Morgunblaðið - 23.01.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.01.1999, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ MARGMIÐLUN ■ ■ ■ Ógnvænlegur raunveruleiki LEIKIR Half Life, leikur fyrir PC samhæfðar tölvur frá Valve-fyrirtækinu, en Si- erra gefur út. Leikurinn gerir kröfu um að minnsta kosti 133 MHz Penti- um tölvu, 24 MB innra minni og tveggja hraða geisladrif. Hann styð- ur þrivíddarkort, 3Dfx, OpenGL og Direct 3D. Einnig er stuðningur við þvívíddarhljóðstaðla, til að mynda frá Creative. ANNAR hver leikur sem komið hefur út á seinustu árum hefur verið skotleikur, sá frægasti þeirra líklega Quake, síðar Quake 2. Nú gæti breyting orðið þar á því Half Life státar af því sem hefur verið hvað eftirsóttast í leikjum en ekki hefur tekist til þessa, nefnilega raunveru- leikanum. Þegar leikurinn byrjar kemur í ljós að leikandinn er í hlutverki Gor- dons Freemans, vísindamanns sem fenginn er til að taka þátt í tilraun í Black Mesa tilraunastofunni. Til- raunin mistekst og tilraunastofan fyllist af dýrum úr annarri vídd sem eru vægast sagt ekki vinaleg. Óiíkt öðrum leikjum þar sem spilandi byrjar með eitthvert frekar léleg vopn byrjar Gordon með tvær hendur tómar. Fyrstu 20-30 mínút- urnar fara í að reyna að komast að því hvað gerðist og hvað dýrin eru en svo fínnur hann loks kúbein sem hann getur notað til að verjast minnstu dýrunum. Það eru hlutir eins og þetta sem gera leikinn raun- verulegan; hvaða vit hefði verið í því að láta einfaldan vísindamann eins og Gordon byrja með öfluga leysi- byssu eða annað slíkt vopn? Gordon er klæddur í svokallaðan Hazardous Environment Suit, bún- ing sem verndar hann frá einföldum meiðslum, auðveldar honum að stökkva lengra og sprautar í hann morfíni þegar hann meiðist. Búning- inn verður að hlaða öðru hvoru og hægt er að gera það á sérstökum stöðum. Þeir eru yfirleitt nálægt stöðum þar sem hættuleg eða erfið vinna fer fram, en einnig er hægt að finna sjúkrakassa á svipuðum stöðum. Þetta er kær- komin tilbreyting frá öðrum leikjum þar sem spilandi getur labbað inn í herbergi þar sem samansafn hluta svífur í loftinu eða hringsnýst á jörðinni oft í tugatali eða meira. Hvaða vit væri í því að troða til dæmis sex sjúkrakössum undir stiga þar sem afar litlar líkur eru á að nokkur maður myndi finna þá? Óvinirnir í Half Life eru útbúnir með einna bestu gervigreind sem sést hefur í leik til þessa. Gott dæmi er um það þegar einn af fjölmörgum öryggisvörðum Black Mesa ákveður að slást í fór með Gordon um stund- arsakir. Þeir ganga inn gang í mestu rólegheitum en allt í einu brýst eitt- hvert dýr niður úr loftræstiopinu, rífur öryggisvörðinn inn og hendir líkamshlutunum í þig. Þetta er eitt af því sem gerir Half Life ekki hent- ugan til að spila á nóttunni. Annað dæmi er þegar hennenn ráðast á leikandann, einn kastar handsprengjum á hann og lætur hina vita svo þeir geti komist í skjól á meðan, en hinir hlaupa hringinn í kringum og skjóta leikandann í bak- ið. Ef óvinirnir eru þrír er ekki óal- gengt að tveir skjóti þar til skotfær- in eru búin og einn taki við meðan þeir eru að hlaða. Hljóðin í leiknum eru án vafa þau allra mest ógnvekjandi sem heyrst hafa í leik. Dýrin gefa frá sér gríðar- lega ógeðfelld hljóð og þegar þau heyrast afar nálægt leikandanum um miðja . nótt og hann á ekki mikið af skotfærum er best að fara bara að sofa. Hversu oft hefur það komið fyrir að maður klárar eitt borð fullt af nýtísku- legum hlutum og öskr- andi skrímslum aðeins til að finna annað borð af nýtískulegum hlutum og öskrandi skrímslum? Og fyrst þau hafa verið nefnd, hvað eru „borð“? Er fólk komið í nýtt borð þegar það stígur inn í bílinn sinn? I Half Life eru engin borð, aðeins einn samfelldur heimur þar sem „Loading" sést aðeins oftar en í mun minni tíma. Leikurinn er nefnilega samansettur úr afar mörgum litlum pörtum sem gera hann