Morgunblaðið - 12.02.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 19
ÚR VERINU
Loðnutorfa við
Rauða torgið
ARNÞÓR EA varð var við mikla
loðnu austur af Rauða torginu í fyrr-
inótt og er hafrannsóknarskipið Ami
Friðriksson væntanlegur á svæðið
fyrir helgi til að kanna stöðuna.
Sævar Ingvarsson, skipstjóri á
Arnþóri EA, sagði að torfan hefði
náð rétt norður fyrir Reyðafjarðai--
dýpi og verið utan við landgrunns-
kantinn á 2.000 til 2.500 metra dýpi.
„Við vorum með stefnuna á Langa-
nesið og mikil loðna var á 45 til 50
mílna svæði,“ sagði Sævar við Morg-
unblaðið.
Arni Friðriksson var í loðnuleit í
Lónsdjúpi í gærkvöldi en síðan
stendur til að fara á fyrrnefnt svæði
þar sem Arnþór EA varð var við
loðnuna. „Við skoðum fyrst Lóns-
dýpið, Papagrunnið og nágrenni,"
sagði Hjálmar Vilhjálmsson, leiðang-
ursstjóri. Spurðm- hvort bætt yrði
við loðnukvótann sagði Hjálmar að
ekkert væri hægt að segja um það á
þessari stundu. „Ég veit að margir
eru orðnir kvótalitlir en ég get ekk-
ert sagt ennþá.“
Mjög góð veiði var hjá loðnuskip-
unum suður af Ingólfshöfða í fyrr-
inótt og aftur lifnaði yfir henni undir
kvöld í gær eftir rólegan dag. Sem
fyn- var loðnan smá og auk þess var
komin áta í hana. „Hún var komin
nær landi, var þéttari og skipin fylltu
sig á skömmum tíma,“ sagði Pétur Is-
leifsson, deildarstjóri hjá Islenskum
sjávarafurðum, við Morgunblaðið.
Steindór Gunnarsson, markaðs-
stjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, sagði að veiðin hefði verið á ró-
legu nótunum á miðvikudag en síðan
hefði ræst úr henni. Hún væri samt
smá, 63 til 68 stykki í kílóinu, en
hrognafyllingin var komin í 16%.
Sjávarútvegsskóli háskóla SÞ
Fyrstu nemendurnir
útskrifaðir í dag
SEX nemendur útskrifast frá Sjáv-
arútvegsskóla háskóla Sameinuðu
þjóðanna í dag en þetta er fyrsta út-
skrift skólans.
Sjávarútvegsskólinn er hluti af
þróunaraðstoð íslendinga en Haf-
rannsóknarstofnun rekur þann í
nánu samstarfi við Háskóla íslands,
Háskólann á Akureyri og Rann-
sóknarstofnun fískiðnaðarins auk
þess sem fleiri stofnanir og fyrir-
tæki leggja hönd á plóg. Um sex
mánaða nám og starfsþjálfun er að
ræða fyrir fólk frá þróunarlöndum
sem gegnir mikilvægum störfum í
stofnunum og opinberu stjórnkerfi í
málaflokkum sem tengjast veiðum,
veiðistjórnun og nýtingu sjávar- og
vatnafangs, en nemendur verða að
hafa lokið háskólaprófi og starfað að
minnsta kosti eitt ár í greininni.
Þeir sem útskrifast að þessu sinni
eru frá Mósambík, Úganda og
Gambíu.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
FRA undirritun samningsins. Talið frá vinstri: Jónas Frímannsson, verkfræöingur hjá ístaki, Hafsteinn Ás-
geirsson, stjórnarformaður Isfélags Þorlákshafnar, Páll Sigurjónsson, forstjóri ístaks, síðan koma stjórnar-
menn í ísfélagi Þoriákshafnar, Þröstur Þorsteinsson, Þorleifur Björgvinsson, Jóhann Jóhannsson, Magnús
Brynjólfsson og Gestur Ámundason framkvæmdastjóri ísfélags Þorlákshafnar.
Fullkomin kæli- og frysti-
geymsla í Þorlákshöfn
Þorlákshöfn. Morgunblaðið
ÍSFÉLAG Þorlákshafnar og verk-
takafyrirtækið ístak hf. hafa skrifað
undir samning um smíði tæplega
2.400 fermetra kæli- og frysti-
geymslu sem standa mun á hafnar-
bakkanum í Þorlákshöfn. Um al-
verktöku er að ræða og á að ljúka
verkinu fyrir 1. ágúst 1999.
I byggingunni sem er 11,6 m á
hæð og þriggja hæða, verða 965
fermetra frystiklefi, 336 fermetra
kæliklefi, 558 fermetraforrými, 165
fermetra fiskmarkaður, auk 367
fermetra rýmis sem fer í ýmislegt
annað. Frystigeymslan tekur 2.000
iðnaðarbretti eða 2.600 Euro pal-
lettur. Kæligeymslan tekur 800
bretti og er hún hugsuð til að
mynda til söfnunar og geymslu á
saltfiski. Búnaður verður allur hinn
fullkomnasti og verður til að
mynda lítið sem ekkert ammóníak
notað á kæli- og frystikerfi, þess í
stað verður notað umhverfisvænt
efni sem heitir Hycool. Tilboð
Istaks sem var hagstæðast hljóðaði
upp á 209 milljónir. Verkið í heild
mun kosta um 230 milljónir. Auk
Istaks buðu Panelhús og Verktak
dótturfyrirtæki íslenskra aðal-
verktaka í verkið. Undirverktakar
ístaks verða Kælismiðjan - Frost
sem sjá mun um tækjabúnað og
lagnir og Rafvör sem sjá mun um
raflagnir.
Hafsteinn Asgeirsson, stjórnar-
formaður ísfélags Þorlákshafnar
sagði að bjartsýni ríkti varðandi
reksturinn, það auki samkeppnis-
hæfnina að samnýta tækjakost og
mannskap hjá ísfélaginu og Fisk-
markaði Þorlákshafnar. Til stend-
ur að setja upp sjálfvirka af-
greiðslu hjá Isfélaginu og mun það
auka möguleika á að nýta mann-
skap á nýja staðnum. Fram-
kvæmdastjóri verður sá sami á
báðum stöðum.
Hafsteinn sagði að verkið væri
fjármagnað með aúknu hlutafé í Is-
félaginu en það sem á vantaði sæi
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis um. Hafsteinn sagðist
einnig vera þess fullviss að þetta
mundi laða að bæði fiski- og flutn-
ingaskip sem síðan kallaði á stækk-
.un hafnarinnar og væri það vel.
Hátíð í Háskóla
sunnudaginn 14. febrúar kli 13 -