Morgunblaðið - 08.10.1998, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1998 59
_____________BRÉF TIL BLAÐSINS
Deyr áhugi Islendinga á
ættfræði með tilkomu Is-
lenskrar erfðagreiningar?
Frá Kjavtani Eggertssyni:
EIN huggulegasta röksemdin um
Island sem starfsvettvang rann-
sókna á arfgengum sjúkdómum
og tilraunum og rannsóknum á
aðferðum til að lækna þá er sú að
á Islandi sé svo mikill áhugi fyrir
ættfræði. Vissulega er það rétt að
áhugi fyrir ættfræði er hér á landi
mikill. Hins vegar er alveg óljóst
hvort hann hefur einhver áhrif á
það hver framvindan verður í
rannsóknum hins nýja fyrirtækis,
Islenskrar erfðagreiningar. Virð-
ist nú allt stefna í þá átt að áhugi
á ættfræði fari minnkandi vegna
þess hve klaufalega hefur verið að
málum staðið við að safna upplýs-
ingum til nota fyrir hið nýja fyrir-
tæki.
Þeir sem stundað hafa rann-
sóknir og skráningu íslenskra
ætta, svokallaðir ættgreinar, eru
sérfræðingar í að rýna í gömul og
ný skjöl og að skrá upp á nýtt og
leiðrétta og auka við upplýsingar
með þvþað tengja saman upplýs-
ingar. A þessari stundu verður
ekki annað séð en að þetta fólk
muni hverfa af sjónarsviðinu. Nú
er fyrirtæki á íslandi að skrá í
einn gagnagi-unn allar niðurstöð-
ur og upplýsingar úr ættfræðirit-
um útgefnum á Islandi, áatölum,
niðjatölum, manntölum og fleiri
ritum. Það er verra að fyrirtækið
gei'ir það án þess að spyrja
nokkurn að. Fyrirtækið ætlar að
gefa allar þessar upplýsingar út á
geisladiskum. Hvort þeir diskar
verða til sölu á almennum mark-
aði er óljóst, enda þyrfti fyrirtæk-
ið þá væntanlega að greiða öllum
rétthöfum ættfræðirita þóknun
fyi-ir eða gera samning um notkun
upplýsinganna úr ritunum, þar
sem um svo viðamiklar upplýsing-
ar er að ræða. Hins vegar hefur
mönnum skilist að þessir geisla-
diskar verði jafnvel aðeins seldir
íslenskri erfðagreiningu.
Hér þarf að sporna við svo ekki
verði í óefni komið. Nauðsynlegt
er að gera samning við rétthafa
ritanna og aðra þá sem vinna að
ættfræði á Islandi. Samningurinn
þarf að tryggja að þeir sem vinna
að ættfræði geti verið vissir um
að ef Islensk erfðagreining vill
nota niðurstöður úr rannsóknum
þeirra eða upplýsingar frá þeim,
þá komi gjald fyrir eða viðurkenn-
ing á vinnuframlaginu og höfund-
arréttur. Þá væri tryggt að allir
þeir menn sem nú vinna að ætt-
fræðirannsóknum - í gömlum
skjölum og í leit að nýjum upplýs-
ingum og leiðréttingum á nýrri
skjölum - geti áfram af gleði unn-
ið þau störf. En það hafa menn
gert þrátt fyrir þá staðreynd að
fæstir þeirra hafa hingað til haft
nokkurn umtalsverðan fjárhags-
legan ávinning af. Geri menn ekki
samning um þetta er hætta á að
hinn rómaði áhugi íslensks al-
mennings á ættfræði deyi drottni
sínum, því það er leiðinlegt að
vinna verk sem jafnharðan er
stolið af manni.
Til umhverfís-
ráðherra
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sendu
mér hlýjar kveðjur, gjafir og árnaðaróskir á
95 ára afmœli mínu 30. september.
Guð leiði ykkur og verndi.
Karvel Ögmundsson,
fyrrverandi útgerðarmaður,
Bjargi, Ytri-Njarðvík.
Markaðssetning og sala
á Netinu
Nýjustu leiðirtil að ná árangri í kynningu og sölu á
Internetinu. Stöðugt fleiri fyrirtæki uppskera nú árangur
af notkun Internetsins í viðskiptum.
Hvað eru bestu fyrirtækin að gera í dag?
Hér er fjallað á hnitmiðaðan hátt um leiðir þeirra
sem hafa náð mestum árangri.
Staður Hótel Loftleiðir Tími: Fimmtudagur 15. okt. Kl: 09:00 -13:00
LEIÐBEINANDI:
Dr. David R. Palmer, U.C. Berkeley.
Lauk meistaragráðum í viðskiptum
og endurskoðun frá Wharton Graduate
School í Pensilvaníuháskóla. Lauk MA
og Ph.D. gráðu í stjórnun frá Peter F.
Drucker Graduate Management Center
við Claremont Graduate School.
Veitt leiðsögn til fjölda kunnra fyrirtækja
á við Pepsi-Cola, General Motors, Motorola,
Nike, Pacific Bell, Intel og Hewlett Packard.
Frá Guðlaugi Lárussyni:
UM TVEGGJA ára skeið hefur
erindi er varðar hávaða og loft-
mengun við neðanverða Miklu-
braut verið innan veggja umhverf-
isráðuneytisins til afgreiðslu, það
er ekki sæmandi fyrir háttvirtan
umhverfisráðherra og ráðuneyti
hans að horfa framhjá þessu mikla
vandamáli sem íbúar við neðan-
verða Miklubraut verða að þola
vegna skipulagsóreiðu hjá emb-
ættum undir stjórn og skipan
borgarstjórans í Reykjavík.
