Morgunblaðið - 10.02.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999 29
Skuggaleg eilífð af ást
BÆKUR
Skáldsöonr
EILÍF ÁST
eftir Ian McEwan, Geir Svansson
þýddi, Bjartur, Reykjavík
1998, 255 bls.
„UPPHAFIÐ liggur ljóst íyrir“
(5) er fyrsta setning nýútkominnar
þýðingar á nýlegri skáldsögu Ians
McEwan, Eilíf ást. Söguhetjan, Joe
Rose, er í lautarferð með konu sinni
þegar úr buskanum bii'tist ioftbelgur
og er sá í nauðum staddur. Joe
hleypur til aðstoðar og heldur ásamt
fleiri mönnum í kaðla svo að loftbelg-
urinn fjúki ekki frá jörðu. Barn er í
körfu loftbelgsins og eftir á reiknar
Joe það út með bæði raunhyggjuleg-
um og sálfræðilegum aðferðum að
nægilegt hafi verið að einn mann-
anna sleppti takinu til að loftbelgur-
inn færi veg allrar veraldar. Getur
ekki endað nema illa; einn mannanna
heldur of lengi í sinn spotta og svífur
til himins; í ringulreiðinni miðri þeg-
ar aðstæðurnar hafa opnað Joe Rose
inn að kviku túlkar einn mannanna,
Jed Parry, augnatillit hans og andar-
taks látbragð sem heila eilífð af ást í
sinn garð. Fyrsti kafli Eilífrar ástar
er sterkur texti fyrir margra hluta
sakh" atburðurinn sem hann lýsir er
tilraunastofa álitamála í siðfræði en
fráleitur og absúrd á ljóðrænan hátt;
auk þess gi-ipur hann lesandann tök-
um sem eiga uppruna sinn í spennu-
trylli. Sagan gæti farið í ýmsar áttir
eftir svo bragðmikla opnun og raun-
ar fer hún í þrjár áttir. Hún skoðar
eftirmál slyssins og áhrif á eiginkonu
hins látna, samband Joe Rose við
konu sína en síðast en ekki síst fjall-
ar sagan um ásókn og ofsóknir af
hálfu Jeds Parry. Parry er haldinn
De Clérambault-heilkenni sem ein-
hvern tímann hefði verið kallað ást-
sýki. Hann er sannfærður um að Joe
elski sig, fylgir honum eins og
skugginn og túlkar sérhverja hreyf-
ingu sér í vil. Svo tekur hann til við
að skrifa honum þráhyggjukennd
bréf og grípur að endingu til örþrifa-
ráða, knúinn af ást, brjálsemi og per-
sónulegri trú og sambandi við Guð.
Persónur eins og Pairy eru þekktar
úr kvikmyndum
síðustu ára,
myndum á borð
við Fatal Attract-
ion. Eilíf ást kaf-
ar dýpra í hugar-
heim hins ofsótta
sem og ofsækj-
andans; hug-
myndir hans og
tilfinningar eru
gerðar gjald-
gengar, staðsettar innan samfélags-
legra múra: þær eru ekkert fjar-
skyldai- algengustu hugmyndum og
tilfinningum þorrans.
Söguhetjan er höfundur blaða-
greina og pistla um raunvísindi, sér
ofsjónum yfir akademískum ferli sín-
um sem farið hefm’ fyrir lítið; hann
aðhyllist pósitívisma, raunhyggju.
Og þetta eru andstæður verksins:
raunhyggja og trú. Bréfaformið er
talsvert notað og þannig fást fleiri
sjónarhorn en fyrstu persónu frá-
sögn sögumanns. Sagan er einnig út-
úrdúrasöm á annan hátt, nýjar per-
sónur og ný þemu eru kynnt og svo
eru þessar nýju fléttur leiddar til
lykta áður en haldið er áfram.
Þannig er um samband sögumanns
við smákrimma, vin sinn úr fortíð-
inni, samskipti við lögreglu og rann-
sóknir konu sögumanns á enska
skáldinu Keats. í lok bókai-innar eru
svo viðaukar með miklum sálfræði-
legum fróðleik um De Clérambault-
heilkenni, heimildaskrá og fleiru.
