Morgunblaðið - 23.01.1999, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 65
MINNINGAR
BIRGIR
GUÐMUNDSSON
+ Eyjólfur Birgir Guðmunds-
son fæddist í Reykjavík 7.
ágúst 1943. Hann lést á Rigs-
hospitalet í Kaupmannahöfn
hinn 13. janúar síðastliðinn og
fór útför hans fram frá Breið-
holtskirkju 22. janúar.
Kennsla þín í riti og ræðum
rann til hjartans, skýr og ljós.
Enn er bjarminn af þeim fræðum
eldur minn og vegljós.
(Guðm. Ingi Kiistj.)
Stærsta hlutanum af minni við-
veru í bflaviðgerðum varði ég hjá
Birgi Guðmundssyni. Hjá honum
hóf ég störf á þeim vettvangi og
hjá honum lauk ég þeim.
Nú hefur Birgir Guðmundsson
lokið sinni viðveru á þessum vett-
vangi veraldlegs lífs, en veganesti
hans býr áfram í okkur sem feng-
um tækifæri til að kynnast honum
náið og hjálpar okkur tfl góðra
verka í lífsdansinum framundan.
Elsku Helena, Linda, Brynja,
Birgir, Rósa og fjölskyldur, Guð
styrki ykkur í sorg ykkar og geri
ykkur kleift að lifa áfram og starfa
í þeim jákvæða, hreinlynda og
hjartkæra anda sem alltaf ein-
kenndi þann góða dreng, Birgi
Guðmundsson.
Ég veit þú fékkst engu, vinur, ráðið um það,
en vissulega hefði það komið sér betur,
að lát þitt hefði ekki borið svo bráðan að.
Við bjuggumst við að hitta þig oft í vetur.
Og nú var um seinan að sýna þér allt það
traust,
sem samferðafólki þínu hingað tO láðist
að votta þér. Það virtist svo ástæðulaust
að vera að slíku fyrst daglega til þín náðist.
(Tómas Guðm.)
Eg kveð kæran vin og læriföður
með þökkum fyrir liðinn dag.
Jón Garðar Hreiðarsson.
SIGFUS
JÓNSSON
+ Sigfús Jónsson
fæddist á Ær-
læk í Axarfírði 2.
febrúar 1930. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu 14. jan-
úar siðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Háteigskirkju
21. janúar.
Hver minning dýrmæt perla
að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af
alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var
gjöf, sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Nú er komið að leiðarlokum að
sinni, kæri vinur. Okkur hjónin grun-
aði ekki að sunnudagskvöld fyrir and-
lát þitt væri okkar síðasta kvöld allra
saman. Minningamar fylla hugann
frá þriggja tuga samleið. Þú varst
vinurinn sanni og félagi góður sem
margur átti að. Hógvær og lítillátur,
vildir öllum vel. Efst er okkur þakk-
læti í huga fyrir þá vináttu og hjálp-
semi og að hafa orðið þeirrar gæfu
aðnjótandi að hafa fengið að kynnast
þér og njóta þíns hlýja viðmóts og al-
úðai- í okkar garð. Fyrir allar góðu
ferðimar á erlendri gmndu með ykk-
ur Erlu, svo og yndislegar stundir í
Skorradalnum. Við viljum þakka þér
alla þá hlýju og góðvild
til bama okkar sem þau
geyma með sér og em
þakklát fyrir.
Þú varst mikill gæfu-
maður í þínu fjölskyldu-
lffi, eignaðist yndislega
konu og börn, síðar
tengdaböm og barna-
börn sem þú umvafðir
hlýju þinni og kærleik
til hinstu stundar. Fjöl-
skyldan var þér lffið.
Ykkar sterku fjöl-
skyldubönd koma best í
ljós núna á þessum erf-
iðu stundum.
Við kveðjum þig, Sigfús minn, haf
þökk fyrir allt og allt.
Elsku Erla mín, við vottum þér og
fjölskyldunni ailri innilega samúð.
Við vitum að þú stendur ekki ein.
Þínir vinir
Erlingur og Anna.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Elskuleg móðir okkar,
GUÐRÚN ÍSLEIFSDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 18. janúar.
