Morgunblaðið - 23.01.1999, Side 72
72 LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Glæsilegasta
skák Kasparovs
í DAG
Góð og skjót við-
brögð hjá RÚV
VIÐ viljum þakka fyrir
skjót og góð viðbrögð hjá
RÚV sl. laugardag þegar
við þurftum að aflýsa jarð-
arför. Stúlkan sem var á
vakt var einstaklega al-
mennileg og vai- auglýsing-
in lesin aftur og aftur þó
ekki væri hefðbundinn
auglýsingatími. Kærar
þakkir.
Aðstandendur.
Hneyksluð á ríkis-
stjórninni
EG er stórhneyksluð á
þessari ríkisstjórn. Þeir
virðast ekki vita lengur
hvað á að gera við pening-
ana. Þeir eiga svo mikið af
þeim. Það á að ráðast í að
byggja menningarhús um
allt land og þeir halda að
þeir fái mörg atkvæði út á
þetta. Ég held að það sé
mesti misskilningur. Er
ekki ár aldraðra í ár, 1999?
Væri ekki nær að reyna að
gera eitthvað fyrir það
Morgunblaðið/Ásdís
I Öskjuhlíðinni
Víkverji skrifar...
VELVAKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til fóstudags
fólk, og þar á meðal ör-
yrkja, sem varla hefur til
hnífs og skeiðar? Heil-
brigðisráðheiTa lét það út
úr sér í sjónvarpi 20. janú-
ar að það ætti að reyna að
jafna launin með því að
taka af þeim öryrkjum og
ellih'feyrisþegum sem hafa
meii'a og láta til þeirra
sem hafa minna. Væri ekki
nær að taka alla þessa
risnu og fríðindi ráðherra
og færa það á öryrkja og
ellilífeyrisþega? Hvar ætla
þessir ráðherrar að fá at-
kvæði þegar þeir eru búnir
að svelta þetta fólk og það
kemst náttúrulega ekki á
kjörstað. Það er engin
ástæða til þess að smá
mjatla úr þessu fólki líftór-
una.
Vestfirðingur.
Góð þjónusta
á Kringlukrá
ÉG VIL senda þakklæti
mitt fyrir frábæra og sér-
staklega skemmtilega
þjónustu. Við fórum nokk-
ur á Kringlukrána og
þjóninn þar, Guðmundur
Kjartansson, var einstak-
lega elskulegur, frá hon-
um geislaði mikill kærleik-
ur og gleði, sem er sjald-
gæft. Mættu fleh-i þjónar
taka hann sér til fyrir-
myndar.
Matthildur.
Tapað/fundið
Trúlofunarhringur
týndist
TRÚLOFUNARHRING-
UR týndist sl. laugardags-
kvöld líklega á leiðinni frá
Lækjargötu að Píanóbarn-
um. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 899 9791.
Gleraugu
týndust
GLERAUGU týndust
laugardaginn 16. janúar
líklega á leiðinni frá Lind-
arbraut að Aðalstræti eða í
leið 3., Skilvís finnandi hafi
samband í síma 561 2256.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust fyr-
ir utan Austurbæjarapótek
fyi-ir rúmri viku. Upplýs-
ingar í síma 565 5441.
Gullhringur týndist
í Mjódd í nóvember
14 kai’ata gullhringur með
bláum steini týndist 24.
nóvember sennilega fyrir
utan Læknasetrið, Þöngla-
bakka 6, Mjódd eða innan
dyra. Hringurinn er breið-
ur. Eigandinn er miður sín
því hringurinn var honum
mjög dýrmætur. Finnandi
vinsamlea hafi samband í
síma 552 0356. Fundaríaun.
Dýrahald
Kettlingur
fæst gefins
HUGGULEGUR og sæt-
ur, kolsvartur kettlingur,
kassavanur, fæst gefins.
Upplýsingar í síma
552 0834.