Þrátt fyrir að umhverfisráðu-
neytið hafi sent borgarstjóranum í
Reykjavík margítrekuð tilmæli
um tafarlausar aðgerðir til úrbóta
samkvæmt mengunarvarnareglu-
gerð, þá hefur borgarstjórinn í
Reykjavík svarað því til að ekki
séu í gildi nein ákvæði um leyfileg-
an hávaða vegna umferðar gegn-
um eldri íbúðahverfi, ákvæði séu
aðeins um leyfilegan hávaða í nýj-
um íbúðahverfum og hverfum þar
sem miklar breytingar séu gerðar.
Borgarstjóri telur því ekki vera
þörf á eða hefur ekki áhuga á að
gera neitt til úrbóta, þó að fyrir
liggi eftirfarandi umsagnir: Borg-
arverkfræðingur segir í skýrslu;
Miklabraut, umferðar- og
deiliskipulag frá nóvember 1996
þar er tekið fram á bls. 14: að
„þannig teljast um 2030 manns
vera þjakaðir af hávaða frá Miklu-
braut“; á bls. 15: „gera má ráð fyr-
ir að allir íbúar við Miklubraut frá
Eskihlíð að Stakkahlíð, alls 261
íbúi, séu innan hættumarkalínu og
búi því við óásættanleg skilyi'ði að
þessu leyti“.
í bréfi Hollustuverndar ríkisins
frá 15. desember sl. segir: „Ljóst
er að hávaðamengun er yfir við-
miðunarmörkum mengunarvarna-
reglugerðar við Miklubraut 13“.
I bréfi Heilbrigðiseftii'lits
Reykjavíkur frá 2. desember er
greint frá því að ástand í íbúð við
neðanverða Miklubraut „sé óvið-
unandi og það þui-fi að bæta“.
Ennfremur segir: „Heilbrigðiseft-
ii'litið telur eðlilegt að boi'garyfir-
völd bregðist við vandamálum
vegna umferðarhávaða í boi’g-
inni..."
I umsögn Heilbi'igðiseftirlits
Reykjavíkur tO boi'garstjórans í
Reykjavík dags. 14.08. 97 segir: „í
þessu tilviki mætti nota mælt
MaxL 91,1 dB gildi til að meta
ónæðið sem íbúarnir verða fyrir“:
Þetta á við jafnt að nóttu sem
degi.
I bréfi umhverfisráðuneytisins
dags. 9.2. 1998 til borgarstjórans í
Reykjavík segir: „Þrátt fyrh' um-
ræðu um málið og nauðsyn lag-
færinga hefur ástandið ekki batn-
að og er ljóst af fyrirliggjandi
gögnum að umferðai’hávaði við
neðanverða Miklubraut er yfir
viðmiðunarmöi'kum og óviðun-
andi.“ Ennfremur segir: „Jafn-
framt beinir ráðuneytið þeim til-
lögum til Reykjavíkurborgar að
borgaryfix-völd hlutist til um án
tafar að dregið verði úr óþægind-
um íbúa við neðanvei’ða Miklu-
bi-aut eins og frekast er unnt þar
til endanlegar úi’bætur ná fram að
ganga."
Af framansögðu er augljóst að
umhvei’fisráðherra er skylt að
taka til aðgerða samkv. mengun-
arreglugerð sem er samantekt úr
lögum um heilbrigðis- og hollustu-
hætti, samin undir umsjá um-
hverfisráðuneytis og á ábyrgð um-
hverfísi’áðherra. Umhvei’fisi’áð-
hei’ra getur ekki skyldu sinnar
vegna samkvæmt lögum um ráð-
herraábyrgð látið borgaryfirvöld
segja sér fyrir vei'kum og afneita
lögum og skyldum gagnvart íbú-
um boi’gai’innar.
Það er krafa á umhverfisráð-
hei-ra að beyta ákvæðum mengun-
ai’reglugerðar þegar í stað, til
sjálfsagðar vei’ndar íbúum og fjöl-
skyldulífi við neðanverða Miklu-
braut.
GUÐLAUGUR LÁRUSSON,
Miklubraut 13, Reykjavík.
HSM pappírstætarar
Leiðandi merki - Margar stærðir
Þýzk gæði - Örugg framleiðsla
m/vsk.
m/vsk.
m/vsk.
m/vsk.
m/vsk.
J. flSTVfllDSSON HF.
Skipholti 33, 105 Reykjovík, sími 533 3535
KJARTAN EGGERTSSON,
Vallholti 4, Ólafsvík.
slim-line"
Sérhver þátttakandi fær
viðurkenningarskjal
frá U.C. Berkeley.
A
Stjúrpunarféiag
Islands
dömubuxur frá
Sltráning í síma 533 4567 og á heimasíðu á Netinu: www.stjornun.is
gardeur
Oðuntv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur lólks í fasteignaleit
-
■ m b I ■ i s/f a s t e i g n i r
Margföld metsölubók
HJÁLPAÐU SJÁLFUM ÞÉR
eftir metsöluhöfundinn Louise L. Hay
• Þessi bók hefur selst í milljónum
eintaka um allan heim.
•Þessi bók hjálpar þér dl að
hjálpa sjálfri/sjálfum þér.
• Þessi bók hefur verið ófáanleg
í mörg ár.
• Þessi bók er tilvalin gjöf
við öll tækifæri.
• Þessi bók er fyrir þig og...
LEIÐARLJÓS
Sími 544 8070
...ER LOKSINS KOMIN AFTUR í ALLAR
HELSTU BÓKAVERSLANIR LANDSINS.