Morgunblaðið - 12.02.1999, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.02.1999, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Kaupþing hefur selt 11,3% hlut sinn í Sæplasti á 47,5 milljónir króna Eigendur Borgarplasts kaupa stóran hlut í Sæplasti KAUPMNG hf. seldi í gær fjórum aðilum 11,31% eignarhlut sinn í Sæplasti hf. að nafnvirði 11,087 millj- ónir króna á genginu 4,29, eða fyrir 47,565 milljónir króna. Kaupþing var stærsti hluthafinn í Sæplasti og eftir söluna er eignarhlutur Kaupþings í Sæplasti innan við 0,5% af heildar- hlutafé félagsins. Meðal kaupend- anna eru stærstu eigendur Borg- arplasts hf., keppinautar Sæplasts, og segist Valdimar Snorrason, stjórnarformaður Sæplasts, fagna því að fyrirtækið sé orðið það áhuga- vert að samkeppnisaðilinn sjái sér hag í að eignast hlut í því. Valdimar sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann hefði heimildir fyr- ir því að þeir sem keyptu hlut Kaupþings væru Guðni Þórðarson og Sjöfn Guðmundsdóttir, stærstu hluthafamir í Borgarplasti, Halldór Birgisson og Steinunn Ragnarsdótt- ir. „í sjálfu sér er ekkert um málið að segja frá okkar hendi. Við erum á frjálsum markaði og fögnum því bara ef félagið er það áhugavert að samkeppnisaðilar okkar sjá hag sín- um vel borgið með að vera eign- araðilar að fyrirtækinu," sagði Valdimar. „Maður veit ekki hvað menn ætla sér þarna í raun, en ég býst við að þessi hópur sem slíkur sé að hugsa til þess að koma manni í stjórn eða eitthvað slíkt. Ég get hins vegar ekki í fljótu bragði tjáð mig um hvað þetta þýðir fyrir félag- ið.“ Umræða um sameiningu fyrirtækjanna Valdimar sagði að mikil umræða hefði verið um að Sæplast og Borg- arplast væru hugsanlega að samein- ast, en hann sagði að engar form- legar viðræður um slíkt hefðu farið fram. „Hins vegar er alveg ljóst að þeir hafa haft allar upplýsingar um Sæplast, vegna þess að við erum á frjálsum markaði, og meta fyrir- tækið út frá því. Við höfum hins veg- ar ekki þær upplýsingar um Borg- arplast að við getum metið hvernig það fyrirtæki stendur. Pað komu fram vísbendingar á síðasta ári um að aðilar tengdir Borgarplasti væru að kaupa hlut í Sæplasti, og ég per- sónulega hafði símasamband við Guðna Pórðarson og þar fullvissaði hann mig um að slíkt væri ekki uppi á borðinu og hann væri ekki að kaupa þetta. Það er hins vegar ljóst að það eru staðreyndir, þannig að það fyi’sta ef menn ætla að fara að ræða eitthvað sín í milli er að menn komi fram með heiðarlegum hætti og segi satt og rétt frá hlutunum," sagði Valdimar. Höfnuðu tilboði á hærra gengi Eigendur að Sæplasti hf. eru á milli 420-430 talsins og var stærsti hluturinn í eigu Kaupþings, en hann hefur nú dreifst á fleiri aðila. Líf- eyrissjóður Norðurlands var með næststærsta hlutinn og ræður því yfir stærsta hlutnum í dag. Athygli vekur að viðskipti áttu sér stað með hlutafé í Sæplasti á genginu 5,90 á mánudag, en sem fyrr segir var eignarhlutur Kaupþings seldur á genginu 4,29. „Eg hef trú á því að þarna sé um að ræða einhvers konar samning sem hefur verið gerður. Kaupþing keypti þetta hlutafé á síðasta ári, og það hefur alltaf legið ljóst fyrir held ég að þeir voru ekki að kaupa það til að eiga til langframa. Þeir höfnuðu tilboði í þetta hlutafé á hærra gengi og þeir verða að svara því hvað þarna er á ferðinni," sagði Valdimar. Hver sem er getur keypt „Þessir menn eru til sölu og það getur hver sem er keypt,“ sagði Guðni