SKAK
Wijk aan Z«e,
Hollandi
HOOGOVENS-
STÓRMÓTIÐ
Gary Kasparov, stigahæsti skákmaður
heims, teflir nú í Hollandi eftir langt
hlé frá stórmótum. 16.-31. janúar
1998.
ÞAÐ virðist lítið ryk hafa fallið á
vopnabúr Kasparovs sem hefur tekið
forystu á mótinu með fjóra og hálfan
vinning að loknum fimm umferðum.
Það er útlit fyrir harða keppni hanns
og Indveijans Anand um efsta sætið,
cn Anand hefur fjóra vinninga.
I fjórðu umferð á mótinu tefldi Ka-
sparov stórkostlega skák í anda
gömlu meistaranna gegn Búlgaranum
Topalov. Kasparov fómaði hrók, bauð
upp á aðra hróksfóm, rak kóng and-
stæðingsins yfir allt borðið í miðtafli
og mátaði hann. Slíkar kúnstir vom
stundum leiknar á síðustu öld, en það
er hreinlega ótrúlegt að að sjá slík til-
þrif nú í lok tuttugustu aldar gegn
andstæðingi sem hefur tileinkað sér
fullkomna vamartækni.
Staðan á mótinu að loknum fimm
umferðum:
1. Kasparov....................4!4v.
2. Anand .......................4 v.
3. -6. Togalov, Búlgaríu, Shirov
, Spáni, ívantsjúk, Úkraínu,
og Kramnik, Rússlandi...........3 v.
7.-9. Piket og Timman,
Hollandi, og Svidler, Rússlandi .... 2'k v.
10. Van Wely, Hollandi........2 v.
11. -12.1. Sokolov, Bosníu,
og Kasimdsjanov, Úsbekistan ....VA v.
13.-14. Yermolinsky, Bandaríkjunum,
og Reindermann, Hollandi, ......1 v.
Hvítt: Kasparov
Svart: Topalov
Pirc-vöm
1. e4 - d6 2. d4 - Rf6 3. Rc3 - g6 4.
Be3 - Bg7 5. Dd2 - c6 6. f3 - b5 7.
Rge2 - Rbd7 8. Bh6 - Bxh6 9. Dxh6 -
Bb7 10. a3 - e5 11. 0-0-0 - De7 12.
Kbl - a6 13. Rcl - 0-0-0 14. Rb3 -
exd4 15. Hxd4 - c5 16. Hdl - Rb6 17.
g3 - Kb8 18. Ra5 - Ba8 19. Bh3 - d5
20. Df4+ - Ka7 21. Hhel - d4 22. Rd5
- Rbxd5 23. exd5 - Dd6
24. Hxd4H - cxd4 25. He7+! - Kb6 26.
Dxd4+! - Kxa5
Hvítur hefur yfirhöndina eftir 26. -
Dc5 27. Dxf6+ - Dd6 28. Hxí7 svo
Topalov tekur áskoruninni.
27. b4+ - Ka4 28. Dc3 - Dxd5 29.
Ha7 - Bb7 30. Hxb7 - Dc4 31. Dxf6 -
Kxa3 32. Dxa6+ - Kxb4 33. c3+! -
Kxc3 34. Dal+ - Kd2 35. Db2+ - Kdl
36. Bfl!! - Hd2 37. Hd7! - Hxd7 38.
Bxc4 - bxc4 39. Dxh8 - Hd3 40. Da8
- c3 41. Da4+ - Kel 42. f4 - f5 43.
Kcl - Hd2 44. Da7
og Topalov gafst upp. Ein glæsileg-
asta skák aldarinnar!
Bragi Halldórsson sigrar
á Fullorðinsmóti Hellis
Taflfélagið Hellir hélt sitt fyrsta
Fullorðinsmót mánudaginn 18. janú-
ar. Mót af þessu tagi em nýjung í
starfsemi félagsins og em einungis
opin skákmönnum 25 ára og eldri.
