Morgunblaðið - 23.01.1999, Page 84

Morgunblaðið - 23.01.1999, Page 84
y MORGllNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Haukur Snorrason Minkur drepur álft TVEIR menn urðu vitni að því í fyrradag þegar minkur stökk upp á bak álftar á Þingvallavatni og beit hana á háls. Hann reyndi síð- an að draga hana upp á ís til að geta gætt sér á henni. Hvorki Ólaf- ur Nielsen fuglafræðingur né Karl Skímisson dýrafræðingur segjast hafa heyrt þess getið áður að minkur hafi drepið fullvaxna álft. ■ Stökk upp á bakið/18 Met hjá Báru og Láru BÁRA B. Erlingsdóttir, Ösp, setti heimsmet fatlaðra í 400 metra fjór- sundi á sundmóti Sundfélags Hafn- arfjarðar í gærkvöldi, en Bára keppir í flokki S14. Bára synti á 6.21,82 mínútum og bætti eigið heimsmet um tæpar 12 sekúndur. Þá sló Lára Hrund Bjargardóttir, SH, eigið Islandsmet í 400 m fjór- sundi ófatlaðra, synti á 4.55,14 mín- útum, fyrra metið var 5.00,66. Örn Amarson, SH, og íþróttamaður árs- ins, náði hins vegar ekki að bæta Is- . .^landsmetið í 100 m flugsundi eins og ' nann stefndi að, Örn synti á 56,07 sekúndum og var 19/100 úr sekúndu frá meti Ríkarðs Ríkarðssonar, Ægi. ■ Heimsmet/Bl -----»♦♦----- Hasssmygl í Eyjum UNGUR maður var handtekinn í Vestmannaeyjum síðdegis í gær 1K þegar hann kom á flugvöllinn til að sækja pakka sem í voru 7 grömm af hassi. Grunur hafði vaknað hjá lögreglu um að fíkniefni væru í sendingunni sem kom með flugi frá Reykjavík og var því beðið eftir eiganda hennar. Maðurinn hefur komið áður við sögu fíkniefnamála í Vestmannaeyj- ►um. Hann játaði brot sitt og var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Nýr forstjóri sjúkrahúsanna leggur áherslu á upplýsinga- og þróunarmál Söfnun upplýsinga verði samræmd í gagnagrunn Fjölmargt í starfsmannamálum þarf að færa til betri vegar NÝR forstjóri Ríkisspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur, Magnús Pét- ursson fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, vill finna bestu leiðina til að safna með skipulegum og samræmdum hætti upp- lýsingum í væntanlegan miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði og telur að hún gæti orðið fyrirmynd íyrir landið allt. Hann segir að kanna þurfi rekstrarform ákveðinna sviða, til dæmis með tilliti til einkavæðingar, og nefnir röntgendeild og rannsóknir í því efni. Morgunblaðið/Kristinn RAFN og Sveinbjörn í sjúkrabílnum í gærkvöldi. Sj úkraflutningsmenn í ljósmóðurhlutverki Magnús Pétursson kveðst þegar í stað hafa í hyggju að taka á þrem- ur málum á báðum stóru sjúkra- húsunum í Reykjavík, starfs- mannamálum, upplýsingamálum og þróunar- og áætlunarstarfi. Hann segir að fjölmargt í starfs- mannamálum þui-fi að færa til betri vegar, meðal annars það hvemig tekið sé á móti nýju starfsfólki og það hvatt til starfa. Samræming fyrir landið allt Hann vekur athygli á því að stofnanirnar séu flóknar og haldið sé um upplýsingamálin með mis- munandi hætti. Hann segist ekki taka afstöðu til hugmynda um mið- lægan gagnagrunn á heilbrigðis- sviði, sem Alþingi hefur sett lög um, en það verði að vera unnt að setja hann saman, safna upplýsing- unum með skipulegum og sam- ræmdum hætti og fleyta þeim áfram. Það væri sameiginlegt mál sjúkrahúsanna í Reykjavík og fleiri aðila. „Það væri ekkert vit í því að vera að velja margar leiðir í þessu. Eg hef þegar talað um þetta við báða spítala og menn telja að þetta sé nokkuð sem halda megi utan um sameiginlega,“ segir Magnús. Tel- ur hann að svo gæti farið að sú leið, sem farin yrði á stóru sjúkrahús- unum í Reykjavík, yrði nokkurs konar fyrirmynd fyrir landið allt. Gæti hjálpað til samræmingar. Hann segir að þetta gæti orðið fjárfrekt en vildi ekki nefna neinar tölur. Viðskiptaform á röntgendeild? Þriðja málið sem Magnús leggur áherslu á er þróun og áætlunar- starf fyrir starfsemi sjúkrahús- anna til næstu fimm til tíu ára. Hann kveðst vilja blása lífi í þróun- ar- og áætlunardeild, sem áður var starfandi á Ríkisspítölum. Magnús kveðst ekki upptekinn af tali um sameiningu sjúkrahús- anna tveggja. Húsin verði alltaf tvö. „En ég er mjög áfram um að það verði skoðað hvaða starfsemi er skynsamlegt og hagkvæmt að flytja undir aðrar reglur í rekstri þannig að það verði meira sett yfir á viðskiptaform.“ I því sambandi nefnir hann röntgenstarfsemi, enda sé komin samkeppni með einkastofunni í Domus Medica. Þá verði rannsóknastarfsemi einnig athuguð í þessu tilliti. ■ Einkavæðing/42 TVEIR sjúkraflutningsmenn urðu að bregða sér í ljósmóður- hlutverk í heimahúsi í gærkvöldi. Foreldrar sem áttu von á afkom- anda voru í heimsókn hjá ætt- ingjum í Hafnarfirði þegar barn- ið fór að láta á sér kræla. „Það var hringt í Neyðarlínuna og beðið um flutning fyrir sæng- urkonu," segir Rafn Oddsson sjúkraflutningsmaður, sem kom á vettvang ásamt Sveinbirni Bentssyni. „Það eina sem við vissum var að konan var komin með verki. Þegar við komum á staðinn kom tilvonandi faðir hlaupandi út á móti okkur í öng- um sínum og sagði að barnið væri að koma, kollurinn væri þegar kominn í ljós. Þá var ekki um annað að ræða en halda áfram að aðstoða náttúruna við að koma barninu í heiminn." Þeir Rafn og Sveinbjörn eru ekki alveg reynslulausir í þessum efnum, enda báðir feður, Rafn á þrjá syni og Sveinbjörn einn. Auk þess er það liður í þjálfun sjúkra- flutningsmanna að kunna að taka á móti börnum. „Þetta er í annað sinn sem ég upplifí það að taka á móti barni. Hitt skiptið var reyndar í sjúkra- bílnum," segir Rafn, sem starfað hefur sem sjúkraflutningsmaður í tólf ár. Rafn segir að fæðingin hafi gengið vel fyrir sig. Barnið er strákur og heilsast bæði honum og móðurinni vel. Rafn segir að þegar hafi verið ákveðið hvert hlutskipti stráksins verði í lífinu. „Þegar ég rétti föð- urnum soninn sagði hann: „Hér er kominn dráttarvélabflsljórinn minn.“” Þess ber að geta að for- eldrarnir eru bændafólk austan úr Breiðdal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.