Morgunblaðið - 08.10.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998 27
ERLENT
Reuters
Leyndardóm-
ar krufðir
LISTAMAÐURINN Patrick Ligu-
ori leggur lokahönd á listaverk
úr sandi í Jersey-borg í Banda-
ríkjunum í tilefni af frumsýningu
myndarinnar „Leyndardómar
Egyptalands“. Beitt var nýrri
kvikmyndatækni, IMAX, við gerð
myndarinnar til að rannsaka eg-
ypskar eyðimerkur, pýramída og
Nflarfljót.
-----------
Hófsamir
kommúnist-
ar styðja
Prodi
Róm. Reuters.
HÁTTSETTUR meðlimur ítalska
Kommúnistaflokksins sagði í gær að
hófsamú' menn innan flokksins
styddu ríkisstjórn Romanos Prodis
forsætisráðherra og að hann ætti
ekki von á öðru en að hún héldi velli.
Kommúnistar hættu stuðningi við
stjórnina í vikunni sem leið vegna óá-
nægju með fjárlagafrumvarp næsta
árs, og missti hún þar með meirihluta
í neðri deild þingsins. Nerio Nesi,
sem er talsmaður Kommúnista-
flokksins á sviði efnahagsmála, sagði
fréttamönnum að flokkurinn væri við
það að klofna. Hófsamir kommúnist-
ar myndu ganga til liðs við stjórnina,
með þeim skilyrðum að hún setti at-
vinnu- og þróunarmál á oddinn, og að
í fjárlagafrumvarpinu yrði gert ráð
fyrir því að vinnuvikan yrði stytt í 35
stundir.
21 þingmaður er í hinum hófsama
ai-mi Kommúnistaflokksins, en það
nægir ekki til að ríkisstjórnin haldi
meirihluta. Nesi sagðist vona að
harðlínukommúnistar sæju sig um
hönd, og kvaðst bjartsýnn á að Prodi
tækist að afla stjórninni nægilegs
stuðnings.
------♦-♦-♦-----
Ekvador
Bucaram
snýr aftur
Quito. Reuters.
ÁBDALA Bucaram, fyirverandi for-
seti Ekvadors, mun snúa aftur til
heimalands síns á morgun, föstudag,
eftir nær tveggja ára sjálfskipaða út-
legð í Panama, að sögn stuðnings-
manna hans.
Buearam, sem kallaði sig jafnan
„Brjálæðinginn“, var vikið úr for-
setaembætti vegna „andlegrar van-
getu“ í byi-jun árs 1997, en þingið
hafði áður sakað hann um spillingu
og valdníðslu. I sex mánaða forseta-
tíð sinni vann hann sér það meðal
annars til frægðar að gefa út popp-
hljómplötu sem bar titilinn „Brjál-
æðingur sem elskar" og hann lét eitt
sinn raka af sér yfírskeggið í beinni
sjónvarpsútsendingu. Bucaram hafði
gefið til kynna að hann myndi bjóða
sig fram í forsetakosningum sem
fram fóru í júlí, en ekki varð af því.
Forsetinn fyrrverandi verður
væntanlega tekinn höndum við kom-
una til Ekvadors, þar sem hann hef-
ur verið dæmdur til tveggja ára
fangelsisvistar fyrir rógburð. Hann á
einnig yfir höfði sér ákærur vegna
ýmissa afbrota.
Rannsókn á skaðsemi óbeinna reykinga
Fullorðnir í hættu
en ekki börn
Washington. Reuters.
VIÐAMIKIL rannsókn á skað-
semi óbeinna reykinga, sem
kynnt var á þriðjudag, bendir til
þess að fullorðið fólk, sem reykir
ekki en andar að sér tóbaksreyk
heima hjá sér og á vinnustöðum,
sé ívið líklegra til að fá lungna-
krabbamein en fólk sem andar
ekki að sér tóbaksreyk daglega.
Góðu fréttirnar eru hins vegar
þær að böm reykingamanna eni
ekki í meiri hættu en börn þeirra
sem ekki reykja.
Afdráttarlaus
niðurstaða
Rannsóknin stóð í tíu ár og fór
fram í sjö Evrópulöndum, Bret-
landi, Frakklandi, Þýskalandi,
Ítalíu, Portúgal, Spáni og Sví-
þjóð. Hún náði til 650 sjúklinga
með lungnakrabbamein og 1.500
manna „í öllum aldursflokkum“
til 74 ára aldurs.
Fólkið var spurt hvort það
hefði þurft að anda að sér tó-
baksreyk í æsku, heima hjá sér, í
vinnunni og á fleiri stöðum.
Krabbameinssérfræðingar
segja að rannsóknin bendi af-
dráttarlaust til þess að óbeinar
reykingar geti valdið lungna-
krabbameini þótt hættan sé ekki
mjög mikil. Obeinar reykingar
auki líkurnar á lungnakrabba-
meini um 20%, en reykingamenn
eru tíu sinnum líklegri til að fá
sjúkdóminn en þeir sem reykja
ekki.
„Niðurstaða okkar er að það
séu engin tengsl milli óbeinna
reykinga í æsku og hættunnar á
lungnakrabbameini," segn- Paolo
Boffetta, sem stjómaði rann-
sókninni, í tímaritinu Journal of
the National Cancer Institute.
Alþjóðlega krabbameinsrann-
sóknastofnunin (IARC) stóð fyrir
rannsókninni og sérfræðingar
segja að hún sé sérlega áreiðan-
leg vegna þess að tekið hafi verið
tillit til gagmýni á fyrri rann-
sóknir, auk þess sem umfang
hennar sé mikið.
miðvikudagínn 14. október kl. 17.45
Rússar eru með eitt alsterkasta landslið Evrópu og þeir ætla sér alla leið
Leikurinn er liður í undankeppni EM 2000 og nú ríður á að íslenska liðið
taki á honum stóra sínum með aðstoð áhorfenda.
íslensku leikmennirnir voru sammála um að hvatningarhróp
áhorfenda hefðu ráðið úrslitum í leiknum við Frakkana.
Flykkjumst á völlinn og hvetjum okkar menn til dáða!
Safnkortið býður besta verðið!
Forsala aðgöngumiða er hafin og verður eingöngu hjá eftirtöldum ESSO-stöðvum:
Ártúnshöfða, Geirsgötu, Ægisíðu, Borgartúni, Stórahjalla í Kópavogi og Lækjargötu í Hafnarfirði.
Enn fremur Aðalstöðinni Keflavík, Skútunni Akranesi og Veganesti Akureyri.
fíörn yngri en 12 ára fá frítt í stœði.
Vertu tímanlega íþví. Takmarkaður miðafjöldi í boði!
Nánari upplýsingar um landsleikinn eru á heimasíðu ESS0
www.esso.is
Takið þátt í netieiknum -10 heppnir fá tvo miða á leikinn. Dregið 12. október.
Fáðu þér Safnkort, nýttu þér tilboðið og skelltu þér á völlinn! Olíufélagiðhf
Verð til Safnkortshafa
Almennt verð