Morgunblaðið - 12.02.1999, Síða 20

Morgunblaðið - 12.02.1999, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Bretar og* Spánverjar deila á ný um Gibraltar Snjóflóðin í Frakklandi Ellefu hafa fundist látnir Grenoble. Reuters. BJÖRGUNARSVEITIR fundu í gærmorgun ellefta fórnarlamb snjóflóðanna mannskæðu í þorp- unum Montroc og Le Tour við rætur Mont Blanc í frönsku Alpa- héruðunum. Talsmaður sveitanna sagði að líkið væri af konu og að reynt væri að fá það staðfest hvort um sömu manneskju sé að ræða og saknað hefur verið. Ekkert lát hefur verið á snjóflóðum á svæð- inu en ekkert manntjón hefur þó orðið. Snjóflóðasérfræðingar telja enn aðstæður allar vera með hættulegasta móti; snjórinn kald- ur og púðurkenndur sem auki enn á hraða og eyðileggingarmátt flóð- anna. Staðfest hefur verið að fólkið sem fannst á miðvikudag eftir að snjóflóðið þeyttist niður 1.000 metra háar hlíðar ofan við þorpin hafi allt verið af frönsku bergi brotið. Rraftur flóðsins var svo gríðarlegur að 17 fjallaskálar í 100 metra hæð í hlíðinni gegnt flóðasvæðinu splundruðust. Voru þeir allir á svæði sem lýst hafði verið öruggt til nýbygginga. Björgunarsveitarmenn í Montroc telja að héðan í frá séu mjög litlar líkur á að finna nokkurn á lífi í snjófarginu. A meðal þeirra sem týndu lífi í flóðinu var Daniel Lagai'de, sér- fræðingur í öryggismálum skíða- svæða, eiginkona hans og þriggja ára barnabarn þeirra hjóna. Raph- ael, 12 ára syni þeirra, var bjargað nokkrum klukkustundum eftir snjóflóðið. Er hann á spítala að ná sér af lungnabólgu. Sautján íbúar þorpsins les Bossons voi-u fluttir úr híbýlum sínum eftir að annað stórt flóð féll í grenndinni, en þorpið stendur beint undir hlíðum Mont Blanc, hæsta tinds Evrópu. „Við heyrðum mikinn hvell og fundum sterka vindhviðu. Stólar á veröndinni flugu til og ljós slokknuðu,“ sagði einn þorpsbúanna. Talið er að öfl- ugar snjóflóðavarnir í hlíðinni fyrir ofan þoi-pið hafí komið í veg fyrir stórfellt tjón. Veðurkerfið færist austur Veður á svæðinu skánaði í gær og spá veðurfræðingar betri skil- yrðum yfir helgina. Samgöngur eru þó enn víða í lamasessi og lágu allar lestarferðir milli Frakk- lands og Sviss yfir Júrafjallgarð- inn niðri vegna skafrennings. Veðrakerfið sem ósköpunum hef- ur valdið virðist hafa fært sig austur á bóginn en mikil snjó- koma og stormur hafa teppt vegi í norðanverðu Ungverjalandi og stöðvað ferðir hundruða bifreiða. Miskolc, önnur stærsta borg landsins, er einangruð vegna ótíð- arinnar. Þar mældist 20-40 sm jafnfallinn snjór í gær, en það er óvenjumikil úrkoma þar um slóðir. Varnarmálaráðuneyti Ung- verjalands tilkynnti í gær að sett- ar yrðu upp þrjár neyðarmið- stöðvar um landið og að hermenn myndu aðstoða björgunarsveitar- menn, heimavarðliða og starfsfólk neyðarþjónustunnar við að dreifa nauðsynjum. Madrid. Reuters. BRETAR og Spánverjar eru aftur komnir í hár saman út af Gibraltar og hafa þeir síðarnefndu hótað að viðurkenna ekki ökuskírteini, sem þar eru gefin út, og banna flugvél- um, sem þangað stefna, að fljúga inn yfir spænska lofthelgi. Hafa Bretar mótmælt þessum vangavelt- um harðlega og ætla að taka þær upp hjá framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins. Abel Matutes, utamíkisráðherTa Spánar, sagði á þingi í fyrradag, að ríkisstjórnin