Morgunblaðið - 12.02.1999, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ölfushreppur og Reykjavíkurborg hefja samstarf um atvinnu- og orkumál
Mögulegt að reisa 150
manna pappírsverksmiðju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SKRIFAÐ undir viljayfirlýsingu um samstarf Reykjavíkur og Olfus-
hrepps. Frá vinstri: Alfreð Þorsteinsson, Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, Sesselja Jónsdóttir og Hjörieifur Brynjólfsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alftin
er klók
KRISTINN Olsen, einn af stofn-
endum Loftleiða, er 81 árs gamall
og því hættur að fljúga en þrátt
fyrir það er enn ýmislegt sem
tengir hann við háloftin. Hann
hefur nefnilega eignast góðan vin,
sem er álft.
„Hún kemur af sjónum á
morgnana og bíður eftir að ég
hendi til sín brauði," sagði Krist-
inn. Kristinn sagði þetta hafa
byijað fyrir um tveimur árum, en
þá komu nokkrar álftir í fjöruna
fyrir neðan húsið hjá honum og
þáðu af honum brauð. Ein álftin
kunni það vel að meta gestrisni
Kristins að hún hefur æ síðan van-
ið komur sínar í Arnarnesfjöruna,
fyrir neðan húsið hjá honum.
Kristinn sagði hana meira að
segja vera stundvísa því hún kæmi
venjulega klukkan 10 á morgnana.
Kristinn sagði að álftin væri
greinilega mjög klók. „Um daginn
voru tvær aðrar álftir hérna niðri
í fjörunni með henni en þá kom
hún ekki upp úr sjónum, en um
leið og þær voru famar, kom hún
strax upp,“ sagði Kristinn.
OLFUSHREPPUR hefur fallið frá
forkaupsrétti sínum á hluta í sjö
jörðum í hreppnum sem Reykjavík-
urborg keypti á liðnu hausti vegna
nýtingar á jarðhita. I framhaldi af
því skrifuðu sveitarfélögin undir
viljayfirlýsingu um samstarf í jarð-
hita- og orkumálum, hafnamálum
og umhverfismálum. Verður m.a.
kannað hvort reisa megi pappírs-
verksmiðju í hreppnum, en Jarð-
gufufélagið hefur haft það til athug-
unar, en slík verksmiðja gæti veitt
um 150 manns atvinnu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri og Alfreð Þorsteinsson
borgarfulltrúi undirrituðu samning-
inn fyrir hönd borgarinnar og
Sesselja Jónsdóttir, sveitarstjóri
Ölfushrepps, og Hjörleifur Brynj-
ólfsson oddviti fyrir hönd hrepps-
ins. Hefur hreppsnefndin þegar
samþykkt hana en af hálfu Reykja-
víkurborgar er hún undimtuð með
fyrirvara um samþykki borgarráðs.
Borgarstjóri sagði þó samstöðu um
málið óg voru fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í borgarráði, Inga Jóna
Þórðardóttir og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, viðstödd. Sagði Inga
Jóna nærveru þeirra undirstrika þá
samstöðu.
Raforkuverð og atvinna grund-
völlur byggðaþróunar
I bókun hreppsnefndar Ölfus-
hrepps í gær segir að grundvöllur
öflugrar byggðaþróunar í hreppn-
um felist meðal annars í lækkun
raforkukostnaðar þar og að aukin
umsvif og fyrirhuguð stækkun
hafnarinnar í Þorlákshöfn verði að
veruleika. „Hreppsnefnd Ölfus-
hrepps telur að með undirritun
viljayfirlýsingar um samstarf við
Reykjavíkurborg skapist ný og
stóraukin sóknarfæri fyrir sveitar-
félagið og íbúa þess,“ segir m.a. í
samþykktinni.
Sesselja Jónsdóttir segir mun
vænlegra fyrir hreppinn að ná sam-
starfi við Reykjavíkurborg en nýta
sér forkaupsrétt á umræddum jörð-
um en þær kostuðu 377 milljónii-
króna. Segir hún slíka fjárfestingu
sveitarfélaginu ofviða og þvi sé fall-
ið frá forkaupsrétti. I samtali við
Morgunblaðið sagði hún að í fram-
haldi af kaupum Reykjavíkurborgar
á jörðunum í Ölfusi hefði verið
ákveðið að kanna hvað borgin ætl-
aðist fyrir með þær. Niðurstaðan
hefði orðið þessi vilji til samstarfs
sem hún vonar að leiði sem fyrst af
sér ný skref í atvinnu- og byggða-
málum hreppsins.
Sveitarfélögin hyggjast kanna
möguleika á nýtingu jarðgufu til að
efla atvinnulíf í Ölfushreppi. Einn
möguleikinn er að reisa pappírsverk-
smiðju en Jarðgufufélagið hefur að
undanfömu kannað möguleika á að
reisa hana á Reykjanesi. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir sagði hugsanlega
allt eins hagkvæmt að byggja rekst-
ur hennar á jai-ðhita frá Hellisheiði
og því kæmi staðsetning í Þorláks-
höfn til álita. Kvað borgarstjóri
borgina myndu beita sér fyrir því að
Ölfushreppui- fengi aðild að þeirri
skoðun eftir því sem um semst við
meðeiganda borgainnnar í Jarðgufu-
félaginu. Skipaður verður starfshóp-
ur um málið og á hann að ljúka störf-
um eigi síðar en í árslok.
