Morgunblaðið - 23.01.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 25
Investor hefur
áhuga á sam-
vinnu Volvo-GM
Stokkhólmi. Reuters.
NÝRRI kenningu hefur verið varpað
fram um framtíð Volvo: að General
Motors í Bandaríkjunum sé tilvalinn
samstarfsaðili sænska bílaframleið-
andans.
Viðskiptablaðið Dagens Industri
hefur eftir ónafngreindum heimild-
armönnum að Percy Barnevik, einn
forystmanna sænsks iðnaðar, vilji að
General Motors kaupi fólksbíladeild
Volvo.
I Stokkhólmi hækkaði verð hluta-
bréfa í Volvo um 2% í 237 sænskar
krónur við fréttina. Verð bréfanna
hefur hækkað um meira en 50% síð-
an í október vegna bollalegginga um
yfirtöku.
Barnevik, sem er stjómarformað-
ur fjárfestingarhópsins Investor, vill
að Volvo geri síðan þann draum sinn
að veruleika að sameinast sænska
vörubíla- og rútuframleiðandanum
Scania. Investor, sem er fjárfesting-
ararmur Wallenberg-fjölskyldunnar,
á 45% í Scania og ræður örlögum
fyrirtækisins.
Barnevik vill því næst að hinn
bflafi'amleiðandinn í Svíþjóð, Saab
Automobile, sameinist fólksbíladefld
Volvo eða hefji samstarf við hana að
sögn blaðsins. GM og Investor eiga
Saab Auto í sameiningu og GM hefur
kauprétt á hlut í fyrirtækinu.
Þótt Volvo tilheyri ekki Wallen-
berg-veldinu var forstjóri Volvo, Leif
Johansson, óður forstjóri Wallen-
berg-fyrirtækisins Electrolux. Frá
þeim tíma þekkir hann einn varafor-
stjóra GM, Louis Hughes, sem sat í
stjórn Electrolux og er nú stjómar-
formaður Saab Auto.
Investor vill ekkert um málið
segja. „Við reynum að komast að
raun um hvað er Scania fyrir beztu,“
sagði talsmaður Investors. „Við er-
um reiðubúnir að hitta hvern þann
sem hefur einhvern áhuga á Scania.“
Talsmaðurinn vfldi ekkert um það
segja hvort Investor ætti í viðræðum
við Volvo.
-----------------
Rover Group
íhugar alda-
mótalokun
London. Reuters.
ROVER Group, brezkt dótturfyrir-
tæki BMW í Þýzkalandi, ætlar að
ákveða í júní hvort verksmiðjum fyiir-
tækisins verður lokað um stundarsak-
ir til að koma í veg fyrir að framleiðsl-
an verði fyrir barðinu á aldamóta-
vírusnum.
„Við munum ef til vill hætta fram-
leiðslu í eina eða tvær vikur, framleiða
takmarkað magn í tvær vikur eða
komast að þeÚTÍ niðurstöðu að aflt sé í
lagi,“ sagði yflrmaður aldamótaáætl-
unar Rover, Shannon Couch.
Sérfræðingar óttast að margar tölv-
ur muni hrynja á miðnætti 31. desem-
ber 1999, ef hugbúnaður þeirra skráir
ártöl með aðeins tveimur síðustu tölu-
stöfunum og gerir ekM greinarmun á
1900 og 2000.
Frjálsíþróttaveisía á heimsvísu. Láttu þig ekki vanta 1 K
* i FLUCLEIDIR |§7 eimskip djjZL <§jj§í> fmm spaJL™ FACOR
Jón Arnar mætir bestu tugþrautarköppum heims !
Sjáiö Guörúnu keppa viö meistara íriands og Svíþjóöar.
Vala og Þórey Edda í haröri baráttu í stangarstökkinu.
Einar Karl mætir Evrópumeistara í hástökki.
Allir bestu spretthlauparar landsins taka þátt.
Falla íslandsmet, Noróurlandamet, Evrópumet eöa heimsmet?
janúar kl 21=00
OKKAR MARKMIÐ ER AÐ ÞU NAIR ÞINU
Það krefst sérstakrar þekkingar og tækni að búa til þægilegan en jafnframt kraftmikinn fjölskyldubíl.
Við nýtum reynslu okkar úr kappaksturskeppnum víða um heim til að gera spræka og kraftmikla
vél, þjált gírakerfi og sportlega fjöðrun. Við nýtum áratugalangt þróunarstarf okkar færustu
vísindamanna til að tryggja hámarks öryggi ökumanns og farþega. Við nýtum rannsóknir NASA á
líkamsstuðningi og plássþörf við hönnun innra rýmis til
að ná hámarksþægindum og nýtingu. Frá I.459.000 kr.
Takmark okkar er að búa til bíl sem þjónar þér betur. ----------------------------
Prófaðu Honda Civic - og þú finnur um leið að okkur hefur tekist það býsna vel.
- hér eru gæði ó ferðinni
Honda á íslandi • Vatnagörðum 24 • Sími 520 I 100
Opið virka daga kl.9-18 og kl. I2-I6 á laugardögum