Morgunblaðið - 21.11.1998, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1998 31
ERLENT
Ekkert nýtt kom fram við yfírheyrslurnar yfír Kenneth Starr
Snarpir
Líkt við held-
ur tilþrifa-
lítið leikrit
Starr stóð sig þó vel og hefur líklega
bætt ímynd sína meðal almennings
YFIRHEYRSLURNAR yfir Kenn-
eth Starr, sem annaðist rannsókn-
ina á hugsanlegum embættisafglöp-
um Bills Clintons, forseta Banda-
ríkjanna, fyrir dómsmálanefnd full-
trúadeildarinnar þykja litlu hafa
breytt um málið sjálft og afstöðu
manna til þess. Raunar var engu
líkara en það væri Starr en ekki
Clinton, sem sæti á sakamanna-
bekknum. Repúblikanar höfðu von-
ast til, að með yfirheyrslunum tæk-
ist Starr að bæta nokkuð þá ímynd,
sem hann hefur í augum flestra
landa sinna, og svo virðist sem það
hafí gengið eftir að nokkru leyti.
Hann lét aldrei slá sig út af laginu
og var yfirvegaður í svörum. Þau
voru hins vegar mjög „lögmanns-
leg“ og ekki spennandi.
Spurt um annað en
„staðreyndir málsins"
Bandarískur almenningur virðist
vera búinn að gera upp hug sinn til
Clinton-málanna og þingmenn líka.
Demókratar í dómsmálanefndinni
munu standa með forsetanum allir
sem einn en repúblikanar í nefnd-
inni munu trúlega samþykkja, að
málið verði lagt fyrir fulltrúadeild-
ina ásamt tillögu um, að Clinton
verði sviptur embætti. Yfírheyrsl-
urnar í fyrradag líktust því mest
leikriti þar sem menn skiluðu sínu
hlutverki en með heldur litlum til-
þrifum. Umræðurnar snerust ekki
fyrst og fremst um ásakanirnar á
hendur Clinton, heldur um það
hvernig að rannsókninni var staðið.
Yfirheyrslurnar ásamt yfirlýsing-
unni, sem Starr las í upphafi, stóðu í
12 tíma og vissulega hitnaði aðeins í
kolunum eftir því sem á leið, eink-
um þegar David Kendall, lögfræð-
ingur Clintons, spurði Starr spjör-
unum úr í klukkutíma. Um niður-
stöður rannsóknarinnar sagði
Kendall aðeins, að þar væri ekkert,
sem réttlætti brottvikningu forset-
ans úr embætti, en að öðru leyti hélt
hann sig alveg við rannsóknarað-
ferðir Starrs. Hann spurði meðal
annars hvers vegna Starr hefði oft
verið fjarverandi við mikilvægar
vitnaleiðslur; um það hverjir hefðu
lekið upplýsingum um rannsóknina
til fjölmiðla og hvers vegna Starr
hefði beðið með að skýra frá því þar
til í fyrradag, að forsetinn hefði ver-
ið hreinsaður af allri sök varðandi
brottrekstur starfsmanna á ferða-
skrifstofu Hvíta hússins og hvað
varðaði ásakanir um, að hann hefði
safnað FBI-skjölum um ýmsa
repúblikana.
Kendall fékk upphaflega aðeins
30 mínútur til að spyi'ja Starr en
repúblikaninn Henry Hyde, formað-
ur dómsmálanefndarinnar, ákvað að
bæta öðrum 30 mínútum við „ef þú
skyldir vilja spyrja um staðreyndir
málsins" eins og hann orðaði það.
„Undarleglr tímar“
Repúblikanar vildu með yfir-
heyrslunum minna landsmenn á
hvað ásakanirnar gegn Clinton eru
alvarlegar en Lindsey Graham, full-
trúadeildarþingmaður fyrir Suður-
Karólínu, sagði, að einn mikilvæg-
asti þátturinn í málshöfðun á hend-
Búddamunkar
berja hver á öðrum
Seoul. The Daily Telegraph.
UM það bil 12 búddamunkar,
vopnaðir bareflum og með skildi
sér til varnar, ruddust fyrr í
vikunni inn í sitt eigið musteri í
Seoul í Suður-Kóreu. Þar börð-
ust þeir við aðra munka um það
hverjir skyldu ráða í hinni 1.000
ára gömlu reglu.
Munkarnir, sem voru með 100
málaliða sér til halds og trausts,
voru í musterinu í hálfa klukku-
stund en iétu þá undan síga fyr-
ir varnarliðinu, um 50 öðrum
muiikum, sem grýttu í þá
slökkvitækjum og húsgögnum.
Var hugað að sárum sjö manna
á sjúkrahúsi en þetta er í annað
sinn í þessum mánuði, að fylk-
ingunum lýstur saman.
Song Wol-ju, sem innrásar-
munkarnir styðja, hugðist leita
eftir endurkjöri sem yfirmaður
Chogye-reglunnar en vegna
þessa atburðar ákvað hann að
hætta við það í von um, að
búddisminn í Kóreu yrði ekki
fyrir meiri álitshnekki.
Getuleysi og spilling
Leiðtogaslagurinn gaus upp í
síðustu viku þegar Song til-
kynnti, að hann ætlaði að sækj-
ast eftir embættinu í þriðja sinn
þótt reglulögin segi, að sami
maður megi aðeins gegna því í
tvö fjögurra ára kjörtímabil.
