Morgunblaðið - 10.02.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.02.1999, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Erfíðleikar í starfsmannahaldi hjá Dagvist barna Lokað verður á 46 leikskólum í sumar STJÓRN Dagvistar barna hefur samþykkt að 46 leikskólum borgar- innar verði lokað í fjórar vikur í sumar en 23 skólar verði opnir. Akvörðunin er tekin í kjölfar könn- unar meðal leikskólastjóra sem leiddi í ljós að vegna erfiðleika í starfsmannahaldi yrði að loka skól- unum. Ellefu skólum verður lokað vegna viðhalds eða breytinga, þar af eru sex sem annars hefðu verið opnir. Lokanir verða skipulagðar yfír tvö fjögurra vikna tímabil, sem skarast yfír tvær vikur frá 28. júní til 10. ágúst. I bókun borgarráðs vegna lokananna segir að ekki sé talin ástæða til að breyta starfs- og fjár- hagsáætlun Davistar barna þrátt fyrir hugmyndir sem uppi séu um lokun tiltekinna leikskóla tíma- bundið vegna sumarleyfa. Borgar- yfirvöld hafi markað þá stefnu að almennt skuli leikskólar vera opnir allt árið og að sumarlokanir skuli heyra til undantekninga. Borgar- ráð geri ekki athugasemdir við að einstaka leikskólum sé lokað tíma- bundið, vegna viðgerða á húsnæði eða ef ekki tekst að ráða starfsfólk til afleysinga, en telur að ákvörðun um lokun eigi að taka varðandi hvern leikskóla fyrir sig að höfðu samráði við foreldra og Dagvist barna. I erindi leikskólastjóra í Breið- holti sem lagt var fram í stjórn Dag- vistar barna og í borgarráði er m.a. bent á að á undanfórnum árum hafi Heimsferðir Um 600 sæti þegar bókuð FERÐASKRIFSTOFAN Heimsferðir kynnti um síðustu helgi einn áfangastaða sinna á sólarströndu, Costa del Sol á Spáni, og segir Andri Már Ing- ólfsson framkvæmdastjóri að bókuð hafi verið um 600 sæti eftir fyrstu tvo dagana. Andri Már segir þessar góðu undirtektir benda til þess að íslendingar muni ferðast meira næsta sumar en síðasta sumar. „Við „þjófstörtuðum“ með því að hefja kynningu um síðustu helgi og þá aðeins á Costa del Sol en um næstu helgi kynnum við aðra áfanga- staði okkar eins og margar aðrar ferðaskrifstofur,“ sagði Andri Már. Eftir kynninguna um síð- ustu helgi voru viðtökur slíkar að sögn Andra Más að 400 sæti sem selja átti á tilboðsverði runnu strax út og var ákveðið að bæta öðrum eins fjölda við. kröfur til leikskólanna og stjórn- enda þeirra aukist án þess að til hafi komið aukið fjármagn til reksturs- ins. í fljótu bragði virðist sem opn- un leikskóla allt árið sé sjálfsögð þjónusta við börn og foreldra en reynslan sé önnur. Fjármagn skól- anna leyfí ekki að ráðið sé starfsfólk til afleysinga. LANDSBANKI íslands hf. hefur náð samkomulagi við sjö af stærstu lífeyrissjóðum landsins um að fjár- magna ný húsnæðislán, heimilislán, sem bankinn hyggst kynna almennt í þessari viku. Fjármögnunin nem- ur allt að tveimur milljörðum króna á ári. Sameiginleg viljayfirlýsing bankans og lífeyrissjóðanna um fjármögnunina var undirrituð í gær með fyrirvara um samþykki stjórna sjóðanna. Fjármögnunin fer þannig fram að heimilislánin, sem veðdeild Landsbankans veitir, verða seld nýju félagi sem stofnað verður utan um eignarhald á lánunum. Félagið fjármagnar starfsemi sína með út- gáfu skuldabréfa og víkjandi lán- um. Það eru því markaðsskuldabréf útgefin af hinu nýja félagi sem líf- í bókun sem sjálfstæðismenn lögðu fram er bent á að bréf leik- skólastjóra og könnun meðal þeirra sýni að starfsmannahald hjá Dag- vist bama sé í uppnámi. Astandið sýni svo ekki verði um villst að skoða verði stefnu borgarinnar í þessum málaflokki og leita nýrra leiða til úrlausnar. eyrissjóðirnar munu kaupa. Mark- aðsskuldabréf félagsins verða upp- byggð með svipuðum hætti og hús- bréf og eru þau endurgreidd með ársfjórðungslegum útdrætti. Bréfin verða verðtryggð og bera fasta vexti. Gert er ráð fyrir að íyrstu tveir milljarðar króna, sem gefnir verða út í markaðsskuldabréfum, beri fasta ávöxtunarkröfu. Að því loknu verða