Góð stemmning myndaðist á þessu
fyrsta móti og lýstu keppendm-
ánægju sinni með fyrirkomulag móts-
ins. Bragi Halldórsson sigraði ömgg-
lega á mótinu, hlaut 6 vinninga í 7 um-
ferðum. I 2.-3. sæti urðu Gunnar
Bjömsson og Grétar Ass Sigurðsson
með 5 vinninga. Röð efstu manna varð
sem hér segir:
1. Bragi Halldórsson 6 v.
2. -3. Gunnar Bjömsson,
Grétar Ass Sigurðsson 5 v.
4.-5. Gunnar Gunnarsson,
Þorsteinn Davíðsson 4'k v.
6. Pétur Yngvi Gunnlaugsson 4 v.
7. -8. Gunnar Nikulásson,
Finnur Kr. Finnsson 3'A v.
o.s.frv.
Skákstjóri var Gunnar Bjömsson.
Stefnan er sú á þessum fullorðins-
mótum að ná upp skák-
klúbbastemmningu. Eina skilyrðið
fyrir þátttöku er það að hafa náð 25
ára aldri. Næsta fullorðinsmót Hellis
verður haldið mánudaginn 1. febrúar
kl. 20.
Karpov sigrar Fisher
Nei, það var ekki hinn eini sanni
Fischer, heldur Paul Fisher sem Kar-
pov sigraði í 30 mínútna skák sem
tefld var í Las Vegas í Bandaríkjun-
um. Fisher þessi er þekktastur fyrir
framleiðslu á svoköÚuðum „Fisher-
geimpenna". Þessi keppni, sem fram
fór 16. janúar, var skipulögð í þeim til-
gangi að styrkja fómarlömb Mitch-
fellibylsins í Hondúras. Walter Brow-
ne, stórmeistari og margfaldur
Bandaríkjameistari, aðstoðaði Fisher
í skákinni en einnig vom hnefaleika-
kappinn Muhammed Ali og leikarinn
Tony Curtis viðstaddir keppnina.
Útvarpsviðtal við Fischer
Hér er það hins vegar hinn eini
sanni Bobby Fischer sem er á ferð-
inni. Stórmeistarinn Eugene Torre
átti viðtal við Bobby Fischer föstu-
daginn 15. janúar. Viðtalinu var út-
varpað beint á útvarpsstöð á Filipps-
eyjum. I viðtalinu kvartar Fischer
sáran yfir meðferð bandarískra
stjómvalda á sér. Sérstaklega sámar
honum að ýmsar persónulegar eigur
sínar hafi verið seldar á uppboði fyrh'
sárah'tinn pening. Þar á meðal mynda-
safn, bækur og fleiri munir sem hann
hafði safnað í gegnum tíðina eða hon-
um höfðu verið gefnir af ýmsum
þekktum persónum, m.a. forseta
Bandaríkjanna.
Þröstur og Helgi Áss
á Bermúda
Stórmeistararnir Þröstur Þórhalls-
son og Helgi Áss Grétarsson tefla nú
á lokuðu móti á Bermúda ásamt 11
öðmm skákmeisturum. Mótið hófst
21. janúar og það stendur til 2. febrú-
ar. Þátttakendur em í töfluröð:
Jacques Elbilia 2360 Marokkó........FM
Alik Gershon 2460 ísr..............AM
Michael Forster 2290 Eng............FM
Igor-Alexandre Nataf 2485 Fra.......SM
Murray Chandler 2520 Eng............SM
Julen L.A. Martinez 2440 Spánn ____AM
Þröstur Þórhallsson 2495 ..........SM
Etienne Bacrot 2555 Fra.............SM
Yannick Pelletier 2525 Sviss .....AM
Yan Teplitsky 2460 Kan..............AM
Helgi Ass Grétarsson 2480...........SM
Maurice Ashley 2490 USA............AM
Joshua Waitzkin 2480 USA...........AM
Samhliða mótinu fer fram 10 skáka
einvígi milli þeirra Michaels Adams
og Yassers Seirawan. Adams sigraði
í fyrstu skákinni.
