Morgunblaðið - 10.02.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1999 45
+ Bjarni Sigurðs-
son fæddist á
Fáskrúðsfirði 4. jan-
úar 1913. Hann lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaup-
stað 31. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru lijónin
Sigurður Þórðar-
son, ættaður úr Suð-
ursveit, og Salome
Ingibjörg Magnús-
dóttir, ættuð úr
Garðinum. Bræður
Bjarna eru Helgi
Sigtryggur, f 27.10.
1910, d. 9.6. 1977, Jón Vídalín, f.
4.1. 1913, tvíburabróðir Bjarna,
búsettur á Seyðisfirði.
Hinn 14. maí 1938 kvæntist
Bjami Jóhönnu Þorsteinsdóttur,
Elsku pabbi, þegar við sitjum hér
og minnumst þín kemur margt
fram í hugann. Þú’ varst glöggur
maður á menn og málefni, þú last
mikið og hafðir mjög gaman af Ijóð-
um, gast setið með ljóð Steins
Steinars tímunum saman. Við höld-
um að þú hafir kunnað þau öll.
Það var ekki algengt að lögð væri
vinna við að rækta blómagarð við
hús þegar þið byggðuð Birkihlíð en
það gerðuð þið. Þótt vinnudagurinn
væri langur gáfuð þið ykkur tíma í
garðvinnu. Einnig kenndir þú okk-
ur að bera virðingu fyrir gróðrinum
og hvernig ætti að rækta landið. Þú
fórst með okkur á sumrin í Hall-
ormsstað til að sýna okkur hvað þar
væri fallegt. Svo var nestið borðað í
Atlavík, á þeim yndislega stað.
Ekki má gleyma gi-óðurhúsinu sem
átti hug þinn allan enda voru rós-
irnar ykkar fallegar. Allar ferðirnar
sem þú áttir inn í á til veiða, þegar
þú varst hættur að vinna vegna ald-
urs. Þá fórstu einnig að hnýta flug-
urnar þínar sjálfúr og renna þeim
fyrir lax í Breiðdalsánni.
Sjómennsku stundaði Bjarni til
1945 en hóf þá störf hjá Trésmiðju
Einars Sigurðssonar og var þar
þangað til sfldarævintýrið byijaði
1963. Þá gerðist hann verkstjóri á
söltunarstöðinni Hilmi. Þaðan fer
hann til starfa hjá Bergi tengdasyni
sínum á Pólarsfld. Þegar því lýkur
rær hann í nokkur sumur einsamall
á trillunni Vetti. Eftir það fer hann
að vinna hjá Kaupfélagi Fáskrúðs-
fjarðar við málningarvinnu og við-
hald. Frá þeim árum sem hann rær
á trillunni fara barrnabörnin að
minnast hans og margs er að minn-
ast með afa á sjónum. Þegar við
ávítuðum hann fyrir eftirlætið við
barnabömin sagði hann þá lífsspeki
sem við skiljum í dag: „Þeir fara
mikils á mis, sem aldrei verða afi og
amma.“
Við þökkum ykkur fyrir allt sem
þið mamma gerðuð íyrir okkur og
vonum að þú hafir átt góða heim-
komu á þennan óþekkta áfanga-
stað.
Við viljum þakka Erni Þorsteins-
syni fyrir hvað hann var búinn að
stytta dagana með afa sínum,
einnig öllu starfsfólki á Dvalar-
heimilinu Uppsölum og Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað fyrir
alla hjálpina við þig í erfiðum veik-
indum.
Helga, Sigurbjörg,
Þorsteinn og Guðný.
