Morgunblaðið - 23.01.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 11
FRÉTTIR
Félagsmálaráðueytið fellir úr gildi samþykkt meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur
FYRSTI fundur borgarráðs undir stjórn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur eftir að R-Iistinn náði völdum í borginni vorið 1994.
Morgunblaðið/Kristinn
FÉLAGSMÁLARAÐUNEY
TIÐ hefur úrskurðað að
borgarstjórn hafl ekki verið
heimilt að fela borgarstjóra fund-
arstjórn á fundum borgarráðs. Það
sé hlutverk kjörins formanns borg-
arráðs. Oddviti sjálfstæðismanna í
borgarstjórn kærði samþykktina.
Hún segir úrskurðinn sýna að R-
listinn verði að fara að leikreglum.
Borgarstjóri segir að það sé vilji
meirihluta borgarstjómar að borg-
arstjóri stýri fundum borgarráðs
og séð verði til þess að hann nái
fram að ganga.
Meirihluti borgarstjórnar kaus
Sigrúnu Magnúsdóttur formann
borgamáðs en ákvað jafnframt að
fela Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur borgarstjóra fundarstjórn á
fundum ráðsins, en hún er ekki
kjörinn fulltrúi í ráðinu, og taldi
sér það heimilt samkvæmt nýjum
sveitarstjórnarlögum. Borgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins greiddu
atkvæði gegn tillögu um að fela
borgarstjóra fundarstjórn og töldu
það ekki standast sveitarstjórnar-
lög. Inga Jóna Þórðardóttir kærði
samþykkt borgarstjórnar til fé-
lagsmálaráðuneytisins. Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra, eigin-
maður Sigránar Magnúsdóttur,
vék sæti í málinu og var utanríkis-
ráðherra settur félagsmálaráð-
herra til að fara með málið.
Ráðuneytið lítur svo á að eldri
sveitarstjórnarlög hafi verið í gildi
þegar umrædd ákvörðun var tekin
og byggir úrskurð sinn á þeim.
Vísar ráðuneytið einnig til sam-
Ekkí heimilt að fela
borgarstjóra fundar-
stjórn í borgarráði
þykktar um stjórn Reykjavíkur-
borgar og fundarsköp. Telur ráðu-
neytið ljóst af skýru og afdráttar-
lausu orðalagi ákvæða laga og
samþykktar að það sé hlutverk
formanns borgarráðs að stjórna
fundum ráðsins. Ekki hafi verið
heimilt að fela borgarstjóra fund-
arstjórn og umrædd samþykkt
felld úr gildi.
Engin sérlög fyrir R-listann
„Ég fagna að sjálfsögðu þessari
niðurstöðu," sagði Inga Jóna þegar
álits hennar var leitað á niðurstöð-
unni. „Við höfum búið við ákveðnar
leikreglur í stjórn borgarinnar og
sú aðgerð þeirra, að fela borgar-
stjóra fundarstjórn var í raun ekki
annað en tilraun til þess að fjölga
um einn fulltrúa í borgarráði, úr
þremur í fjóra. I þessum úrskurði
er tekið afdráttarlaust á því að for-
maður borgan'áðs hljóti jafnframt
að vera fundarstjóri ráðsins. Þau
verða að hlýta þessum leikreglum
eins og aðrir.“
Inga Jóna segir að áður hafi
tíðkast að borgarstjóri væri kosinn
formaður borgarráðs þótt hann
ætti þar ekki sæti. Það hafi verið
samkvæmt sérstakri heimild í eldri
lögum. Reykjavíkurlistinn hafi hins
vegar kosið Sigránu Magnúsdóttur
sem formann.
„Samþykkt R-listans byggðist á
því að þegar ný sveitarstjórnalög
era samþykkt er vikið að því í
greinargerð með lagafrumvarpinu,
að breytingin sem gerð er, sú að
formaður verði að koma úr hópi
kjörinna borgarráðsmanna, kæmi
það ekki í veg fyrir að öðrum væri
falin fundarstjórn í einhverjum til-
vikum. Við sögðum hins vegar að
ekki gengi að þetta væri viðvar-
andi regla. Þessi úrskurður stað-
festir einfaldlega að R-listinn verð-
ur að fara að leikreglum eins og
aðrir.
Þessi úrskurður sýnir, að stjórn-
sýsla R-listans hefur einkennst af
því að freista þess að fara fram hjá
þeim reglum sem era í gildi. En
þetta hlýtur að sýna þeim það að
engin sérlög era um R-listann. Til-
raunir þeirra við að fara á svig við
leikreglur endurspegla að hluta til
það vandamál sem er innifalið í R-
listanum. Þau þurfa að taka tillit til
svo margra, ólíkra sjónarmiða, og
sætta svo marga ólíka hópa, að þau
hafa verið að freista þess að víkka
út reglurnar sjálfum sér til handa,“
sagði Inga Jóna.
Lýðræðislegur vilji nái
fram að ganga
Áður hefur félagsmálaráðuneyt-
ið ógilt þá samþykkt meirihlutans
að Pétur Jónsson tæki sæti Hrann-
ars B. Arnarssonar í borgarstjórn í
stað Önnu Geirsdóttur. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
neitar því að tveir úrskurðir félags-
málaráðuneytisins þar sem ákvörð-
unum meirihlutans er hnekkt séu
álitshnekkir fyrir Reykjavíkurlist-
ann. Hún segir að frekar megi líta
á úrskurðinn nú sem álitshnekki
fyrir löggjafann sem ekki hafi birt
nýju sveitarstjómarlögin með rétt-
um hætti og skapað með því
réttaróvissu fram til 10. júlí að
nauðsynlegt hafi verið talið að
koma þeim í gildi með bráðabirgða-
lögum.
