Morgunblaðið - 12.02.1999, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Myndband um
Eyjabakka gefíð
þingmönnum
PÁLL Steingrímsson kvikmynda-
gerðarmaður afhenti Ólafi G. Ein-
arssyni alþingisforseta 63 eintök af
myndbandi um Eyjabakka í gær,
ætlað hverjum þingmanni. Á
myndbandinu eru sérstæð atriði af
heiðargæsum og hreindýrum úr
mynd Páls, sem nefnist Oddaflug.
Með gjöfínni vildi Páll hreyfa and-
mælum við hugsanlegar virkjana-
framkvæmdir á Eyjabökkum. Ólaf-
ur tók við gjöfínni og sagðist
myndu koma myndböndunum til
skila.
„Ég vil ekki hafa það á samvisk-
unni að hafa ekki reynt að hreyfa
andmælum meðan enn var tími til,“
sagði Páll við Morgunblaðið. „Ég er
að vona að ráðamenn endurskoði af-
stöðu sína til virkjanaframkvæmda
á Eyjabökkum því skaðinn sem
þarna verður mun aldrei verða
bættur og jafnvel þótt okkur dytti
seinna í hug að reyna að endurvekja
umhverfið, þá er það ekki hægt. Pað
hefur ábyggilega tekið gróðurinn
nokkur þúsund ár að aðlagast
kringumstæðum sem eru þarna á
svæðinu."
Fyrir utan Alþingishúsið lásu
listamenn, í samvinnu við náttúru-
verndarsamtök Islands, ættjarðar-
ljóð í mótmælaskyni við fyrirhugað-
ar virkjanaframkvæmdir, eins og
gert hefur verið reglulega frá því
þingið var sett í haust.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar:
Framkvæmdir við Vatnsfells-
virkjun gætu hafist á þessu ári
FÁIST tilskildar heimildir er ekk-
ert því til fyrirstöðu af hálfu Lands-
virkjunar að hefja nýjar virkjunar-
framkvæmdir þegar á þessu ári,
segir Þorsteinn Hilmarsson, upp-
lýsingafulltrúi Landsvirkjunar, í til-
efni af áhuga Kenneths Petersons,
eiganda Norðuráls, á að auka ál-
framleiðslu um 50% og hefja fram-
kvæmdir við stækkun álversins á
Grundartanga á árinu, eins og fram
kom í viðtali við hann í Morgunblað-
inu í fyrrdag.
„Við höfum gert Peterson grein
fyrir stöðu mála. Það er ljóst að
mikil aukning hefur verið í raforku-
notkun vegna þenslu í samfélaginu
og meiri notkun en orkuspá gerði
ráð fyrir. Þetta þýðir að áform um
stækkun á álverksmiðju Norðuráls
hanga saman við frekari virkjunar-
framkvæmdir."
Þorsteinn segir að horft sé til
Vatnsfellsvirkjunar í þessu sam-
bandi en Finnur Ingólfsson iðnaðar-
ráðherra hefur þegar lagt fram á
Alþingi frumvarp til laga um viðbót-
arheimildir fyrir tveimur nýjum
virkjunum; Vatnsfellsvirkjun og
Búðarhálsvirkjun.
Þorsteinn segir það undirstöðuat-
riði fyrir aukinni raforkusölu að
lagaheimild og mat á umhverfísá-
hrifum liggi fyrir og svo samningur
við Norðurál. „Við höfum unnið á
fullu að undirbúningi að fram-
kvæmdum við Vatnsfellsvirkjun.
Annars vegar er mat á umhverfisá-
hrifum slíki’ar virkjunar í meðferð
hjá Skipulagsstofnun. Hins vegar
höfum við verið að vinna að gerð út-
boðsgagna og stefnt er að því að
þau verði tilbúin núna í mars. Að
því tilskildu að Alþingi verði búið að
fjalla um málið er ekkert því til fyr-
irstöðu að útboð fari fram með vor-
inu og framkvæmdir geti hafist.“
Að sögn Þorsteins tæki bygging
Vatnsfellsvirkjunar 2 1/2 til 3 ár.
