Morgunblaðið - 10.02.1999, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Enn um myrkrið
í Kópavogi
GUÐBJORG Krist-
jánsdóttir, forstöðu-
kona Gerðarsafns í
Kópavogi, slær því
fram í Mbl. 6. febrúar
sl. að undirritaður hafi
verið sá eini sem ekki
var ánægður með lýs-
ingu á ljósmyndasýn-
ingunni sem þar var
opnuð laugardaginn
30. janúar sl.
Þetta er rangt. Hið
rétta er að menn voru
sáróánægðir og heyrði
ég marga kvarta yfir
lýsingunni.
Ég tek af handahófi
tvenn ummæli, hvor
tveggja höfð eftir fulltrúum í sýn-
ingamefnd:
„Það er nánast engin lýsing á
myndunum hans Guðmundar í
Nærmynd, þær eiga svo sannar-
lega betra skilið.“
Lýsing
Hið rétta er, segir
Rúnar Gunnarsson, að
menn voru sáróánægð-
ir og heyrði ég marga
kvarta yfir lýsingunni.
„Salurinn er alltof dökkur, það
er eins og vanti tvö ljósop.“
Fleiri höfðu orð á þessum vansa,
en að sinni mun ég ekki tíunda
frekari dæmi.
Hvað varðar lýsingu á mínum
myndum, sem voru þrjár saman á
vegg, er það að segja, að þær voru í
hálfrökkri, einum ljóskastara var
beint að veggnum en ljóskeilan féU
ekki á myndimar, heldur á hvítan
vegginn við hlið þeirra.
Lýsingin var því ekki aðeins af-
leit, hún var beinlínis verri en eng-
in - hún vann ekki með myndun-
um, eins og vera ber, heldur gegn
þeim eins og hvert annað skemmd-
arverk, eins og allir
munu skilja sem eitt-
hvert skynbragð bera
á þessa hluti.
Þegar forstöðukon-
an stóð ekki við loforð
sitt um að laga lýsing-
una fór ég upp í Gerð-
arsafn á þriðjudaginn
og sótti myndir mínar.
Daginn eftir hringdi
einn sýningamefndar-
manna í mig, tjáði mér
að senn kæmi rafvirki
á staðinn, þá yrði lýs-
ingin bætt, og bað mig
að koma með mynd-
imar aftur. Það mun
hafa gengið eftir, að
lýsingin var löguð á miðvikudag,
fjómm dögum eftir opnun sýning-
arinnar, en þá hafði ég ekki geð í
mér til þess að eiga frekari sam-
skipti við konu þessa og sit því einn
að mínum myndum og ekki ýkja
glaður.
En Guð forði mér frá því að
verða nokkum tíma svo geðlaus, að
ég taki því með þegjandi þögninni
að unnin séu skemmdarverk á
myndum mínum.
Höfundur er Ijósmyndari.
Rúnar
Gunnarsson
Ferðahappdrætti
Flugfélags Íslands
3. útdráttur afsex
Taktu fram flugáætlun okkar, sem þú fékkst með Morgunblaðinu
6. desember, og kannaðu hvort númerið á henni er meðal
lukkunúmera mánaðarins.
Lukkunúmer febrúarmánadar eru: j
16.152 35.959 50.080
30.215 45.619 54.405
Við óskum vinningshöfum til hamingju og óskum þeim góðrar ferðar.
Hver vinningur felur í sérferðfyrir tvo,fram og til baka, til hvaða
áfangastaðar Flugfélags íslands sem er - innanlands.
Vinninga skal vitjað í síma 570 3600.
Næst verður dregið í lok mars.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
- fyrir fólk eins og þig
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRUAR 1999