Hún segir að úrskurðurinn
gangi ekki út á það sem kært var.
Borgarstjórn hafi tekið ákvörðun
um að borgarstjóri stýrði fundum
borgarráðs 2. júlí, á grandvelli
nýju sveitarstjórnarlaganna, málið
hafi verið kært og varið á þeim
grundvelli enda sveitarstjórnar-
menn talið sig þurfa að vinna eftir
nýju lögunum. Félagsmálaráðu-
neytið hafi hins vegar úrskurðað á
grundvelli eldri laganna. Borgar-
stjóri segir að ef ljóst hefði verið 2.
júlí að nýju lögin væra ekki í gildi
hefði meirihlutinn eflaust staðið
öðru vísi að málum, haft sama hátt
á og verið hefði að mestu í 35 ár.
Löng hefð væri fyrir því að borg-
arstjóri stýrði fundum borgarráðs
án þess að vera kjörinn í ráðið og
stundum hefði það þótt svo sjálf-
sagt að hann hafi ekki verið til
þess sérstaklega kjörinn.
Spurð um viðbrögð meirihlutans
segir Ingibjörg Sólrán að fyrir
liggi skýr vilji meirihlutans í borg-
arstjórn að borgarstjóri stýri fund-
um borgarráðs. „Við munum sjá til
þess að sá lýðræðislegi vilji nái
fram að ganga, í samræmi við gild-
andi lög.“ Spurð um möguleika
þess segir hún að til greina komi að
kjósa borgarstjóra í borgarráð og
sem formann eða fela borgarstjóra
eftir atvikum fundarstjórn.
Maður á þrítugsaldri slasaðist í bflveltu eftir að hafa fengið far með ölvuðum ökumanni
Missti bótarétt
vegna áhættutöku
ÆSTIRÉTTUR hefur
staðfest dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur og sýknaði
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. af
skaðabótakröfu manns á þrítugs-
aldri sem slasaðist í bílveltu á Is-
ólfsskálavegi við Grindavík fyrir
tæpum sex árum. Maðurinn slasað-
ist veralega og er 30% öryrki eftir.
Missti hann bótarétt vegna þess að
ökumaður bifreiðarinnar var ölvað-
ur og þótti hann því hafa tekið slíka
áhættu með því að þiggja far hjá
manni í slíku ástandi að hann ætti
að bera tjón sitt sjálfur.
Málavextir vora þeir að maður-
inn var að skemmta sér í Reykja-
vík með skipsfélögum sínum. Seg-
ist hann hafa drukkið ótæpilega og
muna síðast eftir sér klukkan 00.30
á skemmtistaðnum Berlín. Sam-
kvæmt gögnum máls fór maðurinn
ásamt vinum sínum í leigubifreið til
Grindavíkur síðar um nóttina. Þar
þáði hann far með kunningja sínum
og vildi ekki betur til en svo að bif-
reiðin valt. Við það hentist maður-
inn út úr henni og slasaðist mikið.
Samkvæmt skýrslu lögreglu,
sem kom á slysstað, vora þeir þrír
sem lentu í slysinu áberandi undir
áhrifum áfengis. Reyndist alkó-
hólmagn í blóði ökumanns 1,81
prómill. Hann taldi sig hafa verið á
100 km hraða og ástæða bíl-
veltunnar verið sú að hann náði
ekki beygju á veginum. Eftir slys-
ið þjáðist málshöfðandi af mikilli
þreytu, höfuðverkjum og einbeit-
ingarleysi. Samkvæmt taugasál-
fræðilegu mati bar hann öll merki
þess að hafa orðið fyrir traflunum
á heilastarfsemi vegna höfuð-
meiðsla við óhappið. Var varanleg
örorka hans vegna slyssins metin
30%.
13 milljóna krafa
Krafði hann Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., þar sem bifreiðin
var tryggð, um greiðslu bóta að
upphæð um 13 milljónir króna.
Var á því byggt af hálfu mannsins
að vegna eigin ölvunar hefði hann
ekki verið fær um að leggja mat á
hugsanlega ölvun ökumanns bif-
reiðarinnar. í dómi héraðsdóms
segir að málshöfðanda hafi hlotið
að vera ljóst að ökumaðurinn var
undir áhrifum áfengis. Ölvun máls-
höfðanda og minnisleysi hans um
atvik og atburðarás tiltekið sinn
breyti engu þar um, enda hafi
hann sjálfur komið sér í það
ástand og geti ekki firrt sig ábyrgð
af þeim sökum. Með því að taka
þátt í ökuferðinni hafi hann tekið
veralega áhættu og sýnt af sér
stórkostlegt gáleysi, sem leiði til
þess að hann hafi fyrirgert bóta-
rétti sínum.
Vísað til eldra fordæmis
Staðfesti Hæstiréttur þessa nið-
urstöðu með þeim ummælum að
með dómi Hæstaréttar
H.1996.3120 hafi verið skorið úr
um hvort breyta hafi átt með um-
ferðarlögum frá 1987 eldri dóm-
venju varðandi áhættutöku við
þær aðstæður að farþegi slasast í
bifreið, sem stjórnað var af ölvuð-
um ökumanni. I ljósi þessa for-
dæmis og að öðru leyti með
skírskotun til forsendna héraðs-
dóms yrði ekki komist hjá að stað-
festa niðurstöðu hans um sýknu
varnaraðila. Var málskostnaður
felldur niður.
Málið fluttu Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson hrl. af hálfu tjónþola og
Olafur Axelsson hrl. fyrir hönd
tryggingarfélagsins.