skuldabréfin skráð á Verðbréfaþingi íslands og áfram- haldandi útgáfa skuldabréfanna mun að því loknu lúta markaðskjör- um. Halldór J. Ki-istjánsson, banka- stjóri Landsbanka Islands, segir að ekki verði greint frá því á þess- ari stundu hvaða lífeyrissjóðir eigi hér hlut að máli enda eigi eftir að kynna málið í stjórn sjóðanna. Pylsuveisla manna og fugla ÞAÐ var mikið að gera við pylsuvagninn í Tryggvagötu þegar ljósmyndari Morgunblaðs- ins átti leið þar um í kuldanum. Það eru ekki einungis svangir borgarbúar á bæjarröltinu sem njóta góðs af pylsuvagninum, heldur líka smáfuglarnir, sem koma og kroppa í brauðið sem einhverjir hugulsainir neytend- ur skilja eftir handa þeim. Það var því sannkölluð pylsuveisla Halldór segir kost heimilislánanna þann að lántakandi getur með þeim haft öll sín viðskipti á sama stað, í Landsbanka, og þar fari einnig greiðslumat fram. Hann segir markhópinn fólk á öllum aldri en ekki síður yngra fólkið sem velur sér veðdeildarlán með líftryggingu eða söfnunarlíftrygg- ingu. Þrír lánaflokkar í boði „Við munum bjóða þrjá lána- flokka. í íyrsta lagi almennt veð- deildarlán sem er mjög líkt því sem Ibúðalánasjóður býður nema hvað Landsbankinn þarf að hafa sína markaðsvexti, þ.e. 5,65%. I öðru lagi veðdeildarlán með líftryggingu á kjörunum 5,60% og í þriðja lagi Aukaaðalfundur NEAFC í Brussel Umdeild tillaga um makrílkvóta samþykkt TILLAGA um skiptingu makríl- kvóta utan lögsagna á umráðasvæði N orðaustur-Atlantshafsfiskveiði- nefndarinnar (NEAFC) var sam- þykkt á aukaaðalfundi nefndarinnar í Brussel í gær með 2/3 hlutum at- kvæða. íslenska sendinefndin og fulltrúar Rússlands greiddu at- veðdeildarlán með söfnunarlíf- tryggingu með 5,5% fóstum vöxtum til fimm ára og breytilega eftir það,“ segir Halldór. Kjör hjá Ibúðalánasjóðnum eru 5,1%. Halldór segir heimilislán Lands- bankans viðbótarþjónustu á þess- um markaði og bankinn vilji kynna þau sem hlut af sinni heildarfjár- málaþjónustu. „Viðskiptavinir geta séð sér hag í því að þurfa ekki að fara annað og hagi-æði í því að vera með sín fjármál öll á einum stað. Vafalaust geta einnig veðhlutföll og fjárhæðir ráðið því að aðilar vilja frekar taka lán okkar og einnig geri ég ráð fyrir því að þeir sem eru að kaupa í fyrsta sinn kanni mjög náið þann mögulega að tengja húsnæð- islán sín söfnunarlíftryggingu," sagði Halldór. við 1 ryggvagotuna. Morgunblaðið/Golli Evrópusambandsins, Noregs, Pól- lands og Danmerkur studdu tillög- una. Samkvæmt tillögunni fá íslend- ingar úthlutað 2.000 tonna makríl- kvóta í úthafinu á ári. Kristján Skarphéðinsson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi að Islendingar hefðu verið tillögunni andrigir m.a. vegna þess að skv. henni væri ísland ekki við- urkennt sem strandríki. Safna líffræðilegum sýnum úr karfa A fundinum í gær var hins vegar samþykkt tillaga sem íslenska sendinefndin bar upp en hún felur í sér að fleiri ríki en ísland skuli safna líffræðilegum sýnum úr karfa sem veiddur er á Reykjaneshrygg- „Það hefur ríkt óvissa um hvort menn séu að veiða úr einum eða tveimur stofnum á Reykjaneshrygg og þessar líffræðilegu upplýsingar eru grundvallargagn þegar reyna á að greiða úr þeirri flækju. Þetta skiptir okkur mjög miklu máli,“ sagði Kristján. Landsbanki fslands á húsnæðislánamarkaðinn Samkomulagi náð við sjö stærstu lífeyrissjóðina 2V1bvguntiIaíi"|li MEÐ blaðinu í dag fylgir auglýsinga- blað frá Leik- fangalandi „Krakkafjör í febrúar". Blaðinu er dreift á Suð- urnes, Hafn- arfjörð, Besstastaðar- hrepp, Garða- bæ og Kópavog. ► I Verinu í dag er fjallað um loðnuveiðar og -vinnslu, aðra sjósókn og markaðsmál. Greint er frá miklu tapi af rekstri saltfiskfyrirtækisins La Bacaladera og aukinni veltu Fiskmarkaðs Vestfjarða. Hrekkj Bart Simpson l : Hermann : Winnie ; Ámodt á • jmá fara frá : kemur til : spjöld . ; Brentford ; KR : sögunnar Í i ~cT : ~cT \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.