Morgunblaðið - 08.10.1998, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra á Alþingi
Efasemdir um sérstak-
an réttarfarsdómstól
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra segist hafa vissar efa-
semdir um að setja eigi á fót sér-
stakan dómstól sem fjalla eigi um
endurupptöku mála. Hins vegar tel-
ur hann fulla ástæða til þess að
setja gleggri reglur um málsmeð-
ferð þegar mál eru endurupptekin
og ennfremur að setja skýrari regl-
ur um rétt dómþola sem leggja mál
að nýju undir mat dómstóla.
Þetta kom m.a. fram í ræðu ráð-
herra við umræður á Alþingi í
fyrradag um frumvai-p til laga um
réttaifarsdómstól, en hlutverk þess
dómstóls yrði fyrst og fremst að
fjalla um endurupptöku opinberra
mála. Svavar Gestsson, þingmaður
Alþýðubandalags, mælti fyrir frum-
varpinu og sagði m.a. að þarna væri
um nýja og róttæka hugmynd að
ræða og mætti ekki seinna vera að
Alþingi tæki ákvörðun sem bætti
fyrir það réttarfarshneyksli sem
margir teldu að hefði átt sér stað í
svokölluðu Guðmundar- og Geir-
fínnsmáli.
Svavar sagði að í frumvarpinu
væri gert ráð fyrir að i dómnum
ættu sæti þrír menn og að ráðherra
skipaði dómara við dómstólinn til
fímm ára í senn. Einn þeirra sem
sæti ætti að eiga í dómnum skyldi
vera Hæstaréttardómarí og væri
hann jafnframt forseti dómsins en
hinir tveir ættu að vera héraðsdóm-
arar. Aðeins mætti skipa sama
dómara til setu í dómnum tvisvar í
röð.
Svavar sagðist í framsögunni
ekki sjá fyrir sér að þessi dómstóll
yrði „eins og föst stofnun til lengri
í i í 3 1 !§§SH il m 1:
ALÞINGI
tíma,“ eins og hann orðaði það.
Hann kvaðst þó reikna með því að
talsvert yrði leitað til dómstólsins í
byrjun en sagðist jafnframt búast
við því að hann myndi fljótlega
móta málsmeðferðarreglur þannig
að í raun og veru yrði það aðeins í
undantekningartilvikum sem Ieitað
yi'ði til dómstóls af þessu tagi.
Endurupptaka máls
varðar mannréttindi
Dómsmálaráðherra minntist í
ræðu sinni á að á undanfomum ár-
um hefði allri löggjöf sem lyti að
meðferð mála fyrir dómstólum og
lögregluyfírvöldum verið gerbreytt
í meginatriðum þannig að ýmislegt
af því sem menn hefðu fundið, með
talsverðum rétti, að framgangi rétt-
vísinnar á sínum tíma ætti nú að
heyra sögunni til.
Ráðherra sagði jafnframt að það
væri rétt sem fram hefði komið hjá
flutningsmanni frumvaipsins að
þær efnisreglur sem lytu að endur-
upptöku mála snerust um mjög
mikilvæg mannréttindi. ,Að vísu er
það svo að það er meginregla í rétt-
arkerfi okkar og víðast hvar í hinum
vestræna heimi að málum er lokið í
eitt skipti fyrir öll fyrir dómstólum
og mikilvægir hagsmunir eru í því
fólgnir. Það er meginreglan. En
framhjá hinu verður ekki litið að
það kunna að vera veruleg mann-
réttindi í húfi að geta tekið upp mál
þannig að fyrir það sé girt að sak-
lausir menn sitji uppi með dóm sem
ekki eru rök fyrir.“
Ráðherra kvaðst hins vegar
þeirrar skoðunar að það hefði verið
rétt ski-ef á sínum tíma að fækka
sérdómstólum og ýta þeim reyndar
með öllu út úr kerfínu. Því drægi
hann í efa réttmæti þess að setja á
stofn nýjan dómstól tiþað fjalla um
endurupptöku mála. „Ég held [þó]
að full ástæða sé til þess að setja
gleggri reglur um málsmeðferð og
hvers konar athöfn það er þegar
mál er endurupptekið og enn frem-
ur að setja skýrari reglur um rétt
dómþola sem leggur mál að nýju
undir mat dómstóla. Hæstiréttur
gerði það, í því máli sem hér hefur
verið vitnað til, að skipa sérstakan
talsmann dómþola við ákvörðun um
það hvort mál skyldi endurupptek-
ið. Það er ekki skylt að lögum en
mér sýnist að það séu mjög gild rök
fyrir því að setja alveg sérstakar
reglur um slík atriði," sagði hann.
