ég Ragnhildi og
fjölskyldu innilega samúð mína
sem og öðrum ættingjum og vin-
um.
Blessuð sé minning hans.
Kveðja frá
Siggerði Ólöfu Sigurðardóttur.
Margt er það, og margt er það
sem minningamar vekur,
ogþæreruþaðeina,
sem enginn frá mér tekur.
(Davíð Stefánsson
Okkur sytkinin langar til að
minnast góðs frænda okkar, hans
Jóns bróður hennar mömmu.
Hann átti svo stóran þátt í upp-
vaxtarárum okkar hér í Bergholt-
inu hvort sem hann leiðbeindi okk-
ur í leikjum eða eggjatínslu í Esj-
unni, vetraríþróttum eða í smíða-
kennslu í skólanum, þá var hann
alltaf jafnþolinmóður og góður
kennari. Hann átti það líka til að
vera stríðinn og alltaf var stutt í
kímnina hjá honum. Þegar við vor-
um yngri var heimili Jóns og
Ragnhildar oft eins og okkar ann-
að heimili og oftast áttu þau eitt-
hvað gott með mjólkinni þegar
maður var læstur úti og kom að
sækja lykil, eða var inni að leika
með krökkunum.
Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að þekkja þennan mæta
mann sem okkur þótti svo vænt
um og fyrir það að fá að njóta
handleiðslu hans og samfylgdar í
gegnum tíðina. Elsku Ragnhildur,
Þórunn, Bennsi, Þorsteinn, Berg-
lind og Jóhannes, Guð gefi ykkur
styrk á sorgarstundu. Minningin
um Jón lifir áfram í hjörtum okk-
ar.
Með kveðju.
Ágústa, Bjarkar og Hrund Ýr.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
fonnálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
KRISTIN
GUNNLA UGSDÓTTIR
ODDSEN
+ Kristín Gunnlaugsdóttir
Oddsen var fædd 22. desem-
ber 1922. Hún lést á Sjúkrahús-
inu á Egilsstöðum 23. septem-
ber siðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Egilsstaða-
kirkju 3. október.
Það er mikil gæfa hvers manns að
hafa fengið að kynnast góðu og
hjartahlýju fólki í uppvextinum. Því
er okkur efst í huga þakklæti og
virðing, þegar við nú kveðjum okkar
kæra frænku Kristínu Oddsen, sem
alltaf umvafði okkur hlýju og kær-
leika.
Heimili þeirra Stínu og Óla bar
merki þess að þar bjó einstaklega
gestrisið og greiðvikið fólk sem
veitti af rausnarskap bæði í orði og
á borði. Þau létu mann finna hversu
innilega velkominn maður var. í
faðmlaginu ríkti svo mikil hlýja þeg-
ar heilsað var, hvort heldur það var
sem barn að koma í Víðihól eða sem
fullorðin manneskja í Löngumýrina
og síðar til Egilsstaða. Þannig mót-
tökur þekkja allir sem á heimili
þeirra komu. Ótal minningar um
ánægjulegar samverustundir geym-
um við í hjarta okkar. Með þessum
ljóðlínum kveðjum við þig elsku
Stína okkar:
Eg þakka allt frá okkar fyrstu kynnum,
það yrði margt, ef telja skyldi það.
I lífsins bók það lifir samt í minnum,
er letrað skýrt á eitt hvert hennar blað.
Eg fann í þínu heita, stóra hjarta
þá helgu tryggð og vináttunnar ljós,
er gerir jafnvel dimma daga bjarta,
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(Margrét Jónsdóttir)
Elsku Óli. Við sendum þér, börn-
um þínum og fjölskyldum innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning mætrar konu.
F.h. systkina minna og fjöl-
skyldna.
Kristín Dúlla.
LEGSTEINAR
í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
og erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
ÍB S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
+
HERBERT GÍSLASON
verkamaður,
Grænukinn 19,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju, á
morgun, föstudaginn 9. október kl. 15.00.
Frændsystkini hins látna.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
MAGNEA HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR
frá Hemlu,
Stóragerði 1,
Hvolsvelli,
verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju í
Fljótshlíð laugardaginn 10. október kl. 14.00.
Ólafur Tryggvi Jónsson,
Ragnhildur Ólafsdóttir, Sæmundur Sveínbjörnsson,
Ágúst Ingi Ólafsson, Sóley Ástvaldsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
+
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Fossheiði 52,
Selfossi,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju, á morgun,
föstudaginn 9. október kl. 10.30.
Þuríður Gísladóttir, Jósep Helgason,
Sigríður Gísladóttir, Þórarinn Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
bóndi,
Minni-Borg,
lést þriðjudaginn 6. október.
Inga Guðjónsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
+
Dóttir mín, systir okkar, mágkona og frænka,
GUÐRÚN DÓRA ERLENDSDÓTTIR,
Fífuseli 35,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju, á morg-
un, föstudaginn 9. október, kl. 13.30.
Erlendur Steinar Ólafsson,
Baldur Erlendsson,
Sólveig Erlendsdóttir, Sveinn H. Skúlason,
Gísli J. Erlendsson, Kirsten Erlendsson,
Steinar Þór Sveinsson, Hrund Sveinsdóttir
og bróðursynir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BJÖRG JÓHANNA JÓNSDÓTTIR
frá Flateyri,
Miðbælisbökkúm,
Austur-Eyjafjöllum,
sem andaðist föstudaginn 2. okt. á Sjúkrahúsi
Suðurlands, verður jarðsungin frá Eyvindar-
hólakirkju kl. 13.00, laugardaginn 10. október.
Guðrún María Óskarsdóttir, Garðar H. Björgvinsson,
Jón Ingvar Óskarsson,
Steinar Kristján Óskarsson,
Birgir Óskar Axelsson,
Anita Björg Jónsdóttir.
+
Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
HILDAR HAFDÍSAR
VALDIMARSDÓTTUR,
Bláhömrum 2,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju, á morgun, föstu-
daginn 9. október, kl. 15.00.
Þeir sem vilja minnast hinnar látnu eru beðnir
að láta Hjúkrunarþjónustu Karitas, (sími 551 5606), njóta þess.
Sverrir Davíðsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengda-
föður og afa,
HALLGRÍMS HALLGRÍMSSONAR
frá Skálanesi,
Smáraflöt 16,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á
deild 6-B og gjörgæsludeild á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur fyrir góða umönnun.
Valgerður Guðlaugsdóttir,
Guðlaugur Hallgrímsson,
Herdís Rut Hallgrímsdóttir, Grétar Guðmundsson,
Hallgrímur S. Hallgrfmsson, Helga Bachmann,
Óli S. Hallgrímsson, Halldóra Matthfasdóttir
og barnabörn.