Þórðarson í samtali við Morgunblaðið, en hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Sigurður Einarsson, fram- kvæmdastjóri Kaupþings, sagðist eðli málsins samkvæmt ekki geta tjáð sig um viðskiptin með eignar- hlutinn í Sæplasti. Hugur-forritaþróun 50% veltu- aukning á milli ára VELTA Hugar-forritaþróunar og dótturfyrirtækja á síðasta ári nam um 500 milljónum króna sem er um 50% aukning frá 1997. í frétt frá félaginu kemur fram að verulegur vöxtur hefur átt sér stað á öllum sviðum starfseminnar, þ.e. í Concorde, Ópusallt, tímaskráningu og Intermec handtölvubúnaði. Alls starfa nú um 100 starfsmenn hjá fyrirtækinu og hefur þeim fjölgað um 30 á sl. ári. Til að mæta fjölguninni hefur verið ákveðið að stækka húsnæði fyrirtækisins að Hlíðarsmára 12. Nú er verið að inn- rétta um 350 fermetra rými á annarri hæð hússins en eftir stækk- unina hefur fyrirtækið um 2000 fm til umráða. í fréttinni kemur fram að verk- efnastaða félagsins í upphafi árs sé góð. Áætlanir fyrir 1999 gera ráð fyrir áframhaldandi vexti. Bæði er gert ráð fyrir verulegri aukningu á innanlandsmarkaði auk þess sem stefnt er að stórauknum útflutningi á þeim lausnum sem fyrirtækið hef- ur þróað á undanförnum árum. Morgunblaðið/Kristinn Frumkvöðlar fræðast ÞÁTTTAKENDUR í verkefninu Nýsköpun ‘99 - samkeppni um viðskiptaáætlanir fylltu sali Við- skiptaháskólans í Reykjavik síðdegis á miðvikudag sl., þegar þar var haldinn fyrsti hluti nám- skeiðs fyrir þátttakendur á veg- um Viðskiptaháskólans og endur- skoðunar- og ráðgjafarfyrirtæk- isins KPMG. Ásamt þessum tveimur aðilum standa Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Morgunblaðið að verkefninu. Fyrirfram höfðu aðstandendur gert sér vonir um að um 100 manns myndu skrá sig til þátt- töku, en þegar á hólminn var komið reyndust um 300 manns sækja námskeiðið auk þess sem um 100-150 manns úti á landi fylgjast með námskeiðunum í gegnum íjarfundabúnað. Athygli vakti að þátttakendur á fyrsta námskeiðinu voru á öllum aldri og ekki síður sá mikli íjöldi kvenna sem námskeiðið sótti. ABS Alvöru flotefni • Rakaheld án próteina • Níðsterk • Hraðþornandi • Dælanleg eða handílögð • Hentug undir dúka, parket og til ílagna ABS147 ABS154 ABS316 Efnifrá; Dælanleg eða handílögð Smiðjuvegur 72,200 Kópavogur Simi: 5641740, Fax: 5541769 cd 5 Lækkandi leiguverð á kaupskipum á heimsmarkaði Lítil áhrif á rekstur íslenskra skipafélaga MIKIL fjölgun nýrra flutningaskipa á heimsmarkaði, samfara minnkandi umsvifúm í Asíu, hefur leitt til þess að leiguverð á kaupskipum hefur farið lækkandi. Ástandið virðist þó ekki hafa skilað sér að fullu inn á markaðinn enn sem komið er og að sögn fulltrúa íslenskra skipafélaga hafa verðlækkanimai- ekki haft áhrif á þeirra rekstur. Hjörleifur Jakobsson, fram- kvæmdastjóri innanlandssviðs Eim- skips, áætlar að leiguverð skipa hafi lækkað um 30-50% undanfarin tvö ár. Hann segir efnahagsvandamálin í Asíu eiga þar nokkum þátt en að stærstum hluta felist skýringin í því hversu mikið af nýjum skipum hef- ur komið inn á markaðinn að und- anfómu. „Reyndar einskorðast þessar verðbreytingar aðaUega við stærri farkosti sem hafa verið að koma inn á markaðinn í miklum mæli síðastliðin 2-3 ár eftir samfeUt samdráttartímabU í skipasmíðum á ámnum 1985-93. Þessi öri vöxtur hefur ásamt minnkandi flutningum til Asíu, valdið því að leiguverð á skipum hefur lækkað.