Morgunblaðið - 12.02.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 25
Tónleikar í
Stykkis-
hólmskirkju
TÓNLISTARKENNARAR í
Stykkishólmi efna til tónleika í
Stykkishólmskirkju sunnudaginn
14. febrúar.
A tónleikunum koma fram
Hólmgeir Sturla Þórsteinsson pí-
anóleikari, sem mun flytja 32 til-
brigði í c-moll eftir Beethoven,
Lárus Pétursson gítarleikari, en
hann flytur frumsamda tónlist og
verk eftir Villa-Lobos. Hafsteinn
Sigurðsson harmóníkuleikari flyt-
ur verk eftir hinn ítalska Pietro
Frosini. Gestur tónleikanna verð-
ur Theodóra Þorsteinsdóttir
sópransöngkona en hún mun
ásamt Ingibjörgu Þorsteinsdóttur
flytja ástarljóð eftir Dvorák og ís-
lensk ljóð. Theodóra er búsett í
Borgarnesi og er skólastjóri Tón-
listarskóla Borgarfjarðar. Hinir
tónlistarmennirnir búa allir og
starfa í Stykkishólmi.
Aðgangseyrir verður enginn að
tónleikunum. Kennarar og nem-
endur Tónlistarskóla Stykkis-
hólms eru að safna í hljóðfærasjóð
til að geta eignast góðan flygil í
sal skólans og verða frjáls fram-
lög gesta sem vilja styðja þann
málstað vel þegin. Tónleikarnir
hefjast kl. 17.
-------------
Karlakórar í Hásölum
Elsti kórinn
og sá yngsti
syngja saman
KARLAKÓRARNIR Þrestir og
Karlakór Hreppamanna halda tón-
leika í Hásölum í Hafnarfirði, tón-
leikasal Tónlistarskólans og Hafn-
arfjarðarkirkju á laugardaginn kl.
16 og verður miðasala við inngang-
inn.
I Karlakór Hreppamanna eru um
30 söngmenn og hefur hann aðsetur
sitt að Flúðum í Hrunamanna-
hreppi. Kórinn var stofnaður 1. apr-
fl 1997 og er yngsti karlakór lands-
ins. Stjórnandi Karlakórs Hreppa-
manna er Edit Molnár og píanóleik-
ari á tónleikunum verður Miklós
Dalmay, eiginmaður Editar.
Karlakórinn Þrestir var stofnað-
ur árið 1912 og er elsti karlakór á
Islandi. í honum eru nú um 60
söngmenn. Stjómandi kórsins er
Jón Kristinn Cortez, en píanóleikari
verður Sigrún Grendal.
Kórarnir hittust í fyrsta sinn fyr-
ir ári síðan og héldu þá tónleika í
Félagsheimilinu á Flúðum fyrir
fullu húsi. A efnisskrá tónleikanna
er að finna fjölbreytta tónlist, inn-
lenda og erlenda.
Wex í Hinu
húsinu
HAMRABORGARHÓPURI
NN heldur sína árlegu listahá-
tíð, wex’99 á laugardaginn á
Kakóbarnum Geysi í Hinu
húsinu.
Hátíðin hefst kl. 15 og lýkur
um kl. 18. Meðlimir hópsins
munu kynna þá list sem þeir
hafa framið frá síðustu hátíð,
sýna myndverk, lesa ljóð og
smásögur, leika frumsaminn
leikþátt og að lokum mun
hljómsveitin Tvö dónaleg
haust halda tónleika. Að hópn-
um og hljómsveitinni standa
Guðmundur I. Þorvaldsson,
Hörður V. Lárusson, Ómar Ö.
Magnússon, Sigfús Ólafsson,
Skúli M. Þorvaldsson og Stef-
án og Tryggvi M. Gunnars-
synir.
LISTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GÍTARDÚETTINN Duo-de-mano - Hinrik Bjarnason
og Rúnar Þórisson.
Gítartónleikar
Gítardúettinn Dou-de-mano
leikur á laugardaginn kl. 17 í
Hveragerðiskirkju og í Njarð-
víkurkirkju fimmtudaginn 18.
febrúar. Dúettinn skipa gítar-
Ieikararnir Hinrik Bjarnason
og Rúnar Þórisson.
Á tónleikunum verður flutt
suður-amerísk tónlist, m.a.
verk eftir argentínska tón-
skáldið Astor Piazzolla (f.
1921, d. 1992), Kúbverjan Leo
Brouwer (f. 1939) og Celso
Machado (f. 1953) frá Brasilíu.
Gítardúettinn Duo-de-mano
hefur starfað með hléum síðan
síðla árs 1994 og leikið við ým-
is tækifæri, á tónleikum og í
sjónvarpi. Þeir Rúnar og Hin-
rik luku báðir einleikara- og
kennaraprófi frá Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar
árið 1989 en stunduðu að því
búnu framhaldsnám erlendis.
Hinrik lauk prófi frá Tónlist-
arháskólanum í Aachen í
Þýskalandi árið 1994 og auk
framhaldsnáms í klassískum
gítarleik lauk Rúnar prófi frá
tónvísindadeild Háskólans í
Lundi í Svíþjóð árið 1993. Þeir
hafa báðir sótt námskeið
þekktra gítarkennara og kom-
ið fram heima og erlendis.
