Morgunblaðið - 12.02.1999, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 21
ERLENT
Reuters
Kjötkveðjuhátíð í Köln
ÞÆR brosa sínu blíðasta kon-
urnar tvær sem voru meðal
gesta á kjötkveðjuhátíðinni í
elsta hluta Kölnar í Þýskalandi
prýddar litríkum fjöðrum í til-
efni kvennadags hátíðahald-
anna, en hann er haldinn hátíð-
legur þegar vika er til föstu.
Réttarhöld í Moskvu yfír söfnuði votta Jehóva
Flugfar-
þegar fái
skaðabætur
Washington. Reuters.
SAMNINGANEFND fulltrúar-
deildai- Bandaríkjaþings lagði til
á miðvikudag að flugvélögum
yrði gert skylt að gi-eiða farþeg-
um skaðabætur ef meira en
tveggja tíma seinkun yrði á áætl-
unarflugi. Samkvæmt lagatillög-
unni skulu skaðabætur vera
tvisvar sinnum hærri en sú upp-
hæð sem farseðillinn kostaði sé
seinkunin tveir tímar, þrefalt
hæi-ri sé hún þrír tímar o.s.frv.
Bud Shuster, talsmaður samn-
inganefndarinnai', sagði tillöguna
til að hvetja tU betri þjónustu
flugfélaga gagnvart fai'þegum,
þar sem tafir á áætlunarflugi hafi
verið nokkuð tíðai'. „Flugfélög
þurfa að fara að koma fram við
farþega eins og fólk.“
Farið fram á að söfnuð-
urinn verði leystur upp
MANNRETTINDASAMTOK
fylgjast nú grannt með framgangi
réttarhalda, sem hófust í Moskvu á
miðvikudag, yfir söfnuði votta
Jehóva þar í borg en saksóknarar
hafa farið fram á að söfnuðurinn
verði leystur upp. Óttast margir að
réttarhöld þessi marki fyrsta
skrefið í þá átt að takmarka
trúfrelsi í Rússlandi. Hafa band-
arísk stjórnvöld einnig vakandi
auga með málarekstrinum því þar
vestra eru í gildi lög sem gera
trúfrelsi að skilyrði fyrir allri fjár-
hagsaðstoð við Rússa.
Arið 1997 voru sett lög í Rúss-
landi sem settu starfsemi
„óhefðbundinna" sértrúarsafnaða
afar þröngar skorður. Heldur
saksóknarinn í Moskvu því fram
að vottar Jehóva hafi gerst brot-
legir við lögin með því að boða trú-
arlega mismunun, valda ósamlyndi
í fjölskyldum og standa gegn
hefðbundnum læknismeðferðum -
en eins og kunnugt er boða vottar
Jehóva heimsendi og að einungis
meðlimir safnaðarins verði hólpn-
ir.
Segir í ákærum saksóknara að
meðlimir í söfnuði votta Jehóva séu
nánast heilaþvegnir, söfnuðurinn
valdi trúarapplausn og stefni rúss-
neskum gildum í hættu, hann sé
andþjóðfélagslegur og andkristi-
legur. Hyggjast sækjendur leiða
fram 21 vitni sem greina muni frá
þeim skaða sem söfnuður votta
Jehóva hafi valdið þeim, fjölskyld-
um þeiira og fjárhag.
Á hitt benda verjendur safnað-
arins að Rússar fullgiltu Evr-
ópusáttmálann á síðasta ári og við-
urkenni þar með lögsögu Mann-
réttindadómstólsins. Fái saksókn-
ari söfnuðinn bannaðan í Moskvu
gæti málið komið til kasta Mann-
réttindadómstólsins, en þar sé
réttur manna til að iðka trú sína í
hávegum hafður.
Ekki guðfræðilegt deilumál
„Ef þeir vinna sigur í þessu máli
þá er ekki von á góðu,“ sagði Ljud-
mila Alekseyeva, forseti mannrétt-
indasamtaka sem kalla sig Alþjóð-
legu Helsinki-samtökin. „Eftir það
telja þeir sig sjálfsagt geta gert
atlögu að öðram sértrúarsöfnuð-
um.“
Segir Alekseyeva að í lokuðu
samfélagi eins og því rússneska líti
menn hornauga hópa eins og votta
Jehóva. „Þegar ég spyr fólk hvað
sé svo hættuleg við votta Jehóva
fæ ég engin svör, en fólk situr samt
fast við sinn keip um að söfnuður-
inn sé hættulegur. Staðreyndin er
hins vegar sú að hér er ekki um að
ræða guðfræðilegt deilumál, þetta
mál snýr einfaldlega að mannrétt-
indum.“
Þýska stjórnin deilir
um ríkisborgararétt
Forysta
græningja
hafnar
málamiðlun
Bonn. Reuters.
NÝ SPRUNGA í stjórnarsamstarfi
jafnaðarmanna (SPD) og græn-
ingja í Þýzkalandi kom í Ijós í gær,
Pv J málamiðlun í um-
■ deildum áformum
Schröder löggjöf um þýzkan
nkisborgararétt.
Gerhai'd Schröder kanzlari sakaði
hina vinstri sinnuðu græningja um
að fylgja of róttækri stefnu í þessu
máli.
Schröder hefur sagt að óvæntur
ósigur SPD og græningja í kosn-
ingum til þings sambandslandsins
Hessen um síðustu helgi, þar sem
Kristilegir demókratar (CDU)
unnu mjög á með því að reka mik-
inn áróður gegn áformum ríkis-
stjórnarinnar í þessu máli, hefði
óhjákvæmilega í fór með sér að
leita yrði málamiðlunar. Sudcl-
eutsche Zeitung hafði eftir kanzl-
aranum í gær að frumvarpið um
breyttan ríkisborgararétt, sem til
stóð að þingið samþykkti í sumar,
yrði að innihalda „skýr takmörk"
við tvöföldum ríkisborgararétti, en
það atriði framvarpsins hefur CDU
gagnrýnt hvað mest og verið
óvinsælt meðal almennings.
Tvöfaldur ríkisborgararéttur
aðeins til styttri tíma
„Útlendingum verður ekki veitt-
ur tvöfaldur ríkisborgararéttur til
langframa, heldur frekai' til tak-
markaðs tíma,“ sagði Schröder.
Græningjar höfnuðu hins vegar
með öllu hvers konar viðleitni til að
„útvatna" þær tillögur sem stjórn-
in hafði lagt fram um að veita um
helmingi þeirra átta milljóna út-
lendinga sem búsettir eru í landinu
þýzkt ríkisfang.
Orkati
jókst til
muna!
Stefán Rögnvaldson
Byggingameisrari
„Eg hef tekið Nateu samfleytt í
2 ár. Ég varð fljótt þróttmelri,
orkan jókst til muna, og svefn
varð betri. Nateti hefur eitvnig
góð áhrif á kynorkuna og kemur
jafnvægi á líkama og sál"
NATEN
- er nóg!
Úfsölustaðir:
Hagkaup, Nýkaup, Blómaval Akureyri og
Reykjavík, Apótekin, Lyfja, verslanir KÁ,
Kaupfélögin, Urð Raufarhöfn, Homabær
Homafirði, Lónið Þórshöfn, Heilsulindin
Keflavík, Melabúðin Neskaupssrað.
Dreifing: NIKO ehf - sími 568 0945
Veffang: wvAv.naten.is
Fasteignir á Netinu
ý§> mbl.is
_ALLTA/= 6/7T//V54£7 AÍÝTT