Hjörleifur Bergsteinsson,
Aðalheiður Bergsteinsdóttir,
Guðný Bergsteinsdóttir,
ísleifur Bergsteinsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURJÓN VÍDALÍN GUÐMUNDSSON,
andaðist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja mið-
vikudaginn 20. janúar.
Guðlaug Sigurgeirsdóttir,
börn, tengdabörn
og afabörn.
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
„Fjölskyldan og
samskipti for-
eldra og barna“
NÆSTKOMANDI sunnudag, sem
er 24. janúar, hefjast á ný eftir jólin
Tónlistarguðsþjónustur í Hafnar-
fjarðarkirkju.
Næstkomandi sunnudag er þema
Tónlistarguðsþjónustunnar „fjöl-
skyldan og samskipti barna og for-
eldra“. Þá mun Matthildur Rós
Haraldsdóttir sópran flytja þrjú
einsöngslög og kór kirkjunnar leiða
safnaðarsöng. Prestur er sr. Þór-
hallur Heimisson. Tónlistarguðs-
þjónustan hefst kl. 17 og eru allir
velkomnir. Hefðbundin guðsþjón-
usta er í kirkjunni kl. 11.
Æskulýðsfundir,
kirkj upr akkarar
og TTT í Landa-
kirkju
ÆSKULÝÐSFÉLAG Landakirkju
og KFUM og K er farið í gang að
nýju eftir áramót og er undirbún-
ingur hafinn að hópferð ungmenna
á landsmót æskulýðsfélaga um
miðjan næsta mánuð. Landsmótið
verður í Vatnaskógi 12.-14. febrúar
fyrir unglinga í 8.-10. bekk. Hefur
það alltaf verið hin mesta upplifun
að taka þátt í svona móti þar sem
2-300 ungmenni koma saman víðs
vegar að af landinu. Þátttakan í
mótinu er niðurgreidd að hluta af
sóknarnefnd en allir fundir og sam-
verur hér í Eyjum eru félögum að
kostnaðarlausu. Opið hús er á
fimmtudagskvöldum kl. 20.30 í
KFUM & K-húsinu og æskulýðs-
fundir eru í safnaðarheimilinu kl.
20.30 á sunnudagskvöldum. Gylfi,
Skafti, Oli Jói og Lilja eru helstu
leiðtogarnir.
Ki'akkar á aldrinum 7-9 ára (þeir
sem verða sjö ára á þessu ári geta
byrjað núna) hittast í Kirkjuprökk-
urum á þriðjudögum kl. 16 í safnað-
arheimihnu. Nýir ki'akkar eru vel-
komnir og taka Óli Jói, Margrét og
María vel á móti þeim. Mörg spenn-
andi verkefni eru framundan.
Tíu til tólf ára krakkar koma
saman undir merkinu TTT á
fimmtudögum kl. 17 í safnaðarheim-
ilinu. Það eru Skafti, Garðar og
Guðrún Helga sem stýra þeim hóp
og fást þau við eitt og annað í starf-
inu. Stundum er farið í heimsóknir
en alltaf er farið í leiki og sprell.
Þeir krakkar sem gripu í tómt síð-
asta fimmtudag eru beðnir velvirð-
ingar á rangri tilkynningu sem var
send út, en núna hefst starfið ör-
ugglega, fimmtudaginn 21. janúar.
Barnaguðsþjónsta er alla sunnu-
daga kl. 11 og eru allir hjartanlega
velkomnir. Komnar eru nýjar bæk-
ur með verkefnum og skemmtileg-
um myndum til fróðleiks og upplif-
unar. Barnaguðsþjónustan einkenn-
ist af miklum söng, lofgjörð, sögum
og leik. Foreldrar eru hvattir til að
koma með börnum sínum og styðja
þau til þátttöku.
Sérstakir foreldramorgnar eru í
safnaðarheimilinu á hverjum mið-
vikudegi og hefjast þeir kl. 10 ár-
degis. Það eni samverur sem ætlað-
ar eru fyrir mæður og feður ný-
fæddra og ungra bama.
Eyjamenn hafa verið þekktir fyr-
ir góða kirkjusókn um langan aldur.