“ Hjörleifur segir breytingarnar hafa lítíl áhrif á umsvif Eim- skipafélagsins enda fyrirtækið aðallega með eigin skip í rekstri. Reyndar leigir félagið þrjú skip um þessar mundir sem notuð era til sigUnga við ísland. Þau eru hins vegar öll lítil og standa því utan við þann stærðarflokk þar sem mestu verðlækkanimar hafa átt sér stað. Aðspurður um framtíðarhorf- urnar í kaupskipaútgerð segist Hjörleifur reikna með erfíðleikum í greininni næstu 24 mánuðina áður en hægt verður að horfa fram á bjartari tíma. Ari Leifsson, deildarstjóri í stór- flutningadeild hjá Samskip, tók undir þau orð Hjörleifs að vissu- lega hafi verð á leiguskipum farið lækkandi en þær breytingar eigi fyrst og fremst við stærri gáma- flutningaskip sem taka 2000 tutt- ugu feta gáma og meira. Bundnir af langtímasamningum Þrátt íyrir að hafa fjögur leigu- skip í rekstri þá hafa verðlækkan- imar ekki haft áhrif á afkomu félagsins að sögn Ara. „Það skýrist af því að við eram bundnir af lang- tímaleigusamningum sem undir- ritaðir vora áður en til verðlækkan- anna kom. Þar af leiðandi höfum við enn sem komið er ekki notið lækkandi verðlags á leigu- markaðinum frekar en flest önnur félög. Það tekur nokkmTi tíma áður en breytingarnar skila sér inn á þennan markað af fullum þunga þar sem menn era bundnir af lang- tímasamningum sem gengið var frá áðm- en leiguverð tók að lækka.“ Tíu stærstu hluthafarnir í 70% fyrirtækja Eiga meira en 60% hlutafjár Reuters með minni hagnað London. Reuters. FRETTA- og upplýsingafyrirtækið Reuters hefur skýrt frá 7% minni hagnaði fyrir skatta og býst við að tekjur aukist hægar á þessu ári. Hagnaðurinn í fyrra nam 580 milljónum punda og minnkaði annað árið í röð. Peter Job aðal- framkvæmdastjóri sagði að róttæk endurskipulagning væri hafin á fyrirtækinu til að auka hag- ræðingu og búast mætti við að áhrifanna færi að gæta á síðari hluta ársins. Fyrirtækið býst við að starfs- mönnum verði fækkað nokkuð á þessu ári til að auka hagnað. Job segir þó að ekki verði gripið til róttæks niðurskurðar. Stefnt verði að því að starfsmenn verði innan við 17.000 eins og í árslok 1988. TÍU stærstu hluthafar í 70% ís- lenskra fyrirtækja eiga yfir 60% alls hlutafjár og í 35 af 66 félögum hafa 10 eða færri hluthafar yfir 2/3 vægi sem nægir til að hægt sé að breyta samþykktum viðkomandi félaga. Þetta kemur fram í Vísbendingu, vikuriti um viðskipti og efnahagsmál, sem kannaði eignaraðild stærstu hluthafa þessara fyrirtækja. „Það hversu fáir aðilar ráða miklu hlýtur að veikja mjög þann hlutafjár- markað sem risið hefur hér á síðustu árum. Ástæðumar fyrir þessu eru reyndar nokkuð augljósar, smæð hlutafjármarkaðarins veldur því að rými fyrir stóra fjárfesta er mjög takmarkað," segir í Vísbendingu. Fram kemur að þegar skoðað sé hverjir séu oftast meðal 10 stærstu hluthafa í þeim 66 fyrirtækjum sem könnuð voru komi í ljós að trygging- arfélög, lífeyrissjóðir, fjái’festing- arfélög og hlutabréfasjóðir séu efst á blaði. Burðarás og Olíufélagið séu einnig í hópi þeirra félaga sem hvað víðast eru meðal 10 stærstu eign- araðila í hlutafélögum. Bent er á að nokkuð misjafnt sé hversu stóran hlut þurfi til að kom- ast í hóp stærstu hluthafa, og í því hlutafélagi sem minnst þarf er 0,5% hlutur nægjanlegur. Meðalhlutur þeirra hluthafa sem komist í hóp þeirra 10 stærstu sé hins vegar 7,8%, en meðaltalið er reiknað út frá fjölda hluthafa og hlut hvers í hverju félagi, en ekki heildar markaðsvirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.