Morgunblaðið - 12.02.1999, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Sigurbjörg
Hjartardóttir
íþróttamaður
ársins á
Húsavík
Húsavík - Kjör fþróttamanns
Húsavíkur fyrir árið 1998 var
kynnt við hátíðlega athöfn á
Hótel Húsavík um siðustu helgi.
Að þessu sinni var valin Signr-
björg Hjartardóttir.
Sigurbjörg keppir í kastgrein-
um og hefur þar náð góðum ár-
angri og á héraðsmet í öllum
kastgreinum nema spjótkasti.
Hún varð íslandsmeistari 1998 í
kúluvarpi 15-18 ára og er einnig
mjög liðtæk í handbolta og knatt-
spyrnu.
Það hefur myndast sú hefð að
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi
standi fyrir þessu kjöri en deildir
Völsunga og önnur íþróttafélög í
bænum sem starfa innan ISI til-
nefna allt að þrjá einstaklinga úr
hópi eldri og yngri þátttakenda í
hverri íþróttagrein.
Að þessu sinni fengu 14 ein-
staklingar viðurkenningu fyrir
góðan árangur í íþrótt sinni á
liðnu ári sem jafnframt voru í
kjöri sem íþróttamaður ársins.
Völsungar ársins voru kjörin
þau Elsa Birgisdóttir og Ás-
mundur Gíslason en þennan titil
hljóta þeir sem skarað hafa fram
úr í félagsmálum og verið öðrum
til fyrirmyndar.
Raufarhöfn
Ahyggjur
vegna óvissu í
atvinnumálum
Raufarhöfn-Á fundi sem stuðn-
ingsmenn R-listans héldu 7. febrúar
sl. var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt:
„R-listinn lýsir yfir áhyggjum
vegna slæmrar fjárhagsstöðu Rauf-
arhafnarhrepps og óvissu í atvinnu-
málum.
Ljóst er að fjárfestingar Jökuls
hf. hafa ekki skilað þeim atvinnu-
tækifærum sem þeim var ætlað.
Fjármál sveitarfélagsins eru einnig
í miklu uppnámi vegna þátttöku
hreppsins í hlutafjárútboði Jökuls
hf. sem fjármagnað var með 300
millj. kr. lántöku. Ekki er í sjónmáli
farsæl lausn á þeim vanda.
R-listinn vill að Raufarhafnar-
hreppur nýti eignarhlut sinn í Jökli
hf. til þess að tryggja örygga at-
vinnu á staðnum.
R-listinn leggur áherslu á að
hreppsnefndarfulltrúar snúi bökum
saman við lausn þeirra vandamála
sem við blasa til þess að snúa vörn í
sókn og efla byggð á Raufarhöfn."
Fiskvinnslufyrirtækið Sæunn Axels ehf. á Ólafsfírði
Samstarf við Kínverja
um fullvinnslu á fiski
Morgunblaðið/Silli
SIGURBJÖRG Hjartardóttir,
íþróttamaður ársins á Húsavík.
FYRIRTÆKIÐ Sæunn Axels ehf. á
Ólafsfirði, sem rekur saltfískverkun
og fiskþurrkun á Ólafsfirði og í
Reykjavík, hefur gert samning við
kínverska aðila um fullvinnslu salt-
fisks og sölu afurðanna á erlendum
mörkuðum. Fyrstu gámarnir með
hráefni eru á leiðinni til landsins og
verður fiskurinn þurrkaður og unn-
in á Ólafsfirði. Gert er ráð fyrir að
hann verði svo seldur á mörkuðum í
löndum Suður-Ameríku.
Ásgeir Logi Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
að um tilraun sé að ræða. „Við mun-
um sjá um þetta hér heima fyrstu
mánuðina, jafnvel út árið, og síðan
verður staðan metin og ákveðið
hvort við höldum áfram í óbreyttum
farvegi eða færum okkur um set
með þetta,“ segir Ásgeir.
Fara inn á nýjar brautir
„Við munum sjá um að þurrka
hráefnið fyrir þá. Til að byrja með
tökum við þetta hingað heim og
gerum þetta í þeim tækjum sem
við höfum hér og munum svo selja
þessa framleiðslu fyrir þá. Áð
nokkru leyti erum við að fara inn á
nýjar brautir og rennum svolítið
blint í sjóinn. Þetta hefur verið
gert með þessum hætti í öðrum
iðnaði en hefur ekki verið stundað
í fiskvinnslu hér heima,“ segir
hann.
Ásgeir segir að hér sé um mjög
spennandi verkefni að ræða. „Við
rennum svolítið blint í sjóinn en
þetta getur orðið mjög stórt fyrir
okkar fyrirtæki og brúað erfiða
tíma við hráefnisöflun. Það er að
verða stöðugt erfiðara fyrir land-
vinnsluna að verða sér úti um hrá-
efni. Kvótarnir eru alltaf að færast
meira út á sjó, þannig að maður
verður að leita allra leiða,“ sagði
Ásgeir.
Sóknarhugur í fólki og fyrirtækjum á Djúpavogi
Framkvæmdir við höfnina
lykillinn að uppbyggingu
Djúpavogi - Á dögunum varð Festi
hf. í Grindavík aðaleigandi Fisk-
mjölsverksmiðju Búlandstinds hf. á
Djúpavogi. Ber nýja fyrirtækið
nafnið Gautavík hf. Fyrirtækið ger-
ir út skipið Þórshamar GK 75. Fyr-
irtækið er öflugt í sjávarútvegi og
hefur yfir að ráða 2,5% af loðnu-
kvóta landsmanna. Þórshamar hef-
ur einvörðungu landað á Austur-
landi og þar af síðustu fimm vertfðir
hér á Djúpavogi.