Söfnuðurinn er því hvattur til þátt-
töku í öllu kirkjulegu starfi til að
halda uppi þessu merki, en ekki síst
til þátttöku í almennum guðsþjón-
ustum á sunnudögum. Þess skal að
lokum getið að næsta sunnudag, 24.
janúar, verður aðalsafnaðarfundur
eftir messu kl. 14, sem sóknar-
nefndin boðar til.
Sr. Kristján Björnsson.
Kveðjuguðs-
þjónusta
KVEÐJUGUÐSÞJÓNUSTA fyrir
sr. Jón Bjarman, sjúkrahúsprest
Þjóðkirkjunnar, verður nk. sunnu-
dag, 24. janúar, kl. 20 á 3. hæð
Landspítalans. Sr. Jón hefur starf-
að sem sjúkrahúsprestur Þjóðkirkj-
unnar með miðstöð þjónustu sinnar
á Landspítalanum frá árinu 1986.
Þjónusta hans í sérþjónustu innan
íslensku þjóðkirkjunnar er án hlið-
stæðu og markar upphafið að nýj-
um áherslum í prestþjónustu. Við
þökkum honum samfylgdina og ósk-
um honum velfamaðar og blessunar
Guðs um ókomin ár.
Sr. Bragi Skúlason, skorarsljóri
sjúkrahúspresta á Ríkisspítölum.
Samkoma í Fíla-
delfíukirkjunni í
kvöld
AÐ undanfömu hefur staðið hér yf-
ir samkirkjuleg bænavika og lýkur
henni í kvöld með samkomu í Fíla-
delfíukirkjunni, sem hefst kl. 20.30.
Ræðumaður kvöldsins í kvöld verð-
ur sr. Hjalti Guðmundsson.
Tónlistarflutningur verður í
höndum heimamanna og verður
mikið sungið eins og alltaf í Ffla-
delfíu.
Allir eru hjartanlega velkomnir á
samkomuna.
Kór Grafarvogs-
kirkju í menn-
ingarreisu
KÓR Grafai-vogskirkju mun nú um
helgina leggja upp í menningar-
reisu. Akureyrarkirkja og Glerár-
kirkja verða heimsóttar, síðan mun
kirkjukórinn undir stjórn Harðar
Bragasonar taka þátt í tónleikum á
Siglufirði laugardagskvöldið 23. jan-
úar ásamt kirkjukór Siglufjarðar.
Sunnudaginn 24. janúar verður flutt
hátíðarguðsþjónusta í Siglufjarðar-
kirkju þar sem fjórir prestar munu .
þjóna fyrir altari, sr. Bragi Ingi-
bergsson, sóknarprestur Siglfirð-
inga, sr. Vigfús Þór Árnason, sr.
Sigurður Arnarson og sr. Anna Sig-
ríður Pálsdóttir, prestar Grafar-
vogskirkju.
Sr. Vigfús Þór Arnason, sem var
sóknarprestur Siglfirðinga á árun-
um 1976-1989, mun prédika.
5 ára börn í Hall-
grímssókn boðin
til kirkju
NÆSTKOMANDI sunnudag eru 5
ára böm í Hallgrímssókn boðin sér-
staklega velkomin til kirkju ásamt
foreldrum sínum, en þá verður þeim
gefin bókin Kata og Óli og barna-
starf kirkjunnar verður kynnt fyrir
þeim.
Þetta hefur verið gert í nokkur ár
og mælst vel fyrir, því foreldrar fá
með þessu stuðning kirkjunnar til
að leiða börnin inn í samfélag kirkj-
unnar.
Biskup Islands hefur í ræðu og
riti hvatt heimili, skóla og kirkju til
að vinna saman að því að kenna
börnunum bænir og vers. Börnin
þurfa að læra bænamálið um leið og
þau læra að tala, svo bænin verði
sjálfsagður og eðlilegur liður í lífi og
starfi. Barnastarf kirkjunnar er lið-
ur í skímarfræðslunni, sem hvert
skírt bam á að fá. I Hallgrímskirkju
er bamastarf á sama tíma og messa
sunnudagsins, þ.e. kl. 11 árdegis, -
börnin era með í upphafsliðum
messunnar, en fá svo fræðslu og
samfélag við hæfí. Auk þessa starfs
á sunnudögum er starf fyrir 9-10
ára böm á miðvikudögum kl. 16.30
og 11-12 ára börn á miðvikudögum
kl. 18.