Auk hljóðfæraleiks starfa
Hinrik og Rúnar við gítar-
kennslu í tónlistarskólum í
Reykjavík og nágrenni.
--------------
V atnslitamyndir
í Venusi
Laugardaginn 13. febrúar mun
Þorsteinn S. Guðjónsson opna
sýningu sína á fimm vatnslita-
myndum í sýningarsal Venusar-
hópsins að Súðarvogi 16. Þetta
eru myndir sem hann gerði árið
1996 en þetta er í fyrsta skipti
sem þær eru hafðar til sýnis. Eiga
þær það allar sammerkt að fyrir-
myndir verkanna eru fengnar úr
íþróttasíðum dagblaðanna. Opn-
unartími sýningarinnar er frá kl.
14 til 18 um helgar en frá kl. 17 til
19.30 á virkum dögum. Sýningin
stendur í tvær vikur og lýkur
henni 27. febrúar.
Útsölulok
iaugardaginn 13. febrúar
- 0*5 0*3 óO-jf sófor, mottur, stðlar,
matorstelf, kommóðor, leikföng " _ ' ' ...'
ufSö jfOK myndorammor, giös, skótar,
Aitor vöfur sem ekki ert: ð OtsDiu eru með 15% ofsfaeúí
habitat
KRtNGLUNffl
Að lifa
lífinu í lit
KVIKMYNPIR
Háskólabfó
PLEASANTVILLE
'k'kV.2
Lrikstjórn og handrit: Gary Ross.
Aðalhlutverk: Tobey Maguire,
Reese Witherspoon, Jeff Daniels,
Joan Allen, William H. Macy og
J.T Walsh. New Life Cinema
1998.
LITLI bandaríski fyrirmyndar-
bærinn Pleasantville er hjarta
bandarískra gilda sjötta áratug-
arins, þar sem vísitölufjölskyldan
brosandi blómstar í öllum sínum
höftum og ómannlega púritan-
isma. Það er ekki fyrr en böm
nútímans, systkinin David og
Jennifer, verða hluti af bæjar-
samfélaginu að undarlegustu
hlutir fara að gerast; fólk lifnar af
doðanum og fer að lifa lífinu í lit.
Þessi fallega kvikmynd hefur
að baki sér mjög skemmtilega
hugmynd sem er vel útfærð, alla
vegana til að byrja með. Hug-
myndin býður upp á marga
möguleika á skemmtilegum og
fyndum atriðum sem leik-
stjóri/handritshöfundur nýtir
sér til fullnustu. Það er alveg
yndislegt atriðið þegar mamm-
an fer í bað og uppgötvar sjálfa
sig. Myndin er óður til lífsins; að
njóta alls þess yndislega og un-
aðslega sem það hefur upp á að
bjóða, en sem maður á til að
taka sem sjálfsögðum hlut. Hún
er líka óður til mannverunnar;
að vera maður sjálfur, leyfa til-
flnningum að flæða óheft og
njóta frelsisins sem öllum ætti
að vera gefið; að hugsa og segja
það sem manni finnst, en ekki
það sem náunganum líkar.
En af hverju, af hverju og af
hverju er verið að gera
skemmtilega og fallega ævin-
týramynd til þess eins að eyði-
leggja hana með því að svipta
hana ævintýraljómanum? Er
það ekki einum of dæmigert að
David þarf að fara fyrir dóm,
þar sem hann fær tækifæri til að
útskýra hvemig í öllu liggur, og
þar með svipta söguna dulúðinni
og furðulegheitin aðdráttarafl-
inu? Kannski er það eins gott
því við áhorfendur erum svo vit-
lausir að við hefðum annars ekki
skilið kvikmyndina. Eða hvað?
Tobey Maguire er hreint
heillandi í aðalhlutverkinu með
sína brostnu rödd og gelgjulega
útlit. Leikarnir em reyndar allir
skemmtilegir og það er gaman
að sjá J.T. Walsh, en þetta hlýt-
ur að hafa verið eitt af hans allra
seinustu hlutverkum. Einnig er
William H. Macy óborganlegur
vísitölupabbi sem á mjög bágt
þegar lífið tekur örlitlum breyt-
ingum.
Pleasantville er um margt
ágæt kvikmynd, bráðíyndin á
köflum, vel leikin og skemmti-
leg. Og þið sem búið yfir nægu
æðruleysi til að láta tala smá
niður til ykkar munið sjálfsagt
skemmta ykkur bráðvel.
Hildur Loftsdóttir
MULTI
MS) ðÓSAaERJúM.
íBJTÍNOG
annAsn&MfDtiw
Stöndum vörð um heiísuna
í vetrarkuldanum
C-500, MULTI VIT & SÓLHATTUR
Þrír öflugir máttarstólpar sem saman byggja upp varnir líkamans, auka þol og stuðla að
hreysti. Multi Vit inniheldur helstu vítamín og steinefni. Saman auka þessi efni líkamlegt
og andlegt starfsþrek. C-vítamín er tekið aukalega í kuldatíð. Nóbelsverðlaunahafinn
Linus Pauling ráðlagði öllum að tryggja sér ávallt nægilegt C-vítamín. Sólhattur er einhver
vinsælasta og mest notaða lækningajurt víða um heim, ekki síst á norðlægum slóðum,
þar sem vetrarhörkur herja á heilsu manna.
Gilsuhúsið
Skólavörðustlg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagötu, Akureyri