Morgunblaðið - 23.01.1999, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 75
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Stjörnubíó og Laugarásbíó sýna stórmyndina Stepmom,
Stjúpmóðurina, með þeim Susan Sarandon, Juliu Roberts og Ed Harris í
aðalhlutverkum. Leikstjóri myndarinnar er Chris Columbus sem m.a. hefur
leikstýrt Mrs. Doubtfíre, Home Alone-myndunum og Nine Months.
Gleði og sorg
í lífsins ólgusjó
JACKIE (Susan Sarandon) og Isabella (Julia Roberts) sinna
móðurhlutverkinu á ólíkan hátt.
Frumsýning
LUKE (Ed Harris) var áður
kvæntur bókaútgefandanum
Jackie (Susan Sarandon) en
nú er hann farinn að búa með at-
vinnuljósmyndaranum Isabellu
(Julia Roberts). Börn Lukes af
fyrra hjónabandi eru þau Anna
(Jena Malone) og Ben (Liam Aiken)
og eiga þau erfitt með að sætta sig
við stjúpmömmuna sem þau hafa
eignast. Isabella vill hins vegar gera
börnunum allt til hæfis en hún á
satt að segja margt ólært í móður-
hlutverkinu. Hún vinnur fullan
vinnudag og á það til að gleyma
hvenær sækja á börnin úr skóla.
Hún reynir þó eins og hún getur að
standa sig í hlutverkinu en kemst
þó ekki með tærnar þar sem Jackie
hefur hælana. Þeim Isabellu og
Jackie kemur heldur ekkert of vel
saman enda er Jackie afbrýðisöm út
í Isabellu sem er nokkuð yngri en
hún sjálf. Jackie lifir fyrir börnin
sín þar sem hún er hætt að vinna,
en hún hefur þénað vel á bókaútgáf-
unni og einnig fær hún meðlag frá
Luke. Þau Anna og Ben gera allt
sem þau geta til að fara í taugarnar
á Isabellu en hún er samt ekkert á
því að gefast upp þótt á móti blási.
Það gengur því á ýmsu hjá þessari
nútímafjölskyldu en áður en langt
um líður fara börnin að meta og
skilja Isabellu betur, enda reynir
hún ekki að koma í stað móður
þeirra heldur vill hún einungis
reynast þeim góð stjúpmóðir. En
skyndilega dynur yfir reiðarslag og
þá fyrst reynir á samheldni þessar-
ar nútímafjölskyldu fyrii- alvöru.
Stepmom er gerð eftir sögu rit-
höfundarins Gigi Levangie, en höf-
undur kvikmyndahandritsins er
Ron Bass sem á sínum tíma hlaut
óskarsverðlaun fyrir handrit sitt að
Rain Man. Önnur kvikmyndahand-
rit sem hann hefur skrifað eru m.a.
My Best Friend’s Wedding, Wait-
ing to Exhale, Dangerous Minds,
Sleeping With the Enemy, When A
Man Loves a Woman og The Joy
Luck Club. Leikstjóri myndarinnar
er Chris Columbus og er hann
einnig meðframleiðandi myndarinn-
ar. Hann hefur m.a. leikstýrt met-
sölumyndunum Mrs. Doubtfire,
Home Alone-myndunum, Nine
Months og Reckless.
Julia Roberts sem einnig er auka-
framleiðandi myndarinnar sló fyrst
rækilega í gegn í myndinni Pretty
Woman, sem hún var tilnefnd til
Óskarsverðlauna fyrir, en fyrsta
myndin sem hún lék í var Mystic
Pizza. í kjölfar Pretty Woman
fylgdu m.a. myndirnar Steel
Magnolias, sem hún hlaut aftur
Óskarstilnefningu fyrir, Flatliners,
Sleeping with the Enemy, Dying
Young, The Pelican Brief og My
Best Friend’s Wedding.
Susan Sarandon er einnig auka-
framleiðandi Stepmom. Hún hefur
sýnt óborganlega hæfileika sína í
myndum á borð við Thelma & Lou-
is, sem hún hlaut Óskartilnefningu
fyrir, Bill Durant, The Client og síð-
ast en ekki síst í Óskarsverðlauna-
myndinni Dead Man Walking, en
fyrir hlutverk sitt í henni hlaut hún
Óskarsverðlaunin árið 1996 sem
besta leikkonan í aðalhlutverki. Sar-
andon á að baki fjölda kvikmynda
en síðast sást hún í myndinni
Twilight þar sem hún lék á móti
Gene Hackman, Paul Newman og
James Garner.
Ed Harris lék síðast hlutverk
Christof í The Truman Show sem
Jim Carrey fór með aðalhlutverkið
í. Harris hefur leikið í fjöldanum
öllum af kvikmyndum sem náð
hafa vinsældum og má þar m.a.
nefna myndirnar, The Rock,
Apollo 13, Eye for an Eye, the
Right Stuff, The Firm og The
Abyss.
Glæpaverk orðin þáttaefni
HNEFALEIKAR Mike Tyson og
Suður-Afríkumannsins Francois
Botha voru sýndh- á Sýn laugar-
dagskvöldið 16. janúar og leið-
beindu þeir Bubbi Morthens og
Ómar Ragnai-sson áhorfendum.
