Morgunblaðið - 23.01.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 33
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN FORSETA ÍSLANDS
Morgunblaðið/Óskar Andri
Soffía Guðný Guðmundsdóttir
Jón Jónsson
Morgunblaðið/Halldór
Útsalan er byrjuð
í Metró - Skeifunni
best er að koma
strax til að ná í
toppvöru - hræódýrt
(ekki segja neinum)
Farandsýningin
Handritin heima
Laufey Guðmundsdóttir og Soffía Guðný Guðmundsdóttir
unnu að uppsetningu farandsýningar á vegum Stofnunar
Arna Magnússonar sem ætlað er að kynna grunnskólanem-
um á landsbyggðinni handritin heima. Leiðbeinandi Soffíu og
Laufeyjar sem nú dvelur í Þýskalandi var Sigurgeir Steins-
son.
Soffía Guðný Guðmundsdóttir segir aðdragandann að
verkefninu skýrslu sem Andri Snær Magnason og Sverrir
Jakobsson hafi unnið fyi'ir Stofnun Ai-na Magnússonar,
„Menningararfui'inn í nútímanum", en þar hafí m.a. verið
stungið upp á ofangreindri leið. „Sigurgeir sótti um styrk til
Nýsköpunarsjóðs, fékk, og bauð okkur Laufeyju að taka þátt
í verkefninu.
Við erum báðar í íslenskunámi, hún er búin með sitt BA-
verkefni og ég er að klára mitt. Hún er líka búin með
kennslufræði en ég er í því námi núna. Við erum því með
svipaða menntun og höfum unnið saman áður. Svoleiðis kom
það tO að við þóttum henta í verkið.“
Soffía segir farandsýninguna samanstanda af tólf flötum
með ljósmyndum og upplýsingum um handritin, auk fylgi-
hluta. „Við röðum flötunum saman tveimur og tveimur
þannig að þetta eru sex einingar. Öðrum megin segjum við
frá upphafi ritunar, bókmenntasögu og svona hefðbundari
hlutum; hinum megin fjöllum við um handverk og skrifara,
spássíukrot og myndlist. Svo fylgir þessu „handraðinn" sem
er kassi með áþreifanlegum hlutum sem tengjast handritun-
um; skinn, fjöðurstafur, litasteinar og eitthvað fleira svo
krakkarnir geti fengið að þreifa á einhverju. Svo unnum við
einnig kennaraefni.
Að sögn Soffíu er verkið rétt hafíð. „Við fengum að vinna
tvo fleka núna, lögðum allai- meginlínur, ákváðum skipulagið
og röksemdir og hugmyndafræði að baki sýningunni. Við
vonumst til að fá áframhaldandi styrk til að halda áfram með
verkefnið í sumar.“
Fræðileg handbók um
menningartengda
ferðaþjónustu
Verkefni Valdimars Tr. Hafstein og Aka Guðna Karlsson-
ar snerist um að semja aðgengilega handbók um samtvinnun
ferðaþjónustu og menningai'. Ekki náðist í tvímenningana
þar sem þeir eru við nám erlendis, Áki á Ítalíu við nám í sam-
skiptafræði (hjá Umberto Eco) en Valdimar leggur stund á
þjóðfræði við háskólann í Berkeley í Kaliforníu. Þess í stað
var rætt við leiðbeinanda verksins, Jón Jónsson.
„Verkefnið varð til í samræðum okkar Valdimars Tr. Haf-
steins á síðasta vetri. Þá vorum við að ræða fram og aftur um
menningarferðaþjónustu og fræðin og hvað hún gæti lagt til
málanna til að hún gæti gert ferðaþjónustu að blómlegri at-
vinnugrein. í framhaldi sóttum við um styrk til Nýsköpunar-
sjóðsins, ég sem umsjónarmaður og hann sem nemandi. Áki
bættist svo í hópinn síðar. Nýsköpunarsjóðm- styrkti verk-
efnið um tvo menn á mánuði en mótframlag Sögusmiðjunnar
sem stóð að verkefninu og er fyrirtækið mitt, bætti við þrem-
ur mánuðum og þannig kom Áki inn í spilið. Verkefnið var
einnig styrkt af Atvinnu- og ferðamálasjóði Reykjavíkur-
borgar.
Verkefnið var unnið í sumar og í haust og tók um 5 mán-
uði. Þetta er fyrsta skrefið en Handbókin sjálf sem á að
verða afurð þessa verkefnis í framtíðinni, það er reiknað með
að hún verði ekki gefín út fyrr en árið 2000. Þetta er býsna
mikil vinna.“
Jón segir tvímenningana vel að viðurkenningunni komna.
„Þeir unnu gríðarlega mikið starf síðasta sumar og og
komust jrfir miklu meira en ég hafði búist við. Það stóð t.d.
ekki til að þeir færu í skrifín sjálf heldur einungis í heimilda-
leitina og -söfnunina og síðan að gera tillögu að beinagrind
og nefna það helsta sem yrði að taka fyrir í svona bók. Það
eru komnar 50 síður af texta í viðbót við það sem stóð til að
gera.“
Tæknifræðingar framtíðarinnar finna heildarlausnir...
En fyrst hittast þeir á kynningarfundi á íslandi
Kynningarfundir um tæknifræðinám í Sonderborg í Danmörku
Hugsaðu um sjálfa(n) þig og
framtiðina og fáðu upplýsingar
um tæknifræðinám í Ingenipr-
hojskole Syd.
• íslenskur tæknifræðinemi
viðskólann veitirþér
upplýsingar um námið. n
Komdu og ræddu við íslend- |
ing sem lærði í Sonderborg '
og vinnur nú á íslandi.
• Allir velkomnir. Nánari tíma-
setning fyrir fundina í skól-
unum fást í viðkomandi skóla.
Tæknifræði Utflutningui
• Sameinar tungumál, viðskipta/markaðsfræði
og tækni
Tæknifræði Rekstur
Sameinar viðskiptafræði, stjómun og tækni
Tæknifræði Hönnun/þróun
jKafmagnstæknifræði (veikstraumur)
ÍRafmagnstæknifræði (hugbúnaður)
Véltæknifræði
Tæknitríeði Mastersnám
tölvutækni, rafeinda og eðlisfræði,
it á dönsku "Mekatrónik"
Grundtvigs Allé 150
Handelshojskole Syd - Ingeniorhojskole Syd er hluti af Syddansk Universitet, 6400 Sonderborg, Danmark
ásamt Odense Universitet og Sydjysk Universitetcenter Sími. +45 79 32 16 00
Kynningarfundir verða á
eftirtöldum stöðum;
Iðnskólaiuun í Reykjavik;
þriðjud. 26. jau
Tækniskóla íslands: Miðvikud. 27. jan
Borgarholtsskóla: Fimmtud. 28. jan
Hótel Sögu: Fimmtud. 28. jan kl. 20
•Námsbærinn Sonderborg býður
upp á fjölbreytta möguleika á
menningu og annarri afþreyingu
• Kollegiernes Kontor (Skrifstofa
Stúdentagarðanna) aðstoðar við
öflun húsnæðis
• í Sonderborg eru búsettir íslend-
ingar, sem eru við nám og störf
og á þeirra vegum er starfrækt
íslendingafélag
•þér er velkomið að hringja í
Brynju Georgsdóttur formann
íslendingafélagsins í síma
+45 74 43 56 65
• Lítið á heimasíðu fslendingafé-
lagsins http://www.hhs.dk
H?
INGENI0RH0JSKOLE SYD