Morgunblaðið - 23.01.1999, Page 52

Morgunblaðið - 23.01.1999, Page 52
52 LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Yfir 1.200 notendur KERFISÞRÓUN HF. Fákateni 11 • Sími 568 8055 www.islandia.is/kerfisthroun (JMRÆÐAN/PROFKJOR Rjúfum vistarbandið, göng- um í Evrópusambandið HVERS vegna erum við ekki í Evrópusam- bandinu? Eru það hagsmunir launafólks, öryrkja, aldraðra og barnafólks að við erum ekki í Evrópusam- bandinu? Eru það hagsmunir iðnaðar- manna, kaupmanna, heildsala og ferðaþjón- ustu að við erum ekki í Evrópusambandinu? Er ef til vill samhengi milli einangrunar- stefnu stjórnvalda og þess að laun eru helm- ingi lægri hér en í ná- grannalöndunum? Er ef til vill samhengi milli afneitunar stjórnvalda á viðræðum við Evr- ópusambandið og þess að kjör aldraðra og öryrkja eru með því lægsta sem þekkist í viðmið- unarlöndum okkar? Er ef til vill samhengi milli útilokunar stjórn- valda á aðild að Evr- ópusambandinu og þess að foreldrar vinna hér myrkranna á milli til að ala önn fyrir börnum sínum og koma þaki yfír höfuð- ið? Er ef til vill sam- hengi milli þess að út- lendingar mega ekki fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi og lág- launastefnu stjórn- valda? Ottast menn ef til vill að al- þjóðleg samkeppni um vinnuafl myndi hækka laun og draga úr Stefán Benediktsson Stjórnvöld, segir Stefán Benediktsson, eru ekki að verja hags- muni þjóðarinnar. gróða gjafakvótans? Auðvitað eru stjórnvöld að ganga erinda þeiiTa einokunarafla sem hagnast á því að kjör launafólks, öryrkja og ellilíf- eyrisþega eru helmingi verri en í nágrannalöndum okkar. Auðvitað hræðast stjórnvöld þann saman- burð sem í ljós kemur þegar ein- angi-un okkar verður rofin með að- ild að Evrópusambandinu. Stjórn- völd eru ekki að verja hagsmuni þjóðarinnar. Innganga í Evrópu- sambandið myndi þýða að virðing- arleysi stjói-nvalda fyrir kjörum al- mennings yrði opinbert á alþjóða- vettvangi. Stjómvöld einnar af rík- ustu þjóðum veraldar yrðu uppvís að því að halda kjörum og réttar- stöðu launafólks, öryrkja og aldr- aðra með einangrunarstefnu sinni áratugum á eftir í samanburði við nágranna okkar. Stjórnvöld virtrar menningarþjóðar, sem heldur upp á 1000 ára afmæli kristnitöku að ári með miklum tilkostnaði, yrðu uppvís að því að halda ellilífeyi'is- þegum og öryrkjum í slíkri gísl- ingu fátæktar að þeim er ekki kleift að taka þátt í menningar- og mannlífi þjóðarinnar. Samfylkingin er eina stjórnmálaaflið sem getur gert aðild okkar að Evrópusam- bandinu að veruleika. Reykvíking- ar, takið þátt í prófkjöri Samfylk- ingarinnar þann 30. janúar næst- komandi. Þetta próíkjör er eina tækifærið sem þið fáið til að velja frambjóðendur og hafa þannig áhrif á stefnu og málefni stjórn- málahreyfinga á þessu kosninga- vori. Höfundur er arkitekt og þjóðgarðs- vörður. ATVIMIMU- AUG L V SINGAR Blaðbera vantar Blaðbera vantar á Bollagötu. % | Upplýsingar í síma 569 1122. Morgunblaðiö leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Blaðbera vantar Blaðbera vantar í Lundi, Garðabæ. ^ | Upplýsingar í síma 569 1122. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. LINSAN Sjóntækjafræðingur Við óskum eftir að ráða sjóntækjafræðing til starfa. Þarf að vera öllum góðum kostum prýddur. Vinsamlegast skilið inn umsóknum til afgreiðslu Mbl. fyrir 5. febrúar nk., merktum: ^„Linsan". Förðunarfræðingar Vantar förðunarfræðinga strax. Erum að fá frábæra snyrtivörulínu. Svör óskast send til afgreiðslu Mbl., merkt: *„F - 7376". Mötuneyti strax Iðnfyrirtæki óskar eftir reglusömum og reyk- lausum starfskrafti strax. Vinnutími frá kl. 7.30-12.00. Umsóknirsendisttil afgreiðslu Mbl. fyrirþriðju- dagskvöldið 26. janúar, merktar: „Mötuneyti — strax — 7441." „Au-pair" Gautaborg íslenskfjölskylda meðtvö börn, í Gautaborg, óskar eftir „au-pair". Verður að vera 18 ára eða eldri, með bílpróf, og geta byrjað sem fyrst. Upplýsingar í gsm-síma 862 1144. TILKYNIMINGAR Victoría — Antík Antík og gjafavörur — sígildar vörur kynslóð eftir