Viðureignin gekk skaplega fyrir sig
þangað til í lok 5. lotu, að Tyson
tókst að svæfa Botha svo gjörsam-
lega að hann komst
ekki til meðvitund-
ar íyrr en nokkru
síðar. Með þessu
rothöggi er Mike Tyson aftur kom-
inn á skrið og er nú einskis annars
að vænta en þessi þeldökki berserk-
ur gangi á valnum í burtu ósigraður
að lokum.
Francois Botha er af Búaættum,
en Búar voru kallaðir þeir hollensku
landnemar sem fyrstir settust að í
Suður-Afríku. Skömmu fyrir síð-
ustu aldamót lentu þeir í stríði við
Breta og skiptust þá m.a. Islending-
ar í hópa ýmist með eða á móti
Bretum. Fram eftir öldinni fyiú--
hittust Islendingar sem enn voru
harðir fylgjendur Búa. Nú sést
hvergi móta fyrir þessum illræmdu
Búastríðum nema í sögubókum, en
kynstofninn er enn á lífi og nafn
boxarans er gamalt ættamafn úr
flokki Búanna.
Síðast þegar Tyson keppti beit
hann í eyra andstæðingsins og fékk
eðlilega bágt fyrir. í þetta sinn var
enginn bitinn. En Tyson átti í erfiðri
baráttu framan af keppninni, enda
búinn að vera dæmdur frá keppni í
nokkum tíma vegna tílrauna til að
marka andstæðinginn eins og sauð-
kind. Afkomandi Búastríðanna virt-
ist vera að vinna á stigum framan af
keppni af því Botha tók hann bara í
sína suður-afrísku hramma og
þjarmaði að honum. Það voru faðm-
lög jarðýtunnar. Samt var eins og
Tyson bæri þess
„ástúð“ vel. Og svo
fór að lokum að ör-
lagahöggið var gef-
ið á réttan stað og stundu. Þá þugs-
uðu þeir kappar Bubbi og Ómar:
„Nú getum við“ og æptu feikilega,
en það tilheyrii-. Þeir vom skemmti-
lega uppi-ifnir við þennan atburð.
Islendingar, eins og margar aðrar
þjóðir, hafa mikinn áhuga á saka-
málum, þ.e.a.s. eftir að þau hafa ver-
ið færð í stílinn af höfundum. Era
mýmörg dæmi þess að fram hafa
komið bókaflokkar, ýmist upp-
diktaðii- eða hálfsannir um afbrota-
mál, sem þykja eftirsótt lesning.
Munu Bretar að líkindum standa
ft-emstir í flokki slíkra höfunda. Hér
á landi hafa sakamál eiginlega heyrt
undir þjóðlegan fróðleik, eða tó-
baksfræði, eins og sá fróðleikur var
kallaður fyrr á öldinni, og í áratugi
kom út vinsælt rit, skiTfað af merk-
um höfundum, sem hét Satt. Þá
hafa verið á döfinni örlagaverk og
sakamál í bland á þesum vetri, eins
og Sólveig og sjónvarpsþáttui- um
Sólborgarmál. Fólk er eflaust við-
kvæmara fyrir slíkum verkum en
öðram, en sú viðkvæmni er ekki
sprottin af listrænum toga. Nú hef-
ur sjónvarpskassi ríkisins tekið
ákvörðun um að sýna sex sakamála-
þætti og var sá fyrsti sýndur á
sunnudaginn var.
Ekld munu dæmi þess áður að
slík þáttaröð hafi verið tekin til sýn-
inga, enda sakbomingur talist sýkn
af óhæfúverkum sínum eftir afþlán-
un. En við lifum á breyttum tímum
og aðrir herrar að taka við með
nokkuð yfirlætíslega siðgæðisvit-
und. Frásögnin á sunnudaginn vai’
ekki af morðingja, sem era blessun-
arlega fáfr í seinni tíma sögu okkar,
heldur nauðgara, sem jafnast nokk-
uð á við þann fyrmefnda.
Tveir þættir birtast öðra hverju á
Sýn sem verða að teljast með sér-
kennilegasta efni sem sýnt er í sjón-
varpi yffrleitt. Annar þátturinn er
með Jerry Springer, sem ræðir við
pör um óreiðu þeirra í ástum og
verða þá pústrar og kjaftshögg og
hártoganir, en viðstaddir fagna
ákaflega. Hinn þátturinn er teikni-
myndasyi-pa ætluð fullorðnum og
nefnist Trafluð tilvera. Má þai’ oft
heyra upphrópunina: „Oh, my God.
They killed Kenny“. Þeir era sagðir
vera í þriðja bekk og hræðast ekki
neitt. Kannski á þátturinn að vera
fyndinn eða kannski er hann gerður
til að böm í þriðja bekk geti haft
eitthvað til fyrirmyndar.
Indriði G. Þorsteinsson
SJONVARPA
LAUGARDEGI
Hljómsveitin Saga Klass
. ■
timéÆíá
Frábær danstónlist frá kl. 23.30 með
hljómsveitinni Saga Klass og söngvurunum
Sigrúnu Evu Ármannsdóttur og
Reyni Guðmundssyni.
Gleðigjafarnir André og Kjartan
skemmta á Mímisbar.
Radisson SAS
Saga Hotel
Reykjavík