„Þrátt fyrir verðlækkun á lýsi og
mjöli í augnablikinu leggst framtíð-
in vel í mig,“ sagði Sigmar Björns-
son, aðaleigandi Gautavíkur, er
fréttaritari ræddi við hann. „Ég
leitast við að gera sem minnstar
breytingar. Það eina sem plagar í
þessu máli eru hafnarframkvæmdir
og er von mín sú að það breytist
sem fyrst.“
Á hafnaráætlun er gert ráð fyrir
að framkvæmdir hefjist eftir eitt ár.
Vegna stærðar á loðnuskipum telur
Sigmar mjög aðkallandi að þær
framkvæmdir hefjist strax. „Helsta
forsendan til að uppgangur verði er
að hafnarframkvæmdir hefjist mjög
fljótlega. Skiptir þetta máli fyrir
svæðið í heild. Skipin fara ört
stækkandi og á næstu árum mega
þau veiða kolmunna, norsk-íslenska
síld, loðnu og íslenska síld. Þetta
stefnir í að verða heilsárs iðnaður,
bæði í hefðbundinni vinnslu á sjó og
í bræðslu. Þeir staðir sem geta ekki
tekið á móti þeim verða einfaldlega
undir. Því er afar mikilvægt að
höfnin geti boðið uppá alla þjónustu
í þessum efnum. Þetta kallar á gott
skipulag og að þessir hlutir verði
gerðir af myndarskap. Við teljum
að þessi framkvæmd styrkji byggð
á svæðinu,“ sagði Sigmar Björns-
son, eigandi Gautavíkur.
Saltfiskvinnsla komin á fullt
hjá Búlandstindi hf.
Eins og komið hefur fram í fi-étt-
um hafa ýmsar áherslur í fiskvinnsl-
unni breyst hjá Búlandstindi hf. eftir
að Vísir hf. í Grindavík keypti meiri-
hluta hlutafjár í fyrirtækinu. Má þar
meðal annars nefna að nú er meginá-
hersla lögð á fisk unninn í salt. Um
25 manns eru í íöstu starfi við þá
vinnu. Loðnuvertíð hefst í næstu viku
og verður þá væntanlega unnið á
vöktum. Að sögn Sigurðar Amþórs-
sonar er um mikið öryggi að ræða
fyrir fólkið að hafa fasta átta tímana.
„Vinnutíma hefur verið breytt, nú
hefst vinna klukkan hálfátta, klukkan
hálftíu er starfsfólki boðið uppá
morgunmat, síðan er venjulegur
matmálstími, en vinnutímanum lýkur
klukkan þrjú. Þá hefur fólk skilað
átta tímunum. Komið hefur verið upp
MIKIÐ mæðir á þessum þremur mönnum við endurskipulagningu í sjávarútvegi og fiskvinnslu á Djúpavogi,
frá vinstri: Sigmar Björnsson, aðaieigandi Gautavíkur, Pétur H. Pálsson, sfjórnarformaður Búlandstinds, og
Haraldur L. Haraldsson, framkvæmdasfjóri.
Morgunblaðið/Hafdís Bogadóttir
HEIÐA Hrönn Gunnlaugsdóttir dreifir salti yfir fiskinn í saltfiskverk-
uninni, en um 25 manns eru í föstu starfi þar.
föstum bónus. Þessar breytingar
leggjast vel í mig og get ég ekki ann-
að en verið bjartsýnn með framtíð-
ina,“ sagði Sigurður Amþórsson, yf-
irverkstjóri Búlandstinds hf.
Enn á eftir að ráða áhöfh á Fjölni
GK sem er í flota Vísis hf. Þar er um
14 sjómannapláss að ræða. I sumu
fólki er þó uggur um framtíðina og
gagnvart þeim breytingum sem
fylgja slíkum eigendaskiptum. Má
þar nefna sölu togarans Sunnutinds
SU 59. Skipið var á dögunum selt
Marínu hf. Nokkrir skipverjanna
halda störfum sínum, m.a. var yfir-
mönnum boðið áframhaldandi pláss,
auk nokkurra annarra heimamanna.
Skipið er skráð á ísafirði og því er
langt að fara á milli fyrir þá, sem
þiggja plássin, auk þess sem þeir
þurfa að sjá sér fyrir fari heim sjálfir.
Ef um 2-3 daga stopp er að ræða má
nefna að tveir dagai- fara einungis í
ferðir.
Það er þó von okkar bjartsýnu
Djúpavogsbúanna að með nýjum
mönnum megi koma ný tækifæri og
nýtt fólk. Ekki vantar laust húsnæði
fyrir þá sem vilja breyta til og koma
á fallegan og barnvænan stað á
landsbyggðinni. Mikið er um íbúðir
á sölu og til leigu og blundar að
sjálfssögðu sú von í fólki, að staður-
inn fái það líf sem var á árum áður,
en fyrir nokkrum árum var Djúpi-
vogur með lægstan meðalaldur íbúa
á landinu og voru barneignir og allt
mannlíf í miklum blóma. Má nefna
að hér er eitt best búna íþróttahús á
Austurlandi og gróska í íþróttalífi.
Enn er mannlífið gott og mikið af
ungu fólki en íbúum mætti fjölga.
Allt er þetta keðjuverkandi og
skipta atvinnumálin meginmáli til
að bjartsýni fólks aukist!