mun raun- verulegri og gefa skemmtilegri til- finningu. Ég leyfi mér að halda því fram að aldrei hafi komið út jafn raunveru- legur eða jafn góður skotleikur fyrir PC-tölvur. PlayStation á Metal Gear Solid, Nintendo 64 Zelda 64 og PC HalfLife. Ingvi M. Árnason Islenskað gluggakerfi ÞAÐ HEFUR varla farið fram hjá neinum að tekist hafa samn- ingar um íslenskun á Windows stýrikerfinu milli íslenska ríkis- ins og Microsoft. Hitt virðast færri vita að undanfarið hefur verið í gangi umfangsmikið verkefni sjálfboðaliða sem þýtt liafa KDE-gluggaumhverfið fyr- ir Linux á íslensku. Linux er ókeypis stýrikerfi eins og flestir vita og hefur notið sívaxandi hylli. Það þykir um margt betra en Windows-um- hverfið í tæknilegu tilliti, traust- ara og hraðvirkara, en síðra hvað varðar notendaskil. Þó eru til ýmsar gerðir notendaskila fyrir Linux sem byggja á gluggaumhverfi, þeirra helst XI1, Gnome og KÐE. XI1 fylgir yfirleitt Linux-útgáfum, en KDE mun væntanlega fylgja helstu dreifingum Linux framvegis. KDE er ókeypis eins og Linux, og þar sem grunnkóðinn er öll- um opinn getur hver sem er tek- ið að sér að þýða notendaskilin ef honum sýnist sem svo; þarf ekki alþjóðasamninga til. í fréttatilkynningu frá ís- lenska KDE hópnum kemur fram að kveikjan að íslenska KDE þýðingarverkefninu hafi verið umræða í kjölfar frétta um að menntamálaráðuneytið stæði í samningum við Microsoft um þýðingu á Windows. „Það er mat allra þátttakenda í verkefninu að mikilvægt sé að fslendingar hafi marga valkosti á þessu sviði og verði ekki háðir neinu erlendu fyrirtæki," segir í tilkynning- unni, sem birt er á slóðinni www.mmedia.is/linux/kde/tilk.- htm. Islenski KDE hópurinn, sem er að þýða notendaskilin, á sér þijá forsvarsmenn, Bjarna R. Einars- son, Hrafnkel Eiríksson og Guð- jón Ingva Hansen, en að sögn Hrafnkels komu um tíu manns að verkinu beint sem þýðendur, en fjölmargir lögðu þeim lið með góðum ráðum og ábendingum um orðaval, meðal annars á póst- lista verkefnisins en á þeim lista eru tugir manna. Mörgum hefur þótt erfitt að se^ja Linux upp á tölvum og Hrafnkell segir að íslensk útgáfa KDE-gluggaumhverfisins leysi ekki þann vanda, „enda er það ekki tilgangur okkar. Aftur á móti verður KDE með í næstu útgáfu á RedHat Linux og þegar sú útgáfa verður sett upp getur sá sem það gerir valið að nota KDE-umhverfið og þá á ís- lensku.“ Hrafnkell segir að eitt það áhugaverðasta við verkefnið sé að þýðingin sé lifandi eins og málið; laghentir geti breytt þýð- ingunni á sinni tölvu eins og þeim sýnist og stöðug þróun verður á þeirri þýðingu sem dreift er, „menn sitja ekki fastir með þýðingu líkt og til að mynda í Macintosh-stýrikerfinu," segir Hrafnkell. Hann segir að menn líti eðlilega nokkuð til þýðingar- innar á MacOS, sem var fyrsta stýrikerfisþýðingin sem náði al- mennri útbreiðslu og skapaði vissa hefð í íslensku tölvumáli, en reyni að finna betri orð þegar þess gerist þörf. Vinna við þýðingu og staðfær- ingu KDE-gluggaumhverfisins hefur gengið hratt og örugglega fyrir sig, ekki síst ef Iitið er til þess að þýðendurnir eru ýmist á kafi í erfiðu námi eða í fullri vinnu við annað. Frekari upplýsingar um Is- lenska KDE verkefnið má finna á slóðinni www.mmedia.is/lin- ux/kde, en einnig er að finna ýmislegan fróðleik á íslensku um Linux á http://www.mmedia.is- /linux/. l#ei!3ifeEa&. Ur W- f " Kw BBfiifl f =>*•« i Cl--» H 1| — 9 r »•». i C' f • i SKJÁMYND af íslenskuðu KDE gluggaumhverfi, en eins og sjá má minnir það óneitanlega á Windows notendaskilin. frábaet aup- i Farðu fyrst i BT... fígdífne bt t með- ISPÉÍHÍ maeti' AW topp leVkirí t.990 Skeifunni 11 • Rvk • Sími:550-4444 og Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarf. • Sími 550-4020 Notaðu afsláttarhefti BT og gerðu enn betri kaup! Gildir til 3. febrúar eða meðan birgðir endast!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.