Mig langar í fáum orðum að
minnast tengdafóður míns, Bjarna
Sigurðssonar, sem er látinn eftir
langvarandi veikindi sem hann
tókst á við með óbilandi dugnaði og
þrautseigju. Eg kom fyrst í Birki-
hlíð til Jóhönnu og Bjarna fyrir
tæpum 30 árum, þá nýtrúlofaður
yngstu dóttur þeirra hjóna. Eg var
þá eftirvæntingarfullur og kveið
fyi-ir að hitta væntanlega tengda-
foreldra en þeim tókst á sinn sér-
staka hátt að taka mér með ást og
umhyggju sem ég væri þegar orð-
inn einn úr fjölskyldunni.
f. 11. júlí 1914, d. 2.
janúar 1997. Þau
eignuðust fimni
börn, son andvana
11.9. 1938; Helgu, f.
29.6. 1940, gift
Bergi Hallgríms-
syni, d. 20.6. 1998;
Sigurbjörgu, f. 2.4.
1944, gift Jóhannesi
Ellertssyni; Þor-
stein, f. 4.6. 1948,
kvæntur Osk
Bragadóttur, Guð-
nýju, f. 12.5. 1950,
gift Sigurði Ást-
ráðssyni. Bjarni átti
11 barnaböm og 16 bamabarna-
börn.
títför Bjarna fer fram frá Fá-
skrúðsfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Minningabrotin eru fjölmörg en
fegurst er minningin um samband
ykkar Jóhönnu, sem var mjög náið
og ástríkt, og notaleg tilfinning
hvað þið fylgdust vel með börnum
ykkar og barnabörnum í leik og
starfi, sem sýndi sig í því þegar við
hjónin byggðum okkar fyrstu íbúð
og ekki stóð á því að þú kæmir suð-
ur og veittir okkur ómetanlega
hjálp við það verk. Ogleymanlegar
voru heimsóknirnar í Birkihlíð til
ykkar Jóhönnu, viðtökurnar voru
slíkar að seint gleymist og ófáar
stundirnar áttum við í stofunni í
Birkihlíð eða í bfltúr út í Skriður
þar sem við ræddum ólíklegustu
málefni, kannski helst pólitík. Við
vorum ekki alltaf sammála í þeim
orðaskiptum, kannski sjaldnast eða
þóttumst bara vera ósammála til að
fá líf í umræðurnar. Þú reyndii’ að
kenna mér skák en í þeim fræðum
skorti mig hæfileika en þú varst
mjög góður skákmaður og vel les-
inn í þeim fræðum, kunnir utanbók-
ar heilu skákir stórmeistaranna og
eftir að líkamleg heilsa fór að bila
dundaðir þú þér við að tefla við
tölvuna. Þú varst ekki langskóla-
genginn en þeim mun betur lesinn í
lífsins skóla og aðdáunarvert var að
fylgjast með hve víðlesinn þú varst.
Sérstaklega minnist ég þekkingar
þinnar á ljóðum og þá helst ljóðum
Steins Steinars, enda held ég að þú
hafir nánast kunnað öll hans ljóð
utanbókar. Svona mætti lengi telja
og margt ósagt sem geymt verður í
sjóði minninganna.
Að lokum, Bjarni, hafðu þakkir
fyrir allt. Við hjónin viljum færa
starfsfólkinu á Uppsölum þakkir
fyrir alla þá aðstoð og hlýju sem
það sýndi Bjarna. Eins færum við
starfsfólkinu á sjúkrahúsinu á
Norðfirði sérstakar þakkir fyrir þá
hjúkrun og aðstoð sem Bjarni fékk
á erfiðum stundum.
Blessuð sé minning þín.
Sigurður Ástráðsson.
Það sannast í dag að það er erfitt
að kveðja þann sem manni þykir
vænt um og á svo stóran hlut af lífi
manns. I huga okkar eru afi og
amma eitt. Upplifun okkar á ein-
stöku sambandi þeirra hjóna, ríku
af kærleika og ást, var okkur gott
veganesti út í lífið.
Það er margt sem kemur upp í
hugann þegar við hugsum til baka.
