Morgunblaðið - 12.02.1999, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Tónleikar
til styrktar
Operustúdíói
Austurlands
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
TÓNLISTARFÉLAG Austur-Hér-
aðs gengst fyrir tónleikum til
styrktar Öperustúdíói Austurlands.
Tónleikamir verða í Egilsstaða-
kirkju kl. 17 á morgun,laugardag.
Óperustúdíó Austurlands var
stofnað sl. haust, í stjóm þess er
tónlistarfólk víða af Austurlandi og
er Keith Reed listrænn stjórnandi
þess. Fyrsta verk Óperustúdíósins
verður Töfraflautan eftir W.A.
Mozart en stefnt er að því að setja
hana upp í júní nk. A tónleikunum á
laugardaginn munu Signý Sæ-
mundsdóttir sópransöngkona, Þor-
geir Andrésson tenór og Keith
Reed bassabaríton syngja óperuar-
íur, aríur og dúetta úr óperettum
og íslensk sönglög. Aðgangseyrir
mun renna til uppsetningar á
Töfraflautunni.
---------------
Bókmennta-
felagið efnir
til lærdóms-
námskeiðs
BÓKMENNTAFÉLAGIÐ efnir í
febrúar og mars til fimm kvölda
lærdómsnámskeiðs tengt efni bók-
arinnar „Um uppmna dýrategunda
og jurta“ eftir Þoi-vald Thoroddsen.
Leiðbeinandi á námskeiðinu
verður Steindór J. Erlingsson, en
hann undirbjó útgáfu bókarinnar
og ritaði formála.
Útkoma „Uppmna tegundanna"
eftir Charles Darwin árið 1859
leiddi til mikillar hugarfarsbreyt-
ingar í Evrópu og Ameríku. Á lær-
dómsnámskeiðinu verður leitast við
að svara spumingunni; hvaða áhrif
hafði kenningin á íslandi? með því
að skoða hugmyndir Benedikts
Gröndals, Þorvaldar Thoroddsen
og Ágústs H. Bjamasonar um
Darwin og þróunarkenninguna.
Lærdómsnámskeið Bókmennta-
félagins er nýlunda í starfí félags-
ins, sem stofnað var 1816, en Lær-
dómsrit þess era orðin 38.
Inez van Lamsweerde sýnir ljósmyndir í Listasafni íslands
Sjálfsmyndir
í svörtu, hvítu
og rauðu
. 'c / " , l'-'A&' '' \
■ . . ......
■ ■ ; . ■
Morgunblaðið/Ásdís
ÞEIR sem sitja fyrir á myndum hollensku listakonunnar Inez van
Lamsweerde, sem nú má sjá á Listasafni Islands, eru allir nákomnir
ættingjar og vinir hennar. Á veggnum á bak við Iistakonuna má t.d.
sjá portrett af móður hennar.
„ÉG vinn bæði í tísku- og lista-
heiminum og sundurgreini þetta
tvennt ekki svo mikið. Ég lít
fremur á það sem tvenns konar
samhengi en tvo ólíka heima.
Sumt á einfaldlega betur heima
uppi á vegg í galleríi og annað
lítur betur út á síðum tískutíma-
rita,“ segir hollenska listakonan
Inez van Lamsweerde, en sýning
á tíu ljósmyndum hennar verður
opnuð í Listasafni Islands í kvöld
kl. 20. Hún segir líka að með því
að standa á milli þessara tveggja
heima - eða í þeim báðum - sé
hún hvorugum þeirra háð og inn-
blásturinn sé í báðar áttir.
Hún hefur unnið mikið við
tískuljósmyndun á undaniornum
árum og í hinum listrænni ljós-
myndum sínum vinnur hún
gjarnan með fmyndir tískuheims-
ins. Myndaröðin sem nú er til
sýnis á veggjum Listasafnsins
ber yfírskriftina „Ég“ eða „Me“.
Þar gefur að líta nokkra einstak-
linga; nána vini og ættingja lista-
konunnar og á tveimur mynd-
anna er hún reyndar sjálf. Öllum
hefur þeim verið stillt upp á svip-
uðum bakgrunni, iiggjandi á
mjóu og stuttu rúmi með hvítan
kodda undir höfðinu. Andlit
þeirra allra hafa verið förðuð
með brúngylltum farða og flest
eru þau í svörtum, hvítum eða
rauðum fötum eða með svart
teppi yfir sér. Við gerð verkanna
notaði hún Polaroid skyndimynd-
ir, sem hún stækkaði svo upp í
rúmlega lfkamsstærð. Fyrirsæt-
urnar unnu með henni að vali og
frágangi myndanna.
