Morgunblaðið - 12.02.1999, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Áríðandi orðsending
til þeirra sem eiga
spariskírteini til inn-
lausnar 10. febrúar:
7,12 %
y
Avöxtun eins
og hún gerist best
Peningamarkadsreikningur
sparisjóðanna býður nú 7,12%
ársávöxtun. PM-reikningur sameinar
kosti sparireiknings og verðbréfa,
öryggi, sveigjanleika og afburða
ávöxtun.
Binditími á PM-reikningi
er aðeins 10 dagar
PM-reikningurinn er hentugt innláns-
form fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem
leita að vaxtakjörum eins og þau gerast
best á íslenskum f jármagnsmarkaði en
vilja jafnframt geta gengið að fé sínu
hvenær sem er, án nokkurrar fyrirhaf nar
og án þess að þurfa ad greiða þjónustu-
gjöld eða aðra þóknun.
JSr
::
%%
SPARISJÓÐIMNN
-fyrir þig og þina
Hagnaður Skýrr
55,8 milljónir kr.
„Náðum öllum
meginmarkmiðum“
SKÝRR hf. - samstæðan, hagnaðist
um 55,8 milljónir króna á síðasta ári
en til samanburðar var hagnaður fé-
lagsins 32,2 milljónir króna á árinu
1997. Veltufé félagsins frá rekstri
var 162,6 milljónir króna, sem er
37,7 m.kr. hækkun frá árinu áður og
rekstrartekjur námu 1.103,5 m.kr.
sem er 19,7% hækkun frá árinu áð-
ur. Eigið fé félagins hinn 31. desem-
ber 1998 nam 246,7 m.kr, eiginfjár-
hlutfallið var 33% og arðsemi eigin-
fjár á árinu 1998 var 29,3%.
Fyrirtækið hefur
fímmfaldast í verði
Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr, segir að útkoman sé í sam-
ræmi við áætlanir og heldur betri
ef eitthvað er. „Við gerðum ráð fyr-
ir því að hagnaður félagsins yrði
um 50 milljónir króna, og erum
mjög sáttir við hagnaðinn eins og
hann er. Við náðum settu markmiði
með rekstrartekjur félagsins og
veltu, og almennt náðum við öllum
meginmarkmiðum sem við settum
okkur í upphafi síðasta árs,“ sagði
Hreinn.
Frá því að ríki og borg seldu síð-
asta eignarhluta sinn í fyrirtækinu í
nóvember sl. hafa hlutabréf þess
hækkað úr genginu 3,20 í 7,90, eins
og það er í dag. Að sögn Jakobs hef-
ur fyrirtækið fimmfaldast í verði frá
því að Opin kerfi keyptu 51% hlut í
því árið 1997. „Markaðsverðmætið
var þá um 300 m.kr. en er nú um
1.580 m.kr og fyrirtækið hefur því
rúmlega fímmfaldast í verði á um
tveimur árum. Það sýnir hve fjár-
festar hafa tekið félaginu vel og
sýnt því mikinn áhuga.“
Hann sagði að í ár væri stefnt að
því að ná 65 m.kr. hagnaði eftir
skatta. „Við reiknum með að hagn-
aður fyrir skatta muni aukast um
50% milli ára,“ sagði Hreinn.
Hann sagði að á þessu ári væri
íyrirtækið að vinna að mörgum
verkefnum vegna ártalsins 2000,
líkt og á síðasta ári, og mörg verk-
efni biðu erlendis. Þar væru mörg
sóknarfæri fyrir félagið. „Við erum
að vinna að því að styrkja stöðu
okkar til að geta veitt viðskiptavin-
um okkar betri þjónustu í íramtíð-
inni.“
Ár tölvufyrirtækjanna
Albert Jónsson, forstöðumaður
verðbréfamiðlunar Fjárvangs, sagði
að afkoma fýrirtækisins væri viðun-
SkUSThf úr ársuppgjöri 1998
'
Rekstrarreikningur Mmjónir króna 1998 1997 Breyiing
Rekstrartekjur Rekstrargjöld 1.103,5 917,7 919,2 +20% 754,0 +22%
Hagnaður fyrir afskriftir Afskriftir Fjármagnsgjöld 185,9 108,0 15,8 165,2 +13% 94,2 +15% 21,0 -25%
Afkoma af reglul. starfsemi Óreglulegar tekjur/-gjöld Tekjuskattsskuldbinding 62,1 0 6,3 50,0 +24% -16,8 0
Hagnaður ársins 55,8 33,2 +68%
Efnahagsreikningur 31. des.: 1998 1997 Breyting
| Eignir: | Milljónir króna
Veltufjármunir 251,9 245,5 +3%
Fastafjármunir 492,3 384,0 +28%
Eignir samtals 744,2 629,5 +18%
| Skuidir og eigið fé: | Skammtímaskuldir 210,8 139,4 +51%
Langtímaskuldir 286,6 301.5 188.6 -5% +31%
Eigið fé 246,7
Skuldir og eigið fé samtals 744,2 629,5 +18%
Kennitölur og sjóðstreymi 1998 1997 Breyting
Eiginfjárhtutfall 33% 30%
Veltufjárhlutfall 1,23 1,76
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 162,6 124,9 +30%
andi. „Það sem mun skipta mestu
máli er hvað þeir gera á þessu ári.
