Morgunblaðið - 12.02.1999, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tveir
bóka-
klúbbar
í einn
VAKA-Helgafell hefur sett á stofn
nýjan bókaklúbb, Stóra bókaklúbbinn.
Stóri bókaklúbburinn byggist á
gömlum merg en í honum sameinast
Bókaklúbbur Almenna bókafélagsins
og Bókaklúbbur Vöku-Helgafells.
Bókaklúbbur Almenna bókafélagsins
er elsti starfandi bókaklúbbur lands-
ins; stofnaður fyrir um íjórum áratug-
um og hafði þegar mest var um 25.000
félagsmenn. Almenna bókafélagið rak
klúbbinn fram til ársins 1996 þegar
Vaka-Helgafell festi kaup á honum.
Bókaklúbbur Vöku-Helgafelis var
stofnaður árið 1994 og voru félagar á
annan tug þúsunda þegar mest var.
I Stóra bókaklúbbnum verða á
boðstólum handbækur af ýmsu tagi,
nútímalegar fræðslubækur fyrir fjöl-
skylduna og áhugaverð skáldverk,
íslensk og erlend, á um 20% lægra
verði en á almennum markaði segir í
fréttatilkynningu.
I mánaðarblaði klúbbsins verða að
auki kynntar nýjar og eldri bækur á
verulega lækkuðu verði, sömuleiðis
verða í boði hljóðbækur fyrir börn og
fullorðna, geisladiskar, myndbönd og
listprentanir verka helstu meistara
íslenskrar myndlistar. Auk margvís-
legra tilboða mun Stóri bóka-
klúbburinn svo bjóða upp á ýmsar
nýjungar í klúbbstarfinu.
----------------
Kvik-
mynd um
Wagner
RICHARD Wagner-félagið á íslandi
sýnir á laugardag kl. 14 í Norræna
húsinu fyrsta hluta kvikmyndar
Tonys Palmers um ævi Richards
Wagners. Palmer vann að gerð
myndarinnar í sjö ár - hún er um
átta tímar að lengd, kostaði um 11
milljónir dollara í framleiðslu og er
tekin upp í mörgum þeim borgum,
þar sem Wagner lifði og starfaði, eins
og Múnchen, Vín, Siena, Búdapest,
Numberg, Bayreuth og Feneyjum.
Upprunalega hugsaði Palmer sér
myndina sem framhaldsþætti fyrir
sjónvarp og reyndar hefur hún
einnig verið sýnd þannig. En útkom-
an varð átta tíma bíómynd í tveim
hlutum, sem frumsýnd var í London
í apríl 1983, og í október sama ár, á
hundrað ára ártíð Wagners, var
myndin sýnd á La Seala í Mílanó, og
er eina bíómyndin sem sýnd hefur
venð í því húsi.
I aðalhlutverkum ber fyrst að
nefna Richard Burton sem leikur.
Wagner, en í hlutverkum eigin-
kvenna hans eru Vanessa Redgrave
sem leikur Cosimu og Gemma Cra-
ven sem leikur Minnu. í minni hlut-
verkum eru m.a. söngvararnir Gwy-
neth Jones, Peter Hofmann og
tónskáldið Sir William Walton.
Kvikmyndin verður sýnd í þrem
hlutum og er fyrsta sýningin eins og
áður greinir nú á laugardag en seinni
sýningamar tvo næstu laugardaga á
eftir, 20. og 27. febrúar, og hefjast
allar sýningamar kl. 14. Myndin er
með ensku tali án skjátexta. Aðgang-
ur ókeypis og öllum heimill.
Á undan fyrstu sýningunni, kl. 13,
verður haldinn aðalfundur Richard
Wagner-félagsins, sem hefur starfað
hér á landi í rúm þrjú ár. Félags-
menn eru 150 talsins. Stjóm félags-
ins skipa Selma Guðmundsdóttir for-
maður, Jóhann J. Ólafsson varafor-
maður, Jóhannes Jónasson ritari,
Jón Ragnar Höskuldsson gjaldkeri
og Sólrún Jensdóttir. I varastjórn
em Ami Bjömsson, Ami Tómas
Ragnarsson og Grétar Ivarsson.
Ljósmynd-
ir og líð-
andi stund
Á SÝNINGU blaðaljósmyndara má meðal annars sjá þessa mynd Ás-
dísar Ásgeirsdóttur sem tekin er um borð í varðskipinu Oðni.
MYJMMLIST
Listasafn Kúpa-
vogs/Gerðarsafn
LJÓSMYNDIR
ÝMSIR BLAÐALJÓSMYNDARAR
Opið frá 12 til 18 alla daga nema
mánudaga. Aðgangseyrir kr. 200.
Sýningin stendur til 14. febníar.