Kristniboðskynn-
ing í Breiðholts-
kirkju
NK. SUNNUDAG fáum við góða
heimsókn í Breiðholtskirkju í
Mjódd. Þá mun sr. Kjartan Jóns-
son, kristniboði og framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga, prédika við messu kl. 11
og jafnframt mun hann kynna
kristniboðsstarfið í máli og mynd-
um. Þá mun Kangakvartettinn, sem
vakið hefur mikla athygli fyrir fal-
legan og lifandi söng á undanförn-
um misseram, einnig syngja í mess-
unni. Að messu lokinni verður boðið
upp á léttar veitingar í safnaðar-
heimilinu og gefst kirkjugestum þar
gott tækifæri til að ræða við sr.
Kjartan um málefni kristniboðsins.
Vil ég hvetja sem flesta til þátt-
töku í þessari messu og nota það
tækifæri, sem þar gefst, til að fræð-
ast um þann mikilvæga þátt í starfi
íslensku kirkjunnar sem kristniboð-
ið er.
Sr. Gísli Jónasson.
Sorg og sorgar-
viðbrögð
VALGERÐUR Sigurðardóttir
læknir mun nk. mánudag, 25. janú-
ar kl. 20.30, flytja erindi um sorg og
sorgarviðbrögð í Grafarvogskirkju,
en Valgerður hefur starfað sem
læknir hjá Heimahlynningu
Krabbameinsfélagsins frá árinu
1989 og er nýskipaður yfirlæknir á
Líknardeild Landspítalans, sem
fljótlega mun hefja starfsemi sína í
Kópavogi.
A eftir erindinu mun Valgerður
svara fyrirspurnum og svo munu
prestar safnaðarins kynna starf-
semi sorgarhóps, sem mun halda
alls 8 fundi frá og með mánudegin-
um 1. febrúar, kl. 20-22, og taka
niður skráningarbeiðnir í hópinn.
Hópurinn er ætlaður fyrir þá sem
misst hafa náinn ástvin og skilyrði
fyrir inngöngu í hópinn er að liðnir
séu að minnsta kosti 6 mánuðir frá
missi og að viðkomandi geti mætt
reglulega á fundina. Þátttakenda-
fjöldi er takmarkaður við 8-10
manns. Farið verður markvisst yfir
bók Herra Karls Sigurbjömssonar
biskups, „Til þín sem átt um sárt að
binda“, og einn eða tveir prestar
safnaðarins munu leiða hópinn
ásamt aðila, sem hefur misst náinn
ástvin og tekið áður þátt sem syrgj-
andi í starfi sorgarhóps.
Allir eru hjartanlega velkomnir á
þetta erindi Valgerðar sem hefst
eins og áður segir nk. mánudag kl.
20.30 í Grafarvogskirkju.
Prestarnir.
Biblíulestur
SR. Halldór Gröndal, fyrrverandi
sóknarprestur Grensásprestakalls,
mun leiða biblíulestrarhóp í Grafar-
vogskirkju næstu vikumar og um-
fjöllunarefni hans verður Markús-
arguðspjall. Fyrst í stað mun hóp-
urinn hittast á mánudögum frá kl.
18-19 í kirkjunni og er öllum hjart-
anlega velkomið að taka þátt í þessu
starfi.
Prestarnir.
Neskirkja. Biblíulestur kl. 10.30.
Lesið úr Matteusarguðspjalli. Allir
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs-
son. Félagsstarf aldraðra kl. 15.
Þorrafagnaður. Þorramatur súr og
nýr. Reynir Jónasson spilar á harm-
onikku. Inga J. Backman syngur.
Litli kórinn syngur. Allir velkomnir.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir
unglinga kl. 21.
KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al-
menn samkoma kl. 14. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri
bama (6 ára og yngri) kl. 11. TTT-
starf í safnaðarheimilinu Vinaminni
kl. 13.
Krossinn. Unglingasamkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Sérfræðingar
í blómaskreytinguin
við öll tækifæri
1llPÍI blómaverkstæði I
IBinna,, I
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.