hefði ýmislegt til at- hugunar í því skyni að þrengja að Gibraltar og meðal annars að hætta að viðurkenna ökuskírteini, sem þar væru gefin út. Hefur ekkert verið samþykkt í þessu efni enn sem komið er en Matutes hafði varla sleppt orðinu er einum Gi- braltarbúa var neitað að aka inn í Spán. Hefur það ekki gerst aftur en á hinn bóginn er afgreiðslan á landamærunum orðin stirðari en var og tekur það allt að klukkutíma að komast á milli. Fiskveiðar undirrótin Bresk stjómvöld hafa mótmælt þessu harðlega og ekki síður vanga- veltum um að banna flugvélum, sem era að koma til eða fara frá kletta- höfðanum, að fara um spænska loft- helgi. Ætla þeir að skjóta deilunni til framkvæmdastjórnar ESB. Ástæða væringanna að þessu sinni er deila um fiskveiðar úti fyrir höfðanum en lögreglan á Gibraltar tók í síðasta mánuði spænskan fiski- bát fyrir ólöglegar veiðar innan landhelginnar. Spánverjar vilja, að Bretar ítreki, að þeir ætli að standa áfram við munnlegt samkomulag um fiskveiðiréttindi við höfðann en Bretar vilja ræða það nánar. Bretar hafa ráðið Gibraltarhöfða frá árinu 1717 en Spánverjar krefj- ast þess, að hann verði aftur spænskt land. Stefnir í verkföll í Þýzkalandi Njfjum eldflaugum beint gegri Taívan Taipei. Reuters. Peking. The Daily Telegraph. TAÍVANSKA stjórnin fordæmdi í vikunni ákvörðun kínversku ríkis- stjórnarinnar um að beina nýjum flugskeytum að Taívan og sagði það bæði andlega og hernaðarlega ógn við íbúa eyjunnar. Þetta hefur verið staðfest af hemaðarleyniþjónustu Bandaríkjanna og Taívan. Frétta- skýrendur spá vaxandi ólgu á svæðinu, en líklegt þykir að samskipti rík- isstjóma Kína og Bandaríkjanna bíði einnig hnekki í kjölfarið. BBC stokkar upp í starfseminni títsendingum á þýsku verður hætt eftir 61 ár BRESKA ríkisútvarpið, BBC, hefur tilkynnt um verulegar breytingar á starfseminni í því skyni að ná til fleiri hlustenda um heim allan. Með- al annars verður netþjónustan auk- in og einnig FM-útsendingar en dregið úr stuttbylgjuútsendingum þar sem annarra kosta er völ. Þá verður hætt að útvarpa á þýsku. Með breytingunum vill BBC treysta stöðu sína á næstu öld en þær fela m.a. í sér, að Heimsþjón- usta BBC mun auka efnisframboð sitt á netinu, einkum í Afríku, Asíu og Miðausturlöndum. Þá er áætluð ný fréttarás, sem starfrækt verður allan sólarhringinn, auk annarrar með almennu dagskrárefni. Verða þær einnig aðgengilegar á netinu en BBC áætlar, að á næstu þremur ár- um muni 300 milljónir manna um allan heim fá aðgang að því. Á móti þessu verður nokkuð skor- ið niður og vekur það ekki síst at- hygli, að hætt verður að útvarpa á þýsku eins og gert hefur verið í 61 ár. Við það hafa starfáð um 30 manns. í vestrænum iðnríkjum mið- ar BBC fyrst og fremst við að ná til ráðamanna eða áhrifamanna á ýms- um sviðum og samkvæmt könnun í Berlín hlustar fjórðungur þessa markhóps á BBC. Aðeins 10% þeirra hlustuðu þó á þýsku útgáfuna. Merkri sögu lokið Mark Byford, framkvæmdastjóri BBC, sagði, að vissulega væri eftir- sjá í þýsku útsendingunni, sem ætti sér mjög merka sögu, til dæmis á dögum síðari heimsstyrjaldar og í kalda stríðinu. Nokkur samdráttur verður einnig í útsendingum á ung- versku, tékknesku og tælensku. Samkvæmt skýrslum bandarísku hemaðarleyniþjónustunnar hafa kín- versk stjórnvöld komið fyrir á