I lok umræðunnar þakkaði
Svavar ágætar undirtektir við
ft-umvaipið og sagði m.a. að ef ríkis-
stjórnin vildi flytja annað frumvarp
um líkt efni og teldi þannig auðveld-
ara að koma málinu í gegnum þing-
ið skipti það sig nákvæmlega engu
máli.
Morgunblaðið/Kristinn
KRISTÍN Ástgeirsdóttir, þingflokki óháðra, og Tómas Ingi Olrich,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræða málin á Alþingi.
Þingsályktunartillaga
Nýtt starfsheiti
fyrir ráðherra
LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi
þingsályktunartillaga þess efnis
að Alþingi álykti að fela forsætis-
ráðherra að láta undirbúa breyt-
ingar á stjómarskrá og lögum til
að taka megi upp nýtt starfsheiti
ráðherra sem bæði kynin geti
borið. Fyrsti flutningsmaður til-
lögunnar er Guðný Guðbjörns-
dóttir, þingmaður Kvennalista,
en meðflutningsmenn eru Kristín
Halldórsdóttir, Kvennalista og
Svavar Gestsson, Alþýðubanda-
lagi.
I greinargerð tillögunnar segir
m.a. að sú þróun hafí átt sér stað í
hefðbundnum kvennastéttum
þegar karlar hafi haslað sé þar
völl að starfsheitum hafi verið
breytt til þess að bæði kynin geti
borið þau. „Þannig urðu hjúkrun-
arkonur að hjúkrunarfræðingum
[og] fóstrur urðu leikskólakenn-
arar,“ segir meðal annars. „Það
er því í fyllsta samræmi við þessa
þróun að breyta einnig starfsheit-
um í hefðbundnum karlastéttum,
þannig að konur geti borið þau.
Ráðhemaembætti eiga ekki að
vera eymamerkt körlum.“
I tillögunni er ekki stungið upp
á nýju orði í stað ráðherra, en
þar segir að aðalatriðið sé að
nota orð sem henti báðum kynj-
um. Leita megi eftir tillögum til
dæmis hjá íslenskri málnefnd og
heimspekideild Háskóla íslands,
en einnig komi vel til greina að
láta fara fram samkeppni um
slíkt orð.
Þingflokkur óháðra
Þjónustugjöld í heilsu-
gæslu falli niður
ÞINGMENN i þingflokki óháðra
hafa lagt fram á Alþingi frum-
varp til laga um að fella niður
þjónustugjöld í heilsugæslu.
Fyrsti flutningsmaður frum-
varpsins er Ögmundur Jónasson,
formaður þingflokksins, og mælti
hann fyrir frumvarpinu í gær.
„Þau gjöld sem hér um ræðir,
þ.e. komugjöld á heilsugæslu-
stöðvar, em aðeins hluti af
stærri mynd og þau ber að
skoða í ljósi óheillaþróunar síð-
ustu ára. Vegna þess hve mikil-
væg heilsugæslan er sem grunn-
ur heilbrigðisþjónustunnar er
mikilvægt að einmitt þar verði
hafist handa við að snúa til
réttrar áttar á ný,“ segir m.a. í
greinargerð frumvarpsins. Þar
segir einnig að frá og með fjár-
lögum fyrir árið 1992 hafi álögur
á sjúklinga verið auknar jafnt og
þétt og af þeim sökum hafi
kjararýrnun orðið mest hjá því
fólki sem eigi við sjúkdóma að
stríða. Ögmundur sagði auk
þess í gær að heilsugæslan ætti
að vera algerlega fjármögnuð
með skattfé.
Rætt um Kyoto-bókunina á Alþingi
Mælt fyrir fyrsta þing-
máli samfylkingarinnar
ÁGÚST Einarsson, þingflokki jafn-
aðarmanna, mælti í gær fyrir til-
lögu til þingsályktunar þess efnis
að Alþingi álykti að fela ríkisstjóm-
inni að undirrita nú þegar fyrir Is-
lands hönd Kyoto-bókunina, bókun
við samning Sameinuðu þjóðanna
um loftslagsbreytingar. Meðflutn-
ingsmenn tillögunnai' era Ásta R.
Jóhannesdóttir, Svanfríður Jónas-
dóttir og Össur Skarphéðinsson,
þingflokki jafnaðannanna, Guðný
Guðbjörnsdóttir, þingflokki Sam-
taka um kvennalista, og Svavar
Gestsson, Margrét Frímannsdóttir
og Bryndís Hlöðversdóttir, þing-
flokki Alþýðubandalags. Að sögn
Ágústs er því um að ræða sameig-
inlega tillögu þeirra flokka sem nú
vinna að sameiginlegu framboði til
næstu Alþingiskosninga. „Efni
þessarar tillögu um að Kyoto-bók-
unin verði staðfest er meðal efnis-
atriða í nýlega birtri málefnaski’á
þessara þriggja flokka. Þannig má
segja að þetta sé fyrsta þingmálið
sem samfylkingin leggur hér fram
á hinu háa Alþingi sem hefur beina
skýrskotun í málefnagrunn,“ sagði
hann.