BLAÐALJÓSMYND-
ARAFÉLAG íslands heldur nú
sýningu í Gerðarsafni og má þar sjá
verk eftir tuttugu og fjóra Ijós-
myndara sem allir starfa fyrir dag-
blöð eða tímarit, eða þá fyrir
auglýsingastofur eins og Ári Magg,
sem á margar ágætar myndir á
sýningunni. Framtak af þessu tagi
er mikils virði því hér gefst
tækifæri til að skoða og meta
listrænan metnað ljósmyndara sem
alla jafna birta verk sín aðeins í
dægurmiðlum og sem stuðning eða
skreytingu við texta. Heimildagildi
myndanna er þá oftast haft í fyrir-
rúmi og hætt við að lesendur
blaðanna gefi þeim minni gaum en
greinunum sem þær fylgja. Á sýn-
ingunni má hins vegar sjá að oft
fanga ljósmyndaramir inntak og
tilfinningu atburðanna jafnvel eða
betur en hægt er að gera í texta og
andstætt því sem iðulega á við um
blaðagreinar tekst þeim að taka
myndir sem eru í senn talandi
heimild um líðandi stund eða
fréttnæma viðburði og tímalaus
listaverk með almenna skírskotun.
Þegar svo margir sýna saman er
auðvitað engin leið að fjalla um
framlag allra og því er rétt að taka
fram að hér skal á engan hallað þótt
aðeins örfá dæmi séu nefnd af því
sem skoða má á sýningunni. I það
heila tekið er hér um afar sterka
sýningu að ræða.
Myndirnar á sýningunni skiptast
eðlilega í nokkra flokka og hefur
verið tekið tillit til þess við uppsetn-
ingu sýningarinnar, sem og við veit-
ingu verðlauna sem eru hluti af sýn-
ingarhaldinu. Myndir sem beinlínis
tengjast fréttum eru auðvitað áber-
andi og áhorfendum gefst tækifæri
til að skoða atburði nýliðins árs í
myndum sem sameina listrænan
metnað og næman skilning á
viðfangsefninu. Myndin „Sorg“ eftir
Þorvald Öm Kristmundsson er gott
dæmi um slíkt enda var hún verð-
launuð sem besta fréttamyndin og
jafnframt besta mynd ársins.
íþróttir eru líka fyrirferðarmiklar
sem og portrettmyndir, en einnig
má sjá á sýningunni mikið af mann-
lífsmyndum sem ekki eru beinh'nis
tengdar einstökum viðburðum og
myndraðir bæði héðan af íslandi og
utan úr heimi. I síðastnefnda
flokknum eru til dæmis myndir
Ama Sæberg frá Grænlandi, mynd-
ir Þorkels Þorkelssonar frá Kúbu
og Irak og myndir Ásdísar Ásgeirs-
dóttur frá Kosovo. í portretthlutan-
um er úr mörgum góðum myndum
að velja, en þar hlaut Ari Magnús-
son verðlaun og á margar góðar
portrettmyndir á sýningunni. Gunn-
ar Gunnarsson á þar líka afar gott
portrett af Jóni Múla og einnig er
vert að nefna mynd Einars Fals
Ingólfssonar af Bimi Th. Bjöms-
syni, listfræðingi og skáldi. Einar
Falur sýnir reyndar aðra mynd sem
einnig mætti kalla portrett þótt
maðurinn sem myndin er af sé horf-
inn af sjónarsviðinu; það er mynd
hans af auðum stól í vinnustofu
Halldórs Laxness sem tekin var
rétt eftir að hann lést. Spessi, Sig-
urþór Hallbjömsson, á nokkrar
myndir á sýningunni sem bera hans
sterku stíleinkenni, þjár myndir af
vestfirskum kvenhetjum og tvær
tískuljósmyndir. Ragnar Axelsson á
eins og von var til margar myndir á
sýningunni, fjölda mannlífsmynda
og sterka myndröð tengda deilun-
um sem nú standa um nýtingu há-
lendisins.
Eins og áður var sagt skal hér á
engan hallað þótt aðeins fáein dæmi
séu tínd til af þessari sýningu. Hún
er öllum ljósmyndumnum til mikils
sóma.