bilinu 150 til 200 M-9 og M-ll flugskeytum í suðurhluta Kína, sem beinast að Taív- an. I skýrslunum kemur fram að kín- versk stjómvöld áformi að fjölga flug- skeytunum í 650 á komandi árum. Varað við samstarfi við Bandaríkin Aukin vígvæðing Kínverja kemur í kjölfai- viðvarana þeirra við því að Taívanar taki þátt í uppbyggingu á varnarkerfi Bandaríkjastjórnar og ríkisstjórnar Japans á svæðinu. Slíkt, segja kínversk stjómvöld, muni vekja ótta meðal annarra Norður-Asíulanda sem standi ekki eins sterk að vígi hernaðarlega. Einnig áskilur ríkisstjórn Kína sér rétt til að beita hernaðaraðgerðum gegn Taívan að tvennu tilskildu: Ef raddir um sjálfstæði Taívans frá Kína hækka og ef erlend ríki styðja þá kröfu. Þrátt fyrir að Bandaríkin hafi ekki viðurkennt sjálfstæði Taí- vans, hræðist kínverska stjórnin hernaðarlegan stuðning stórveldis- insyið eyjuna. Óstaðfestar heimildir herma að Taívanstjórn hafí áhuga á varnar- samstarfi við Bandaríkin og Japan. Ríkisstjórn Taívans stefnir nú að því að auka getu heraflans en stjórnvöld hafa nú þegar hafið innflutning á flugskeytum og öðrum vopnum frá Bandaríkjunum. William Cohen, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir nýlega að aukið fjár- magn yrði lagt í vai-narmál í Norður- Asíu á næstu misserum. ÞÝZKIR málmiðnaðarverka- menn leggja hér áherzlu á kjarakröfur sínar í kröfugöngu við höfuðstöðvar Opel-bifreiða- verksmiðjanna í Riisselsheim í gær. Meðlimir IG Metall, verka- lýðsfélags málmiðnaðarmanna, gáfu til kynna að þeir væru reiðubúnir að fara út. í allsherj- arverkfall eftir að samninga- menn félagsins tilkynntu að kjaraviðræður við samtök at- vinnurekenda væru strandaðar. Er hafin var dreifing atkvæða- seðla til meðlima IG Metall óx í gær ótti um að fjöldaverkföll í þýzkum iðnfyrirtækjum gætu ónýtt tilraunir Gerhards Schröders kanzlara til að fá full- trúa verkalýðsfélaga og atvinnu- rekenda að samningaborði í því skyni að setja saman áætlun um sameiginlegt stórátak stjórn- valda og aðila vinnumarkaðarins gegn atvinnuleysi í landinu. Á skiltinu í forgrunni stendur: „Hey stjóri. Ég þarf meiri pening - 6,5%“ Tugir manna fórust í eldsvoða Moskvu. Reuters. AÐ minnsta kosti 20 manns fór- ust og 35 manna var enn saknað í gær eftir mikinn eldsvoða í lög- reglustöð í borginni Samara í Mið-Rússlandi. „Byggingin brann til grunna að heita má og líklegt, að sum lík- anna séu orðin að ösku,“ sagði talsmaður borgaryfirvalda en hún taldi, að þó væri enn veik von um að finna fólk, sem tekist hefði að flýja niður í kjallarann. Eldurinn kom upp seint á mið- vikudag og það tók slökkviliðið 15 klukkustundir að ráða niðurlög- um hans. Komust margir út um glugga og niður stiga en aðra yf- irbugaði reykurinn fljótlega. „Við sáum fólk standa við gluggana hrópandi á hjálp. Sumir stukku út, jafnvel ofan af fimmtu hæð,“ sagði kona, sem varð vitni að eldsvoðanum. Talið er, að eldurinn hafi komið upp í herbergi á annarri hæð hússins, hugsanlega vegna skammhlaups í tölvukerfi lög- reglunnar. Sumir vilja þó ekki útiloka, að um íkveikju hafi ver- ið að ræða. Hafði Jevgení Prímakov, forsætisráðherra Rússlands, eftir Borís Jeltsín forseta, að allt yrði gert til að upplýsa málið og einkum ef ástæða væri til að óttast íkveikju.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.