Unglingaflokkur Skákþings
Reykjavíkur
Keppni í unglingaflokki á Skák-
þingi Reykjavíkur hefst 23. janúar
kl. 14 og verður fram haldið laugar-
daginn 30. janúar. Tefldar verða sjö
umferðir eftir Monrad-kerfi með 30
mínútna umhugsunartíma. Rétt til
þátttöku eiga öll börn og unglingar
14 ára og yngri. Veitt verða verð-
laun fyrir fimm efstu sætin auk
bókaverðlauna. Þátttökugjald er kr.
500 og teflt verður í félagsheimili
Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni
12, Reykjavík.
Margeir Pétursson
Daði Orn Jónsson
FYRIR fólk er vinnur langan
vinnudag er mikill munur að
þurfa ekki að hafa áhyggjur af því
að matvöruverslanir séu lokaðar
þegar vinnudegi lýkur. Þótt ekki sé
langt um liðið frá því að verslunum
var flestum hverjum lokað klukkan
sex á virkum dögum og voru að
mestu lokaðar um helgar, eiga lík-
lega flestir erfitt með að gera sér í
hugarlund hvernig er að búa við
slíkt ástand. Ökuferðir út á Sel-
tjamarnes og jafnvel upp í Mos-
fellsbæ á sunnudögum vegna þess
að mjólk eða einhver önnur nauð-
synjavara var á þrotum tilheyra
sem betur fer fortíðinni.
Það er hins vegar hvimleitt að
treysta á að geta keypt í matinn á
sunnudögum og koma að nær tóm-
um hillum. Víkverji hefur hvað eftir
annað lent í því að algengar mjólk-
urvörur, grænmeti og ávextir hafa
verið á þrotum síðdegis á sunnudegi
í einhverjum stórmarkaðinum og
því orðið að fara í tvær til þrjár
verslanir til að klára innkaupalist-
ann. Er dreifikerfið ekki skipulagt
með tilliti til þess að opið er í versl-
unum sjö daga vikunnar?
XXX
VÍTLAUKUR er mikið þarfa-
þing og ómissandi í matargerð.
Það hefur hins vegar verið hægara
sagt en gert að fá nothæfan hvít-
lauk undanfarna daga, jafnvel í
verslunum jiar sem ferskleikinn á
að ráða ríkjum. Aftur og aftur hefur
það komið fyrir Víkverja við hvít-
lauksinnkaup að hvítlauksbirgðir
verslana hafa verið nær ónýtar.
Laukarnir þurrir, skorpnir í besta
falli einungis farnir að spíra. Er
ekki hægt að kippa þessu í liðinn?
XXX
SKORPNIR hvítlaukarnir eru
hins vegar hreinasta hátíð í sam-
anburði við þorra“matinn“ sem
óhjákvæmilega fylgir þessum árs-
tíma. Eflaust er Víkverji ekki sá
eini er nánast missir matarlystina
við innkaupin er hann sér þennan
ófögnuð, sem jafnvel er stillt upp
við hlið matvæla í kjötborðum versl-
ana. Stundum er því haldið fram að
um kynslóðamun sé að ræða í þess-
um efnum en þá er ljóst að með
lymskulegum hætti er verið _að
reyna að vígja yngstu kynslóðir Is-
lendinga inn í þessa súru veröld. Á
leikskóla dóttur Víkverja hefur
þannig verið boðið upp á þorramat
einu sinni á ári og líkt og ávallt
verða „allir að smakka“. Vonar Vík-
verji að barnið bíði ekki varanlegan
skaða af. Þetta er hins vegar ekki
eina dæmið um að reynt sé að byrla
börnunum ómeti. í innkaupaferð á
Þorláksmessu spurðu foreldrarnir
eldri dótturina í sakleysi sínu hvað
hún vildi nú fá í matinn. „Ekki
skútu, ekki skútu,“ var angistarfullt
svar barnsins.