Morgunblaðið - 12.02.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 5
Á næstu misserum munu birtast á mjólkur-
umbúðum textabrot sem gefa hugmynd um
fjölbreytni þess sem skrifað hefur verið á
íslensku f gegnum aldirnar. Af því tilefni efnir
Mjólkursamsalan til skemmtilegrar getraunar
fyrir lestrarhesta á öllum aldri.
Hver er
höfundur
textans?
iminhá ský, skjannahvít og
skínandi fögur, getur oft að
líta í austri og norðri og enda
víðar. Þau sjást oft í útsynningi og eru
þá alls ekki neitt augnagróm. Mann
sundlar næstum við að sjá hversu há
þau eru, breið og þykk, og svo björt
eru þau að flestum þeim er blína á þau
til lengdar syrtir fyrir augum er af er
litið. En þó hafa þau eins og flest annað
sínar dökku hliðar:
Skuggarnir eru óvenjulega svartir.
Fern bókaverðlaun og 200 stuttermabolir!
8
T3
íslenskuátak Mjólkursamsölunnar hefur
staðið í fimm ár. Margvíslegar ábendingar
um íslenskt mál hafa birst á mjólkur-
umbúðum og hlotið góðar viðtökur.
Það er von Mjólkursamsölunnar að
textarnir á nýju umbúðunum muni vekja
forvitni hjá ungum sem öldnum og verði
hvatning til frekari lesturs.
Svör berist til Mjólkursamsölunnar, Bitruhálsi 1, fyrir 10. mars. Svarseðlar verða afhentir á íslenskudögum í Kringlunni um helgina. Þar verður líka tekið á móti útfylltum seðlum.
Einnig er hægt að svara getrauninni á heimasíðu MS, www.ms.is. Verðlaun verða afhent í Ráðhúsi Reykjavíkur 21. mars.