Orkuframleiðsla og sala til Norður-
áls gæti því hafist 2001, hæfust
framkvæmdir á þessu ári.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Útför
Hilmars Þor-
björnssonar
TJTFÖR Hilmars Þorbjörnsson-
ar aðstoðaryfirlögreglumanns
fór fram frá Bústaðakirkju í
gær. Hilmar var fæddur í
Reykjavík 23. október 1934 og
lést á heimili sínu 29. janúar
siðastliðinn. Hilmar var einn
þekktasti frjálsíþróttamaður
Islands á sínum yngri árum og
keppti meðal annars á Ólymp-
íuleikunum í Melbourne í
Ástraliu 1956 og í Róm 1960.
Það voru félagar Hilmars úr
lögreglunni sem báru kistuna
úr kirkju.
Ferðaþjónustan mótmælir hugmyndum um hvalveiðar
Stefnir hagsmunum
ferðaþjónustu í voða
Forráðamenn SH segja hvalveiðar hér
við land setja mikilvæga markaði í hættu
Þarf skynsam-
lega nýtingu
SAMTÖK ferðaþjónustunnar hafa
af því áhyggjur að hugsanleg sam-
þykkt Alþingis á þingsályktunartil-
lögu um að hefja hvalveiðar við ís-
land muni stefna í voða miklum
hagsmunum ferðaþjónustunnar.
„Aðeins það að Alþingi samþykki
slíka tillögu getur valdið skaða,“
segir í ályktun Samtaka ferðaþjón-
ustunnar.
Steinn Logi Bjömsson, formaður
samtakanna, segir að fulltrúar
þeirra hafi hitt sjávarútvegsnefnd
Alþingis á þriðjudag en ályktunin
var samþykkt á fundi þess á mið-
vikudag. Hann segir að taka verði
tillögu sem þessa alvarlega, verði
hún samþykkt hljóti það að verða
ætlun stjórnvalda að hrinda hval-
veiðum í framkvæmd. „Við höfum
miklar áhyggjur af því að aðeins
það að samþykkja tillöguna geti
valdið ferðaþjónustunni skaða. Þar
væri þá komin ákvörðun Alþingis
íslendinga að hefja skuii hvalveiðar
og það hefði áhrif erlendis," sagði
Steinn Logi.
Bent er á nauðsyn þess að fagleg
rannsókn fari fram á hugsanlegum
áhrifum veiðanna á ferðaþjónustuna
í landinu áður en ákvörðun verður
tekin um hvort Islendingar muni
hefja hvalveiðar að nýju. „Við erum
ekki að segja að Samtök ferðaþjón-
ustunnar séu algjörlega á móti því
að hafnar verði hvalveiðar við ís-
land en það eru það miklar vísbend-
ingar um að af því geti hlotist veru-
legur skaði að það er ekki réttlæt-
anlegt að taka slíka ákvörðun í nein-
um flýti,“ sagði Steinn Logi og
sagði fiskútflytjendur einnig hafa
þessar áhyggjur.
í ályktuninni segir m.a. „Ferða-
þjónusta er vaxandi atvinnugrein og
ein þeirra undirstöðuatvinnugreina
sem íslenskt efnahagslíf hvílir á.
Gjaldeyristekjur af erlendum ferða-
mönnum voru um 26 milljarðar á
síðasta ári. Fyrir aðeins 5 árum
voru gjaldeyristekjur 15,7 milljarð-
ar. Til viðbótar má geta þess að
næsta ár, árið 2000, verður mesta
ferðaár sögunnar."
