Morgunblaðið - 12.02.1999, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
V
MORGtJNBLAÐIÐ
FRETTIR
Eldhamri GK bjargað þar sem hann rak vélarvana að Krísuvíkurbjargi með níu manna áhöfn
J-' •
, , Morgunblaðið/Rax
FELAGAR í björgunarsveit SVFI Þorbirni í Grindavík stóðu á hafnargarðinum og fylgdust með þegar Sighvatur GK 57 nálgaðist innsiglinguna með Eldhamar GK 13 í togi.
Björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason var einnig til taks ef eitthvað færi úrskeiðis.
Við vorum
komnir
ansi nálægt
landi
ÓLAFUR Þórðarson, skipstjóri
á Eldhamri, kominn til hafnar.
I
J'
Fagradalsfjall
Þorbjörn »
■cóy
/)•//
. {£*</?*&?■' J v r- - ú • f
I
Grindavíl
Borqar- ,
x-MÞ''
-a," ísólfsskáii
Kristivik Geitahlíð
Selatangar
Krísuvíkurberg
2KI. 13.25 var björgunar-
skipið OddurV. Gíslason
búinn að koma spotta í Eldhamar
en síðan dró Sighvatur GK bátinn
til Grindavíkur
1KI. 12.12 í gærvarð
EldhamarGK 13
aíðl
vélarvana um 1 sjómílu
undan bjarginu og
sendi út hjálparbeiðni
Sighvatur GK 57 dró Eldhamar GK 13
vélarvana inn til Grindavíkurhafnar í gær.
Pétur Gunnarsson blaðamaður og Ragnar
Axelsson ljósmyndari voru á bryggjunni
og ræddu við skipverja.
ODDUR V. Gíslason, nýr
og öflugur björgunarbát-
ur Grindvíkinga, hlaut
eldskím sfna í gær þegar
Eldhamri GK 13, 250 tonna tog-
báti, var bjargað þar sem hann rak
vélarvana í átt að Krísuvíkurbjargi
með níu manna áhöfn. „Okkur rak í
rúman klukkutíma. Við vorum
komnir ansi nálægt landi enda var
verið að veiða nálægt,“ sagði Ólaf-
ur Þórðarson, skipstjóri á Eld-
hamri, þegar Morgunblaðið ræddi
við hann í síma á landleið. „Við vor-
um nýbúnir að leggja netin og vor-
um að fara að draga trossu þegar
vélin bilaði.“
Tilkynning um bilunina barst
Tilkynningaskyldunni í gegnum
Reykjavíkurradíó klukkan 12.12.
og var þess efnis að Eldhamar væri
með bilaða aðalvél um það bil 1
mílu út af Krísuvíkurbjargi.
Skömmu síðar var tilkynnt að
bátinn ræki meðfram bjarginu
undan suðaustan stinningskalda
en nálgaðist þó land. Engir bátar
voru nærstaddir og klukkan 12.25
var ákveðið að senda þyrlu Land-
helgisgæslunnar á staðinn og á
sama tíma lögðu af stað úr Grinda-
víkurhöfn björgunarbáturinn Odd-
ur V. Gíslason, sem slysavama-
deildin Þorbjörn fékk tO umráða
skömmu fyrir jól, og Sighvatur GK
57,400 tonna línubátur.
Oddur V. Gíslason var um 40
mínútur á leið að Eldhamri og
klukkan 13.24 var hann kominn með
Eldhamar í tog. Um hálftíma síðar
var Sighvatur GK kominn á staðinn
og tekinn við og hélt hann með bát-
inn inn til Grindavíkur, þangað sem
komið var um klukkan 16.
HLYNUR Gunnarsson stýrimaður.
Agaleg lykt gaus upp
Morgunblaðið ræddi við nokkra
skipverja á hafnarbakkanum í Gr-
indavík í gær.
„Manni stóð ekki alveg á sama
fyrr en maður sá þyrluna,“ sagði
Bergvin Freygarðsson, háseti á
Eldhamri. „Vélin datt út og við
reyndum að koma henni í lag. Þeg-
ar hún var sett í gang aftur gaus
upp þessi agalega lykt. Þá kom í
ljós að það var farin lega í vélinni
þannig að það var ekki annað að
gera en að gera allt klárt, fara í
galla og bíða. Síðan komu þyrlan og
báturinn. Það gekk fljótt að koma
enda frá okkur yfír í björgunarbát-
inn,“ sagði Bergvin, sem hefur verið
um á Eldhamri í rúman mánuð, eða
frá því Ólafur Þórðarson tók við
skipinu og hefur verið á sjó í um það
bil hálft ár. Hann sagði að öll áhöfn-
in hefði verið búin að sækja nám-
skeið í Slysavamaskóla sjómanna
og það hefði veitt ákveðið öryggi.
sem hefur verið árum saman með
Ólafí Þórðarsyni til sjós. „Við átt-
um einhver hundruð metra eftir í
land en björgunarbáturinn er svo
öflugur og var fljótur að koma til
okkar,“ sagði Stefán. „Við vorum
ekkert skelkaðir, ekki meðan á
þessu stóð,“ sagði hann. „Það var
rosalegur léttir að heyra í þyrl-
unni og um leið og björgunarbát-
urinn var kominn vissi maður að
allt var öruggt. Auk þess vorum
við ekki búnir að láta akkerin fara
þannig að þetta var ekki eins
hættulegt og það kannski leit úr
fyrir að vera.“ Stefán sagðist þó
vissulega feginn að vera kominn í
land.
Var orðið svolítið stressandi
EIRIKUR Hermannsson fór til móts við Eldhamar um borð í Sighvati GK.
Rosalegur léttir að
heyra í þyrlunni
„Þetta var ágætis æfing, það
var engin hætta á ferðum; ekki að
ráði,“ sagði Stefán Jónsson háseti,
BERGVIN Freygarðsson háseti
liefur verið um mánuð á
Eldhamri.
STEFÁN Jóusson háseti (t.h.) og
félagar fóru strax að landa við
komuna.
„Ég var niðri í lest að vinna, þeg-
ar vélin bilaði, við vorum að gera
að,“ sagði Hlynur Gunnarsson
stýrimaður. Hann sagði að menn
hefðu haldið ró sinni. Hvað þaut í
gegnum hugann? „Ég hugsaði:
þetta hlýtur að fara í gang aftur,
en þetta var orðið svolítið
stressandi í restina,“ sagði Hlynur.
„En maður vissi að við höfðum
alltaf möguleika á að setja í gang
aftur og keyra út, en það hefði
eyðilagt vélina. Svo voi-um við ekki
búnir að láta akkerin út,“ sagði
Hlynur og hóaði saman áhöfninni
til að landa aflanum.
Einn þeirra sem fór til móts við
Eldhamar var Eiríkur Hermanns-
son, sem vinnur við löndun í Gr-
indavíkurhöfn. Hann sagði að þeir í
löndunargenginu hefðu verið ný-
búnir að landa úr Sighvati GK um
hádegisbilið. „Þá var hringt í okkur
og við flýttum okkur um borð og
fórum út. Við lögðum af stað um
svipað leyti og Oddur V. Gíslason,
en hann er mun öflugri en Sighvat-
ur og var kominn með Eldhamar í
tog þegar við komum að,“ sagði Ei-
ríkur.