Fyrstu kynni okkar af kaffidiykkju
og refafóðri, allar ferðirnar sem við
systur áttum niður í Bii'kihlíð til
ömmu og afa, sunnudagsrúntarnir
út í skriður, og spilamennskan við
eldhúsborðið eru okkur ógleyman-
legar þó að okkur hafi stundum
fundist afi of nákvæmur og smá-
munasamur í spilamennskunni. En
eitt stendur þó upp úr öllum öðrum
minningum, og það eru haustferð-
irnar upp í Einarsstaði með afa og
ömmu til þess að taka upp kartöflur
og tína ber. Kvöldin í sumarbú-
staðnum eru ógleymanleg þegar afi
las fyi’ir okkur upp úr þjóðsögunum
í rökkrinu við kertaljós og róandi
tifið í prjónunum hjá ömmu, það
varð til þess að við vildum fara
snemma að sofa svo afi gæti lesið
sem mest. Það eru minningar um
svona stundir sem ylja manni þegar
tekist er á við sorgina.
Við eigum margar góðar minn-
ingamar sem munu fylgja okkur
alla tíð og við munum deila þeim
með þeim sem okkur þykir vænt
um. Það er von okkar að ósk afa um
að hitta ömmu á ný hafi nú ræst.
Hildur og Jóhanna
Þorsteinsdætur.
Þeim fækkar nú óðum félögunum
góðu á Fáskrúðsfirði sem vaskastir
og traustastir voru í þeirri farsælu
fylgissveit sem voru mér helzt til
halds og trausts þegar ég amlaði á
Alþingi. Ómetanlegir voru þessir
félagar í hverri kosningahríð,
óþreytandi í góðri málafylgju við
mætan málstað, stuðning alls þessa
góða fólks fæ ég aldrei fullþakkað.
Nú hefur einn úr þeim hópi, heiður-
skempan Bjarni Sigurðsson, kvatt
hinztu kveðju, en kynni okkar
spanna hálfan fimmta áratug, mér
svo mætakær og munaljós.
Það var óneitanlega afar lær-
dómsríkt að koma sem kornungur
kennari á Fáskrúðsfjörð, reynslu-
laus með öllu og kvíðandi hvernig
til tækist og vera svo tekið þar opn-
um örmum. Þar kynntist ég mörgu
afbragðsfólki ágætra eiginda
þannig að til einlægrar vináttu var
efnt sem enzt hefur mér einkar vel
á ævileið. Munahlýjar eru þær
minningaperlur. I þeim hlýja og
Afmælis-
og
minningar-
greinar
MIKILL fjöldi minningar-
greina birtist daglega í Morg-
unblaðinu. Til leiðbeiningar
fyrir greinahöfunda skal eftir-
farandi tekið fram um lengd
greina, frágang og skilatíma:
Lengd greina
Um hvern einstakling birt-
ist ein uppistöðugrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar minningargi'einar um
sama einstakling takmarkast
við eina örk, A-4, miðað við
meðallínubil og hæfilega llnu-
lengd, - eða 2200 slög (um 25
dálksentimetrar í blaðinu).
Tilvitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú er-
indi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, er fædd-
ur, hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka,
og börn, skólagöngu og störf
og loks hvaðan útfór hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram
í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í greinunum
sjálfum.
Undirskrift
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinun-
um.
Frágangur og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt
að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í texta-
menferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Þá er ennfrem-
ur unnt að senda greinar í
símbréfi - 569 1115 - og í
tölvupósti (minning@mbl.is).
Vinsamlegast sendið greinina
inni í bréfmu, ekki sem við-
hengi.
gefandi hóp voru þau sönnu sæmd-
arhjón Jóhanna og Bjarni í Birki-
hlíð og þá batt ég við þau traust
vináttubönd sem aldrei röknuðu.
Þau hjón voru um margt ólíkrar
gerðar, en samstiga og samhent í
öllu því sem einhveiju skipti. Jó-
hanna hress og opinská, glaðsinna
og skemmtileg viðræðu, orðheppin
og alúðleg í viðmóti, gaf sér oft
tíma til að ræða við kennarann
unga þegar hún kom í heimsókn til
Sigrúnar frænku sinnar, þar sem
ég átti hið indælasta athvarf vet-
urna mína tvo á Fáskrúðsfirði.