Einnig segir að fyrirtækjum í
ferðaþjónustu hafi borist alvarlegar
viðvaranir frá sölumönnum fslands-
ferða erlendis. „Ljóst er að búast
má við að áróður hvalfriðunarsinna
verði hvað öflugastur í Bandaríkj-
unum, Bretlandi, Frakklandi og
Þýskalandi, en þaðan komu 48%
allra erlendra ferðamanna til ís-
lands árið 1998.“
„MEGINMARKMIÐIÐ er að við
náum samstöðu um skynsamlega
nýtingu auðlinda sjávar meðal
þeirra sem málið varðar verulega,
þannig að við getum stundað hval-
veiðar í atvinnuskyni, en hefjumst
ekki handa með þeim hætti að litið
verði á það sem ögrun við umheim-
inn,“ segir í álitsgerð sem Jón
Ingvarsson, stjórnarformaður Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna, og
Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri
SH, hafa sent sjávarútvegsnefnd
Alþingis vegna þingsályktunartil-
lögu sem lögð hefur verið fram á
Alþingi um hvalveiðar.
Hvatt er til þess að áður en til
veiða komi fari fram mjög ítarleg
kynning á málstað íslands og
áfonnum. í bréfinu kemur fram að
SH geti tekið undir þá tillögu að
leitað verði eftir pólitískri samstöðu
um að afgreiða á Alþingi ályktun
um að hefja skuli nýtingu hvala-
stofna hér við land en þá aðeins
þegar sýnt sé að með því verði ekki
miklu meiri hagsmunum stefnt í
hættu.
Norðmenn erlíðara
skotmark en íslendingar
„í stuttu máli má segja að það sé
mat SH að hvalveiðar komi til með
að hafa lítil áhrif í Asíu, á hinn bóg-
inn er næsta víst að markaðir í
Þýskalandi, Bretlandi og Banda-
ríkjunum yrðu í verulegri hættu, en
þeir eru mjög mikilvægir. Á öðrum
mörkuðum er afstaða viðskiptavina
ekki jafn ljós,“ segir m.a. í bréfinu.
Forystumenn SH vitna einnig til
reynslu Norðmanna í þessu efni
þar sem þeir hafi um árabil stundað
hvalveiðar og haldið því fram, að
það skaði að engu leyti viðskipti
landsins. Þeim rökum eiga stjórn-
endur SH ei’fitt með að samsinna.
„Fyrir það íyrsta er aðstaða land-
anna ef litið er til einhæfni útflutn-
ings Islendinga ekki sambærileg.
Viðskipti Norðmanna á alþjóða-
mörkuðum eru margfalt meiri, þeir
eru stórveldi í olíuiðnaði og stunda
mikinn útflutning ýmissa iðnaðar-
vara, en fískafurðir vega fremur lít-
ið. Þeir eru því erfiðara skotmark
en við Islendingar.
I öðru lagi má benda á að þegar
Norðmenn stóðu frammi fyrir lík-
legu viðskiptabanni, varð utanrík-
isráðherra þeirra nánast hetja í
augum ráðamanna í Washington
vegna frábærrar frammistöðu í
tengslum við gerð friðarsamninga
milli ísraelsmanna og PLO, en í
kjölfarið náðu forsætisráðherra
Noregs og varaforseti Bandaríkj-
anna samkomulagi um að Banda-
ríkjamenn féllu frá viðskiptabanni
í þakklætisskyni. Eftir því sem
best er vitað hafði varaforseti
Bandaríkjanna veruleg áhrif á það
að hvalafurðir yrðu ekki fluttar út
frá Noregi.
I þriðja lagi telja Norðmenn sig
vera að veiða samkvæmt alþjóða-
lögum, enda mótmæltu þeir hval-
veiðibanninu á sínum tíma,“ segir í
bréfi forsvarsmanna SH til sjávar-
útvegsnefndar.
JLTEMPUR-PEDIC
Heilsunnar vegna
Yíir 27.000
sjúkraþiálfarar,
kírópraktorar
og læknar um
heim allan mæla
með Tempur Pedic.
Befra
RAKl
Faxafeni 5 ■ 108 Rvk ■ Sími:588-8477