Lístasafn Kópa-
vogs/Gerðarsafn
LJÓSMYNDIR
ÝMSIR ATVINNU-
LJÓSMYNDARAR
UM LEIÐ og blaðaljósmyndarar
sýna í vestursal Gerðarsafns sýnir
Ljósmyndarafélag íslands í aust-
ursalnum. Þar er um ekki síður
fjölbreytta sýningu að ræða, enda
era þátttakendur enn fleiri. Flest-
ar myndimar eru greinilega teknar
í atvinnuskyni, það er að segja að
þær bera það með sér að vera
dæmi um þann stíl og þau vinnu-
brögð sem ljómyndarinn hefur
tamið sér í starfi, en eru ekki tekn-
ar sérstaklega til að vera á sýn-
ingu. Einmitt þetta gerir sýning;
una áhugaverða og skemmtilega. Á
henni má sjá að starfandi ljós-
myndarar era sífellt að leita nýrra
leiða og sköpunarmöguleika, jafn-
vel á sviðum sem flestir myndu
telja fastmótuð og takmarkandi, til
dæmis í hefðbundnum stúdíó-
myndatökum af fólki, bama- og
fermingarmyndum eða stúdents-
myndum. Stúdentsmynd eftir Rut
Hallgrímsdóttur er gott dæmi um
þetta en þar standa fjórar vinkonur
saman með stúdentshúfurnar og
lygna aftur augum. Láras Karl
Ingason sýnir líka stúdíómyndir
þar sem frumlega er tekið á upp-
stillingu og sjónarhomi, og bæði
Lára og Jóhannes Long sýna sterk
portrett. Bamamyndir Berglindar
Bjömsdóttur sýna að framleg
hugsun fær notið sín á öllum svið-
um ljósmyndunar og loks verður
ekki hjá því komist að nefna af-
bragðsgott portrett Sólrúnar Jóns-
dóttur af Kristínu Ómarsdóttur rit-
höfundi. Nokkrar landslagsmyndfr
era á sýningunni og má þar nefna
myndir þeirra Finnboga Marinós-
sonar, Erlings Ó. Aðalsteinssonar
og Jóhannesar Long. Þá má þarna
sjá mannlífsmyndir, myndir þar
sem áherslan er á mannslíkamann
og myndir sem teknar virðast í
auglýsingaskyni.
Líkt og með sýningu blaðamann-
anna í vestari salnum era ekki tök á
því að nefna nema örfáa af ljós-
mynduranum á sýningu Ljósmynd-
arafélagsins og rétt að taka fram að
myndir hinna era ekki síður
skoðunar virði.
Jón Proppé
Textíl og trérist-
ur í Hafnarborg
SÆNSKA textfflista-
konan Gun Johansson
opnar sýningu á verk-
um sínum í Hafnar-
borg, menningar- og
listastofnun Hafnar-
fjaröar, laugardaginn
13. febrúar kl. 16. Á
sama tíma verður opn-
uð sýning í Sverrissal á
tréristum Sigurlaugs
Elíassonar.
Gun Johansson hlaut
menntun sína við Hög-
skolan för Design och
Konsthantverk í
Gautaborg árin
1956-60. Eftir skólann
starfaði hún um tíma
við iðnhönnun hjá fyrirtækinu Mab
o May í Malmo en flutti árið 1961 til
Kirana og hefur síðan starfað að
frjálsri listsköpun.
Hún fór fljótlega að sýna verk
sín og fékk í kjölfarið sífellt fleiri
verkefni við skreytingar á opinber-
um byggingum. í
mörg ár starfaði Gun
næstum eingöngu við
þessar listskreytingar.
Fyrstu verkefnin vora
í tveimur skólum og
Hótel Ferram í
Kiruna, sen síðan
fylgdi verkefni í ólík-
um landshlutum. Verk
Gun Johansson prýða
ýmis fyrirtæki og
stofnanir, m.a. hefur
hún gert bæði altar-
istöflu og kirkjuklæði.
Það verk sem hún
er þekktust fyrir og
hefur mesta athygli
vakið er sennilega í
Húsi Kirkjunnar í Luleá, segir í
fréttatilkynningu. Myndefnið er
sótt í sálm frá Norrbotten. Gun
Johansson hefur bæði sýnt verk
sín í Svíþjóð, Stokkhólmi og á
ýmsum stöðum frá Kiruna í norðri
til Tomellilla í suðri, og erlendis í
Sigurlaugur
Eliasson
VERK Gun Johansson.
Finnlandi, Noregi, Sovétríkjun-
um, Bandaríkjunum og víðar.
Myndefnið byggist að miklu leyti
á náttúrunni en hana túlkar hún
út frá eigin tilfinningum og skiln-
ingi.
Sigurlaugur Eh'asson nam við
MHI 1979-83 og hefur síðan feng-
ist jöfnum höndum við málverk og
grafík. Sýningin í Hafnarborg er
10. einkasýning hans. Á henni era
tvær myndraðir, Portrett og Úr
króniku, saman eru það 49 myndir
sem unnar vora veturinn 1995-96
en hafa ekki verið sýndar áður.
Sýningamar era opnar frá kl.
12-18 alla daga nema þriðjudaga og
standa til 1. mars.