Bjami var hæglátur og traustur,
vörpulegur á velli og gekk röskur
vel að verki hverju, gamansemi
hans var góðlátleg en geigaði
hvergi, oft krydduð skörpum at-
hugasemdum um lífið og tilveruna
nú eða þá hina hversdagslegu at-
burði dægranna sem þannig fengu
ljós og líf. En fyrst og síðast þessi
trausta skaphöfn, heillyndið og
hreinskilnin, hann var alltaf gott að
eiga að. Bæði áttu þau hjón fast-
mótaðar skoðanir og reifuðu þær af
sinni eðlislægu ákveðni en sann-
girni. I hógvæiri einurð var sú
haldgóða festa sem ætíð var unnt
að reiða sig á.
Mest mat ég þó hina einlægu vin-
fóstu hlýju sem hann Bjarni var svo
auðugur af, vinátta hans vermdi og
var góð til samfylgdar, ekki sízt ef á
fylgisbátinn gaf, en gott var að
gleðjast með honum þegar allt lék í
lyndi. Handtakið hans Bjarna míns
var heitt og þétt, verkhagur og
verkatrúr var hann vissulega, í önn
daganna átti hann þennan leikandi
létta tón sem leiftrum gleðinnar brá
á umhverfi allt. I höndum hans léku
verkin, áræði karlmennsku og
kjarks var honum eðlisbundið, hann
var mannkostamaður. Hann Bjami
varð góðrar gæfu aðnjótandi, átti
ljúfan lífsförunaut röskleika og um-
hyggju og böm þeirra bára birtu og
hlýju á veg þeirra hjóna. í mikilli
þökk kveð ég minn kæra vin, ótald-
ar ánægjustundir lýsa leiðina,
tepralaus tilsvör hans og einlægnin
alltaf geymast mér í minni.
Börnum hans og þeirra fólki
sendum við Hanna alúðarkveðjur,
sannri samúð vermdar.
Eg sé bjarta og hlýja brosið hans
Bjama ljóslifandi fyrir mér nú við
leiðarlok. Megi það lýsa á ókunnri
leið hans á vit hins óræða. Blessuð
sé minning míns mæta vinar.
Helgi Seljan.
t
Hjartkær eiginkona, móðir, dóttir, systir og
mágkona,
GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR,
verður jarðsett frá Seljakirkju föstudaginn 12.
febrúar kl. 13.30.
Ásgeir Pálsson,
Jón Páll Ásgeirsson, Rósa Ásgeirsdóttir,
Jón Bjarnason, Kristín Haraldsdóttir,
Bjarni Jónsson, Ásthildur Helga Jónsson,
Haraldur Örn Jónsson, Agla Ástbjörnsdóttir.
t
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi,
VILBERT STEFÁNSSON,
Borgarbraut 65,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju föstu-
daginn 12. febrúar kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjarta-
vernd og Krabbameinsfélag íslands.
Börn og aðrir
aðstandendur hins látna.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát móður okkar,
tengdamóður, sambýliskonu og ömmu,
MAGNEU G. GUÐJÓNSDÓTTUR,
Blikahólum 4,
áður til heimilis
á Seltjarnarnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Guðjón Stefánsson,
Sigurjón Stefánsson, Ingibjörg E. Halldórsdóttir,
Jón Stefánsson, Rannveig Hjörtþórsdóttir,
Guðbjörg A. Stefánsdóttir, Gunnar G. Andrésson,
Jón G. Guðjónsson
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við
fráfall ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRU BRIEM.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki hjúkr-
unarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir umhyggju og
hjúkrun sem hún naut þar.
Gunntaugur E. Briem,
Guðrún Briem, Þráinn Þórhallsson,
Garðar Briem, Hrafnhildur Egilsdóttir Briem,
barnabörn og barnabarnabörn.
BJARNI
SIGURÐSSON