Viðaukarnir gefa verkinu ívið fræði-
legan blæ en þó er Eilíf ást kannski
fyrst og fremst hraður og skemmti-
legur, greinandi spennutryllir.
Eilíf ást er fjórða bókin í bóka-
flokki bókaforlagsins Bjarts sem
nefnist Neón og á það sameiginlegt
með hinum að kápan lýsir í myrkri.
Þetta er læsileg bók, eins og sagt er;
þýðingin er gæfuleg og þess vegna
synd að villur (innsláttarvillur,
klaufavillui’ og smáorð sem vantar)
eru miklu fleiri en góðu hófi gegnir.
Slíkar villur eiga að hverfa í prófarka-
lestri og frágangi sem auðsjáanlega
hefur verið flýtisverk. Þetta breytir
því þó ekki að Eilíf ást er sterkt verk,
ofsóknarbrjálað, áleitið og ástleitið.
Hermann Stefánsson
Vitara jep
Skv. Automotive News
Europe l. feb. 199°
Crand Vitara 2,0L 2.179.000 kr.
Crand Vitara
Exciusive 2,5L, V6 2.589.000 kr.
Vitara JLXSE, Sd 1.830.000 kr.
Vitara Diesel Sd 2.180.000 kr.
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
BERNSKUMYND af Ragnheiði.
Tímarit
• SMÁPRENT Örlagsins, 9. hefti,
er nú komið út. Smáprentið er að
þessu sinni óður skálds til konu
sinnar undir heitinu Animónur til
Ragnheiðar. I því eru sjö ástarljóð
úr höfundarverki skáldsins, Jó-
hanns Hjálmarssonar. Eitt ljóð-
anna í Smáprentinu er Fædd til að
styðja tré - Bemskumynd af Ragn-
heiði:
Þú stendur við tré bernsku þinnar.
Þú styðst ekki við tréð
heldur styður þú tréð.
Fyrir níu áram kom fyrsta hefti
Smáprentsins út og þar var fram-
birtur ljóðabálkurinn Blá mjólk
eftir Jóhann Hjálmarsson. Ari síð-
ar frambirti Smáprentið Ijóðabálk-
inn Skugga eftir Jóhann.
Smáprent Örlagsins er S síður í
brotinu A6.
♦♦♦
Að lifa
á fornri
frægð
KVIKMYMHB
SainliÍMin
YOU’VE GOT MAIL
★%
Leikstjórn: Nora Ephron. Handrit:
Delia og Nora Ephron. Aðalhlutverk:
Meg Ryan, Tom Hanks, Greg Kinne-
ar, Steve Zahn. Warner Bros. 1998.
ÞESSI mynd er gömul klisja frá
upphafi til enda, þar sem Nora Ep-
hron er að að mjólka velgengni og
vinsældir „Sleepless in Seattle“,
þar sem aðalleikararnir era þeir
sömu, og framvinda mála alls ekki
svo ósvipuð. Nora ætti frekar að
leggja metnað sinn í að gera eitt-
hvað nýtt, skemmtilegt og öðruvísi,
eins og hún gerði í „Micheal”.
Gamla myndin hans Lubitsch
„The Shop Around the Corner“ var
yndislega heillandi, þar sem Jim-
my Stewart lék á als oddi. Fléttu
þeirrar myndar nota handritshöf-
undar sér hér, en í stað þess að að-
alsöguhetjurnar skrifi bréf eins og
árið 1940, skiptast þau á tölvupósti.
Þetta er sniðug hugmynd, en ekki
nóg til að gera góða mynd. Það
þýðir því miður ekki að reyna að
mjólka vinsældir þeirrar myndar
heldur og komast auðveldlega frá
því. Þeim Noru og Deliu tekst ekki
að fylla í skörðin svo vel megi vera
og handritið er alls ekki nógu
sterkt. Myndin er langdregin, það
vantar skemmtilegar uppákomur
og hugljúf og frumleg atriði til að
gera góða rómantíska gamanmynd.
Það vantar skemmtilegi-i persónu-
sköpun og húmor. í stuttu máli, þá
vantar kjöt utan á þau gömlu bein
sem fengin vora að láni hér og þar.
Hildur Loftsdóttir