Ágúst benti á að íslendingar
væru aðilar að samningi Sameinuðu
þjóðanna um loftslagsbreytingar en
bókunin sem kennd er við borgina
Kyoto í Japan er gerð við þann
samning. Hann skýrði frá því að að
minnsta kosti 55 ríki þyrftu að stað-
festa samninginn til þess að hann
öðlist gildi og að í þeirra hópi
þyrftu að vera iðnríki sem bæru
ábyrgð á að minnsta kosti 55% af
útblæstri í öllum iðnríkjunum. „ís-
lenska ríkisstjórnin hefur tekið þá
ákvörðun að undirrita ekki Kyoto-
bókunina sem er þvert á stefnu ná-
grannalanda. Nú hafa flest ríki
Evrópu undimtað samninginn,
meðal annars öll Evrópusambands-
ríkin og Norðmenn svo nokkur séu
nefnd auk fjölmargra annarra
ríkja. Þessi stefna íslensku ríkis-
stjórnarinnar að undii'rita ekki
Kyoto-bókunina heldur bíða fram-
haldssráðstefnu sem verður haldin
í Buenos Aires nú í haust er að mati
okkar flutningsmanna algerlega
röng. Islendingar eiga að axla
ábyrgð í umhverfismálum með öðr-
um þjóðum og laga stefnu sína inn-
anlands að þessum breyttu viðhorf-
um,“ sagði Ágúst m.a. í framsögu-
ræðu sinni.
Guðmundur Bjarnason umhverf-
isráðhen-a ítrekaði að hann teldi að
Islendingar ættu að undin-ita
Kyoto-bókunina en sagðist ósam-
mála því að íslendingar ættu að
undirrita bókunina nú þegar. Hann
minnti á sérstöðu íslands og að
hann teldi að sú undanþága sem
gæfi íslendingum kost á að auka
losun gróðurhúsalofttegunda um
10% frá því sem var árið 1990 væri
ekki nægjanleg. Ráðherra sagði
ennfremur að á fundi undirnefnda
loftslagssamningsins í Bonn í júní
sl. hefði vandi lítilla hagkerfa sér-
staklega verið ræddur og að full-
tráar Islendinga hefðu þar lagt
fram hugmyndir sem miðuðu að
viðunandi niðurstöðu. Þær hug-
myndir byggðu á því að einstökum
framkvæmdum mætti halda utan
losunarbókhalds ef þær myndu
auka losun um fimm prósent eða
meira, byggja á endumýjanlegum
orkugjöfum og notast við bestu fá-
anlegu tækni. „Gert er ráð fyrir því
að þessi heimild nái einungis til
ríkja sem losa minna en 0,05% af
heildarlosun iðnríkjanna árið 1990.“
Sagði ráðherra það vera von sína að
lausn fyndist á málinu á fundinum í
Buenos Aires í nóvember og því
teldi hann óeðlilegt að rita undii'
bókunina núna.
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl.
10.30 í dag. Að lokinni atkvæða-
gi-eiðslu um ýmis mál verða eftirfar-
andi þingmál á dagskrá.
1. Undirritun Kyoto-bókunarinn-
ar. Frh. fyrri umr.
2. Tekjuskattur og eignarskattur.
1. umr.
3. Húsaleigubætur. 1. umr.
4. Sjálfbær orkustefna. Fyrri
umr.
5. Mat á umhverfisáhrifum fyrir-
hugaðrar Fljótsdalsvirkjunar. Fyri'i
umr.
6. Almannatryggingar. 1. umr.
7. Ráðstafanir til jöfnunar á
námskostnaði. 1. umr.
8. Brottfór hersins og yfirtaka ís-
lendinga á rekstri Keflavíkurflug-
vallar. Fyrri umr.
9. Þjóðgarðar á miðhálendinu.
Fyri'i umr.
10. Endurskoðun reglna um sjúk-
lingatryggingu. Fyrri umr.
11. Þingfararkaup alþingismanna
og þingfararkostnaður. 1. umr.
12. Afnám laga um gjald af kvik-
myndasýningum. 1. umr.
13. Virðisaukaskattur. 1. umr.
14. Stjómarskipunarlög. 1. umr.