Hélt Song því fram, að hann
hefði hvorugu lokið þar sem
hann hefði verið ei’lendis um
hríð vegna ágreinings við fyrr-
verandi yfirvöld í landinu. And-
stæðingar hans, þar á meðal
Wol Ha, andlegur leiðtogi regl-
unnar, skoruðu á hann að hætta
við og sökuðu hann um getu-
leysi og spillingu. Þegar Song
lét sér ekki segjast lögðu þeir
undir sig musterið. Um átta
milljónir manna tilheyra
Chogye-reglunni, sem boðar
m.a. Zen-íhugun.
Þetta ár hefur verið fremur
erfitt búddatrúarfólki í S-
Kóreu. Hafa allnokkrir munkar
verið handteknir og sakaðir um
ólöglegt fjárhættuspil og bók-
stafstrúarmenn meðal kristinna
hafa unnið skemmdir á ýmsum
helgum dómum búddismans í
landinu.
DAVID Kendall, lögfræðingur Clintons, gerði harða hrfð að Starr en
spurði þó um flest annað en sjálfa rannsóknarniðurstöðuna.
ur forseta væri, að þjóðin væri
henni samþykk. Því miður væri því
öðru vísi farið.
„Við lifum á undarlegum tímum
og það finnst mér yfirgengilegast,
að reiði almennings beinist að þér
en ekki manninum, sem er sakaður
um að hafa brotið af sér,“ sagði
Graham við Starr.
Fyrir demókrötum vakti fyrst
og fremst að beina kastljósinu frá
forsetanum með því ráðast á boð-
bera hinna válegu tíðinda en sum-
ar spurningarnar þóttu fremur
smásmugulegar. Abbe D. Lowell,
helsti lögfræðingur þeirra, gerði
sér mat úr meðferð Starrs og
manna hans á Monicu Lewinsky
daginn, sem hún var fyrst kölluð
fyrir, og velti sér jafnvel upp úr
því hvort fréttatilkynning Starrs
um þann atburð hefði verið vill-
andi.
David Schippers, helsti ráðgjafi
repúblikana, spurði Starr síðastur
og varði rannsóknaraðferðir hans
og heiðarleika.
Þegar Clinton, sem var í opin-
berri heimsókn í Japan í gær, var
spurður um yfirheyrslurnar kvaðst
hann lítið um þær vita, hann hefði
aðeins séð útdrátt af þeim og ekki
fylgst með þeim í sjónvarpi.
Hafi repúblikanar vonast til, að
yfirheyrslurnar yfir Starr blésu
nýju lífi í málið gegn Clinton, þá
varð þeim ekki að ósk sinni. Þær
bættu engu við það, sem þegar var
vitað. Hins vegar stóð Starr sig vel,
var öruggur og yfirvegaður og hef-
ur líklega bætt ímynd sína nokkuð.
I því efni var raunar engu að tapa
en allt að vinna því að samkvæmt
skoðanakönnunum eru aðeins 18%
Bandai’íkjamanna ánægð með
frammistöðu hans í málinu gegn
Clinton.
Kann lítt á fjölmiðlana
Demókratar hafa lýst Starr sem
„heiftúðugum" repúblikana, sem
eigi sér þann draum helstan að
steypa Clinton, en þessi lýsing
sannaðist ekki á honum við yfir-
heyrslurnar. Starr, sem íhugaði
einu sinni að keppa að öldunga-
deildarþingsæti í Virginíu, sagði
undir lokin, að hann væri ekki vel til
þess fallinn standa í eldlínu stjórn-
málanna.
„Eg er enginn stjórnmálamaður
og kann lítt að. koma mér á fram-
færi í fjölmiðlunum. Ætli það sé
ekki orðið deginum ljósara," sagði
hann.
• HEIMILDIR: Reuters, The New York
Times, Washington Post
jarðskjálft-
ar í Kína
Peking. Reuters.
RÚMLEGA 1.200 manns slösuðust,
þar af 210 alvariega, og tugþúsundir
manna misstu heimili sín í tveimur
öflugum jarðskjálftum sem riðu yfir
Yunnan-hérað í suðvesturhluta
Kína í fyi'rakvöld, að sögn kín-
verskra yfirvalda í gær.
Annar skjálftanna mældist 6,2
stig á Richter-kvarða. Flestir þeirra
sem slösuðust búa í Ninglang-sýslu,
þar sem 13 brýr og jarðgöng
hrundu og 10 km vegarkaflar
skemmdust. Skemmdirnar á sam-
göngumannvirkjum voru þó mestar
í Huaping-sýslu þar sem 168 km af
vegum skemmdust eða eyðilögðust.
Rúmlega 3.600 íbúðir eyðilögðust
einnig í Yongsheng-sýslu og 9.660
íbúar hennar misstu heimili sín.
------♦-♦-•-----
Segir sjálf-
stæðishug-
myndir óraun-
hæfar
EIGI hugmyndir færeysku land-
stjórnarinnar um sjálfstæði eyjanna
að vera raunhæfar verður opinberi
geirinn að skila að minnsta kosti 300
milijóna dkr. hagnaði, um 3 milljörð-
um ísl. kr. Þetta er mat Janusar
Petersens, bankastjóra Færeyja-
banka.
í Jyllands-Posten kemur fram að
Petersen telur þær efnahagsaðgerð-
ir sem landstjórnin hefur gripið til
ekki til marks um neinn vilja til að
auka hagnaðinn, þvert á móti
minnki margar aðgerðanna líkurnar
á því. Segir Petersen að því bendi
ekkert til þess að Færeyingar geti
komist af án fjárframlags Dana, sem
nemur um einum milljarði danskra
kr. á ári, um tíu milljörðum ísl. kr.
ecco
SKÓUERSLUN
KÓPAU0GS
HAMRAB0RG 3 • SÍMI 554 17S4
DAGAR
15%
kynningarafsláttur
af öllum ecco skóm
ecco
Gangur lífsins
- miðbœ Hafnarjjarðar