kynslóð. Antík er fjárfesting ★ Antík er lífsstíll. Ný vörusending, í henni er m.a. stórt, fágætt postulínsstell, „aristokratískt", hágæða vara. Af öllum vörum er 20% stgr.afsl. og 15% afsl.tilboð á Visa og Euro. Sölusýning í dag og sun. og einnig þri. frá kl. 13—18, Sogavegi 103. Sími 568 6076 utan opnunartíma. NAUQUNGARSALA Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Ólafsvegi 3, Ólafsfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Ægisgata 18, þingl. eig. Þórdís Trampe og Ari Albertsson, gerðarbeiö- endur Byggingarsjóður ríkisins, mötuneyti framhaldsskólans á Laug- um og Vátryggingafélag íslands hf., fimmtudaginn 28. janúar 1999 kl. 10.00. Aðalgata 44, þingl. eig. Jón Jóhannsson, gerðarbeiðandi Gjaidskil sf., fimmtudaginn 28. janúar 1999 kl. 10.00. Bylgjubyggð 9, þingl. eig. Ásgrímur Guðmundur Konráðsson, gerð- arbeiðandi ísiandsbanki hf., Kirkjusandi, fimmtudaginn 28. janúar 1999 kl. 10.00. Hlíðarvegur 14, þingl. eig. Björgvin Björnsson og Vaka Njálsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Norðurlands, fimmtudaginn 28. janúar 1999 kl. 10.00. Ólafsvegur 36, þingl. eig. Davíð Hinrik Gígja og Sveinína Ingimarsdótt- ir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfadeild Húsnæð- isstjórnar og Byggingarsjóður ríkisins, fimmtudaginn 28. janúar 1999 kl. 10.00. Strandgata 5, efri haeð, þingl. eig. Guðrún Stefanía Jakobsdóttir, gerðarbeiðendur Dragi ehf. og Greiðslumiðlun hf. Visa ísland, fimmtu- daginn 28. janúar 1999 kl. 10.00. Sýslumaðurinn á Ólafsfirði, 20. janúar 1999. Uppboð Framhald uppboðs á eigninni Aðalstræti 13—15, þingl. eigandi Möttull ehf., gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Bolungarvik, verður háð á eigninni sjálfri miðvikudaginn 27. janúar 1999 kl. 15.00. Sýslumaðurinn í Bolungarvík, 22. janúar 1999. ★ Kynning á Brian Tracy námskeiðunum ★ mánudaginn 25. janúarkl. 18 í Þing- sal Hótels Loftleiða. Phoenix klúbbfund- ur sama dag kl. 20. Umbodsaðili Bri- an Tracy á íslandi. Uppl. í síma 551 5555. KEIMIMSLA HÚSNÆÐI í BOÐI íbúð í París fullbúin húsgögnum, á góðum stað til leigu. Leigutími frá 15. febrúartil 31. maí. Upplýsingar í síma 00 33 143758315 eða 0033 149 77 55 75. FÉLAGSLÍF Dalvegi 24, Kópavogi. Almenn samkoma í dag kl. 14. Allir hjartanlega velkomnir. Helgarferðir 5.-7. feb. Þorraferð. Gist á hót- elinu að Brekkum í Mýrdal. Þorrablót, göngu- og skoðana- ferðir o.fl. Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Útivistar. Fararstjóri verður Fríða Hjálmarsdóttir. 27.-28. feb. Skíðaganga um Hellisheiði. Gist á Nesjavöllum. Fararstjóri verður Sylvía Kristj- ánsdóttir. Myndakvöld mánudaginn 8. febrúar. Magnús Tumi, jarðfræðingur, segir frá eldgosi í Vatnaiökli og sýnir myndir frá gosstöðvunum. Dag- skrá hefst kl. 20.30 í Húnabúð, Skeifunni 11. Hið margrómaða kaffihlaðborð verður að vanda á vegum kaffinefndar. Skíðaferðir 1999 eru kynntar á heimasíðu Útivistar: centrum.is/utivist. FERÐAFELAG ® ÍSLANDS MORKINNI 6 - SiMI 568-2533 Sunnudagur 22. janúar kl. 13.00. a) Skíðaganga um Heliisheiði og nágrenni. Farið á góðar skíðaslóðir eftir veðri og vindi. b) Skálafell sunnan Hellis- heiðar, gönguferð. Mætið vel búin. Verð 1.200 kr. Brottför frá BSÍ, austanmegin, og Mörkinni 6. Þorragangan laugardagskvöld- ið 23. janúar er frá Perlunni kl. 19.30. Gengið um Öskjuhlíð. Þorrahlaðborð á 5. hæð. Verð 2.650 kr. Fjölmennið í Þorrablótsferð í Borgarfjörð með gistingu í Hótel Reykholti 30.—31. jan. Skoðunar- og gönguferðir. Steinka Páls leikur fyrir söng og dansi. Miðar á skrifstofu. KENNSLA Námskeið f smáskammta- lækningum (Hómapatíu) Til sjálfshjálpar og heimanotkun- ar laugardaginn 30. janúar á Heilsusetri Þórgunnu, Skipholti 50c. Kennarar: Þórgunna Þórarins- dóttir og Lilja Steingrímsdóttir. Smáskammtalæknar L C P H. Uppl. og innritun í símum 552 1850 eða 896 9653 og 551 2332 eða 897 1909. DULSPEKI Lffsins sýn Úr fortíð í nútíð og framtíð. Tímapantanir og upplýsingar í síma 568 6282, Geirlaug.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.