Spurð um litavalið segir hún
að fyrir sér séu svartur, hvítur
og rauður allra nauðsynlegustu
iitirnir, þeir sem hafí langmesta
þýðingu. „Sá rauði er tengdur
blóði, ást og líkamsvökvunum,
hvítt táknar hreinleikann - og
svart...“ segir hún og hikar eitt
augnablik, „...svart. er bara
svart!“ Brúni farðinn er þannig
til kominn að hún vildi að þau
væru öll jöfn - og svo vísar hann
líka til dauðans, iíkt og egypsk
dauðagríma.
Hræðslan við að missa
„Allt eru þetta sjálfsmyndir,“
segir Inez van Lamsweerde en
þó segir hún þær ekki beinlínis
vera af henni sjálfri. „Þær fjalla
meira um kraft mannsandans og
um huga þessara einstaklinga.
Lfkaminn er mjög lítið áberandi
og hefur litla þýðingu á myndun-
um, sem sýnir að fókusinn er á
huganum. Þannig er lfkaminn
einungis ílát eða hylki, tímabund-
inn dvalarstaður mannsandans.
Andlitið er í brennidepli. „Til-
gangur minn með þessu öllu var
að einbeita mér svo algerlega að
manneskjunni sem ég var að taka
myndir af, að ég myndi fá sjálfa
mig eða hiuta af mér til baka frá
henni gegnum myndavélina, því
ljósmyndun er jú endurkast,“
segir hún.
Listakonan vísar til hollensku
portrettmyndahefðarinnar frá
17. öld, þegar portrettmyndir
voru pantaðar hjá málurum til
þess að varðveita minningu og
nærveru látinna eða íjarstaddra
ástvina. Með þessu móti fái hún
þessar manneskjur sem eru
henni svo kærar til þess að vera
með sér að eilífu, líka handan
tímans og dauðans. „Því meira
sem maður elskar einhvern, þeim
mun hræddari er maður við að
missa hann.“
Björk er hreint ótrúleg
Hingað til Iands kemur sýning-
in frá Matthew Marks Gallery í
New York, einu helsta Ijós-
myndagallerfinu þar í borg. Sýn-
ingin í Listasafninu stendur fram
til 14. mars nk., þaðan fer hún til
Parísar og síðar á árinu til Ham-
borgar.
Inez van Lamsweerde er frá
Amsterdam en hefur búið og
starfað í New York síðastliðin
fímm ár. Þetta er í fyrsta sinn
sem hún kemur til íslands. Hún
segir þó að einn íslendingur hafi
haft mikil áhrif á hana en það sé
Björk Guðmundsdóttir. „Ég tók
myndir af henni sem verða utan
á nýrri heiidarútgáfu af tónlist-
armyndböndum hennar. Björk er
hreint ótrúleg og það er óhætt að
segja að hún sé sú manneskja
sem hefur haft hvað mest áhrif á
mig. Hún er greind og snjöll,
mjög opin og gædd miklu inn-
sæi,“ segir Iistakonan að lokum.
Opið laugardcig
frá Id. 10-15
r Við styðjum við bakið á þér! ^
Elskendin; Játið thruanhm
reetast á amerísku lúxus-
dijnunum frá
Seeúy
'4i'arcal
Mckmúnusardagurinn
Xö Á) afsláttur
aföUum dijnmn í tUefhi
Valcn tín usanlagsins
GUdir aðeins 12. og 13. febrúar
Barnatón-
leikar í
Möguleik-
húsinu
MÖGULEIKHÚSIÐ og
Kvennakór Reykjavíkur
standa íyi-ir tvennum barna-
tónleikum í Möguleikhúsinu
við Hlemm, laugardaginn 13.
febrúar kl. 14 og kl. 16.
Það eru 30 félagar úr
Kvennakómum sem syngja
lög fyrir böm úr kvikmyndum
og söngleikjum sem flest börn
kannast við, eins og Konungi
ljónanna, Hundalífí, Mary
Poppins, Tónaflóði, Skógarlífi
og Mulan. Undirleikari er Þór-
hildar Bjömsdóttur. Það em
þær systur Snuðra og Tuðra
sem verða kynnar á tónleikun-
um og munu þær einnig syngja
nokkur lög. Stjórnandi
Kvennakórs Reykjavíkur er
Sigrún Þorgeirsdóttir.
Tónleikamir em liður í
þeirri áætlun Möguleikhússins
að bjóða upp á sem fjöl-
breyttasta menningardagskrá
fyrir börn og fjölskyldufólk og
verða því ekki eingöngu með
barnaleiksýningai- heldur
einnig tónleika og annað efni
sem sérstaklega er sniðið að
þörfum barna.