Áfram í Sunnlenskri orku
Sesselja lagði áherslu á að sam-
starfið við Reykjavíkurborg í orku-
málum breytti í engu þátttöku
hreppsins í Sunnlenskri orku. Hún
sagði ný atvinnutækifæri, t.d. papp-
írsverksmiðju, álitlegan kost, ekki
aðeins fyrir Þorlákshöfn heldur allt
Suðurland enda mætti líta á það
sem eitt atvinnusvæði.
Þá munu sveitarfélögin kanna
möguleika á samstarfi hafnanna og
frekari uppbyggingu hafnarinnar í
Þorlákshöfn í tengslum við nýtingu
jarðhita og atvinnutækifæri sem af
því kunni að skapast. Þá verður
kannað hvort sérhæfing og verka-
skipting hafnanna geti verið báðum
til hagsbóta.
Fulltrúar beggja sveitarfélag-
anna sögðu aukna samvinnu þeirra
eðlilega, lönd þeiira lægju saman
og líta mætti á höfuðborgarsvæðið
ásamt hluta Vesturlands og Suður-
lands sem eitt atvinnusvæði. Væri
því ekki óeðlilegt að samstarf þeiiTa
yrði aukið. Fulltrúamir sögðu að-
spurðir að sameining hefði ekki
komist á dagskrá, hægt væri að
eiga ýmislegt samstarf án þess að
sameinast.
Samstarf sveitarfélaganna er
einnig fyrirhugað í umhverfismál-
um og borgin býður Ölfushreppi að-
gang að margs konar sérfræðiþjón-
ustu sinni.
Guttormur vigtaður
Morgunblaðið/RAX
STARFSMENN Húsdýragarðsins í Laugardal vigtuðu
í gær nautið Guttorm. Þrjú ár eru síðan Guttormur
var síðast vigtaður, en starfsmenn garðsins leiða líkum
að því að hann sé stærsta naut á landinu af íslensku
kyni. Við vigtun fyrir þremur árum vó Guttormur 780
kg og hefur hann bætt töluverðu á sig, því í gær
reyndist hann vega 897 kg. Ummál kviðar Guttorms
reyndist vera 276 em og ummál hálsins 121 cm.
Guttormur er rúmlega sex ára og á orðið tíu
afkomendur með kúnum í garðinum og eignast að
jafnaði tvo kálfa á ári. Sá elsti er fæddur í janúar 1995
en sá yngsti kom í heiminn í nóvember sl.
Skorað á ríkisstjórn að bregðast við at-
vinnumálavanda Norðurlands vestra
Vilja hagstæðari
skatta og hlunnindi
á landsbyggðinni
SVÆÐISRÁÐ Svæðisvinnumiðl-
unar Norðurlands vestra hefur
skorað á ríkisstjórnina og Alþingi
að bregðast með skjótum og rót-
tækum hætti við þeim alvarlega
vanda, sem blasir við í atvinnumál-
um á svæðinu. Þetta kom fram í
fréttatilkynningu sem ráðið sendi
frá sér í gær.
I tilkynningunni segir að þau úr-
ræði sem nú séu í gangi dugi alls
ekki og því þurfi strax að bregðast
kröftuglega og á ófeiminn hátt við
vandanum með lagasetningu.
Kjarninn í slíkri lagasetningu þurfi
að vera sá að íbúar og fyrirtæki
hafi meiri fjárhagslegan ávinning
af því að búa og starfa úti á lands-
byggðinni en á þéttbýlissvæðum.
Beinir skattar og hlunnindi þurfi
að vera verulega hagstæðari.
Það er skoðun ráðsins að bestu
vinnumarkaðsaðgerðirnar séu sér-
tækar aðgerðir fyrir landsbyggð-
ina. Aðgerðir sem muni tryggja
íbúum landsbyggðar atvinnu hjá
traustum og góðum fyrirtækjum
og stofnunum. Það er álit ráðsins
að kostnaður þjóðfélagsins vegna
þessa verði alls ekki meiri en hann
er í dag því greiðslur atvinnuleys-
isbóta og auknar fjárfestingar
vegna fólksflutninga á eitt ákveðið
svæði hafi í för með sér gífurleg
útgjöld.
I svæðisráðinu eru fullti-úar frá
VSÍ, ASÍ, BSRB, SSNV og fram-
haldsskólum kjördæmisins.
Sérblöð í dag
• StoUJI
A FOSTUDOGUM
^MIÍf
Hvað segja
myndirnar
okkur?
Ást á
áttræðis-
aldri
” ••••••••••••••••••••••••••••
• Meissnitzer vann önnur
• gullverðlaun sín á HM/C3
• ••••••••••••••••••••••••••••
; Grindvíkingar burstuðu
Keflvíkinga/C2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is