Þetta ár verður ár tölvufyrirtækj-
anna hvað verkefni varðar og mark-
aðurinn gerir ráð fyiir hækkunum á
verði þessara fyrirtækja á árinu,“
sagði Albert.
Albert segir það Ijóst að Skýrr sé
einnig það tölvufyrirtæki sem hefur
möguleika á að tengjast fyrirtækj-
um í líftækni með óbeinum hætti
sem gæti gert fyrirtækið enn meira
spennandi fyrir fjárfesta.
Hann sagði að áætlun félagsins
um 65 m.kr. hagnað á þessu ári
væri hófleg, hagnaður gæti orðið
meiri. „Það sem er skemmtilegast
við þennan geira er að landslagið í
honum er að breytast. Það verður
gaman að sjá hvernig samstarfi
Opinna kerfa, Skýrr og Tæknivals
verður háttað t.d. en Opin kerfi
eiga stóra hluti í báðum síðar-
nefndu félögunum. Það má eigin-
lega segja að Opin kerfi og þessi
félög sáu eins og „Eimskip" upp-
lýsingatæknimarkaðsins og í þeirri
samlíkingu væri Nýherji helsti
samkeppnisaðilinn innanlands,"
sagði Albert Jónsson.
Fjármálaeftirlitið kynnir
lífeyrissjóðum starfsemi sína
Fylgst með fjár-
festingarstefn u
A HADEGISFUNDI í gær, þar
sem Fjármálaeftirlitið kynnti full-
trúum lífeyrissjóða starfsemi sína
og eftirlit Fjármálaeftirlitsins með
lífeyrissjóðunum, kom meðal annars
fram að fjármálaeftirlitið leggur
áherslu á að móta innra eftirlit inn-
an lífeyrissjóðanna og að fjármála-
eftirlitið mun fylgjast með fjárfest-
ingarstefnu sjóðanna.
Með nýjum lögum um skyldu-
tryggingu lífeyrisréttinda og starf-
semi lífeyrissjóða falla lífeyrissjóðir
að fullu undir reglulegt eftirlit Fjár-
málaeftirlitsins eins og aðrar fjár-
málastofnanir í landinu.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
eftirlitsins, sagði að eftirlit með líf-
eyrissjóðum væri nú víðtækara en
áður, samfara skýrari reglum um
starfsemi lífeyrissjóðanna.
„Fjármálaeftirlitið stundar eftir-
lit á grundvelli reglubundinnar
gagnaöflunar, við skoðum einstaka
lífeyrissjóði og gerum úttekt á
starfseminni eftir efnum og ástæð-
um,“ sagði Páll.
A fundinum komu einnig fram
sjónarmið lífeyrissjóðanna og sögðu
fulltrúar frá þeim að mikilvægt væri
að fjármálaeftirlitið gætti aðhalds í
aðgerðum sínum og í sínum fjár-
hagslega rekstri, enda sé eftirlitið
kostað af eftirlitsskyldum aðilum.
íslandsbanki um
vexti á íbúðalánum
Breyta
ekki lána-
kjörum
ENGIN sérstök viðbrögð munu
verða af hálfu íslandsbanka
vegna nýrra íbúðaveðlána sem
Landsbanki íslands hefur til-
kynnt að séu á næsta leyti.
Þetta kemur fram hjá Jóni
Þórissyni , framkvæmdastjóra
útibúasviðs hjá Islandsbanka.
„íslandsbanki á síður von á
að hin nýju lán Landsbanka Is-
lands muni hafa áhrif á vexti og
veðhlutfóll nýrra íbúðaveðlána
sem íslandsbanki hóf að bjóða
fyrir hálfum mánuði, enda er
um ólík lánsform að ræða,“
sagði Jón.
Ibúðaveðlán Islandsbanka,
Húslán, bera breytilega
6,2?L-7,7% vexti eftir veðhlut-
falli og er hámarksveðhlutfall
70% þegar um íyrstu íbúð er að
ræða. Hin nýju íbúðaveðlán
Landsbankans hinsvegar, sem
nefnast Heimilislán, verða fjár-
mögnuð með svonefndri verð-
bréfun. Munu vextir verða
5,5%h-5,65%, og verða hámarks-
veðhlutföll 75% i veðdeildarlán-
um með söfnunarlíftryggingu
við íyrstu kaup á íbúð.
Hugsanleg verðbréfun
Aðspurður sagði Jón að allt
væri til skoðunar varðandi það
hvort Islandsbanki hygðist fara
þá leið að bjóða íbúðaveðlán
sem fjármögnuð væru með
verðbréfun. „Okkar þjónusta er
í stöðugri endurskoðun, við
fylgjumst með og mætum þeim
aðstæðum sem upp kunna að
koma hverju sinni, en getum
ekki tjáð okkur að fullu þar sem
Landsbankinn hefur enn ekki
kynnt þetta formlega", sagði
Jón Þórisson hjá íslandsbanka.